Morgunblaðið - 03.09.1994, Side 1
64 SÍÐUR LESBÓK/C
199. TBL. 82. ÁRG. LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Gerry Adams segir að vopnahlé IRA verði ekki rofið
Herlið Breta fari af
svæðum kaþólikka
Dyflinni, Belfast, Lundúnum. Reuter.
GERRY Adams, leiðtogi Sinn Fein, stjórnmálaarms írska lýðveldishers-
ins (IRA), krafðist þess í gær að Bretar flyttu her- og lögreglulið sitt
frá svæðum kaþólikka á Norður-írlandi í kjölfar vopnahlésyfirlýsingar
IRA. Liðsmenn Frelsisfylkingar Ulster (UFF) skutu kaþólikka til bana
í Belfast í fyrrakvöld til að egna IRA til að ijúfa vopnahléið. Adams
sagði í gær að slík dráp yrðu ekki til þess að IRA félli frá vopnahlésyf-
irlýsingunni. Bill Clinton Bandaríkjaforseti átti í gær fund með Dick
Spring, utanríkisráðherra írlands, og hét fullum stuðningi við friðarum-
leitanir á N-írlandi. Bandaríkin hyggjast aðstoða héraðið efnahagslega
komist á friður en ekki er ljóst um hve háa fjárhæð verður að ræða.
Gerry Adams sagði á fyrsta blaða-
mannafundi sínum eftir sögulega
vopnahlésyfirlýsingu IRA á miðviku-
dag að herinn hefði öruggiega vitað
um möguieika á því að öfgamenn
úr röðum mótmælenda reyndu að
koma í veg fyrir friðarumleitanir
með árásum á kaþólikka. Hann sagði
að IRA væri staðráðinn í að standa
við yfirlýsinguna.
Deilt um túlkun
Adams neitaði að svara spuming-
um um það hvort IRA hefði lýst
yfir vopnahléi fyrir fullt og allt.
Deilt hefur verið um túlkun á vopna-
hlésyfírlýsingur.ni.
Hann krafðist þess að Bretar
flyttu 18.000 manna herlið og
12.000 manna lögreglulið sitt frá
svæðum kaþólikka á Norður-írlandi
og áréttaði ásakanir um að öryggis-
sveitirnar væru í vitorði með öfga-
mönnum úr röðum mótmælenda.
Þeim ásökunum hafa yfirmenn hers-
ins og lögreglunnar ætíð vísað á
Raddar-
missir er
vinnuslys
Liverpool. Reuter.
BRESKRI kennslukonu sem
missti röddina vegna þess að
hún þurfti stöðugt að brýna
raustina við nemendur sína,
voru í gær dæmdar skaðabætur
á þeim forsendum að um vinnu-
slys væri að ræða.
Frances Oldfield, 55 ára,
varð að láta af störfum í jan-
úar sl., langt fyrir aldur fram,
vegna þess að rödd hennar var
orðin að hvíslk Hún var afar
ósátt við þetta og féllust emb-
ættismenn í félagslega kerfinu
á þá röksemd hennar að missir
raddarinnar væri vinnuslys og
að henni yrðu greiddar skaða-
bætur. Upphæð þeirra hefur
ekki enn verið ákveðin.
„Opna kerfið“
Oldfield, sem kenndi grunn-
skólanemum í sautján ár í Huy-
ton í norðvesturhluta Englands,
sagði að vegna hins svokallaða
„opna“ fyrirkomulags í skólan-
um hefði hún neyðst tii að æpa
stöðugt svo að nemendurnir
heyrðu í henni.
bug. Adams vill að alþjóðleg eftirlits-
nefnd fái það hlutverk að fylgjast
með starfsemi lögreglunnar og hers-
ins á Norður-Irlandi
Harðvítug deila hefur blossað upp
Sjávarháski á
Floridasundi
KÚBVERSKIR flóttamenn
bjarga félögum sínum um borð
í fleka eftir að konum hafði
hvolft. Þúsundir manna flýja sem
fyrr Kúbu á flekum og öðrum
smáfleytum, vitað er að margir
hafa farist í hafi undanfarnar
vikur. Andstæðingar viðskipta-
banns Bandaríkjastjórnar á
Kúbu efndu í gær til mótmæla
fyrir utan aðalstöðvar Samein-
uðu þjóðanna í New York. Bann-
ið hefur nú staðið í rúm 30 ár
en sætir æ meiri gagnrýni, full-
yrt að um kaldastríðsleifar sé að
ræða. Annar dagur viðræðna
fulltrúa Kúbustjórnar og Banda-
ríkjamanna um flóttamanna-
vandann var í gær en talið er
að árangur hafi orðið lítill.
á Norður-írlanai og Bretlandi vegna
þeirrar ákvörðunar breskra yfírvalda
að senda IRA-menn úr fangelsum í
Bretlandi til Norður-írlands. Einn
þeirra var í haldi vegna gruns um
að hann hefði átt aðild að tilraun
til að ráða Margaret Thatcher, fyrr-
verandi forsætisráðherra Bretlands,
og ráðherra í stjórn hennar af dögum
í sprengjutilræði fyrir áratug.
