Morgunblaðið - 03.09.1994, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1994 2 7
AÐSENPAR GREINAR
Súrdeigið og
sannleikurinn
Svar til Rögnu Bjarkar Þorvaldsdóttur
í GREIN í Moggan-
um í dag er ég settur
í þrenningu með bisk-
upnum og súrdeigi.
Það er svo sem í góðu
lagi. Ragna Björk Þor-
valdsdóttir, sem skrif-
ar greinina, gerir hins-
vegar athugasemdir
við fagleg vinnubrögð
mín og hlutleysi og ég
hef minni áhuga á að
sitja undir því. Tilefnið
er samkoma með
predikaranum Benny
Hinn í Kaplakrika, þar
sem við vorum bæði,
en ber ekki alveg sam-
an um það hvað gerð-
ist.
Fyrir þessa samkomu hafði hóp-
ur manna lofað kraftaverkum, án
skilyrða. Það var hvergi í smáa
letrinu að viðkomandi þyrfti að
vera frelsaður til að fá bót meina
sinna. Samkoman var auglýst sem:
„Kraftaverk í Kaplakrika." Hún
var ekki auglýst sem vakningar-
samkoma og í auglýsingunni stóð:
„ ... stórkostleg undur og krafta-
verk gerast þegar hann biður fyrir
sjúkum.“ Samkvæmt lýsingum var
við því að búast að fólk stigi uppúr
hjólastólum eða eins og Eiríkur
Sigurbjörnsson, sjónvarpsstjóri
Omega sagði: „Blindir sjá og halt-
ir ganga.“ Hann var ekki einn um
það því menn kepptust við að lofa
kraftaverkum af öllum stærðum
og gerðum.
Þegar slíkir menn heita fólki því
að það muni losna við alla sjúk-
dóma er vart við öðru að búast en
húsfylli. Og það var ekki annað
að sjá en að skipuleggjendur hefðu
náð til þeirra sem áttu um sárt að
binda. Ótrúlegur fjöldi fatlaðra,
blindra og heyrnarlausra var í
Kaplakrika, flestir komnir snemma
til að missa örugglega ekki af
kraftaverki.
Samkoman var hin fjörugasta.
Söngur og gleði og mikil stemmn-
ing. Og svo brast á með krafta-
verkum. Benny Hinn stóð á sviðinu
í miklum ham og sletti kraftaverk-
um útí sal. í miðri leiðslu hrópaði
hann: „Hér á hægri hönd var ein-
hver að læknast af krabbameini."
Honum á hægri hönd voru líklega
um tvö þúsund manns. Svona
gengu kraftaverkin í góða stund
og stemmningin magnaðist. Svo
var fólki boðið að koma á sviðið
og vitna. Bandarískir aðstoðar-
menn predikarans voru duglegir
við að velja fólk og koma með á
sviðið og Hinn gaf sér góðan tíma
til að ræða við fólk um sjúkleika,
losa fólk við hækjur og sitthvað
fleira. En ekkert gerðist í líkingu
við það sem var lofað. Fólk sat enn
í hjólastólum og ekki höfðu blindir
fengið sjón.
Eins og gefur að skilja tók fatl-
aða lengri tíma að komast að svið-
inu. Nokkrir, sem greinilega voru
alvarlega fatlaðir, náðu þó alla leið.
Aðstoðarmennirnir, sem voru lík-
lega á annan tug, voru mættir um
leið og leiddu þá útaf sviðinu.
Kannski er ég svona mikill efa-
semdamaður, en mér kom það
spánskt fyrir sjónir að fjá fötluðu
fólki ýtt af sviðinu á lækningar-
samkomu. Ég á aldrei eftir að
gleyma svipnum á strák sem komst
uppá svið en var ýtt nánast sam-
stundis niður. Hann var lamaður
og hefur líklega gert sér vonir um
að fá lækningu, rétt eins og allir
sem náð höfðu uppá sviðið á undan
honum. Fleiri fóru sömu leið og
hann og margir biðu við sviðið
þegar Benny Hinn ákvað að nú
væri nóg komið, kvaddi með hal-
elúja yfir hópinn og
fór.
