Morgunblaðið - 24.07.1994, Page 36

Morgunblaðið - 24.07.1994, Page 36
36 SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Túrhilla Johansen kemur færandi hendi. í Galtalækur“ GALTALÆKJARMÓTIÐ verður haldið næstu verslunarmannahelgi og þar verður mikið um dýrðir eins og alltaf. Blaðamaður Morgunblaðs- ins heyrði út undan sér að þtjár þjóð- kunnar persónur væru þegar búnar að taka frá tjaldstæði og farnar að pakka niður í töskur fyrir helgina. Þær eru Bella, besti vinur barnanna, /fúrhilla Johansen, slökkviliðsfröm- uður og Bibba á Brávallagötunni, sem er nýkomin frá Flórída. Þær voru tekn- ar tali og spurðar um ástæður þess að þær ætluðu i Galtalæk um verslunarmannahelg- ina. Bella segist hafa farið þangað frá því löngu áður en hún fæddist, því henni finnst svo nauð- ■feynlegt að þama sé ein- hver stórkostleg fyrir- mynd annarra barna, eins og hún, svo þau verði ekki eins óþolandi pest og systir hennar sem er með unglingaveikina. Túrhilla Johansen sagðist ætla að kynna nýjustu uppfmningu sína, upp- blásinn ferðareykkyngjara, sem á að hanga í hvetju einasta tjaldi yfir helgina. „Og tað er svo grúvilegu gott at vera í Galtalækur, af tví tað er fimmtíu rennandi vatnssalerni um alla skógurinn - tað er munur en surnir!" Bibba þráir helst af öllu að gerast bindindisfrömuður, þess vegna missir hún ekki úr eina einustu verslunartnannahelgi í Galtalækjarskógi og sagðist ekki einu sinni ætla að taka vanillu- dropa með sér á svæðið. „Mér rennur kalt vatn milli bols og höfuðs þegar ég hugsa til hvað það er dásamlega rómantískt þama í skógarrjóðr- unum.“ Bibba á Brávallagötunni er rómantísk að eðlisfari. FÓLK í FRÉTTUM AFREKSMAÐUR „Engin ástæða til að sýn- ast meiri en maður er“ „FYRIR landsmótið voru flestir búnir að spá Gými fyrsta sætinu í A-flokki gæðinga en ég er ekk- ert viss um hvernig hefði farið ef ólukkuna með Gými hefði ekki borið að. Ég tel að allir sem koma með réttu hugarfari inn í úrslita- keppni eigi möguleika á sigri,“ segir Daníel Jónsson. Hann sat hestinn Dalvar frá Hrappstöðum og sigraði í A-flokki á nýafstöðnu landsmóti á Hellu. Daníel er að- eins 17 ára gamall og yngsti knapinn sem vinnur þetta afrek. Hann segist í raun ekki hafa búist við þessu í vor því Dalvar hafi ekki gengið heill til skógar lung- ann af vetrinum. „„Það hefði verið skemmtilegra að vinna landsmót undir öðrum kringumstæðum því klárinn var kominn í hörku gott form. En sigurinn er mér mikils virði,“ seg- ir Daníel og bætir við að hann mæti ekki með hann til leiks á Islandsmótinu um þessa helgi. Segir hann klárinn búinn að gera það gott og ekki sé ástæða til að fara með hann á fleiri mót að svo komnu. Auk þess sé hann betri í gæðingakeppni en íþróttakeppni. „Hann þarf meira rými og frelsi en leyft er í íþróttakeppnin/ii," segir Daníel og heldur áfram: „Það er allt óráðið með hvað gert verður við hann, hvort hann verð- ur seldur eða hvort ég kem til með að eiga hann áfram. Það hafa komið fyrirspurnir og jafnvel tilboð í hestinn en það er best að hafa sem fæst orð um upphæðir,“ segir Daníel með véfréttarsvip. Aðspurður um það hvernig til- finningar hafi bærst í brjósti hans við verðlaunaafhendinguna segir hann þetta ekki hafa verið ólíkt öðrum skiptum sem hann hafi þegið verðlaun. Tilfinningin hafi verið góð, hann hafi verið sáttur við sjálfan sig og hestinn og vissu- lega hafi hann hugsað til foreldra sinna, Jóns Alberts Sigurbjörns- sonar og Láru Guðmundsdóttur. „Þau eiga miklar þakkir skildar fyrir velgengni mína í hesta- mennskunni. Án þeirra aðstoðar stæði ég ekki í þessum sporum,“ segir Daníel. Daníel Jónsson keppir á landsmótinu ... ... og hampar síðan sigurlaununum. Daníel keppir nú í ungmenna- flokki á íslandsmótinu og að- spurður um það hvoit ekki væri frekar við hæfi að hann keppti við hina fullorðnu segir hann mun skemmtilegra að etja kappi við jafnaldrana.„Það er engin ástæða til að reyna að sýnast meiri en maður er,“ segir Daníel. HÁSKÓLABÍÓ SÍMl 22140 Háskólabíó Gestirnir vilja meira og því er veisluhöldum fram haldið. Nú er boðið uppá Brúðkaupsveisluna sem kvöldverð kl. 7 og miðnætursnarl kl. 11.10. FOLK Ánægður með lífið ► JIM Carrey sem var nánast óþekktur þar til hann sló í gegn í Ace Ventura: Pet Deteetive hefur sannarlega gert það gott í kvikmyndabransanum upp á síðkastið. Eftir 15 ára barning sem grínisti í veitingahúsum varð hann heimsþekktur 32 ára gamall fyrir hlutverk sitt í Ace Ventura, en myndin sem gerð var fyrir 15 milljónir dollara hefur þegar skilað um 75 millj- ónum dollara í aðgangseyri. Fyrir hlutverk sitt fékk Carrey 350 þúsund dollara, sem honum þótti allgott, og þegar hann samdi um næstu mynd, The Mask, fékk hann 100 þúsund dollurum meira. Jákvæð um- fjöllun um þá mynd á meðan hún var í framleiðslu varð til þess að umboðsmaður Carrey fór fram á eina milljón dollara fyrir næsta hlutverk sem stjarn- an tæki að sér, en það var í Dumb and Dumber. Þetta tóku framleiðendur myndarinnar ekki í mál og var þá þjarkað mikið um nokkur hundruð þús- und til eða frá. En einmitt á meðan á því stóð sló Ace Vent- ura eftirminnilega í gegn þrátt fyrir að myndinni hefði ekki verið spáð velgengni og þar með gjörbreyttist samningsstaða Carreys á einni nóttu. Framleið- endur Dumb and Dumber gerðu sér Ijóst að ný stórstjarna hafði skotist upp á stjörnuhimininn og vildu þess vegna alls ekki sleppa hendinni af leikaranum. Niðurstaðan varð sú að þeir samþykktu að greiða honum 7 milljónir dollara eða um hálfan milljarð ísl. króna fyrir hlut- verkið, og það er því ekki að ástæðulausu sem Jim Carrey er nokkuð ánægður með sjálfan sig þessa dagana.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.