Breska stjórnin vísaði því á bug
að þetta hefði verið gert til að umb-
una IRA fyrir vopnahlésyfirlýsing-
una. Sambandssinnar á Norður-
Irlandi líta hins vegar á fangaflutn-
inginn sem fyrsta merkið um „frið-
kaup með undanlátssemi".
FRIÐARGÆ SLULIÐAR og starfs-
menn hjálparstofnana Sameinuðu
þjóðanna (SÞ) í Bosníu myndu ekki
geta komið í veg fyrir þrengingar
tugþúsunda borgara léti Radovan
Karadzic, leiðtogi Bosníu-Serba,
verða af hótunum um að loka fyrir
aðflutninga með matvæli og hjálp-
argögn til múslima og Króata í Bosn-
íu. Múslimastjórn Bosníu í Sarajevo
hvatti SÞ til þess að halda aðflutn-
ingsleiðum opnum með valdi ef
nauðsyn krefði.
„Bærust engin aðföng myndu all-
ir líða þjáningar og skort,“ sagði
Reuter
GERRY Adams, leiðtogi Sinn
Fein, á blaðamannafundi í
Dublin. Hann hvatti öfga-
menn mótmælenda til að
fylgja fordæmi IRA og leggja
niður vopn þegar í stað.
talsmaður flóttamannahjálpar SÞ í
Sarajevo. „Hvers kyns ógnun er hluti
af daglegu lífí í Bosníu en við verð-
um að vona að ekkert verði úr þess-
ari hótun,“ sagði hann.
„Ótvíræður réttur“
Hótanir Karadzics beinast fyrst og
fremst gegn flutningalestum SÞ sem
verða að fara um yfirráðasvæði Bos-
níu-Serba til þess að koma hjálpar-
gögnum til einangraðra svæða músl-
ima, um 8.000 tonnum á mánuði.
Karadzic hafði í hótunum í fyrra-
dag er hann ávarpaði svokallað þing
Kynferðisleg
áreitni
500 millj-
ónabætur
New York. Reuter.
KVIÐDÓMUR í Chicago hefur
dæmt stærstu lögmannastofu í
heimi, Baker & McKenzie, til
að greiða ritara á stofunni,
Renu Weeks, 7,1 milljón dollara
(nær 500 milljónir króna) í
skaðabætur fyrir kynferðislega
áreitni eins lögmannsins.
Hinn ákærði, Martin Green-
stein, hafði unnið hjá lögmanna-
stofunni í þijá áratugi og þótti
afar fær í starfi. Hann mun
hafa aflað stofunni gríðarmik-
iila tekna og fékk sjálfur sem
svarar um 34 milljónum króna
í laun síðasta árið. Hann hætti
störfum hjá Baker & McKenzie.
Fékk læknishjálp
Weeks sagði að Greenstein
hefði m.a. káfað á sér og notað
ósæmilegt orðbragð. Fleiri kon-
ur hafa sakað Greenstein um
áreitni en hann segist hafa
fengið læknishjálp og sé nú
laus við áráttuna.
„Eitt, af markmiðunum er
fæling og hún virkar frábær-
lega,“ sagði Roxanne Conlin,
fyrrverandi forseti samtaka
bandarískra lögfræðinga. Hún
sagðist viss um að lögmanna-
stofur myndu nú gera gangskör
að því að draga úr áreitni.
Mitsotakis
fyrir rétt?
Aþenu. Reuter.
GRÍSK þingnefnd hefur lagt til að
fyrrverandi forsætisráðherra
Grikklands, Konstantín Mitsotakis,
verði stefnt fyrir rétt vegna fjár-
málahneykslis. Sósíalistar eru í
meirihluta í nefndinni.
Mitsotakis, sem er 75 ára, var
forsætisráðherra síðustu stjórnar
hægrimanna. Hann er sakaður um
að hafa þegið um 20 milljónir dala,
nær 1.400 milljónir króna, í mútur
í tengslum við sölu á steypustöð,
sem var í ríkiseigu, til ítalska fyrir-
tækisins Calcestruzzi.
Bosníu-Serba og sagðist myndu loka
fyrir gas, orku, vatn og matvæli til
svæða Króata og múslima ef stjórn-
völd í Serbíu afléttu ekki refsiaðgerð-
um gegn bræðraþjóð sinni í Bosníu.
„Það er ótvíræður réttur okkar
að grípa til þvingana gegn múslim-
um, jafnvel að koma í veg fyrir að
til þeirra komist fuglinn fljúgandi,
þar til umheimurinn knýr Júgóslavíu
til þess að hætta refsiaðgerðum gegn
okkur," sagði Karadzic við taumlaus
fagnaðarlæti þingmanna.
■ Gerum allt fyrir þjóð okkar/18
Reuter
SÞ haldi flutningaleið
um opnum með valdi
Sarajevo. Reuter.