Morgunblaðið - 24.07.1994, Síða 44
varða
víðtæk
fjármálaþjónusta
Landsbanki
íslands
Bankl allra landsmanna
FORGANGSPÓS TUR
UPPLÝSINGASÍMI 63 73 00
MORGUNBLADIB, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK
SlMI 691100, SlMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆH 85
SUNNUDAGUR 24. JULI1994
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK
1.286 frá íslandi á Nordisk Forum ’94
Erlend fiskiskip kaupa kost frá Danmörku
Nýsjálensku kjöti
Hluti þátttakenda
á launum á meðan
umskipað í höfnum
um á meðan. Hafi íi'ármálaráðuneyt-
ið veitt samþykki fyrir því að þeir
starfsmenn sem heyrðu undir það
fengju greidd laun og einnig félags-
málaráðuneyti.
Tekið fyrir í ríkisstjórn
Steingrímur Ari Arason aðstoðar-
maður fjármálaráðherra sagði í sam-
tali í gær að málið hafi verið tekið
fyrir á fundi ríkisstjórnar í febrúar
og hefði niðurstaðan orðið sú að
tekin yrði ákvörðun um launagreiðsl-
ur í ráðuneytunum, með öðrum orð-
um að heimildin væri til staðar en
endanlegri ákvörðun hefði verið vís-
að til hvers ráðuneytis. Að sögn
Steingríms þarf hver starfsmaður
að sækja um til síns forstöðumanns
sem vísar erindinu til ráðherra.
Kristófer Frank de Fontenay, sem
unnið hefur skýrslu um möguleika
íslands sem þjónustumiðstöðvar fyr-
ir erlend fískiskip, telur metnaðar-
leysi ríkja meðal íslenskra stjórn-
valda í þessum efnum. Hann segir
að takmarkanir sem settar séu lönd-
unum erlendra fískiskipa í íslenskum
höfnum, sem eigi að hindra veiðar
úr sameiginlegum nytjastofnum, nái
ekki tilgangi sínum vegna úthalds
og stærðar skipanna. Hann telur
þjóðhagslegan ávinning vegna
vinnslu á físki úr erlendum skipum
í vinnslustöðvum hérlendis geta ver-
ið verulegan og hann sé hægt að
auka t.d. með því að gefa afslátt
af hafnagjöldum og gera þannig
landanir hérlendis fýsilegri fyrir er-
lend fiskiskip.
■ Útflutningsráð leitar .. ./4
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
I Flatey að
sumarlagi
SUMAR er skilgreint sem hin
hlýrri af aðalárstíðunum tveim
utan hitabeltisins og er stundum
talið frá sumarsólstöðum til
haustjafndægurs, eða 23. sept-
ember. Óneitanlega er sumarlegt
að litast i Flatey, en drengurinn
heitir Gunnar Ingi Valdimarsson
og tíkin heitir Sandra. Kannski
er hún að safna sumarholdum,
jafn makindaleg og hún virðist.
HÁTT í fjórtán hundruð íslenskar
konur eru skráðar til þátttöku á
kvennaráðstefnunni Nordisk Forum
sem haldin verður í Ábo í Finnlandi
1.-6. ágúst. Að sögn Birnu Hreið-
arsdóttur verkefnisstjóra hafa 1.286
konur skráð sig til þátttöku frá ís-
landi, auk þess sem um hundrað ís-
lenskar konur, búsettar í öðrum
löndum, sæki ráðstefnuna. Segir hún
að þingið sé viðamesta og kostnað-
arsamasta verkefni norrænu ráð-
herranefndarinnar til þessa.
Reykjavíkurborg og Akureyrar-
bær samþykktu á sínum tíma að
greiða þátttakendum á ráðstefnunni
laun í fjarveru þeirra og segir Birna
Hreiðarsdóttir að ríkisstjórnin hafi
einnig samþykkt að ríkisstarfsmenn
sem sækja vildu þingið yrðu á laun-
EKKI er grundvöllur fyrir rekstri skipakostmiðlara á íslandi, m.a. vegna
reglna um að ekki megi selja hluta úr gámum sem hingað eru fluttir
með erlendu kjöti. Mun hagstæðara er fyrir erlend skip að panta kost
frá Danmörku í heilum gámum. í þeim er oft á tíðum nýsjálenskt lamba-
kjöt sem flutt hefur verið yfir hálfan hnöttinn. Auk matvöru panta
útgerðir skipanna gjarnan veiðarfæri, þótt þau séu dýrari í Danmörku.
Útflutningsráð íslands undirbýr
nú könnun í samstarfí við hagsmuna-
aðila á möguleikum íslands sem þjón-
ustumiðstöðvar fyrir erlend fískiskip.
Henni er ætlað að afla upplýsinga
sem geta leitt til aukningar á sölu á
vörum og þjónustu íslenskra fyrir-
tækja til erlendra fískiskipa.
Metnaðarleysi stjórnvalda
Þeir þættir sem helst koma í veg
fyrir að erlend fiskiskip komi hingað
nú eru hátt olíuverð, hátt verð á
matvöru og hár frystigeymslukostn-
aður.
