Morgunblaðið - 03.09.1994, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 03.09.1994, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1994 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ 2.500 ára Sameiginlegar heræfingar Rússa og Bandaríkjamanna Djðfulieg alþjóðahyggja Rússi RÚSSNESKI vísindamaður- inn Vladimír Kozeltsev rann- sakar jarðneskar leifar, sem fundust í sífrera í Altaj-héraði í ágúst á síðasta ári. Múmían er talin 2.500 ára gömul, er af 23 ára konu og stendur til að ljúka endurgerð hennar, hvað varðar útiit og klæða- burð, fyrir mitt næsta ár. Reuter Radovan Karadzic í viðtali við Der Spiegel Iðrumst ekkí gjörða okkar RADOVAN Karadzic, leiðtogi Bosníu-Serba, kveðst sannfærður um að rússneskar hersveitir kæmu mönnum hans til hjálpar væri tilveru serbnesku þjóðarinnar ógnað. Karadzic hótar einnig hörðum viðbrögð- um verði vopnasölubanni gagnvart múslimum aflétt. „Ef rússnesk þjóðemisstefna er fasismi, þá er ég fasisti," sagði Borís Míronov, yfirmaður íjöl- miðlanefndar rússneska ríkisins, þegar hann var á yfirreið um nokk- ur héruð úti á landi og í gær var hann rekinn úr embætti. Hafa yfir- lýsingar Míronovs, sem hafði ráð- herratitil þótt hann sæti ekki í rík- isstjóm, vakið mikla athygli og hefur honum verið líkt við Josef Göbbels, áróðursmeistara Hitlers. Hélt hann því meðal annars fram, að alþjóðahyggjan væri djöfullegt samsæri og sagði frjálslynda fjöl- miðla í Moskvu vera að reyna að tortíma Rússlandi að undirlagi vestrænna ríkja. „Við vomm ófyrirgefanlega fljótir að leggja þá hugmynd á hill- una, að dagblöð ættu að vera sam- félagslegt áróðurstæki. Það er því miður nauðsynlegt að færa þau aftur undir ríkisvaldið.“ Leiðtogi Bosníu-Serba segir í við- tali sem birtist f þýska vikuritinu Der Spiegel að hersveitir hans muni auðveídlega geti haldið þeim sjötíu prósentum af Bosníu sem þær nú ráða en samkvæmt friðartillögu þeirri sem lögð hefur verið fram um skiptingu landsins myndu 49% koma í hlut Serba. „Færi svo að serbnesku þjóðinni yrði raunverulega ógnað myndi herafli Júgóslavíu og einnig rússneskar hersveitir koma okkur til hjálpar." Karadzic er spurður hvaða mat hann leggi á þá tillögu Bills Clintons Bandaríkjaforseta að aflétt verði al- þjóðlegu banni við sölu á vopnum til múslima í Bosníu. „Verði vopnasölu- banninu aflétt munum við ekki virða eina einustu ákvörðun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Við munum taka friðargæsluliða í gíslingu, skjóta niður ótölulegan fjölda flugvéla og handtaka alla útlendinga á landi okkar. Við munum gera allt sem komið getur þjóð okkar til góða, án nokkurrar iðrunar." Karadzic kveður Bosníu-Serba ráða yfir vopnabúnaði sem enn hafi ekki verið beitt í stríðinu í Júgóslav- íu. „Við ráðum yfir tækni sem er óþekkt á Vesturlöndum t.d. eldflaug- um sem eru ónæmar fyrir innrauðum geislum." Karadzic segir að múslimar í Bosníu muni „hverfa" magnist átök- in enn frekar. Þá muni Serbar skipta Bosníu á milli sín og Króata. Hann kveðst engar áhyggjur hafa þótt múslimar hafi náð nokkrum árangri í bardögum undanfarinna vikna. „Þótt þér réðu yfir lqamorku- sprengju myndu þeir á endanum tapa þessu stríði," segir Karadzic. Reutcr Ákærð fyrir að selja bam sitt TÁNINGSPARIÐ Florin Baiar- am og Florina Dimir koma til * réttarsalar í Búkarest í gær, en þau eru sökuð um að hafa selt breskum hjónum dóttur sína, Monicu. Bresku hjónin voru handtekin fyrir tveimur mánuð- um er þau reyndu að smygla barninu úr landi og eiga þau yfir höfði sér fimm ára fang- elsi. Foreldrarnir eru 17 ára sígaunar og segir faðir Florins son sinn vera andlega vanheil- an. Réttarhöldunum hefur verið frestað þar til Florin og Florina hafa fengið lögfræðing. Ströng viðurlög eru við ólöglegum ætt- leiðingum í Rúmeniu en þeim fjölgaði gríðarlega eftir fall kommúnismans 1989. Rútskoj kveðst óttast bandaríska hersetu Moskvu. Reuter. » ALEXANDER Rútskoj, fyrrverandi varaforseti Rússlands, fordæmdi í gær sameiginlegar heræfingar Rússa og Bandaríkjamanna og sagði þær brot á fullveldi Rússa og fyrsta skrefíð í átt til varanlegrar veru bandarísks herliðs í landinu. Rússneskur aðstoðarráðherra var rekinn úr starfí í gær vegna þjóðemisofstækis og kröfu um, að ströng ritskoðun yrði tekin upp. í yfírlýsingu, sem