Morgunblaðið - 03.09.1994, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1994 23
AÐSENDAR GREINAR
Mörg óleyst úrlausnar-
efni við Svalbarða
í SJÓNVARPS-
ÞÆTTI í Noregi fyrir
skömmu hafði ég orð á
því að óleyst vandamál
Norðmanna vegna
Svalbarða væru fleiri
og flóknari en þau er
lytu eingöngu að hinu
svokaliaða fiskvemdar-
svæði, sem Norðmenn
lýstu yfir einhliða árið
1977. Það svæði nær
frá fjögurra mílna land-
helgismörkunum út í
200 mílur frá Svalbarða
en nýtur ekki alþjóð-
legrar viðurkenningar.
Þannig er það t.d.
staðreynd að aðrar
þjóðir hafa ekki fallist á skilgreiningu
Norðmanna á landgrunni Svalbarða
og réttindum sem af þeirri skilgrein-
ingu leiða. Norðmenn líta svo á að
Svalbarði hafi ekki sjálfstætt land-
grunn heldur sé eyjaklasinn einfald-
lega staðsettur á framlengingu af
landgrunni Noregs. Þessari túlkun
hafa t.d. Bretar harðlega mótmælt
enda fær hún ekki staðist nema litið
sé svo á að Svalbarði sé norskt land.
En ef það væri tilfellið þá hefði að
sjálfsögðu ekki þurft neinn alþjóðleg-
an Svalbarðasamning árið 1920 og
allar deilur um yfirráð og hagnýtingu
á svæðinu verið óþarfar bæði fyrr
og síðar. Allir menn sjá í hendi sér
hversu miklir hagsmunir gætu verið
í húfi ef landgrunnið í kringum Sval-
barða er jafnauðugt af olíu og svæð-
in nær Noregi. Þarf ekki að koma á
óvart þótt önnur ríki vilji ekki sam-
þykkja athugasemdalaust að Noreg-
ur slái einhliða eign
sinni á landgrunns-
svæðið.
Umdeilanieg-
lögsögumörk
Þá er umdeilanlegt
með hvaða hætti dregin
er lína milli hinnar eig-
inlegu efnahagslögsögu
Noregs og fiskverndar-
svæðisins við Sval-
barða. Hvarvetna þar
sem þessi svæði skarast
hafa Norðmenn ákveðið
að Svalbarðasvæðið
skuli víkja fyrir efna-
hagslögsögu þeirra. Því
má halda fram með
sterkum rökum að ef á annað borð
er heimilt að koma á sérstakri lög-
sögu við Svalbarða eins og fiskvernd-
arsvæðinu þá eigi mörk slíkrar lög-
sögu og efnahagslögsögu Noregs að
miðast við miðlínu.
Þarna er sem sagt ýmsum spurn-
ingum ósvarað. Þessi málefni fóru
hins vegar ekki hátt í alþjóðlegri
umræðu undanfarinna ára. Hygg ég
að vestræn ríki hafi á tímum kalda
stríðsins viljað forðast hvers konar
ágreining við Noreg um túlkun Sval-
barðasamningsins frá 1920 enda
stóðu þessi ríki þá þétt að baki Norð-
mönnum gagnvart ásælni Sovétríkj-
anna á norðlægum slóðum, m.a. á
Svalbarða sjálfum. Komu þar að
sjálfsögðu við sögu sameiginlegir
öryggishagsmunir og samstarf vest-
rænna ríkja á því sviði. Nú eru hins
vegar gerbreyttir tímar að þessu leyti
og má búast við því að jafnskjótt og
Ein leið til að leysa úr
ágreiningnum, segir
Geir Haarde, er að
kalla saman nýja Sval-
barðaráðstefnu.
Norðmenn' hyggjast ráðast í t.d. olíu-
vinnslu á landgrunni Svalbarða muni
koma til alvarlegs ágreinings við
önnur aðildarríki Svalbarðasamn-
ingsins. Er þá vafasamt að Norð-
menn komist hjá því að lúta alþjóð-
legum úrskurði um deiluatriðin.
Svalbarði, ESB og
fiskverndarsvæðið
í þeim gögnum sem lögð hafa
verið fyrir norska Stórþingið og
varða aðildarsamning Noregs við
Evrópusambandið er nokkuð vikið
að stöðu Svaibarða og fiskverndar-
svæðinu umhverfis hann. Þar er sam-
viskusamlega greint frá því að nokk-
ur ríki Evrópusambandsins hafi gert
fyrirvara við rétt Norðmanna til þess
að koma þessu svæði á. Þar segir
m.a. að þessi ríki telji að jafnræðis-
regla Svalbarðasáttmálans hljóti
einnig að gilda á fiskverndarsvæðinu.
