Morgunblaðið - 03.09.1994, Page 12

Morgunblaðið - 03.09.1994, Page 12
12 LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1994 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Gijóthrun lokaði Ólafsfjarðargöngunum í fyrrinótt Heppin að vera ekki aðeins fyrr á ferðinni STYKKI úr lofti jarðganganna um Ólafsfjarðarmúla hrundi niður í fyrrinótt þannig að göngin lokuðust fyrir umferð í tæpan klukkutíma meðan gólfið var hreinsað. „Mér brá fyrst og fremst, það var myrkur og ég sá ekki hvers kyns var fyrr en ég var alveg komin að gijót- inu,“ sagði Margrét Jónsdóttir konrektor Menntaskólans á Akureyri, sem fyrst kom á vettvang eftir gijóthrunið, um kl. 00.30 í fyrrinótt. Hún gerði lögreglu í Ólafsfirði viðvart. „Ég véit ekki hvað þetta var mik- ið, gæti verið upp undir tonn sem sunkaði niður úr loftinu miðju, tók klæðninguna niður og stigann sem rafmagnið er á,“ sagði Jón Konráðs- son lögreglumaður í Ólafsfirði. „Það var mikill vatnsflaumur í göngun- um, varla hægt að ganga þarna um þegar við komum að. Við skófum göng í gegn til að umferð gæti hald- ist eðlileg um göngin um nóttina." Um eitt þúsund bílar fara um göngin á sólarhring að meðaltali allan ársins hring samkvæmt athug- unum sem gerðar hafa verið. Mildi þykir að atvikið átti sér stað að næturlagi þegar umferð er minni en yfir daginn og að enginn varð fyrir gijóthruninu. Strax eftir óhappið myndaðist röð bíla sem biðu þess að komast í gegn. Guðmundur Svavarsson umdæm- isstjóri Vegagerðarinnar á Akureyri sagði í gær að ekki væri nákvæm- lega vitað hvað hefði gerst en ástæð- ur óhappsins yrðu kannaðar. Mikill vatnsagi hefði sennilega átt sinn þátt í að losa um gijótið í göngunum og steypan gefið sig undan þungan- um. „Eg held að þetta hljóti að vera einstakt atvik, þetta átti ekki að geta komið fyrir, það var vel frá öllu gengið,“ sagði Guðmundur. „Ég tók ekki eftir þessu fyrr en ég var alveg komin upp að gijótinu og nánast búin að keyra á það,“ sagði Margrét Jónsdóttir, sem varð fyrst á vettvang eftir gijóthrunið, en myrkur var í göngunum og mik- ill vatnsagi. Hún var á Ieið frá Ólafsfirði til Akureyrar en skömmu síðar kom fólk á jeppa úr hinni átt- inni. Margrét bakkaði inn í næsta útskot og gerði ökumanni jeppabif- reiðarinnar viðvart með því að blikka ökuljósunum, en ók síðan til Ólafsfjarðar aftur og gerði lögreglu aðvart. „Ég áttaði mig ekki á hvað hafði gerst fyrr en ég leit upp og sá gatið í loftinu. Óneitanlega bregður manni við að vera nærri búin að keyra inni í þetta, en ég var heppin að hafa ekki verið á ferð- inni aðeins fyrr,“ sagði Margrét og bætti við, að sér hefði ekki þótt ónotalegt að aka um göngin það sem eftir var leiðarinnar. Morgunblaðið/Björn Gíslason STYKKI úr lofti Ólafsfjarðarganganna hrundi niður í fyrrinótt og Iokuðust þau af þeim sökum í tæpa klukkustund meðan grjót var hreinsað af gólfi ganganna. Mildi þykir, að bílar voru ekki á ferð um göngin þegar óhappið varð. ÖALVfc Stýrimannadeiltíin á Dalvík 30 tonna réttindanámskeið verður haldið ef næg þátttaka fæst. Kennt verður á kvöldin og um helgar. Skráning í símum 96-61218, 96-61860, 96-61380 og 96-61162. Sveinbjörg sýnir á