Morgunblaðið - 03.09.1994, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1994
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
f
JÓN BALDVIN HANNIBALSSON
Rauðakrosshúsið við Tjarnargötu í Reykjavík
Gestum hefur fjölgað
í neyðarathvarfinu
ÁRIÐ 1993 var 131 gestakoma í
neyðarathvarf Rauðakrosshússins
við Tjarnargötu og er það nokkur
fjölgun frá árinu á undan þegar 100
gestir leituðu þangað. Af 83 ein-
staklingum gistu 49 í athvarfinu í
fyrsta sinn. Flestir komu í júní eða
26, en í ágúst komu fjórir. Skráð
símtöl til hússins á árinu voru 4.460
og er það fækkun frá árinu á und-
an, en þá voru símtölin 7.528.
Heildarfjöldi daggesta, sem leituðu
ráðgjafar, var 1.717 á árinu og eru
það heldur fleiri en árið á undan.
í ársskýrslu Rauðakrosshússins
fyrir árið 1993 segir enn fremur,
að meðaldvalartíminn á árinu hafi
verið 5,8 nætur miðað við 8,2 næt-
ur árið á undan. Meðaldvalartíminn
fyrstu sjö árin, sem athvarfið hefur
verið opið, er 8,6 nætur og dvelja
stúlkur að meðaltali einni nóttu
lengur en drengir.
Að baki 131 gestakomu voru
gistinætur 758 og er það fækkun
frá árinu á undan en þá voru þær
804. Af þeim 83 einstaklingum sem
gistu í athvarfinu á árinu komu 22
oftar en einu sinni og tilheyra flest-
ir þeirra hópi sem er í mikilli vímu-
efnaneyslu.
Fleiri drengir
Fram kemur að á árinu 1993
leituðu fleiri drengir athvarfs en
stúlkur, en það er breyting frá fyrra
ári. Meðalaldur gestanna var 16,3
ár eða svipað og síðustu sjö árin.
Líkt og undanfarin ár voru stúlkur
heldur yngri.
39% gestanna höfðu lokið skyldu-
námi, 26% voru í skyldunámi, 13%
voru í framhaldsnámi og 22% höfðu
hætt skyldunámi. 76% kynforeldra
gestanna voru ekki í sambúð. Al-
gengustu orsakir fyrir dvölinni voru
samskiptaörðugleikar við foreldra
eða forráðamenn eða í 27% tilvika.
15% komu vegna vímuefnaneyslu
og 38% vegna húsnæðisleysis.
Fleiri stúlkur hringja
í ársskýrslunni kemur fram að
sennilegasta skýringin á fækkun
símtalanna milli ára sé aukning á
þjónustusímum, sem eru með 99-
númer, auk þess sem lítil kynning
var á símaþjónustunni í grunnskól-
um á síðasta skólaári. Ástæðúr
hringinganna voru margvíslegar,
en tengjast áberandi gelgjuskeið-
inu. Stúlkur voru í miklum meiri-
hluta þeirra sem hringdu.
Haldið upp á 75 ára afmæli flugs á íslandi í dag
Líkt eftir
fyrsta
fluginu
FLUGMÓDELI eftir fyrstu ís-
lensku flugvélinni sem hóf sig til
flugs verður flogið á Vatnsmýr-
arbletti í dag, laugardaginn 3.
september kl. 17. Á þeirri stundu
verða nákvæmlega 75 ár liðin frá
fyrsta fluginu.
Fyrsta íslenska flugvélin bar
einkennisstafina H2545 Avro
504K og var eign Flugfélags Is-
lands. Flugmaðurinn hét Cecil
Torben Faber og hafði verið
kapteinn í breska flughernum.
Faber flaug aðallega listflug og
útsýnisflug.
Jakob Jónsson, félagi í
Morgunblaðið/Kristinn
MÓDELSMIÐURINN Jakob Jónsson hefur á átta mánuðum eytt
mörg hundruð klukkutímum i smíði hennar.
flugmódelfélaginu Þyt, hefur
smíðað eftirlíkingu af áður-
nefndri flugvél í hlutföllunum 1:4
og sömu efni notuð og í upphaf-
legu flugvélinni. Hvert smáatriði
er handsmíðað af Jakobi. Hann
hefur m.a. komið fyrir flug-
manni, klæddum eins og Faber,
í vélinni. Áttavitinn, stýripinninn
og mælaborðið í módelinu er
nákvæm eftirmynd flugvélarinn-
ar.
Óhöpp henda 54,5% barna á leiksvæðum
Engar reglur til
um byggingu
leiksvæða
Herdís Storgaard
Nýlegar kannanir
hafa leitt í ljós
háa slysatíðni
hjá bömum á leiksvæð-
um. Óhöpp henda að jafn-
aði 54,5% barna og af
þeim þurfa 15,7% að leita
aðstoðar læknis til að
gera að áverkum sínum.
I sumum tilvikum hafa
slys verið það alvarleg að
við dauða hefur legið. Á
þriðja hundruð leikvallar-
svæði sérhönnuð fyrir
börn eru í Reykjavík og
svipaðán fjölda er að
finna á landsbyggðinni. í
núgildandi reglum um
byggingar, en undir þær
falla meðal annars leik-
svæði, er ekkert ákvæði
sem tekur með afgerandi
hætti á öryggi bama.
Umhverfisráðherra
hefur í ljósi þessa leitað til hóps
sérfræðinga á þessu sviði og falið
þeim að vinna ítarlegar tillögur
um hvernig megi breyta reglugerð
um byggingar til að efla eins og
kostur er öryggi bama. Til að
stýra vinnunni hefur umhverfis-
ráðherra fengið Herdísi Storgaard
sem hefur unnið að forvörnum á
þessu sviði á vegum Slysavarnafé-
lags íslands og er formaður
nefndar íslenskra sérfræðinga
sem vinna að drögum um evrópsk-
an staðal um leiksvæði sem gert
er ráð fyrir að taki gildi í byijun
árs 1996.
