Morgunblaðið - 24.07.1994, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1994 33
_________BRÉF TIL BLAÐSIIMS_______
Um „ættleiðingu“
hvala og fleira
Lokað mánudag
Utsalan hefst á þriðjudag
i Polarn&Pyref
, _____KRINGLUNNI8-12 J_ .
Frá Magnúsi H. Skarphéðinssyni:
NÝVERIÐ hringdi hlustandi nokkur
í símatíma einnar útvarpsstöðvarinn-
ar og hellti úr skálum fordóma sinna
og ranghugmynda yfir okkur hvala-
vini heimsins. Hann átti vart orð til
að lýsa hneykslan sinni á „þeirri
heimsku" að til væri „svo vitlaust
fólk“ úti í heimi að það vildi ættleiða
hvali, af væntanlega einhveijum ann-
arlegum hvötum. Enda fylgdi löng
og stóryrt ræða í kjölfar hneykslun-
arinnar á hversu miklir bjánar við
værum. Svo mjög, að hægt væri að
telja okkur trú um að hægt sé að
ættleiða hvali syndandi um í heims-
höfunum. Og ekki stóð á undirtekt-
um stjórnanda þáttarins við þessari
ræðu hins upplýsa, mannúðarfulla
og orðprúða hlustanda. Honum
fannst þessar ættleiðingar og annað
í þeim dúr „vera komið langt út í
öfgar“ og ótrúlegt að fólk legði þessa
áherslu á hvali en ekki einhver „þarf-
ari mál“ eins og hann orðaði það.
Skrök
Það er svosem ekki að sökum að
spyrja eftir að hinn keypti skáldaleyf-
isheimilda„kvikmyndagerðarmaður“
Magnús Guðmundsson framleiddi
„heimildar“myndirnar um okkur
hvalavini allra landa. Þessum sjálfsá-
varpaða kvikmyndagerðarmanni
tókst með dyggri aðstoð Ríkissjón-
varpsins og peningum þess og hinna
aðskiljanlegustu hagsmunaaðila í
sjávarútvegi hér á landi að skrökva
því að þjóðinni að bróðurpartur nátt-
úruverndarsamtaka heimsins gengi
út á að selja fólki ættleidda hvali í
heimshöfunum fyrir stórfé.
Og það er alveg sama hvað við
íslenskir hvalavinir höfum talað oft
og mikið við Ríkissjónvarpið og
fréttastofu þess til að leiðrétta þessa
ótrúlegu rangtúlkun á málinú. Allt
kemur fyrir ekki. Staðreyndir máls-
ins ná alls ekki þar í gegn, hvernig
svo sem á því stendur. Þessi bilaða
og ofur-þjóðrembublindafréttastofa
lýtur einhveijum lögmálum sem litla
sem enga samsvörun eiga með al-
mennri fréttaöflun og frásögnum al-
vöru fréttamiðla í veröldinni.
Staðreyndirnar um þessa „ættleið-
ingu“ hvala eru allt aðrar en þær
sem Ríkissjónvarpið hefur greitt
þessum heiðursfyrirlesara hjá Klux
Klux Klan samtökunum í Ameríku
fyrir (Magnús Guðmundsson var
þar).
Táknrænt
í fyrsta lagi þá er allt það fólk
sem „ættleitt" hefur hvali eða sem
hefur greitt einhveijum náttúru-
vemdarsamtökum fé fyrir meinta
ættleiðingu hvala sér fullvisst um
hvað það er að gera. Það veit fullvel
að það er í venjulegustu merkingu
þess hugtaks ekki að ættleiða einn
eða neinn hval. Þessar staðreyndir
ættu að vera augljósar öllum þeim
sem aðeins vilja vita af þeim, þar á
meðal fréttastofu Ríkissjónvarpsins.
Því þegar flest eða öll þessara „ætt-
leiðingarsamtaka" fyrir hvali heims-
ins eru að kynna þessa fjársöfnunar-
aðferð sína eða aðrar slíkar fyrir
stuðningsmönnum sínum eða öðrum
sem hyggjast styðja málefnið þá er
öllum og alltaf sagt frá því að ætt-
leiðingin sem slík sé aðeins táknræn.
Gagnasafn
Morgnnblaðsins
Allt efni sem biitist í Morgun-
blaðinu og Lesbók verður fram-
vegis varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskil-
ur sér rétt til að ráðstafa efninu
þaðan, hvort sem er með endur-
birtingu eða á annan hátt. Þeir
sem afhenda blaðinu efni til
biitingar teljast samþykkja
þetta, ef ekki fylgir fyrirvari
hér að lútandi.
