Morgunblaðið - 03.09.1994, Page 29

Morgunblaðið - 03.09.1994, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1994 29 kvartett, sem nokkrir guðfræðistúd- entar og einn læknastúdent stofn- uðu og sungu nokkrum sinnum okk- ur til skemmtunar. Frá mennta- skólaárunum þekktum við tónlist- argáfu Þórodds og tónlistaráhuga. Þetta voru góðar stundir. Bjartar í minningúnni. Svo liðu nokkur ár. Ung læknishjón komu í Breiðumýri, Guðný og Þóroddur. Gleði og bjart- sýni réðu ríkum í huga þeirra. Marg- ir fögnuðu komu þeirra. Og þó Aðal- dalur væri í Húsavíkurlæknishéraði var Breiðumýrarlæknirinn oftar sóttur og Þóroddur var brátt orðinn vinur svo margra þar eins og i sínu eigin héraði. Snjóþyngsli og vegir lélegir. En aldrei lét Þóroddur það aftra sér frá því að sinna starfi sínu. Alltaf fljótur að bregða við. Oftast kominn á staðinn fyrr en varði. Brátt urðu mikil og góð tengsl milli heimila okkar. Ætíð var gott að koma á heimili þeirra hjóna. Margt væri unnt að riija hér upp. Eitt atvik vil ég nefna. Veturinn 1962-1963 var ég skólastjóri Laugaskóla. Skömmu eftir áramót kom upp mislingafaraldur í skólan- um. Meirihluti nemenda hafði ekki fengið mislinga, svo að vitað var að margir myndu veikjast. Þóroddur var kallaður til og ráðgast við hann hvernig best væri að bregðast við. Ákveðið var að færa til á heimavist- unum og hafa þá sem mest í sama húsi er ekki höfðu fengið mislinga. Meirihluti nemenda veiktist og sum- ir mjög mikið. Þá var ómetanlegt að hafa lækni eins og Þórodd. Hann var löngum stundum í skólanum og gerði allt sem hann gat til að létta þjáningar og gaf góð ráð við hjúkr- un alla. Þóroddur þurfti einnig að annast sitt víðlenda hérað. En hann kom oft á dag í skólann og að nóttu ef kallað var. Hann fylgdist svo vel með hverjum sjúklingi, að ekki var á betra kosið. Þóroddur var mann- þekkjari og mannglöggur mjög. það kom sér vel þarna sem víðar. Hann vissi brátt hvað við átti í hveiju til- felli, er hann ræddi við unglingana, sem söknuðu ástríki og umönnunar foreldra. Oft, er hann hafði gengið á milli sjúklinganna, var eins og allt væri léttara og betra. Slík áhrif hafði hann á sjúklingana. Það er ekki hægt að fullþakka allt það sem hann gerði þarna þessar vikur. En þannig var Þóroddur læknir í hverri raun. Hann tengdist Laugaskóla á margan hátt fljótt eftir að hann kom í Breiðumýri. Sigurður Kristjánsson, skólastjóri Laugaskóla, var skóla- bróðir okkar Þórodds úr MA. Ég tel að samvinna og vinátta okkar þriggja ólíku manna hafi ver- ið ómetanleg fyrir okkur alla og einnig fyrir gengi Laugaskóla, sem við allir vildum veg hans sem mest- an. Við Þóroddur vorum lengi próf- dómarar við gagnfræða- og lands- próf. Þar sem annars staðar var gott með honum að starfa. Eins og fyrr getur, var Þóroddur tónlistarunnandi og sinnti • þeim málum mjög vel þau ár sem hann var læknir á Breiðumýri. Hann var söngstjóri Karlakórs Reykdæla lengi og vann þar frábært starf. Áhugi hans, að gera kórinn sem bestan, var mikill og sparaði hann þar hvorki tíma né orku. Oft kom hann á æfingu eftir að