Bílvelta
í Vatns-
firði
EINN maður, farþegi i aftur-
sæti, slasaðist þegar fólksbíll
valt í Vatnsfírði, um 1 km
vestan við Flókalund, í gær-
morgun. Hann var fluttur
með þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar til Reykjavíkur.
Bílstjórinn var fluttur með
sjúkrabíl til Patreksfjarðar
með meiðsli á öxl en farþegi
í framsæti slapp án teljandi
meiðsla.
Þyrla Landhelgisgæslunn-
ar lenti við Borgarspítala kl.
13. Þegar blaðið fór í prentun
var maðurinn enn í rannsókn
og ekki fengust upplýsingar
um hversu alvarleg meiðsl
hans væru.
Bifreiðin, sem er af gerð-
inni Mercedes-Benz, er talin
vera ónýt.
Skemmdi
bifreið
MAÐUR var handtekinn á
Seyðisfirði í fyrrinótt fyrir að
skemma BMW bifreið. Mun
hann hafa sparkað í bifreiðina
án afláts og hún því dælduð
hátt og lágt að sögn lögreglu.
Maðurinn, sem er aðkomu-
maður, var að vinna í bænum,
og mun hafa átt eitthvað sök-
ótt við eiganda bifreiðarinnar.
Var hann áberandi ölvaður.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Synt yfir
Flóann
TÍU manna hópur sundfólks á
aldrinum 14 til 20 ára úr Sundfé:
lagi Akraness synti í gær frá
Reykjavík til Akraness um 21 km
vegalengd. Þau syntu í fylgd
hafnsögubátsins Þjóts frá Akra-
nesi og synti hvert þeirra í 15-20
mínútur í einu. Sundfólkið lagði
af stað úr Reykjavíkurhöfn kl.
10.30 og ætlaði að vera u.þ.b. 5
klukkustundir á leiðinni. Þetta
var áheitasund og farið til að fjár-
magna ferð í æfingabúðir á Mall-
orca í haust.
■Húsnæðisbréf
fyrir 2,3 millj.
HÚSNÆÐISBREF hafa aðeins
selst fyrir 2,3-2,4 milljarða króna
það sem af er þessu ári eða um fjórð-
ung þeirrar upphæðar sem ætlunin
er að afla alls á innlendum lána-
markaði í ár. Öllum tilboðum í hús-
næðisbréf í síðasta útboði fyrir
rúmri viku var hafnað vegna of
hárrar ávöxtunarkröfu og hefur sala
Lréfanna raunar gengið illa frá því
vextir lækkuðu um mánaðamótin
október/nóvember á síðasta ári í
kjölfar aðgerða stjórnvalda. Þetta
er eina útboð húsnæðisbréfa í júlí,
en þrjú útboð eru fyrirhuguð í ág-
úst, það fyrsta í byrjun mánaðarins.
Samkvæmt lánsfjárætlun Hús-
næðisstofnunar er ætlunin að afla
9,1 milljarðs króna með skulda-
bréfaútboði á innlendum markaði á
þessu ári. Hilmar Þórisson, aðstoð-
arforstjóri Húsnæðisstofnunar, seg-
ir að þrátt fyrir dræmari sölu en
jíætlanir hafi gert ráð fyrir hafí það
’ ekki komið að sök enn sem komið
er, meðal annars vegna þess að
framkvæmdir hjá Byggingarsjóði
verkamanna hafi farið aðeins hægar
af stað. Af fyrirhugaðri lántöku í
ár fara tæpir sjö milljarðar til Bygg-
ingarsjóðs verkmanna og ríflega
tveir milljarðar til Byggingarsjóðs
ríkisins, að sögn Hilmars.
Stofnunin hefur haldið fast í að
taka ekki tilboðum með hærri ávöxt-
unarkröfu en 5% í bréfín, en meðal-
ávöxtunin i síðasta útboði reyndist
vera 5,15-5,20%. í byijun júní seld-
ust tæpar 500 milljónir króna með
ávöxtunarkröfu frá 4,96-4,99%. í
byijun apríl hafði aðeins tekist að
selja tæpar 700 milljónir króna það
sem af var árinu í fimm útboðum
við ávöxtunarkröfu um 5%, en til
samanburðar má gera ráð fyrir að
mánaðarlega sala skuldabréfa í
fyrra hafí verið á bilinu 6-800 millj-
ónir króna, en ávöxtunarkrafan var
þá yfir 7%.
4 milljarðar að láni
Húsnæðisstofnunin fékk 2,3 millj-
arða króna að láni hjá ríkissjóði um
síðustu áramót til 20 ára með 5%
vöxtum og var sú upphæð notuð til
að ganga frá uppgjöri vegna ársins.
í febrúar fékk stofnunin síðan 1.600
milljóna króna bráðabirgðalán til við-
bótár, sem ætlunin er að endurgreiða
af skuldabréfasölu þessa árs.
í kjölfar dræmrar sölu húsnæðis-
bréfa hefur fyrirkomulagi á sölu
bréfanna verið breytt í samráði við
verðbréfafyrirtækin. Boðið er upp á
bréf til 10, 15 og 20 ára í stað einn-
ar tegundar áður og beinni sölu
skuldabréfa til lífeyrissjóðanna hefur
verið hætt.