Rútskoj sendi frá sér, sakar hann Borís Jeltsín forseta og Pavel Gratsjov vamar- málaráðherra um að svíkja rúss- neska hagsmuni. Segir hann, að verið sé að undirbúa varanlega dvöl bandarískra hermanna á rússnesku landi, nokkuð sem fjandmenn Rússa hafi ávallt dreymt um. „Undir yfirskyni „frið- argæslu" ætla Bandaríkjamenn að nota rússneska hermenn til árása á aðrar þjóðir og fullveldi þeirra, einkum á bræður okkur í Serbíu," sagði í yfírlýsingu Rútskojs. Þá fór hann einnig hörðum orðum um brottflutning rússnesks herliðs frá Þýskalandi og Eystrasaltsríkjun- um og sagði hann sanna svikin gegn hagsmunum þjóðarinnar. Aðeins 500 hermenn taka þátt í sameiginlegum heræfíngum Rússa og Bandaríkjamanna, 250 frá hvomm, og fara þær fram í Totsk, skammt frá landamærunum við Kazakhstan. Guð hvorki karlné kona Sydney. Reuter. KONUR í áströlsku biskupa- kirkjunni hafa beðið yfírmenn kirkjunnar að breyta textan- um í bænabók kirkjunnar til þess að Guð verði ekki kyn- greindur. „Við viljum gera tungumál og myndmál ítar- legra og hlutlausara, og að hvorki sé gefíð í skyn að Guð sé karl né kona,“ sagði Ruth Shatford, talsmaður kvenn- anna. Meðal þess sem konumar vilja breyta er „Faðirinn, son- urinn og hinn heilagi andi“, sem yrði eftir breytingu „Skaparinn, frelsarinn og náð Guðs“. Þá vilja konurnar að vísað verði til Guðs sem „hans“ eins sjaldan og kostur sé. Konumar segja að með því að karlkenna Guð, sé lögð höfuðáhersla á karlleg ein- kenni hans, en horft fram hjá þeim kvenlegu, svo sem að hann sé huggari og uppa- landi. Áfram Faðir vor Konunum var gefínn kost- ur á því að tjá sig um bæna- bókina, sem verður endurút- gefín árið 1995. Talsmaður nefndarinnar sem vinnur að bókinni segir að Guð verði sjaldnar karlkenndur en áður í nýju útgáfunni en þvertekur fyrir það að hann verði ekki kallaður Faðir, því Jesús Kristur hafi kennt lærisvein- um sínum að biðja til Guðs á þann hátt, í bæninni sem hefst á orðunum „Faðir vor“. Hættuleg flugfélög útskúfuð BANDARÍSK flugmálayfírvöld bönnuðu í gær flugfélögum frá níu ríkjum að fljúga til Banda- rílqanna vegna ófullkomins ástands öryggismála hjá þeim. Flugfélögin eru frá Belíze, Dóminíkanska lýðveldinu,. Gambíu, Ghana, Hondúras, Nicaragúa, Paragvæ, Úrugvæ og Zaire. Fá þau ekki flugleyfí á ný fyrr en þau hafa tekið sig rækilega á. Þá voru sett ströng skilyrði fyrir því að flugfélög frá Bólivíu, E1 Salvador, Guate- mala og Hollensku Antillaeyj- um fengju lendingarleyfi í Bandaríkjunum. Gorbatsjov segir ósatt ÞÝSKA stjórnin birti í gær skjöl, sem hún seg- ir sanna, að sovétstjórnin hafí á sínum tíma sett sem skilyrði fyrir sameiningu Þýskalands, að stjórnin í Bonn samþykkti eignaupptökuna, sem komm- únistar í Austur-Þýskalandi stóðu fyrir. Þýska stjómin hef- ur ávallt haldið þessu fram en Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrver- andi forseti Sovétríkjanna, virðist hins vegar mæla fremur gegn því í bréfí, sem þýskt dagblað birti. Vakti það um leið vonir margra um að fá aftur eignir, sem kommúnistar gerðu upptækar. Þýski stjórn- arskrárdómstóllinn vísaði frá kröfum um afhendingu lands til fyrri eigenda í apríl 1991 vegna þess, að Bonnstjórnin lagði áherslu á, að það hefði verið forsenda fyrir samein- ingu þýsku ríkjanna, að eigna- upptakan stæði. Fjöldamorði afstýrt? TALIÐ er að maður, sem var myrtur fyrir utan upptökuver NBC-sjónvarpsstöðvarinnar í New York á miðvikudag, kunni að hafa komið í veg fyrir fjöldamorð. Árásarmað- urinn var vopnaður AK-47 riffli með 30 skotum og í bíl hans fannst önnur byssa og 60 skot til viðbótar. Morðið var framið fyrir framan Today-upptökuver NBC en vegfarendur geta fylgst með þulum og þáttastjórnendum í gegnum skothelt gler. Kínverjar styðja Kim KÍNVERJAR lýstu því yfír á fimmtudag að þeir teldu ekk- ert ógna stjórn Kims Jongs-ils, syni og arftaka hins látna leið- toga Norður-Kóreu, Kim II- sung. „Á þessari stundu er pólitískur stöðugleiki í Alþýðu- lýðveldinu Kóreu,“ sagði tals- maður kínverska utanríkis- ráðuneytisins. Miklar vanga- veltur hafa verið um stöðu Kims, sem hefur lítið sést opin- berlega frá láti föðurins. Telja margir það merki um að mikil valdabarátta fari fram á bak við tjöldin. Gorbatsjov

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.