Morgunblaðið - 03.09.1994, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1994
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Álverðið
rýkur upp
Búist við að tonnið geti farið upp í 1.600
dollara á næstunni
London. Reuter.
HORFUR á meiri samdrætti í álframleiðslu hafa ýtt undir aukna eftirspurn
eftir málminum og í gær var álverðið hærra en það hefur verið síðan í
mars 1991. Álbirgðir minnka stöðugt og búist er við, að álverðið komist
brátt í 1.600 dollara tonnið.
Dagvörukaupmenn kæra innflytjendur
o g iðnfyrirtæki til Samkeppnisstofnunar
Verslunum
mismunað
Líkur er.i á, að framleiðsla í Tom-
ago-álverinu í Ástralíu verði minnk-
uð um 20% í næstu viku vegna verk-
falla eða í 260.000 tonn en fram-
leiðslugeta þess er 340.000 tonn.
Þá er mikil óvissa um framleiðslu
Valco-álversins í Ghana, sem er nú
rekið á 70% afköstum vegna þurrka
og orkuskorts. Er það í eigu Kaiser
Aluminum og er framleiðslugeta
þess 200.000 tonn á ári. Kemur
þessi skerðing, hver sem hún verð-
ur, ofan á þann samdrátt, sem ál-
framleiðsluríkin hafa samið um.
Verð á áltonni fór í 1.570 dollara
á málmmarkaðinum í London í gær
og er það 500 dollurum eða 51%
meira en fékkst fyrir það síðastliðið
haust þegar verðið var 1.037 dollar-
HAGNAÐUR Pearson-samsteyp-
unnar jókst um 50% á fyrra misseri
ársins en talið er, að reksturinn verði
í járnum á því síðara. Hagnaðurinn
fyrir skatt var 69,3 milljónir punda
nú en 46,3 millj. á síðasta ári.
Pearson-samsteypan hefur verið
í margvíslegum rekstri, á meðal
annars The Financial Times og Mad-
ame Tussaud-vaxmyndasafnið, en
ætlar að snúa sér eingöngu að fjölm-
iðluninni. Vegna þess hefur hún ver-
ið að selja ýmis fyrirtæki og er það
meginskýringin á hagnaðaraukning-
unni á fyrra árshelmingi.
ar. Búast flestir við, að verðhækk-
anir síðustu daga haldi þar sem gert
er ráð fyrir, að álbirgðir haldi áfram
að minnka út árið.
Álverðið fór að hækka þegar helstu
álframleiðsluríkin, Evrópusamband-
ið, Bandaríkin, Kanada, Rússland,
Noregur og Ástralía, ákváðu að
draga úr offramleiðslunni og jafnvel
fréttir nú í vikunni um, að samkomu-
lagið væri til rannsóknar hjá banda-
ríska dómsmálaráðuneytinu, hafa
engu um það breytt. Kemur sú rann-
sókn raunar mjög á óvart því að full-
trúar frá bandaríska dómsmálaráðu-
neytinu voru viðstaddir samnings-
gerð álríkjanna til að tryggja, að hún
bryti ekki í bága við hringamynd-
unarlöggjöfina bandarísku.
Það, sem af er þessu ári, hefur
dagblaðareksturinn gengið mjög vel
vegna aukinna auglýsinga og stækk-
andi upplags The Financial Times en
á bókaútgáfunni var hins vegar tap.
Er um að ræða þijú forlög, Addison-
Wesley í Bandaríkjunum og Penguin
og Longman í Bretlandi. Á síðasta
ári gekk hún hins vegar mjög vel og
skilaði langmestum hagnaði ein-
stakra rekstrareininga. Af öðrum
fjölmiðlunarfýrirtækjum í eigu Pear-
sons má nefna Sky-sjónvarpsstöðina
og Thames Television og var hvor
tveggja rekin með hagnaði.
• •
Orsmár
farsími
Tókýó. Reuter.
SONY-fyrirtækið japanska er að
setja á markað í Japan nýjan far-
síma, sem er ekki stærri en venju-
legt kreditkort. Verður hann seld-
ur á 46.000 kr. og er framleiðslan
áætluð 5.000 símar á mánuði.
Talsmenn Sony segja, að eftir-
spurn eftir farsímum í Japan hafi
aukist meira en við hafi verið búist
eftir að stjórnvöld heimiluðu beina
sölu á þeim til neytenda en áður
var aðeins leyfilegt að leigja þá.
