Morgunblaðið - 24.07.1994, Page 33

Morgunblaðið - 24.07.1994, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1994 33 _________BRÉF TIL BLAÐSIIMS_______ Um „ættleiðingu“ hvala og fleira Lokað mánudag Utsalan hefst á þriðjudag i Polarn&Pyref , _____KRINGLUNNI8-12 J_ . Frá Magnúsi H. Skarphéðinssyni: NÝVERIÐ hringdi hlustandi nokkur í símatíma einnar útvarpsstöðvarinn- ar og hellti úr skálum fordóma sinna og ranghugmynda yfir okkur hvala- vini heimsins. Hann átti vart orð til að lýsa hneykslan sinni á „þeirri heimsku" að til væri „svo vitlaust fólk“ úti í heimi að það vildi ættleiða hvali, af væntanlega einhveijum ann- arlegum hvötum. Enda fylgdi löng og stóryrt ræða í kjölfar hneykslun- arinnar á hversu miklir bjánar við værum. Svo mjög, að hægt væri að telja okkur trú um að hægt sé að ættleiða hvali syndandi um í heims- höfunum. Og ekki stóð á undirtekt- um stjórnanda þáttarins við þessari ræðu hins upplýsa, mannúðarfulla og orðprúða hlustanda. Honum fannst þessar ættleiðingar og annað í þeim dúr „vera komið langt út í öfgar“ og ótrúlegt að fólk legði þessa áherslu á hvali en ekki einhver „þarf- ari mál“ eins og hann orðaði það. Skrök Það er svosem ekki að sökum að spyrja eftir að hinn keypti skáldaleyf- isheimilda„kvikmyndagerðarmaður“ Magnús Guðmundsson framleiddi „heimildar“myndirnar um okkur hvalavini allra landa. Þessum sjálfsá- varpaða kvikmyndagerðarmanni tókst með dyggri aðstoð Ríkissjón- varpsins og peningum þess og hinna aðskiljanlegustu hagsmunaaðila í sjávarútvegi hér á landi að skrökva því að þjóðinni að bróðurpartur nátt- úruverndarsamtaka heimsins gengi út á að selja fólki ættleidda hvali í heimshöfunum fyrir stórfé. Og það er alveg sama hvað við íslenskir hvalavinir höfum talað oft og mikið við Ríkissjónvarpið og fréttastofu þess til að leiðrétta þessa ótrúlegu rangtúlkun á málinú. Allt kemur fyrir ekki. Staðreyndir máls- ins ná alls ekki þar í gegn, hvernig svo sem á því stendur. Þessi bilaða og ofur-þjóðrembublindafréttastofa lýtur einhveijum lögmálum sem litla sem enga samsvörun eiga með al- mennri fréttaöflun og frásögnum al- vöru fréttamiðla í veröldinni. Staðreyndirnar um þessa „ættleið- ingu“ hvala eru allt aðrar en þær sem Ríkissjónvarpið hefur greitt þessum heiðursfyrirlesara hjá Klux Klux Klan samtökunum í Ameríku fyrir (Magnús Guðmundsson var þar). Táknrænt í fyrsta lagi þá er allt það fólk sem „ættleitt" hefur hvali eða sem hefur greitt einhveijum náttúru- vemdarsamtökum fé fyrir meinta ættleiðingu hvala sér fullvisst um hvað það er að gera. Það veit fullvel að það er í venjulegustu merkingu þess hugtaks ekki að ættleiða einn eða neinn hval. Þessar staðreyndir ættu að vera augljósar öllum þeim sem aðeins vilja vita af þeim, þar á meðal fréttastofu Ríkissjónvarpsins. Því þegar flest eða öll þessara „ætt- leiðingarsamtaka" fyrir hvali heims- ins eru að kynna þessa fjársöfnunar- aðferð sína eða aðrar slíkar fyrir stuðningsmönnum sínum eða öðrum sem hyggjast styðja málefnið þá er öllum og alltaf sagt frá því að ætt- leiðingin sem slík sé aðeins táknræn. Gagnasafn Morgnnblaðsins Allt efni sem biitist í Morgun- blaðinu og Lesbók verður fram- vegis varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskil- ur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endur- birtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til biitingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Utsala ÆTTLEIÐING hvala er aðferð til að safna fé til hvalaverndar. Viðkomandi muni mjög líklega aldrei sjá hvalinn og hvalurinn aldrei ætt- leiðara sinn, og hvalurinn mun í of- análag mjög líklega aldrei vita af þessum meintu tilfínningatengslum við einhvern vin sinn í mannheimi. En féð fari til baráttu fyrir þessum hval sem öðrum, til að stöðva hvala- slátrun heimsins sem meira en nauð- synlegt er í dag. Huglæg vinátta Og þó fólk fái mynd af hinum „ættleidda" hval sem það lætur fé af hendi rakna fyrir, þá er því líka sagt að þessvegna geti einhver annar hvalavinur heimsins verið búinn að ættleiða þetta tiltekna dýr, án hinnar minnstu hugmyndar þeirra um mál- ið, eða öfugt. En það bara skipti alls engu máli, þar sem bæði er að per- sónuvináttan við eitthvert tiltekið hvaldýr í hafínu er nánast eingöngu huglæg og úr fjarlægð í gegnum myndina af sporði einhvers tiltekins dýrs sem hinn glaði hvalavinur og ættleiðari fær til minningar um fjár- framlag sitt. Og að ættleiðingin sem slík sé eingöngu aðferð til að safna fé til þessarar baráttu gegn slátrun þeirra og til að opna augu annarra fyrir nauðsyn þessarar stanslausu baráttu við slátrara heimsins. Dýraeintök í annan stað þá er ég sem aðeins einn af mjög mörgum almennum náttúruvemdarsinnum heimsins sem eru þeirrar skoðunar að meira en í lagi sé að safna fé hér í þessum harða heimi dráps og annarrar mis- notkunar á dýrum (og reyndar mönn- um líka) með huglægri ættleiðingu á hvölum eða öðrum tignarlegum dýraeintökum sköpunarverksins. Ef hins vegar væri um alvöru ættleið- ingu að ræða með því að fanga og fangelsa einhverja hvali og byggja einhveijar hvalasundlaugar fyrir þá : bakgarðinum hjá einhveijum vel stæðum Ameríkananum eða bara öðrum smáborgurum, þá eru allir alvöru hvalavinir algerlega á móti því. (Þessu hafa margir Islendingar haldið fram að við værum hlynntir. - Þökk sé ríkisrekna Sjónvarpinu). Þeir peningar sem þar ynnust hugs- anlega myndu seint eða aldrei bæta Sjábu hlutina í víbara samhengi! fyrir þjáningu hins ættleidda dýrs að okkar mati. En um hinar einlægu og huglægu ættleiðingar hvala held ég að allir hljóti að geta verið sammála um að sé einhver langgeðslegasta aðferðin til að safna fé til náttúruverndar. Eigi á annað borð að styðja slíka starfsemi - sem ég veit að margir hér á landi telja minni en enga nauð- syn á. Einkum og sér í lagi stuði það hagsmuni þeirra sjálfra eða aðrar misskildar þjóðrembuhugmyndir hér á landi um „hvað sé íslensku þjóð- inni fyrir bestu“ nú um stundir. MAGNÚS H. SKARPHÉÐINSSON, talsmaður Hvalavinafélags íslands. 20-70% afsláttur af öllum vörum Glæsilegir sumar- og heilsársjakkar í feröalagiö. Grípið tækifæriö fyrir verslunarmannahelgina. Fjölbreytt úrval Dæmi um verð: Heilsárs regnþéttir jakkar § kr. 16.900,-nú kr. 9.900,- iJÍV í .• ^^ilÉÍpjlÍ Kápur kr. 18.900,- nú kr. 9.900,- 1 Jakkar kr. I 1.900,- nú kr. 3.900,- Bj Svartir ullarjakkar ^ ‘V kr. 16.900,- nú kr. 4.900,- ^HMSIÐ Laugavegi 21, si'mi 91 -25580 fHftgtntfrljifeife -kjarni málsins! -kjarni málsins! OPIÐIDAG SUNNUD. KL. 15-18 UTSALA GRÍPTU TÆKIFÆRIÐ 30-50% afsláttur af öllum vörum í versluninni 50% útborgun, eftirstöðvar lánaðar í 6 mánuði vaxtalaust Parsem vandlátir versla PELSINN Kirkjuhvoli ■ sími 20160_

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.