Morgunblaðið - 03.09.1994, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 3. SEPl'EMBER 1994 7
FRÉTTIR
Elnet sækir um leyfi til fjölrása sjónvarpsdreifingar í 7 bæjum
Fyrsta bæjarkerfið
í gang eftir 4 mánuði
ELNET sf., sem er sérhæft fyrirtæki á fjarskiptasviði og sá m.a. um
uppsetningu á Fjölvarpi íslenska útvarpsfélagsins í Reykjavík, hefur
sótt um leyfi til útvarpsréttarnefndar til dreifingar á fjölrása sjónvarpi
me örbylgju í Vestmannaeyjum, á Akureyri,_ Sauðárkróki, Húsavík,
ísafirði, Egilsstöðum og Selfossi. Að sögn Ómars Guðmundssonar,
framkvæmdastjóra Elnets, er fyrirhugað að fyrstu kerfin verði gang-
sett í desember á þessu ári, en hann segist ekki hafa ástæðu til að
ætla annað en að umsóknin um dreifingarleyfið fái jákvæða meðhöndl-
un enda séu öll tilskilin réttindi og leyfi til staðar.
Ný sljórn hjá
Norðurtanga
Á AÐALFUNDI hraðfrystihússins
Norðurtangans hf. á ísafirði í vik-
unni urðu þær breytingar á stjórn
fyrirtækisins að við formennsku tók
Eggert Jónsson.
Guðmundur Jónsson, fyrrum
stjórnarformaður, og Jón Páll Hall-
dórsson, framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins, hverfa úr stjóminni. Við
stjórnarformennsku tók Eggert Jóns-
son, sem var fyrir í stjórninni, en auk
hans koma nýir í stjórnina Rúnar
Guðmundsson og Pétur Jónsson.
Að sögn Jóns Páls Halldórssonar
ríkti full sátt og samkomulag um þessa
breytingu og er tilgangurinn fyrst og
fremst að fá nýja og fríska menn inn
í stjómina til að takast á við þann
vanda sem Norðurtanginn hf. líkt og
önnur sjávarútvegsfyrirtæki á Vest-
fjörðum stendur frammi fyrir.
Umsókn Elnets felur í sér sam-
tals 12 sjónvarpsrásir í hveiju
bæjarfélagi en fyrirhugað er að
endurvarpa gervihnattaefni á ell-
efu rásum og nota eina rás fyrir
staðarefni á hveijum stað.
10 þúsund áskriftir í upphafi
Þá er uppsetningin á sjónvarp-
skerfunum, að sögn Ómars, í
tengslum við fyrirhugaða kapal-
sjónvarpsstöð aðila í Reykjavík.
„Auk 11 gervihnattarása og einn-
ar innanbæjarrásar gæti þannig
verið um kapalrás að ræða auk
Ríkissjónvarpsins og Stöðvar 2,
sem dreift yrði á kerfinu,“ sagði
Ómar.
Áætlanir Elnets hljóða upp á
að um 10.000 áskrifendur geti
tengst kerfunum þegar kapalsjón-
varpsstöðin fer í gang. Að sögn
Ómars verður gengið frá öllum
búnaði þannig að hann tengist
auðveldlega ljósleiðarakerfum
Pósts og síma, sem ná nú hringinn
í kringum landið.
Vestmannaeyjar, Akureyri og
Sauðárkrókur verða fyrst
Ómar sagði að viðræður við
aðila í fyrrnefndum bæjarfélögum
væru misjafnlega langt komnar.
„Við vonumst til að næsta skref
verði stofnun rekstrarfélaga í
Vestmannaeyjum, á Akureyri og
Sauðárkróki, sem festi kaup á
þeim búnaði sem til þarf, komi
honum upp og hefji útsendingar.
„Elnet hefur áhuga á að vera að-
ili að þessum rekstrarfélögum til
þess að tryggja tæknilega upp-
byggingu kerfisins og koma þess-
um málum af stað. Við höfum hins
vegar ekki áhuga á að vera rekstr-
araðili að kerfunum sem slíkum.
Það ætlum við að láta aðilum á
hveijum stað eftir,“ sagði Ómar,
en athuganir Elnets sýna að telja
má hagkvæmt að setja upp ör-
bylgjukerfi í bæjarfélögum allt
niður í 200 heimili.
Kerfin verða rekin með áskrift-
ar- og auglýsingatekjum og eins
og áður hefur komið fram í Morg-
unblaðinu byggja þau á afruglara-
kerfi sem gerir kleift að opna allar
dagskrár samtímis.
Morgunblaðiö/Ingólfur Guðmundsson
Síðsumarleikur
HEYRÚLLURNAR í Kelduhverfi þjónuðu þessum krökkum sem
besti stökkpallur í blíðunni fyrir norðan á dögunum. Birgittu
Lind Vilhjálmsdóttur virðist kitla í magann í failinu en Betúel
Ingólfsson er hugsi þegar hann skimar til jarðar.