Þetta er einmitt kjarni málsins að
því er varðar fiskverndarsvæðið.
Annaðhvort nær sáttmálinn og þar
með jafnræðisreglan aðeins til lands
á Svalbarða og hinnar eiginlegu fjög-
urra mílna landhelgi (í því tilfelli er
um að ræða úthaf utan við landhelg-
ina) ellegar að hægt er að búa til
Geir H. Haarde
nýja ytri lögsögu á grundvelli hinnar
almennu hafréttarþróunar en þá
hljóta jafnræðisákvæðin hins vegar
að eiga við. Norðmenn bjuggu hins
vegar til nýja lögsögu, fiskverndar-
svæðið, án eðlilegs tillits til jafnræð- *
isreglunnar þó svo úthlutað hafi ver-
ið einhveijum aflakvótum til þeirra
sem veitt höfðu á svæðinu á árunum
1967-77. Við mat á því hvað sé
eðlileg beiting jafnræðisreglunnar
hljóta einnig að koma við sögu aðrir
hagsmunir en veiði síðustu tíu ára
áður en fiskverndarsvæðinu var lýst
yfir.
Á það hefur svo einnig verið bent,
m.a. af þjóðréttarfræðingunum
Churchill og Ulfstein í bók þeirra um
Barentshafið, að það sé órökrétt að
erlend ríki hafi meiri rétt nærri landi
en utar, eins og túlkun Norðmanna
leiðir af sér. Samkvæmt aldagamalli
hafréttarvenju eykst réttur útlend-
inga eftir því sem ijær dregur frá
landi en ekki öfugt. Þessu hafa Norð-
merin snúið við á Svalbarðasvæðinu.
í áðurnefndum gögnum norska
Stórþingsins segir einnig að Noregur
hefði viljað ná fram í aðildarsamning-
um við ESB almennri viðurkenningu
sambandsins á túlkun Noregs á
ákvæðum Svalbarðasáttmálans. Um
það hafi hins vegar ekki náðst sam-
komulag og falli fiskverndarsvæðið
því ekki undir ákvæði aðildarsamn-
ings Noregs við ESB. Jafnframt er
skýrt frá því að Spánn, eitt ESB-ríkj-
anna, hafi beinlínis lýst sig andvígan
því að Norðmenn færu með yfirráð á
fiskverndarsvæðinu.
Þarf nýja Svalbarðaráðstefnu?
Það er því ljóst að miklu fleiri en
íslendingar hafa athugasemdir frarn
að færa við túlkun Norðmanna á
hinum ýmsu ákvæðum Svalbarða-
sáttmálans og við meðferð Noregs á
fullveldisrétti sínum samkvæmt sátt-
málanum. Ein leið til að reyna að
leysa úr ágreiningnum er að kalla
saman nýja Svalbarðaráðstefnu með
það fyrir augum að aðlaga hinn 74
ára gamla sáttmála að breyttum
aðstæðum og framþróun á sviði ha-
fréttarmála. Slíkt er hins vegar án
efa þungt í vöfum og tímafrekt.
Langskynsamlegast fyrir alla aðila,
ekki síst Norðmenn, er að leita samn-
inga um þau óleystu úrlausnarefni
sem uppi eru.
Höfundur er formaður þingflokks
sjálfstæðismanna.
Samsettar úr stöðluðum einingum.
FRYSTI
GEYMSLUR
- KÆLI
GEYMSLUR
Allar stærðir.
ALHLIÐA KÆLIÞJONUSTA
KÆLITÆKNI
Skógarhlíð 6,101 Reykjavík.Sími 91-614580. Fax. 91-614582.
