Morgunblaðið - 16.08.1994, Qupperneq 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Reisulegl liús
vi<> Suöurgötu
FRÁ EMBURHÖFÐA. Eyjan liggnr í mynni Hvammsfjarðar. Þar er nýlegur 10 ferm bjálkakofi.
Henni fylgja þrjár aðrar eyjar og er samanlögð stærð þeirra áætluð um 2,5 ferkm. Hlúð hefur verið
að æðarvarpi í þessum eyjum undanfarin ár og sl. sumar fengust af þeim um 4,5 kg af hreinsuðum
dún. Þar eru líkar ágætir möguleikar á sjóbirtingsveiði og einnig fæst töluvert af rauðmaga. Á
þessar eyjar eru settar 5,5 millj. kr.
Eyjar í Hvammsfírði
ÞAÐ er ekki oft, sem myndarleg
einbýlishús í hjarta Reykjavíkur
koma í sölu. Hjá fasteignamiðlun-
inni Húsakaupum er nú til sölu
húseignin Suðurgata 4. Þetta er
reisulegt og fallegt hús, sem stend-
ur í næsta nágrenni við ráðhúsið
og Tjömina og er á tveimur hæðum
með risi og kjallara. Það er byggt
úr timbri en klætt með bárujárni
að utan og stendur á steyptum
grunni. Grunnflötur hússins er um
það bil 165-170 ferm en heild-
arflatarmál um 510 ferm.
Húsið var reist á fyrsta áratúg
þessarar aldar af Halldóri
Jónssyni, bankagjaldkera. Jóhann-
es Jóhannesson, bæjarfógeti og
alþingisforseti, keypti húsið 1924
og bjó í því þar til 1945, en þá
eignaðist húsið sonur hans, Lárus
Jóhannesson hæstaréttardómari.
Húsið er nú eign erfingja hans. Á
þeim tíma, sem Jóhannes bjó þar,
inu og hafði þar jafnframt lög-
mannsstofu sína.
Að sögn Karls G. Sigurbjöms-
sonar, lögfræðings í Húsakaupum,
hefur þessu húsi verið haldið vel
við. Á fyrstu hæð þess em þrjár
samliggjandi stofur og tvö svefn-
herbergi en auk þess eldhús með
borðkrók. Gott geymslurými er
ennfremur á fyrstu hæð og stigi
niður í kjallara. Efri hæðin er með
fimm stóram svefnherbergjum,
eldhúsi og baðherbergi. Tvennar
svalir er á efri hæðinni. Ris er
yfír allri hæðinni, sem er vel mann-
gengt. Stór kjallari er undir öllu
húsinu með þvottaherbergi,
geymslum og íbúðarherbergi og
baðherbergi og einnig er stórt eld-
varið herbergi í kjallara.
Óskað er eftir verðtilboði en
engar veðskuldir hvíla á þessari
eign. Húsið gæti hentað sem að-
setur og skrifstofur fyrir félags-
samtök eða fyrirtæki, en einnig
ÞEGAR eyjar í Breiðafirði koma í
sölu, vekur það ávallt áhuga hjá
vissum hópi fólks. Þar er gjaman
um náttúrannendur að ræða, sem
hafa í huga að nýta sér eyjamar
sem útivistarstaði. Oft má hafa ein-
hveijar tekjur af þessum eyjum, því
að í þeim er gjarnan nokkur dún-
tekja og frá þeim má líka stunda
veiðiskap eins og hrognkelsaveiðar.
etta kom fram hjá Magnús
Leópoldssyni, fasteignasala í
Fasteignamiðstöðinni, en hjá þess-
ari fasteignasölu er nú til sölu eyjan
Emburhöfði, sem liggur í minni
Hvammsfjarðar. Emburhöfði er fyr-
ir löngu komin í eyði, en er þó lög-
býli. Henni fylgja þijár eyjar aðrar,
Nautey, Litla-Nautey og Díanes og
er hægt að komast fótgangandi á
milli þeirra allra á fjöru. Alls era
þessar eyjar áætlaðar um 2,5
ferkm. að flatarmáli, en þar er þó
ekki um nákvæma tölu að ræða. í
Emburhöfða er nýlegur 10 ferm
bjálkakofi með nauðsynlegum bún-
aði svo sem sólarrafhlöðu, ísskáp,
farsíma o. fl. Einnig fylgir lítill
bátur með utanborðsmótor. Ásett
verð með öllu er 5,5 millj. kr.
