Morgunblaðið - 03.09.1994, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 03.09.1994, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1994 21 AÐSENDAR GREINAR Flug á íslandi í 75 ár ÞAÐ MÁ með sanni segja að yfirstandandi ár sé mikið afmælisár í sögu íslenskra flug- mála og reyndar einnig í alþjóðlegri flugsögu. Fyrr á þessu ári voru 50 ár liðin frá stofnun Loftleiða hf. og í ágúst voru 70 ár frá því að fyrst var flogið yfir hafið til Islands, en það flug var hluti af heims- flugi Bandaríkja- manna. í júní síðast- liðnum voru 75 ár liðin frá því að Alcock og Brown flugu fyrstir manna yfir Atlantshaf- ið og í byrjun desember verða liðin 50 ár frá undirritun Chicago-sáttmálans, en með honum var lagður grundvöllur að stofnun Alþjóðaflugmálastofnunarinnar og alþjóðlegum flugsamgöngum eins og þær hafa þróast á síðastliðinni hálfri öld. Auk þess eru liðin 25 ár frá því að maður steig í fyrsta sinn fæti á tunglið. íslendingar trúðu snemma á framtíð flugsins í dag, 3. september, er þess minnst að 75 ár eru liðin frá því að flugvél hóf sig í fyrsta sinn til flugs á ís- landi. Þetta flugtak í Vatnsmýrinni markaði upphaf íslenskrar flugsögu enda þótt sú tilraun til flugrekstrar yrði ekki langlíf. Það ber vott um mikinn stórhug og trú á framtíð flugsins að stofna til flugrekstrar á Islandi árið 1919, að minnsta kosti þegar þetta framtak er metið með mælikvarða nútímans. Aðeins voru liðin rúm fimmtán ár frá flugi Wrig- ht-bræðra og flugtæknin var enn á frumstigi, þótt framfarir hefðu orðið miklar í smíði flugvéla í fyrri heimsstyrjöldinni. Ljóst er að hér á landi höfðu menn fylgst vel með þeim framförum sem orðið höfðu í flugi. Þetta kemur meðal ann- ars fram í tímaritsgrein sem birtist í íslendingi sumarið 1917. Þar er landstjórnin hvött til þess að undirbúa tilraun- ir með póstflug hér á landi, sem skyldu heljast þegar að heimsstyrjöld- inni lokinni. Greinarhöf- undur, Þorkell Þorkels- son, síðar veðurstofu- stjóri, lýsir þeirri skoðun sinni að flugið geti verið lausn á samgönguvanda lands- manna, sem var mikill á þeim tíma. Hann segir: „Það liggur þess vegna beint við að reyna undir eins og færi gefst að fara þær leiðirnar, þar sem enga vegalagningu þarf við og aldrei teppast af snjóum né hafísum eins og landleiðin og sjóleiðin norðan um landið.“ Þótt hér sé ef til vill um einföldun að ræða má segja að hin öra þróun innanlandsflugsins nokkr- um áratugum síðar hafí einmitt byggst á því hve samgönguleiðir á sjó og landi voru seinfarnar og oft torsóttar. Trú íslendinga á framtíð flugsins kemur vel fram í grein eftir Halldór Jónasson frá Eiðum, sem birtist í september haustið 1918, en þar seg- ir: „Og þessi nýja samgöngubót er eins og alveg sköpuð fyrir okkur öll- um öðrum fremur. Þar verðum við þó að minnsta kosti að fylgjast með.“ Þegar friður komst á biðu menn ekki boðanna og var Flugfélag íslands hið fyrsta stofnað í mars árið 1919, aðeins ijórum mánuðum eftir lok Það er umhugsunarvert að fyrir 7 5 árum lagði fjöldi einstaklinffa fram fjármuni til að gera tii- raun með nýja tækni, segir Þorgeir Pálsson, sem hafði komið fram í sjónvarpsþætti aðeins 15 árum áður. heimsstyrjaldarinnar. í stjórn voru kosnir Garðar Gíslason stórkaup- maður, Pétur Halldórsson bóksali og síðar borgarstjóri, Pétur A. Ólafsson konsúll, Sveinn Björnsson lögmaður og síðar forseti, Axel Tuliníus for- stjóri og Halldór Jónasson cand.p- hil., en hann hafði unnið manna ötul- legast að undirbúningi stofnunarinn- ar. Frumherjarnir hugsuðu stórt Eins og fram kernur í lögum þessa fyrsta flugfélags íslendinga var til- gangurinn „að vinna að því að koma á flugferðum með hvers konar flug- tækjum innanlands á íslandi og milli íslands og annarra landa og styðja að því á hvern hátt, sem félaginu er fært, að sem fyrst verði gerðar tilraunir