Ég fór á samko-
muna með opnum
huga. Ég sagði frá því
sem ég sá, enda vaj
það hlutverk mitt. Á
fréttastofu Sjónvarps
eru strangar skrifaðar
reglur um hlutleysi og
fagleg vinnubrögð.
Þess er vandlega gætt
að eftir þeim sé farið
og svo var í þessari
frétt. Fréttastjóri Sjón-
varps, Bogi Ágústsson,
er sammála því að
þessar reglur hafi ekki
verið brotnar.
Sjónarmið beggja komu fram.
Ég sagði frá því að margir teldu
sig hafa fengið lækningu og ég
ræddi við konu sem hafði losnað
við verki í fótunum. Sá hópur sem
taldi sig hafa verið niðurlægðan
vildi hinsvegar lítið ræða um sam-
komuna. Ég gaf líka Eiríki Sigur-
björnssyni tækifæri til að svara
Fréttin snerist ekki um
persónu Bennys Hinns,
segir Logí Bergmann
Eiðsson, heldur að verið
sé að vekja falskar von-
ir hjá fólki og hafa það
að fíflum í nafni trúar.
fyrir sig. Ástæðan fyir því að rödd
mín brast, eins og Ragna kallar
það, var sú að Eiríkur svaraði ekki
spurningu minni. Viðtalið hafði
gengið góða stund og ég fékk allt-
af sömu rununa, sem var hvergi
nærri svari við spurningum mínum.
Þegar hann loks svaraði var komið
nýtt hljóð í strokkinn. Skyndilega
hafði engum kraftaverkum verið
lofað, heldur aðeins kynnum við
Jesú, þau væru mesta kraftaverk-
ið. Það væri allt í lagi þótt fólk
hefði ekki læknast, trúin væri aðal-
atriðið.
Ástæðan fyrir því að frétt Sjón-
varpsins var öðruvísi en frétt
Stöðvar 2, sem var þér að skapi,
var sú að ég var einn fréttamanna
á samkomunni. Ég sá hvað gerð-
ist. Reyndar höfðu þau skilaboð
verið látin ganga að fjölmiðlar
væru ekki velkomnir og gaman
væri að vita af hverju. Ég var eini
fjölmiðlamaðurinn og ég er sann-
færður um að hefðu starfsbræður
mínir mætt hefðu fréttir þeirra
verið af svipuðum toga og mín.
Myndavélar máttu ekki sjást því
bandarískir upptökumenn áttu að
vera svo fyrirferðarmiklir. Þegar
haft er í huga að þeir voru aðeins
tveir, verða þau rök undarleg og
fleiri myndatökumenn hefðu varla
stefnt samkomunni í voða. Það
mátti alls ekki og afli beitt til að
halda ljósmyndurum frá. Það sem
fólk kemur líklega til með að sjá
á Omega er stytt útgáfa af sam-
komunni, þar sem allt óþægilegt
hefur verið klippt út.
Ég hef ekkert á móti Benny
Hinn og ætla ekki að standa í
hnútukasti um persónu hans eða
annað sem snertir þessa samkomu
og ætla alls ekki að standa í meiri
bréfaskriftum. Fréttin snerist ekki
um persónu Bennys Hinns, heldur
að verið sé að vekja falskar vonir
hjá fólki og hafa það að fíflum í
nafni trúar.
Logi Bergmann
Eiðsson
m/cmf
Litið myndina með ykkar eigin litum, merkið hana og sendið til Morgunblaðsins.
Nöfn 50 krakka verða dregin úr innsendum myndum.
VINNINGARNIR ERU:
Tveir miðar á bíómyndina PUMALÍNU sem Sam-bíóin frumsýna í dag.
Einnig fá vinningshafar penna og límmiða merkta Morgunblaðinu.
m mx/cm t/iaðsjámwð/rmr m
oqqmmmrm/
Skilafrestur er til kl. 16.00 mánudaginn 12. september nk.
UTANÁSKRIFTIN ER:
Morgunblaðið - ÞUMALÍNA
Kringlunni 1-103 Reykjavík
NAFN__________________________:________ ALDUR
HEIMILI________________________________SÍMI__
PÓSTNR------------------STAÐUR_______________
Höfundur er fréttMnaður.