FÉLAG dagvörukaupmanna sendi
í gær inn kæru til Samkeppnisstofn-
unar þar sem óskað er eftir að skor-
ið verði úr því „hvort óeðlileg mis-
munun á kjörum ýmissa innflytj-
enda og iðnfyrirtækja gagnvart við-
skiptavinum sínum standist hin
nýju samkeppnislög". Ýmis gögn
fylgja kærunni sem félagið hefur
safnað undanfarna mánuði en það
hefur notið aðstoðar Sigurðar G.
Guðjónssonar, lögmanns hjá Al-
mennu lögfræðistofunni.
Kæran er send inn í kjölfar al-
menns félagsfundar í Félagi dag-
vörukaupmanna sem haldinn var á
fimmtudagskvöld en þar var sam-
þykkt með öllum greiddum atkvæð-
um að erindið skyldi borið fram.
VERSLUNARRÁÐ Íslands hefur
farið þess á leit við viðskiptaráð-
herra að samkeppnislögum verði
breytt. Ráðið vísar þar til reglna
EES um ríkisstyrki og starfsemi
opinberra fyrirtækja og þess hve
mikil brögð séu að samkeppnis-
hamlandi starfsemi slíkra aðila
samanber málafjölda hjá Sam-
keppnisstofnun. Verslunarráð legg-
ur til að vinnuhópur aðila frá ráðinu
og viðskiptaráðuneyti vinni að slík-
um breytingum. Sighvatur Björg-
vinsson, viðskiptaráðherra, segir að
tillaga Verslunarráðs verði athuguð
rækilega.
í bréfi sem Verslunarráð sendi
viðskiptaráðherra í gær kemur fram
að í 59. grein EES samningsins sé
að fínna ákvæði um að opinber fyr-
irtæki eða fyrirtæki með einkaleyfi
skuli laga sig að samkeppnisreglum
EES og í 61. grein samningsins er
kveðið á um bann við ríkisaðstoð
þar sem átt er við hvers kyns aðstoð
sem veitt er af ríkisfjármunum og
raskar eða er til þess fallin að raska
samkeppni með því að ívilna ákveðn-
um fyrirtækjum eða framleiðslu.
„Hugtak þetta hefur verið túlkað
mjög vítt í dómum Evrópudómstóls-
ins og verið talið ná til beinna fram-
laga, skattaafsláttar, niðurgreiðslu
lánskjara, ábyrgða og hlutabréfa-
kaupa í vissum fyrirtækjum, svo
eitthvað sé nefnt. Þetta á jafnt við
um styrki frá ríkinu, sveitarfélögum
og stofnunum, fyrirtækjum eða
sjóðum sefn eru í eigu opinberra
aðila að öllu leyti eða hluta,“ segir
í bréfi Verslunarráðs.
Reglur EES hafa einungis áhrif
í viðskiptum milli aðildarríkja en í
bréfi Verslunarráðs er minnt á að
Evrópudómstóllinn hafi túlkað það
hugtak vítt. Nægjanlegt hafi verið
talið að samkeppnishömlur röskuðu
samkeppnisstöðunni innan hins
sameiginlega markaðar. í bréfinu
segir ennfremur að ljóst megin telja
að áðurnefndar reglur muni í fram-
tíðinni almennt bæta samkeppnis-
stöðu innlendra fyrirtækja gagn-
vart markaðshamlandi starfsemi
hins opinbera. Eftir standi hins veg-
ar að þegar um hrein innanlandsvið-
skipti sé að ræða verði reglum EES
ekki beitt. Því kunni að myndast
misræmi í réttarvernd og sam-
keppnisaðstæðum.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins beinist hún sérstaklega að
sjö heildsölu- og iðnfyrirtækjum.
Félagið hefur gert samanburð á
innkaupsverði minni verslana við
útsöluverð hjá Hagkaup og Bónus
og byggist kæran m.a. á niðurstöð-
um sem þar koma fram. Boðað
hefur verið til blaðamannafundar á
mánudag og segir m.a. í fundarboði
að mikill hiti sé í dagvörukaup-
mönnum vegna þessa máls. Líti
þeir svo á að niðurstaða samkeppn-
isráðs skipti sköpum um það hvort
minni matvörukaupmenn geti hald-
ið áfram rekstri sínum í þessu landi.
Bónus tilkynnti í gær um úrsögn
sína úr Kaupmannasamtökum Is-
lands vegna þessa máls.