- Er slysatíðni barna hærri hér
á iandi en annars staðar?
„Ég gerði könnun á slysatíðni
barna á leikskólum og gæsluvöll-
um á Stór-Reykjavíkursvæðinu
fyrir tveimur árum og það kom í
Ijós að rúmlega 50% barna verða
fyrir óhappi. Þar af þurftu 15,7%
bama að leita læknis vegna
áverka sinna. Könnunin stóð yfír
í eitt ár til að fá inn í hana veðurf-
arslega þætti og annað sem skipt-
ir máli. Skráningin var gerð til
að leiða í ljós hvort aðrar hættur
leyndust hér en erlendis. Þau lönd
sem taka þátt í vinnu við drög
að evrópskum staðli hafa öll gert
hjá sér slíka slysaskráningu.
Erlendis, t.d. í Noregi og Sví-
þjóð, þurfa 4-5% barna að leita
læknis. Umræðan um þessi mál
hófst fyrir fjórtán áram í Dan-
mörku og Danir gerðu staðal um
sín leiksvæði. Á tíu árum hefur
þeim tekist að fækka slysum um
helming. Við erum því fjórtán
árum á eftir öðram Norðurlanda-
þjóðum, Bretlandi og Þýskalandi
í þessum efnum. Þó var ákveðið
að búa ekki til íslenska staðla því
í því er fólgin mikil
vinna og auk þess mun
evrópski staðallinn
gilda hér á landi. Við
komumst hins vegar
fljótt að því að það er
ýmislegt ábótavant í evrópska
staðlinum. Hann snýr að mestu
að hveiju og einu leiktæki, frá-
gangi þess, hönnun og undirlagi.
Okkur fannst vanta inn í drögin
ákvæði um umhverfið, eins og
sleðabrekkur og fleira. Við höfum
reynt að koma þessu inn í evr-
ópska staðalinn og ég er einmitt
að fara á fund í BrusSel þar sem
kosið verður um hvort þetta
ákvæði verði inni í evrópska staðl-
inum eða hvort við þurfum að
setja það inn sem viðauka hér.
Við gætum því haft áhrif á hönn-
un leiksvæða í Evrópu og Bretar
og Hollendingar eru sammála
okkur um þörfina fyrir þessu
ákvæði. En þetta er nokkuð hita-
mál og Þjóðvetjum finnst þetta
algert aukaatriði.“
► Herdís Storgaard barna-
slysavarnafulltrúi Slysavarna-
félags íslands er fædd 25. des-
ember 1953. Hún er hjúkrunar-
fræðingur að mennt og hefur
sérmenntun í slysa- og bæklun-
arhjúkrun, svæfingarhjúkrun
og í kennslu- og uppeldisfræði.
- Komu niðurstöður könnunar-
innar þér á óvart?
„Nei, þær komu mér ekki á
óvart. Hins vegar kom það mér á
óvart að það er ekki eins mikið
um slys í leiktækjum hér á landi
og í öðrum löndum. Slysin virðast
dreifast meira á leiksvæðin og
þegar þau eru skoðuð blasir
ástæðan við. Oft er svæðin hönn-
uð með tilliti til þarfa fullorðinna
en ekki lítilla bama sem byija sum
eins til tveggja ára á leikskólun-
um. Oft er umhverfíð hæðótt,
langar steintröppur og kannski
vantar i þær snjóbræðslukerfí
þannig að þær eru hálar á vet-
uma. Á íslenskum leikskólum er
oft reynt að hafa brekkur svo
börnin geti rennt sér á sleðum en
svo er kannski sett upp leiktæki
við endann á sleðabrautinni. Þeg-
ar ákvörðun um byggingu leik-
skóla eða leiksvæðis er tekin er
ekki við neinar reglur að styðjast
í þeim efnum. Engar reglur eru
til um hvar eigi að staðsetja rólur
miðað við önnur leiktæki svo börn-
in reki sig ekki á og svo mætti
lengi telja.
I nágrannalöndunum era þess-
ar reglur til og framkvæmdaraðil-
um ber að framfylgja þeim. Aðrir
aðilar eru síðan látnir taka verkið
út og sjá til þess að
framkvæmdaaðilar
hafi farið að reglum.“
- Hvar er umræðan
um gúmmíheilur á leik-
svæðum stödd?
„Það er gert ráð fyrir gúmmí-
hellum í drögum að evrópska
staðlinum. Þar er bent á mismun-
andi fallundirlag og m.a. gert ráð
fyrir þeim. Þegar pallur er 60 sm
frá jörðu verður að vera fallundir-
lag og það má vera úr nokkrum
mismunandi efnum. Eitt efnið er
trjábörkur sem hefur verið notað-
ur mikið á Norðurlöndum en þyk-
ir ekki hentugur hér á landi því
hann fýkur. Sandur hentar heldur
ekki hér á landi því hann blotnar
og frýs og verður að hörðu undir-
lagi. Þriðji kosturinn er svokallað-
ur perluleir sem er mjög dýr en
hann léttur í sér og fýkur. Gúmmí-
hellur koma einna best út hérlend-
is. Þótt þær séu dýr kostur í upp-
hafi þá endast þær lengst og henta
best hér.“
Erum 10 árum
á eftir öðrum
þjóðum
I'
!:
>
i
i
I
>
I
!
I
I:
i
I
1
1