Utsala
ÆTTLEIÐING hvala er aðferð til að safna fé til hvalaverndar.
Viðkomandi muni mjög líklega aldrei
sjá hvalinn og hvalurinn aldrei ætt-
leiðara sinn, og hvalurinn mun í of-
análag mjög líklega aldrei vita af
þessum meintu tilfínningatengslum
við einhvern vin sinn í mannheimi.
En féð fari til baráttu fyrir þessum
hval sem öðrum, til að stöðva hvala-
slátrun heimsins sem meira en nauð-
synlegt er í dag.
Huglæg vinátta
Og þó fólk fái mynd af hinum
„ættleidda" hval sem það lætur fé
af hendi rakna fyrir, þá er því líka
sagt að þessvegna geti einhver annar
hvalavinur heimsins verið búinn að
ættleiða þetta tiltekna dýr, án hinnar
minnstu hugmyndar þeirra um mál-
ið, eða öfugt. En það bara skipti alls
engu máli, þar sem bæði er að per-
sónuvináttan við eitthvert tiltekið
hvaldýr í hafínu er nánast eingöngu
huglæg og úr fjarlægð í gegnum
myndina af sporði einhvers tiltekins
dýrs sem hinn glaði hvalavinur og
ættleiðari fær til minningar um fjár-
framlag sitt. Og að ættleiðingin sem
slík sé eingöngu aðferð til að safna
fé til þessarar baráttu gegn slátrun
þeirra og til að opna augu annarra
fyrir nauðsyn þessarar stanslausu
baráttu við slátrara heimsins.
Dýraeintök
í annan stað þá er ég sem aðeins
einn af mjög mörgum almennum
náttúruvemdarsinnum heimsins sem
eru þeirrar skoðunar að meira en í
lagi sé að safna fé hér í þessum
harða heimi dráps og annarrar mis-
notkunar á dýrum (og reyndar mönn-
um líka) með huglægri ættleiðingu
á hvölum eða öðrum tignarlegum
dýraeintökum sköpunarverksins. Ef
hins vegar væri um alvöru ættleið-
ingu að ræða með því að fanga og
fangelsa einhverja hvali og byggja
einhveijar hvalasundlaugar fyrir þá
: bakgarðinum hjá einhveijum vel
stæðum Ameríkananum eða bara
öðrum smáborgurum, þá eru allir
alvöru hvalavinir algerlega á móti
því. (Þessu hafa margir Islendingar
haldið fram að við værum hlynntir.
- Þökk sé ríkisrekna Sjónvarpinu).
Þeir peningar sem þar ynnust hugs-
anlega myndu seint eða aldrei bæta
Sjábu hlutina
í víbara samhengi!
fyrir þjáningu hins ættleidda dýrs
að okkar mati.
En um hinar einlægu og huglægu
ættleiðingar hvala held ég að allir
hljóti að geta verið sammála um að
sé einhver langgeðslegasta aðferðin
til að safna fé til náttúruverndar.
Eigi á annað borð að styðja slíka
starfsemi - sem ég veit að margir
hér á landi telja minni en enga nauð-
syn á. Einkum og sér í lagi stuði það
hagsmuni þeirra sjálfra eða aðrar
misskildar þjóðrembuhugmyndir hér
á landi um „hvað sé íslensku þjóð-
inni fyrir bestu“ nú um stundir.
MAGNÚS H. SKARPHÉÐINSSON,
talsmaður Hvalavinafélags íslands.
20-70% afsláttur af öllum vörum
Glæsilegir sumar- og heilsársjakkar í feröalagiö.
Grípið tækifæriö fyrir verslunarmannahelgina.
Fjölbreytt úrval
Dæmi um verð:
Heilsárs regnþéttir jakkar
§ kr. 16.900,-nú kr. 9.900,-
iJÍV í .• ^^ilÉÍpjlÍ Kápur kr. 18.900,- nú kr. 9.900,-
1 Jakkar kr. I 1.900,- nú kr. 3.900,-
Bj Svartir ullarjakkar
^ ‘V kr. 16.900,- nú kr. 4.900,-
^HMSIÐ
Laugavegi 21, si'mi 91 -25580
fHftgtntfrljifeife
-kjarni málsins!
-kjarni málsins!
OPIÐIDAG SUNNUD. KL. 15-18
UTSALA
GRÍPTU TÆKIFÆRIÐ
30-50% afsláttur af öllum vörum
í versluninni
50% útborgun, eftirstöðvar lánaðar í
6 mánuði vaxtalaust
Parsem
vandlátir
versla
PELSINN
Kirkjuhvoli ■ sími 20160_