Verslun KEA, Hrísalundi,
Verslun KEA, Sunnuhlíð
KEA nettó, Óseyri
Húsavík:
Kaupfélag Þingeyinga
Verslunin Búrfell, Garðarsbraut
Verslunin Þingey, Garðarsbraut 62
Kópasker:
Verslunin Kópaskeri
Raufarhöfn:
Verslunarfélag Raufarhafnar
Þórshöfn:
Kaupfélag Langnesinga
Vopnafjörður:
Kaupfélag Vopnfirðinga
Egílsstadir:
Kaupfélag Héraðsbúa
Verslunin VAL, Fellabæ
Seyðisfjörður:
Kjörbúðin Brattahlíð
Verslunin Aldan
Reyðarfjörður:
Kaupfélag Héraðsbúa
Verslunin Lykilinn hf. Búðareyri
Eskifjörður:
Pöntunarfélag Eskifjarðar, Strandgötu
Verslunin Eskikjör, Útkaupstaðarbraut
Neskaupstaður:
Kaupfélagið Fram
Melabúðin, Hólsgötu 9
Fáskrúðsfjörður:
Kaupfélag Fáskrúösfirðinga
Viöarsbúð, Búðarvegi 13
Stöðvarfjörður:
Kaupfélag Stöðfirðinga
Höfn í Hornafirði:
Verslunin Hornabær
Verslun KASK,
Vík:
Verslun K.Á. Víkurbraut 5
Kirkjubæjarklaustur:
Verslun K.Á. Klausturvegi 13
Vestmannaeyjar:
Verslun KV, Goöahrauni 1
Verslunin Eyjakaup, Strandvegi
Verslunin Eyjakjör, Hólagötu
Hvoisvöllur:
Kaupfélag Rangeyinga
Hella:
Kaupfélag Rangeyinga
Selfoss:
Hornið sf. Tryggvagötu 40
K.Á. Kaupfélag Árnesinga, Austurvegi 3-5
Verslunin Höfn, Tryggvatorgi
Laugavatn:
Verslunin Sel
Hveragerði:
Hverakaup, Breiðumörk
Verslun K.Á.
Eyrarbakki:
K.Á. Kjörbúð
Stokkseyri:
Verslun K.Á.
Sandgerðl:
Kaupfélag Suðurnesja
Garður:
Kaupfélag Suðurnesja
Keflavlk: (
Sparkaup, Hringbraut 55
Verslunin Faxabraut, Faxabraut 27
Verslunin Kaskó, Iðavöllum
Verslunin Miðbær.Hringbraut 52
Njarðvík:
Samkaup v/Reykjanesbraut
Vogar: f
Kaupfélag Suðurnesja
Grlndavík:
Staðarkjör
0
KROSS
GÖTUR
Vöm gcgn vímii
Borgarnes:
KB Hyrnan, Brúartorgi 1
•Jón og Stefán, Verslun, Borgarbraut 56
Kaupfélag Borgfirðinga
Grundarfjörður:
Verslunin Grund, Grundargötu
Ólafsvlk:
Verslunin Hvammur
Verslunin Kassinn
Verslunin Virkið, Rifi
Stykkishólmur:
Verslunin Stykkiskjör, Borgarbraut 1
Verslunin Þórshamar, Aðalgötu 17
Búðardalur:
Verslun Einars Stefánssonar,
Brekkuhvammi 12
Tálknafjörður:
Verslunin Arnarkjör, Nesvegi
Bíldudalur:
Verslunin Edinborg
Þlngeyrl:
Kaupfélag Dýrfirðinga
isafjörður:
Kaupfélag ísfirðinga
Verslunin Vöruval, Skeiði
Bolungarvik:
Verslun Einars Guðfinnssonar
Hvammstangí:
Kaupfélag V-Húnvetninga
Sauðárkrókur:
Hlíðarkaup, Akurhlíð 1
Matvörubúðin, Aðalgötu 8
Kaupfólag Skagfiröinga
Blönduós:
Kaupfélag Húnvetninga
Verslunin Vísir, Húnabraut 21
Siglufjörður:
Verslun KEA
Verslunarfólagið Ásgeir
Ölafsfjörður:
Verslun KEA
Verslunin Valberg
Dalvik:
Verslun KEA
kureyrl:
!un KEA, Byggðavegi
STYRKJUM
FORVARNIR!
Fjölnota pokar til
styrktar forvörnum
gegn vímuefnum
kosta 250 kr. og
fást á eftirtöldum
stöðum:
Reykjavík:
10-10 Verslunin Gnoðavogi 46
10-10 Verslunin Hraunbæ 102
10-10 Verslunin Norðurbrún 2
10-10 Verslunin Suðurveri
10- 11 Verslunin Álfheimum74
11- 11 Verslunin Kaupás hf. Holtavegi
Bónus Skútuvogi 13
Hagabúðin, Hjarðarhaga 47
Melabúðin, Hagamel
Hagkaup, Skeifunni
Kjöt og fiskur, Mjódd
Kjöt og fiskur, Seljabraut 54
Nóatún, Nóatúni
Plús markaðurinn, Grímsbæ
Plús markaðurinn, Straumnesi
Plús markaðurinn, Hvannarima
Garðabær:
Baugur, Suðurhraun 1, Garðabæ
Garðakaup, Garðatorgi 1, Garðabæ
Hafnarfjörður:
Fjarðarkaup hf., Hólshrauni 1b
Kaupfólag Suðurnesja, Miðvangi 41
Kjöt og fiskur, Strandgötu 5
Akranes:
Grundaval, Garðagrund 1
Skagaver, Miðbæ 3