Morgunblaðið - 24.07.1994, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 24.07.1994, Blaðsíða 10
10 SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Vanefndir á skilnaóarsamningi og meint slæleg embættisfærsla olli samanlagt veikari málsaðila í skilnaöarmáli miklu fjárhagstjóni. Guðrún Guólaugsdóttir hefur kynnt sér málið og komist að því að þetta getur gerst þótt hjón séu löglega gift, eigi allar eignir sameiginlega og hafi ekki gert með sér kaupmála AÐ HEFUR víða komið fram í ræðu og riti að hjónaband veiti fólki til muna meiri réttindi ef til sambúðarslita kemur en óvígð sambúð. Sé ekki gerður kaupmáli gildir helminga- skiptareglan við slit hjúskapar. Við fyrstu sýn skyldi maður því ætla að fátt eitt geti orðið til þess að valda fólki vandræðum hvað eignaskipti snertir þegar svo er í pottinn búið. Ekki er þó allt sem sýnist. Það er til í dæminu að pottur sé brotinn í þessum efnum og hægt sé að finna smugur í lög- um til veikja annan aðilann. í des- ember sl. var til dæmis loks til lykta Ieitt eignaskiptamál sem reis út af hjónaskilnaði sem varð í febr- úar 1991. Hjónin sem um ræðir bjuggu úti á landi. Þau höfðu ver- ið gift í tæp þijátíu ár og börn þeirra voru öll orðin lögráða þegar til skilnaðarins dró. Mjög sýnist hafa hallað á konuna í þessum málarekstri og vill hún segja hér sögu sína, ef það mætti verða til þess að af henni mætti lærdóm draga. Síðustu tíu hjónabandsárin voru mér erfið,“ segir konan, sem hér lætur ekki nafn síns getið. „Mér fannst eignmaðurinn orðinn of óreglusamur og jafnvel ofbeldis- gjarn á stundum til þess að ég gæti búið við slíkt öllu lengur, þess vegna ákvað ég að yfirgefa heimilið og varð að gera það í nokkurri skyndingu. Eg fór alls- laus til systur minnar. Þar sem ég hafði ekki önnur föt en þau sem ég stóð í reyndi ég ítrekað að ná í önnur ígangsföt og fleiri persónu- lega hluti. Það tókst með harðfylgi að fá sumt af þessu en flest varð ég láta eiga sig. Þessar heimsókn- ir voru mér dýrkeypiar, það sá stundum á mér eftir þær, um það hef ég vitnisburði og vottorð. Bíll heimilisins var tekinn af mér. Eiginmaðurinn hafði auk hans yfír að ráða bíl frá fyrirtæk- inu sem hann vann hjá. Til þess að geta sótt vinnu, en ég var þá í hálfu starfi hjá opinberri stofn- un, fékk ég fáum dögum seinna lán í banka til þess að kaupa mér gamlan bíl. Um sama leyti flutti ég í leiguherbergi í kjallara í öðru sveitarfélagi. Þá var enn langt í það að gengið yrði frá skilnaði að borði og sæng. Ég sótti að vísu um skilnað strax þegar ég fór að heiman en eiginmaðurinn tafði málið þar til um vorið að skilnaður- inn fékkst loks í gegn. Þá var gerður eignaskiptasamningur sem kvað á um að eiginmaðurinn fengi að búa í stóru einbýlishúsi sem við áttum saman. Enginn kaup- máli hafði verið gerður og því átt- um við hjónin saman til helminga allar eigur nema einn hektara sumarbústaðalands sem foreldrar mínir höfðu gefið mér og þinglýst á mitt nafn. Hlunnfarin í innbússkiptum Eiginmaðurinn greiddi mér samkvæmt eignaskiptasamningn- um 20 þúsund krónur í leigu fyrir minn hiut í fimm herbergja húsi en sjálf greiddi ég þá 35 þúsund krónur fyrir litla tveggja herbergja íbúð sem ég tók á Ieigu um þetta leyti. Einnig var í samningnum ákvæði um að eiginmaðurinn greiddi mér 20 þúsund króna líf- eyri á mánuði í eitt ár. Einnig var ákvæði í samningnum um að skipta ætti innbúi að jöfnu sam- kvæmt verðmætum. Enginn utan- aðkomandi aðili, svo sem lögfræð- ingur eða maður frá fógeta var til staðar við skiptin og svo fór að ég bar þar skarðan hlut frá borði. Eftir að gengið var frá skilnaði að borði og sæng og eignaskipta- samningur var gerður andaði ég léttar og fannst nú mál mín kom- in í örugga höfn. Bjóst ég við að fljótlega yrði hús okkar hjóna og bíllinn selt, svo sem ákvæði sögðu fyrir um í eignaskiptasamningn- um, og við gætum hvort um sig fest kaup á íbúð. Kaupendur að húsinu voru enda í sjónmáli þegar eignaskiptasamningurinn var gerður. En margt fer öðruvísi en ætlað er. Við skilnað að borði og sæng voru enn fatnaður og margvíslegir persónulegir munir úr minni eigu inni í sameiginlegu húseigninni, svo sem ættartala mín og fleira sem mér lék mikill hugur á að ná í. Mér hafði ekki tekist að nálgast þetta, því skipt hafði verið um læsingu-. Það var gert þótt í eigna- skiptasamningum væri ákvæði um að ég hefði rétt til að fylgjast með húseigninni og sýna hana vegna sölu hennar svo og að þrífa hana fyrir afhendingu hennar ef ég ósk- aði eftir. Eftir að hafa ítrekað gert tilraunir til að fá umrædda persónulega hluti úr læsta húsinu og ekki tekist það, ákvað ég að reyna að leita réttar míns hjá fóg- eta. Lögfræðingur minn, sem þá var, lagði fram innsetningar- beiðni. Henni var ekki sinnt þá og heldur ekki í þau fimm skipti sem hún var ítrekuð síðar. Síðustu tvö skiptin fór ég með ítrekun innsetn- ingarbeiðninnar beint til fógeta en allt kom fyrir ekki. Fulltrúi fógeta reyndi að vísu funda um málið með okkur hjónum og lögfræðing- um okkar en sá fundur var með öllu árangurslaus. Ég hafði sterk- lega á tilfinningunni að það skipti máli í þessu sambandi að náinn ættingi eiginmanns míns var starfsmaður embættisins. Píslarganga milli lögmanna Skömmu eftir að innsetningar- beiðni mín var fyrst lögð fram varð lögfræðingur minn gjaldþrota og varð að hætta störfum. Hann hafði unnið vel og mér var eftirsjá í honum. Ég leitaði til annarra lögfræðinga en það reyndist þrautaganga. Sá fyrsti sem ég talaði við starfar í sveitarfélaginu þar sem ég bjó. Hann treysti sér ekki til að taka að sér málið, hann

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.