í þessu efni“. Hér var því ekki aðeins hugsað um innanlands- flug heldur einnig flug á milli landa og það áður en Alcock og Brown flugu fyrstir yfir Atlantshafið, en sá atburður varð ekki fyrr en þrem mánuðum síðar. Félagið iagði þegar í stað drög að því að festa kaup á Þorgeir Pálsson flugvél, ráða flugmann og byggja flugskýli í Vatnsmýrinni. Flugreksturinn hófst hinn 3. sept- ember árið 1919 og stóð yfir í þijár vikur. Þótt aðallega væri flogið í nágrenni Reykjavíkur er óhætt að fullyrða, að hún hefur varla farið fram hjá nokkrum landsmanni, enda mikið um hana ljallað í blöðum. Margir Islendingar fóru þá í sína fyrstu flugferð eða voru „gerðir upp- tækir" eins og það var nefnt í blaða- fregnum þess tíma. Nöfn farþeganna voru birt í bæjarblöðunum eins og tíðkaðist um þá sem sigldu til ann- arra landa. Þó hafa ekki allir haft trú á flugrekstrinum því miklar um- ræður urðu á Alþingi um það hvort styrkja skyldi félagið og sýndist sitt hveijum. Meðal annars kom þá fram í um- ræðum að flugið væri fyrst og fremst skemmtun fyrir efnaða menn. Þó fór svo að félagið fékk styrk þótt hann væri aðeins lítill hluti af stofnkostn- aðinum. Flugrekstri var því haldið áfram sumarið 1920 og stóð í tæpa tvo mánuði. Þá var orðið ljóst að Ijár- hagslegur grundvöllur fyrir rekstrin- um væri ekki fyrir hendi enda byggð- ust tekjurnar nær eingöngu á hring- flugi með farþega. Þótt þessi fyrsta tilraun til flug- reksturs á íslandi yrði ekki langlíf er ljóst að hún gaf landsmönnum tækifæri til að komast í þeina snert- ingu við flugið og færði íslendingum þekkingu á getu og takmörkunum þessarar nýju tækni við íslenskar aðstæður. Þótt flugtæknin væri ekki komin nægilega langt á veg né að- staða nægilega góð til að hér væri hægt að stunda arðbæran flugrekst- ur tókst forsvarsmönnum Flugfélags Islands hins fyrsta að kveikja þann áhuga og trú á möguleikum flugsins sem varð til þess, að næsta tilraun til flugreksturs á íslandi var gerð innan áratugar með stofnun Flugfé- lags ísiands hins annars í röðinni í maí árið 1928. Og þá þurfti ekkert minna en heimskreppu til að stöðva þá tilraun. Dagsbrún mun ekki framlengja núgildandi kjarasamningum I GREINARKORNI sem ég skrifaði í Morg- unblaðið í upphafi ág- ústmánaðar sl. þar sem árásum blaðsins gegn Dagsbrún sem þá höfðu staðið yfir um hríð var svarað, lofaði ég því að koma Morgunblaðinu til hjálpar í umhyggju þess fyrir íslensku lág- launafólki og benda því á atriði sem bætt gætu hag fátæks fólks sem verður að skrimta á launum sem vart duga til að halda ijölskyld- unni ofan hungur- marka . Eg vek athygli á því að grundvallarlaun bygginga- Guðmundur J. Guðmundsson ráðamönnum ríkis og Reykjavíkurborgar því að mjög lítið hefur af þeirra hálfu verið gert til þess að reyna að ná í þá fjármuni sem renna um hið íslenska neðanjarðarhagkerfi. Dagsbrún hefur ítrek- að vakið athygli stjórnvalda, embættis- manna hjá ríki og borg og almennings á þess- um málum og þess ber að geta að fjármála- ráðherra, Friðrik Sophusson, hefur að- stoðað Dagsbrún við það að ná upplýsing- þurft hefur til að ná til verkamanna eru kr. 45.731 kr. á mánuði og hæsti taxti eftir 15 ára starf hjá sama atvinnurekanda er 51.823 krónur á mánuði. Það er fólkið á þessum smánarlaunum sem nú gengur mót þriðja atvinnuleysis- vetrinum í röð. Það er athyglisvert að á sama tíma og atvinnuleysi, launamisrétti og almenn fátækt er að verða var- anlegt hlutskipti sívaxandi ijölda íslenskra fjölskyldna, þá hefur Morgunblaðið, sem segist sjálft vera blað allra landsmanna, ekki séð þörf á því að fjalla að ráði um mál eins og neðanjarðarhagkerfið, svarta atvinnustarfsemi, m.a. á opinberu framfæri og skattsvik, heldur fjallað um Dagsbrún, félag hinna lægst launuðu, eins og ein- hveija glæpamafíu. Það er þó Ijóst að ritstjórum Morgunblaðsins