Hjalteyri SVEINBJÖRG Hallgrímsdóttir opnar á morgun, laugardaginn 3. september, sýningu á verkum sín- um í Richardshúsi-Hótel Hjalteyri viðEyjafjörð. Á sýningunni eru 17 verk sem öll eru unnin á Sveinbjörg lista- og handíða- skóla íslands 1992 en áður hafði hún lokið námi við kennaradeild sama skóla árið 1978. Þetta er fyrsta einkasýning Sveinbjargar en hún hefur áður sýnt olíumálverk og grafíkverk á fjórum samsýningum. Efni verkanna sækir Sveinbjörg í náttúru landsins og tilveru þjóðar- innar. Sýningin stendur til 18. septem- ber og er opin daglega á opnunar- tíma kaffihússins frá kl. 13-18. mm sunnudag lö-l/ í verslunum okkar við Holtagarða BÓNUS keaI Morgunblaðið/Björn Gíslason FRAMKVÆMDUM við Sundlaug Akureyrar er nú loitið. Fjöl- skyldudagur, sem efnt verður til á morgun, er nokkurs konar vígsludagur og verður mikið um að vera við laugina af því tilefni. Framkvæmdum við sundlaugina lokið Aðsókn aukist mjög í sumar AÐSÓKN að Sundlaug Akureyrar hefur aukist mikið í sumar miðað við fyrri ár og sóttu að meðaltali um 900 manns laugina daglega í júlí og að meðaltali voru um 890 gestir daglega í lauginni í nýliðnum ágústmánuði. Miklar framkvæmdir hafa staðið yfír við Sundlaug Akureyrar frá því í vor og er þeim nú að fullu lokið. Settar voru upp rennibrautir og byggð lendingarlaug, þá var einnig byggð barnabusllaug og eimbað eða vatnsgufubað auk þess sem byggður var geymsluskúr, ný sólbaðsaðstaða gerð og pottar endurnýjaðir. Kostn- aður við þennan fyrsta áfanga af fjórum er 55 milljónir króna og verð- ur framkvæmdum haldið áfram á næstu árum að sögn Sigurðar Guð- mundssonar forstöðumanns Sund- laugar Akureyrar. „Breytingarnar hafa vakið mikla lukku og aðsóknin hefur aukist gífur- lega,“ sagði Sigurður, en á síðustu tveimur mánuðum, í júlí og ágúst, hafa um 55 þúsund gestir brugðið sér í laugina. Fjölskyldudagur Á morgun, laugardaginn 3. sept- ember, verður efnt til fjölskyldudags í og við Sundlaug Akureyrar og sagði Sigurður að um nokkurs konar óformlegan vígsludag yrði að ræða nú þegar framkvæmdum við fyrsta áfanga breytinganna væri að fullu lokið. Dagskráin hefst kl. 13. með lúðrablæstri og hálftíma síðar munu fulltrúar úr bæjarstjórn og skóla- stjórar á Akureyri keppa í sundi. Iþrótta- og æskulýðsráð býður gest- um laugarinnar og þeim sem á svæð- inu verða eins og Skralla trúði upp upp á kakó og pönnukökur í tilefni dagsins. Fólki gefst kostur á að spreyta sig í að aka frjarstýrðum bíl- um, rafmagnsbílum eða reyna furðu- hjól og þá verður efnt til bolta- keppni. Loks má nefna að ljósmynd- ir úr maraþonljósmyndakeppni sem haldin var á dögunum verða til sýnis við sundlaugina. Messur GLERÁRKIRKJA: Kvöldguðs- þjónusta verður í kirkjunni nk. sunnudag kl. 21. Séra Hann- es Örn Blandon þjónar. Sókn- arprestur. HJÁLPRÆÐISHERINN: Her- mannasamkona kl. 17 á sunnudag. Hjálpræðissam- koma kl. 20. Miriam Óskars- dóttir talar. Ailir velkomnir. HJÁLPRÆÐISHERINN: Sam- koma í umsjá ungs fólks kl. 20.30. Vakningarsamkoma, ræðumaður Stella Sverris- dóttir, verður kl. 20. Biblíu- lestur kl. 20 miðvikudags- kvöldið 7. september.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.