Morgunblaðið - 03.09.1994, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1994 19
Jiang Zemin Kínaforseti í friðarför til Moskvu
Ætla að hætta ýfingnm
Moskvu. Reuter.
JIANG Zemin, forseti Kína, kom í
gær til Rússlands í fimm daga opin-
bera heimsókn, en henni er ætlað
að binda enda á áratugalangar ýf-
ingar landanna og leysa þær deilur
sem komið hafa upp að undan-
förnu. Munu Jiang og Borís Jeltsín
Rússlandsforseti undirrita yfirlýs-
ingu þar sem löndin heita því að
láta hugmyndafræði aldrei aftur
koma í veg fyrir tvíhliða samskipti
ríkjanna og að hvorugt þeirra muni
skipa sér í hóp ríkja sem gæti ógn-
að öryggi hins.
Barátta Rússa og Kínveija um
hvorir ættu að fara fyrir kommún-
istaríkjum leiddi til blóðugra landa-
mæradeilna á sjöunda áratugnum.
Munu Jiang og Jeltsín binda form-
lega enda á landamæradeilurnar og
fallast á að ríkin beini kjarnorku-
flaugum sínum ekki lengur hvort
að öðru.
Fullyrt er að stjórnvöld í Moskvu
líti öfundaraugum til kínverskra
yfirvalda, vegna þess hversu mikil
tök þau hafi á efnahagslífinu og
hversu mikill vöxtur sé í því.
Síaukin viðskipti ríkjanna hafa
ekki verið vandræðalaus en þau
námu sem svarar 550 milljörðum
íslenskra króna í fýrra. Hafa kín-
versku vörurnar þótt Iélegar og
veldur það Kínverjum áhyggjum.
Rússar eru hins vegar áhyggju-
fullir vegna gegndarlauss útflutn-
ings á hráefni frá Síberíu og aust-
ustu héruðunum til Kína. Þá eru
Rússar ósáttir við allan þann fjölda
ólöglegra kínverskra innflytjenda
sem býr í Rússlandi. Talið er að
þeir séu um 60.000 í Moskvu einni.
Landsmót Oddfellowa
3. september 1994
Setningarathöfn í Haligrímskirkju kl. 11.00.
Dagskrá í Urriðavatnslandi kl. 13.00.
Akstur frá Hallgrímskirkju og til baka.
Aðgangur ókeypis.
Allir Oddfellowar velkomnir.
Landsmótanefndin.
Morgunblaðið/Þorkell
„KURDAR binda vonir við að Norðurlönd, þar sem lýðræðishefð-
in er einna mest, styðji málstað þeirra,“ segja þeir Zeynel Cel-
ik og Imdat Yilmaz, talsmenn Samtaka Kúrda á Norðurlöndum.
Kúrdar kynna íslenskum ráðamönn-
um málstað þjóðar sinnar
Viljum binda enda
á „óhreina stríðið“
STRIÐ það sem Kúrdar hafa háð
við tyrknesk yfirvöld síðustu tíu
árin hefur verið kallað „óhreina
stríðið“. Það er þrítugasta uppreisn
Kúrda gegn yfirráðum Tyrkja og
þeir segjast staðráðnir í því að hún
verði sú síðasta. Til þess að svo
megi verða, þarf hins vegar að
koma til þrýstingur frá öðrum lönd-
um, segja þeir Zeynel Celik og
Imdat Yilmaz, talsmenn Samtaka
Kúrda á Norðurlöndum, með aðset-
ur í Kaupmannahöfn. Þeir eru
staddir hér á landi til að kynna
málstað Kúrda fyrir íslenskum
ráðamönnum, þingmönnum og full-
trúum landsins hjá Evrópuráðinu
en Kúrdar hafa óskað þess að Is-
lendingar og aðrar Norðurlanda-
þjóðir þrýsti á um að Tyrklandi
verði vikið tímabundið úr Evrópu-
ráðinu, eða þar til mannréttindabrot
Tyrkja á Kúrdum hafi verið stöðv-
uð.
Að sögn Celik og Yilmaz eru
Kúrdar flestir í Tyrklandi, um 20
milljónir. í íran eru þeir sjö milljón-
ir, fjórar í Irak og 1,5
miljón í Sýrlandi. Þá býr
um ein milljón Kúrda
víðs vegar um Evrópu
þar af um 40.000 á
Norðurlöndum. Segja
þeir að um 13.000 Kúrdar, þar af
10.000 óbreyttir borgarar, og 7.000
Tyrkir hafi látið lífið í tíu ára stríði
þeirra en nú séu um 400.000 tyrk-
neskir hermenn í Kúrdistan.
„Mannréttindi Kúrda hafa verið
fótum troðin frá stofnun Tyrkneska
lýðveldisins. Kúrdum hefur verið
meínað að tala mál sitt og raunar
er allt það sem tengist því að vera
Kúrdi, bannað. Um 3.500 þorp
Kúrda hafa verið brennd til ösku
og íbúarnir neyðst til að halda ann-
að. Þá hefur fjöldi fangabúða verið
settur upp þar sem fólk er pyntað,"
segir Yilmaz.
Celik og Yilmaz segja að sl. tíu
ár hafi staðið yfir barátta Kúrda
til að kynna málstað sinn og til-
veru, sem hafi verið lítt þekkt. Það
hafi nú breyst, en vissulega með
öðrum aðferðum en þeir hefðu kos-
ið. Það sé ekki ósk Kúrda að beita
ofbeldi. „Við viljum pólitíska lausn.
Tyrkir vilja hins vegar þagga niður
í okkur með hervaldi. Við höfum
farið víða til að kynna málstað okk-
ar og okkur hefur víðast verið vel
tekið,“ segir Celik.