eru þessi mál ekki með öllu ókunn. Um það ber ágætur leiðari í byijun ágústmánaðar sl. vitni. Ekki verður þó séð að umræddur leiðari Morgunblaðsins hafi náð að ýta við þeirra sem stunda svarta atvinnu- starfsemi. Vinnuveitendasamband- ið er hins vegar alsaklaust af því að hafa veitt slíka aðstoð. Aðgerðaleysi í þessum málum vekur furðu í ljósi þess hve mikið er hér í húfi: í opinberri skýrslu svokallaðrar skattsvikanefndar er fullyrt að ríkissjóður verði árlega af 11-15 milljörðum króna af þess- um sökum. Morgunblaðinu virtist hins vegar þykja það verðugra verk- efni á nýliðnu sumri að hamast gegn Dagsbrún vegna fijálsrar fé- lagsaðildar en að rannsaka og skýra landsmönnum ítarlega frá neðan- jarðarhagkerfinu og afleiðingum þess fyrir almennt launafólk og þjóðfélagið í heild. Það er orðið einkennandi fyrir ísland nútímans að hópur blásnauðs fólks fer sívaxandi. Á hinn bóginn hefur fjöldi fólks í landinu mjög góðar tekjur og sumir svo háar tekj- ur að það er gjörsamlega yfirgengi- legt. Láglaunastefnan sem beinist gegn þorra launafólks er sífellt rétt- lætt með yfirstandandi erfiðleikum þjóðarbúsins vegna aflatregðu og síminnkandi aflaheimilda og þar með minnkandi þjóðartekjum. Raunveruleikinn er hins vegar allt annar. Á síðasta ári varð gróði Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna 600 milljónir króna. Ekki hefur sá hagn- aður verið notaður til að skapa fleiri störf hjá fyrirtækinu á heimavelli heldur var stórum hluta hans var varið til ljárfestinga erlendis, eink- um í Grimsby, París og víðar. Þetta íslenska fyrirtæki hefur verið gert að heiðursborgara í Grimsby fyrir að útrýrna þar atvinnuleysi. Þá var afkoma SÍF heldur ekki bágborin á síðasta ári en stjórnendur fyrir- tækisins voru ekki að ijárfesta krónurnar hér heima heldur keyptu dýra saltfiskverksmiðju í Frakk- landi. Hampiðjan er enn eitt stórfyr- irtækið sem flýr landið. Fyrirtækið sem hefur skrifað undir átakið „Is- lenskt, já takk“ hefur flutt um þriðj- ung starfsemi sinnar út til Portúg- als: Eg hef ekki séð Morgunblaðið eða júristana hjá Vinnuveitenda- sambandinu kvarta undan þessu. Stendur þeim á sama um alvarleg þjóðfélagsmein eins og stórfellt at- vinnuleysi, gríðarleg skattsvik og óþjóðhollar ljárfestingar íslenskra stórfyrirtækja, verðbréfa- og lífeyr- issjóða erlendis? Dagsbrún liefur mótmælt þessum vinnubrögðum og ekki orðið vör við stuðning Morgun- blaðsins eða Vinnuveitendasam- bandsins. Morgunblaðið hefur skýrt frá stórgróða margra helstu stórfyrir- tækja í landinu en fjallað minna um hvernig honum er ráðstafað og lítið greint frá gríðarlegu launamisrétti sem endurspeglast í launum há- launaaðalsins í landinu, t.d. stjórn- Óbreytt kaup almenns verkafólks verður ekki samþykkt, segir Guð- mundur J. Guðmunds- son, kaupmátt þess verður að auka. enda og sérfræðinga bæði hjá einka- fyrirtækjum og opinberum stofnun- um sem í ófáum tilfellum fara vel yfír eina milljón króna á mánuði. Þegar á heildina er litið búa ís- lensk fyrirtæki við ágæta afkomu. Þannig hafa olíufélögin haft hundr- uða milljóna króna hagnað á síð- asta ári og enn meiri það sem af er þessu ári, Eimskip græddi 400 milljónir á síðasta ári og hundruða milljóna hagnaður varð af starfsemi tryggingafélaganna og útlit er fyrir enn betri afkomu á yfirstandandi ári. Þá vantar ekki að Grandi hf. hafi það bara ágætt sem og ýmis stór fyrirtæki í útgerð og fisk- vinnslu úti um landið. En Grandi hf. hefur varið stórum hluta hagn- aðar síns auk 100 milljóna króna lífeyrissjóðsláns til fjárfestinga suð- ur í Chile og hyggur á frekari fjár- festingar þar í sveit. Ríkið og Reykjavíkurborg skipta stöðugt við hvert gjaldþrota verk- takafyrirtækið á fætur öðru, -fyrir- tæki manna sem skipta um kenni- tölu á fyrirtækjum sínuin sí og æ til að komast hjá því að standa skil á