Það tekur um 20 - 30 mínútur
að komast út í eyjarnar með litlum
bát frá Arnarbæli í Fellstrandar-
hreppi, en um 45 mínútur frá
Stykkishólmi. Hlúð hefur verið að
æðarvarpi í þessum eyjum undan-
farin ár. Þar voru um 320 kollu-
hreiður sl. sumar og fengust af
þeim um 4,5 kg af hreinsuðum
dún. Þar eru líkar ágætir möguleik-
ar á sjóbirtingsveiði og einnig fæst
töluvert af rauðmaga. Nokkur tijá-
gróður er til staðar, en á undanförn-
um árum hefur verið gróðursett þar
nokkuð af tijám.
— Þarna er um einstaka náttúru-
perlu að ræða, sagði Magnús Leóp-
oldsson. — Þegar fallegar eyjar á
Breiðafirði koma í sölu, vekur það
alltaf athygli, enda hefur talsvert
verið um þessar eyjar spurt. Það
er fyrir hendi mikill áhugi á eyði-
jörðum úti á landi, sem hægt er að
nýta til útivistar. Áður hafði fólk
meiri áhuga á stöðum, sem voru
nærri höfuðborgarsvæðinu. Nú hef-
ur áhuginn á fjarlægari stöðum úti
á landi aukizt til muna. Þessu valda
bættar vegasamgöngur. En ennþá
er verð lægra á eignum, sem eru
lengra úti á landi.
Emburhöfða er getið í jarðabók
þeirra Árna Magnússonar og Páls
Vídalíns. í henni segir, að þar sé
vatnsból, eggver og dúntekja.
Fast-
eigna-
sölur
í blaðinu
Ás 6
Ásbyrgi 7
Berg 28
Borgir 17
Eignaborg 6
Eignamiðlunin 5
Eignasalan 7-19
Fasteignamarkaðurinn
18
Fasteignamiðlunin 11
Fasteignamiðstöðin 14
Firmasala 17
Fjárfesting 24
Framtíðin 7
Garður 6-22
Gimli 8-9
Hátún 22
Hóll 26-27
Hraunhamar 10
Húsakaup 28
Húsið 23
Húsvangur 13
íbúð 19
Kjöreign 21
Kjörbýli 27
Laufás 16
Lyngvík 15
Óðal 4
Setrið 22
Séreign 20
Skeifan 12
Stakfell 1 g
Valhús 15
Þingholt 3
Viðskiptavinir
fasteignasala
Við viljum vekja athygli á því að Fasteignablað
Morgunblaðsins kemur út á föstudögum í vetur
og félagsmenn í Félagi fasteignasala hafa
skrifstofur sínar opnar á laugardögum frá
27. ágúst.
Næsta fasteignablað kemur út
föstudaginn 26. ágúst.
<F
Félag Fasteignasala
vora skrifstofur bæjarfógetaemb-
ættisins jafnframt í húsinu. Var
þá búið á efri hæðinni og í kjall-
ara, en neðri hæðin notuð sem
skrifstofa. Láras bjó einnig í hús-
væri hægt að skipta húsinu í tvær
sérhæðir, sem gætu þá hentað vel
sem íbúðarhúsnæði. Einnig væri
hægt að hafa þar íbúð og skrif-
stofu.
Morgunblaðið/Sverrir
HÚSIÐ er á tveimur hæðum með risi og kjallara. Það er byggt
úr timbri en klætt með bárujárni að utan og stendur á steyptum
grunni. Grunnflötur þess er um það bil 165-170 ferm en heild-
arflatarmál um 510 ferm. Óskað er eftir verðtilboði, en engar
veðskuldir hvíla á húsinu.
Hjá okkur nýtur þú ávallt
hagstæðs verðs
og góðrar ráðgjafar
í húsbréfaviðskiptum.
Vettvangur húsbréfaviðskipta.
L
Landsbanki
íslands
Ji
LANDSBREF HF,
Lðggilt veröbrófafyrirtæki.
Aöili aö Veröbréfaþingi íslands.
Landsbréf hf. eru viðskiptavaki húsbréfa
skv. sérstökum samningi við Húsnæðisstofnun ríkisins.