Verslunarráð leggur til í bréfi
sínu til viðskiptaráðherra að vinnu-
hópur kanni lögfestingu ákvæða
sem eru sambærileg 59. og 61.
grein EES-samningsins í sam-
keppnislög og hugsanlegar breyt-
ingar á lögum um tekju- og eigna-
skatt þannig að sá hluti starfsemi
hins opinbera sem er í samkeppnis-
rekstri verði skattlagður.
Mjólkursamsalan
Stórir við-
skiptavinir
njóta magn-
kaupa
GUÐLAUGUR Björgvinsson, for-
stjóri Mjólkursamsölunnar, vísar því
alfarið á bug að lítið mötuneyti
annars vegar og Baugur hf., dreif-
ingarfyrirtæki Hagkaups og Bón-
uss, hins vegar sitji við sama borð
í viðskiptum við fyrirtækið, eins og
Jóhannes Jónsson, stjórnarformað-
ur Baugs, hélt fram í viðskiptablaði
á fimmtudag. Sömuleiðis lýsti Jó-
hannes yfir áhuga á að Baugur
fengi að annast dreifíngu á mjólkur-
vörum til verslana Hagkaups og
Bónuss.
Guðlaugur sagði að Mjólkursam-
salan hefði gert sérstaka viðskipta-
samninga við stærri aðila og þeir
nytu magnsins í kjörum sínum að
einhvetju leyti. Varðandi umleitanir
Baugs um að fá að annast dreifingu
mjólkurvaranna sagði Guðlaugur
að húsnæði og öll aðstaða Mjólkur-
samsölunnar miðaðist við að fyrir-
tækið stýrði sjálft útstreymi úr
húsinu. „Við höfum takmarkaða
aðstöðu til að koma bílum að af-
greiðslunni og það er hætta á að
ýmislegt færi úr skorðum ef við
stýrum ekki útstreyminu sjálfir. Það
er reynt að dreifa bílunum yfir dag-
inn þannig að hægt sé að þjóna
öllum viðskiptavinum sem best. Öllu
er hins vegar hægt að breyta og
ég ætla ekki að útiloka neina mögu-
leika í þessu sambandi.“
Umsóknir
Húsnæðisnefnd Reykjavíkur óskar eftir umsóknum um kaup á eftirfarandi
nýjum og nýlegum félagslegum íbúðum, flestum í Grafarvogi, sem koma
til afhendingar nú í haust. Um ráðstöfun, verð og greiðsluskilmála þessara
íbúða gilda lög nr. 97/1993.
Tegund og staðsetning Herb. Stærð íb. Fjöldi Verð pr. Verð pr.
fjöldi fm íbúða íbúð bílsk.
Nýjar íbúðir:
Félagslegar eignar- og kaupleiguíbúðir 4 89-107 27 6,8-7.600.000
án bílskýlis 3 84-91 13 6,4-7.000.000
2 60 2 5.300.000
Endursöluíbúðir:
Félagslegar eignaríbúðir án bílskýlis 4 97-127 3 7,5-10.800.000
3 94-112 3 8,0-8.900.000
2 86-87 4 6,6-7.000.000
Félagslegar eignaríbúðir með bílskýli 5 114 1 9.500.000 450.000
3 86 1 6.100.000 450.000
2 55-106 3 4,5-7.400.000 450-650.000
Almennar kaupleiguíbúðir án bílskýlis 2 92 4 6.700.000
Almennar kaupleiguíbúðir með bílskýli 4 119 5 8.900.000 1.090.000
3 112 1 8.300.000 1.090.000
2 64-87 6 5,9-6.600.000 1.090.000
Umsóknareyðublöð verða afhent á skrifstofu Húsnæðisnefndar Reykjavíkur
að Suðurlandsbraut 30, og verða þar einnig veittar allar upplýsingar. Skrif-
stofan er opin mánudaga-föstudaga kl. 8-16.
Umsóknum skal skila eigi síðar en 16. sept. 1994.
Ath. Almenn úthlutun ársins 1995 verður auglýst um miðjan okt. 1994.
Húsnæðisnefnd Reykjavíkur
Fyrirtæki
Aukinn hagnaður
hjá Pearsons
London. Reuter.
Viðskipti
*
Verslunarráð Islands
vill breytingar á
samkeppnislögum
i
<
i
(
i
'i
(
(
j
I