opinberum gjöldum. Þessi verk- takar semja við starfsmenn sína sem undirverktaka og greiða ekki í lífeyrissjóði, greiða ekki trygg- ingagjald né opinber gjöld. Þetta framferði verktakanna virðist ekk- íslendingar hafa sýnt atorku og áræði í flugmálum Þegar rýnt er í hugmyndtr manna frá fyrstu áratugum aldarinnar um framtíð íslenskra flugmála hljótum við að dást að þeirri skarpskyggni og árvekni, sem þar kemur fram. Það er umhugsunarvert að fyrir 75 árum var fjöldi einstaklinga hér á landi reiðubúinn til að leggja fram verulega fjármuni til að gera tilraun með nýja tækni sem hafði komið fram á sjónarsviðið aðeins fimmtán árum fyrr. Þótt þessi fyrsta tilraun til flugrekstrar skilaði ekki þeim árangri, sem vonir stóðu til, kom sá tími að draumar og framtíðarsýnir þeirra manna, sem að henni stóðu, rættust og gott betur. Og sem betur fer fengu flestir þeirra að uppjifa þá tíma, enda nær öll flugsaga íslend- inga yfir tímabil, sem er heldur skemmra en meðal mannsævi. Þann- ig eru enn fjölmargir íslendingar á lífi sem voru bornir í þennan heim áður en fyrst var flogið á íslandi fyrir 75 árum. I stríðum straumi tækniframfara gleymist stundum hve miklu hefur verið áorkað á skömmum tíma. Þetta á ekki síst við um framfarir á sviði íslenskra flugmála. Því er mikilvægt að staldra við öðru hvoru og hyggja að því að þær afburða flugsamgöng- ur, sem við njótum í dag, urðu ekki til fyrirhafnarlaust, heldur kröfðust mikillar atorku, áræðis og stundum fóma. Fyrsta flugs á íslandi verður minnst í dag af flugmódelklúbbnum Þyt með því að fluglíkan af fyrstu flugvél íslendinga, sem var af Avro 504 K gerð, mun hefja sig til lofts í Vatnsmýrinni kl. 17, nákvæmlega 75 árum eftir fyrsta flugið hér á landi. Á þann hátt lýkur vel heppn- aðri afmælisdagskrá Flugmálafélags íslands og aðildarfélaga þess í tilefni af 75 ára afmæli flugs á íslandi. Heimild: Annálar ísienskra flugmála, 1. bindi; Arngrímur Sigurðsson ritstj. Höfundur er flugmálastjóri. ert há þeim í viðskiptum við opin- bera aðila. Þeir fá stöðugt ný og ný verk. Reykvískt verkafólk sér nú fram á þriðja atvinnuleysisveturinn í röð, því að þrátt fyrir góða afkomu flestra stóru atvinnufyrirtækjanna þá hefur atvinnutækifærum ekki fjölgað. Það er verið að flytja at- vinnu verkafólks úr landi í stórum stíl. Það er verið að flytja fé ein- staklinga og lífeyrissjóða úr landi í stórum stíl á meðan erlend lán eru tekin til þess að greiða atvinnu- leysisbætur. Ekki skal fjallað um skattalöggjöfina í þessari grein en ekki fer á milli mála að um veruleg- ar skattahækkanir á launafólk hef- ur verið að ræða undanfarin sex ár. Undanfarin þijú ár hefur um litla sem enga eftirvinnu verið um að ræða hjá verkafólki, en reiknað hefur verið með að á árunum þar á undan hafi 30-40% af heildartekj- um launafólks verið fyrir yfírvinnu. Þar við bætist að hluti þessa fólks hefur verið atvinnulaus nokkra mánuði undanfarin tvö ár. Vitan- lega eru menn því verr undir það búnir að mæta þriðja atvinnuleysis- vetrinum við þessar aðstæður. Fjöldi verkafólks hefur misst megnið af þeirri yfirvinnu sem það hafði um árabil. Er ætlast til að félög eins og Dagsbrún framlengi sanminga með þeim kaupmætti sem þessi laun gefa; hið samnings- bundna kaup sem er frá tæplega 50 þúsundum upp í 60 þúsund? Ef einhver heldur það, þá skal það til- kynnt hér og nú að óbreytt kaup almenns verkafólks verður ekki samþykkt. Ég vænti þess að Morgunblaðið styðji stjórn Dagsbrúnar í því að krefjast þess að þessi smánarlaun verði afnumin og kaup þessa fólks liækkað, eða aðrar þær ráðstafanir gerðar sem tiyggja aukinn kaup- mátt þess. Og ég vona að um- hyggja Morgunblaðsins nái svo langt að það styðji Dagsbrún í þeirri baráttu. Höfundur er fornuuhir Verkamannafélagsins Dagsbrúnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.