Sú krafa Kúrda að Tyrkjum verði
vísað úr Evrópuráðinu og að þeir
verði beittir viðskiptaþvingunum
hefur verið kynnt fjölmörgum Evr-
ópuþjóðum. Segja Kúrdarnir að
þrátt fyrir góðan vilja, segist
stærstu þjóðirnar, svo sem Þjóðveij-
ar og Frakkar, eiga of mikilla við-
skiptahagsmuna að gæta. Því bindi
Kúrdar vonir við Norðurlönd þar
sem lýðræðishefðin sé einna mest.
Minnist Cejik í því sambandi á að
Islendingar urðu fyrstir
til að viðurkenna sjálf-
stæði Litháens.
„Við fáum hvai’vetna
jákvæðar undirtektir, en
vitum auðvitað ekki hver
árangurinn verður. Danskir jafnað-
armenn hyggjast taka mál okkar
fyrir á þingi Evrópuráðsins í októ-
ber, en það hefur áður verið rætt
þar. Það vantar hins vegar herslu-
muninn, að brottvísunar verði kraf-
ist. Það eru fordæmi fyrir því,
Grikkland var útilokað tímabundið
frá fundum Evrópuráðsins, vegna
mannréttindabrota á tímum herfor-
ingjastjórnarinnar. Við getum ekki
annað en vonað það besta, við telj-
um okkur að minnsta kosti eiga
möguleika nú.“
Binda vonir
við stuðning
Norðurlanda
ÞAÐ £R ALLTAT
SKÁTASTARF er ævintýri
Um þessar mundir er vetrarstarf skóta að fara af stað. Skátafélög eru starfandi víða um
landið og nú er einmitt tækifærið til að taka þátt í spennandi og skemmtilegu starfi. Hér að
neðan er listi yfir skátafélögin og upplýsingar um hvernig má hafa samband við þau. Allar
frekari upplýsingar fást á skrifstofu Bandalags íslenskra skáta í síma (91) 62 13 90. Innritun í
skátafélögin fer fram laugardaginn 3. september og sunnudaginn 4. september á milli kl.
Reykjavfk Ægisbúar Neshaga 3 23565 Júlíus Aðalsteinsson 629897
Vesturb., vestan Lækjarg. & flugv. Landnemar Austurb. frá Lækjarg. aö Snorrabraut 60 610071 Haukur Haraldsson 17790
Kringlum.br. Garðbúar Búðargerði 10 678099 Svavar Sigurösson 34369
Búst., Smáíb., & Fossv.hv. Skjöldungar Sólheimar 21 a 686802 37951
Sigmundur Guömundsson
Heimar, Vogar, Sund, Laugarás, Laugarnes, Kleppsholt Skf. Eina Arnarbakki 2 670319 812798
Jón I. Haraldsson
Bakka- og Stekkjahverfi Segull Seljahverfi Tindasel 3 Félagsmiðst. Ársel 873088 Sigurjón Einarsson 72355
Hafernir 44611 Atli B. Bachmann 813422
Fella- og Hólahverfi Árbúar Ártúnsholt, Árbæjar- og Seláshverfi Logafold 106 658820 Björn V. Björnsson 75846
Vogabúar Varmárskóli 650900 Guðmundur Kristinsson 672184
Grafarvogshverfi Borgarholtsbr. 7
Mosfellsbær Mosverjar Hraunhólar 12 13190
Kópavogur Kópar Hraunbrún 57 Þorvaldur J. Sigmarsson 44653
Garöabær Vífill Skátah. v/lþr.hús 11727 Karl R. Þórsson 673186
Hafnarfjörður Hraunbúar Hringbraut 101 71798 Þétur Sigurösson 651207
Bessast.hr. Svanir Holtsgata 51 BirgirThomsen 650346
Keflavík Heiðabúar Háholt 24 3282 Lárus F. Guðmundsson 14890
Njarövík Vfkverjar Viö Borgarbraut Kristberg Kristbergsson 13065
Akranes Skf. Akraness Sigurður Guðjónsson 12249
Borgarnes Skf. Borgarness Mjallargata 4 Ragnar Andrésson 71264
Gurndarfjörður Öminn Brekkustígur 25 12266 Jóhanna E. Ólafsdóttir 86913
ísafjörður EinherjarAfalkyrjan 61648 Soffía Hauksdóttir 7121
Blldudalur Himinherjar Skátah. (Gúttó) Guðrún H. Sigurðardóttir 2228
Blönduós Bjarmi Hafnarstræti 49 Sturla Bragason 24439
Sauöárkrókur Eilífsbúar Mfmisvegur 6 Björn Sighvatz 36661
Akureyri Klakkur Ásgeir Hreiöarsson 12266
Dalvík Landvættir Skátah. (Skonsan) Guðmundur Óskarsson 61177
Raufarhöfn Melrakkar Grunnskólinn Lfney Helgadóttir 51225
Þórshöfn Skf. Þórshafnar Stefán Már Guömundsson 81369
Neskaupsstaður Nesbúar Skátaheimilið 34805 Guðrún S. Siguröardóttir 71458
Höfn Frumbyggjar Skátaheimiliö 12915 Lucia Óskarsdóttir 81285
Selfoss Fossbúar Skátaheimiliö Dóra Sverrisdóttir 81285
Eyrarbakki Birkibeinar Skátaheimilið Hafdís Óladóttir 31403
Stokkseyri Ósverjar Frímann B. Baldursson 31244
Hveragerði Strókur Karlinna Sigmundsdóttir 34272
Vestm.eyjar Faxi Páll Zophonlasson 11201
PLÁSS FYRIR ÞIGi