hafa farið í sjúkravitjanir í slæmu veðri og ófærð. En hann lét það ekki á sig fá. Ég þykist vita að starfið við kórinn gaf honum mikið, eins og hann gaf okkur, sem í kórnum voru, mikið frá sjálfum sér, Gott var að syngja undir hans stjórn. í nokkur ár þjálfaði hann kirkju- kór Grenjaðarstaðarkirkju, ásamt organista og varði til þess miklum tíma og orku. Hann kom langa leið á æfíngar og vann vel. Hann stjórn- aði nokkrum samsöngvum hjá kóm- um utan sveitar og innan. Þetta var mikilsvert fyrir kirkjusönginn, þó hann æfði ekki sérstaklega sálma- sönginn, nema þegar Grenjaðar- staðarkirkja var hundrað ára. Stjórn hans og þjálfun var til að fága söng- inn og gera kórinn enn betur færan um að gegna starfi sínu. Ekki var um laun að ræða í þessu starfi. Hann gerði þetta af áhuga og vin- áttu. Slíkan vinargreiða er ekki hægt að fullþakka. Kórinn bar þess merki í mörg ár, að hér hafði verið unnið vel. Þannig mætti halda áfram að rifja upp starf Þórodds og vináttu um áratugi. Hann lét ekki kirkjumálin fara fram hjá sér. Hann var í sókn- arnefnd Einarsstaðasóknar í nokkur ár. Þar var hann traustur liðsmað- ur, ráðhollur og vildi veg kirkjulegs starfs sem mestan. Hann var þá og ætíð vinur sem gott var að blanda geði við og leita ráða hjá. Heimilið hans var hlýtt og menn- ingarlegt. Margir komu þangað í lækniserindum og þá var ekki bara beðið á biðstofu. Guðný kunni og vildi taka á móti hveijum sem var af alúð og gestrisni. Margir minnast þessa enn með þökk. Og að koma í vinarheimsókn til þeirra hjóna, bæði á Breiðumýri og hér á Ákureyri, voru stundir sem ekki gleymast og við þökkum sem nutum. Það var nautn, að ræða við Þórodd um hin ýmsu mál, víða var hann heima og áhugi hans á mönn- um og málefnum mikill. Börnin þeirra hjóna, þau Ingvar, Þóra og Hólmfríður, hafa erft mann- kosti foreldra sinna og sýna í lífí sínu að þau hafa vaxið upp á góðu heimili. Við Aðalbjörg eigum svo margs að minnast og margt að þakka í öllum samskiptum okkar við Þórodd og Guðnýju og allt er það á einn veg. Þau voru veitendumir við þiggj- endur. Þökk býr því í huga. Við sendum öllum ástvinum Þórodds Jónassonar innilegar samúðarkveðj- ur og biðjum Guð að blessa minn- ingu góðs vinar. Sigurður Guðmundsson. Á sama hátt og Þingeyingar skera sig úr öðmm Islendingum skera Mývetningar sig úr öðrum Þingeyingum í mínum huga. Þóroddur Jónasson, vinur minn, sem mig langar að kveðja með fáein- um línum, var gott dæmi um það. Skarpgáfaður, músíkalskur, ham- hleypa til alls sem hann tók sér fyrir hendur, ljóðelskur, kunni þau ógrynni af kveðskap að öðru eins hef ég ekki kynnst, fjölfróður, dálít- ið sérvitur en umfram allt skemmti- legur enda mannblendinn og gest- risinn. Þá má heldur ekki gleyma, hve gott var að leita til hans, þegar erfið- leika bar að höndum. Í þessari upp- talningu er þó hvergi getið aðal ævistarfs hans, læknisstarfsins, sem hann rækti af sömu einstöku alúð- inni og samviskuseminni og allt annað, lengst af í stóru og erfiðu sveitahéraði ög síðan í stærsta byggðakjarna Norðanlands. Vinátta okkar hjóna og Þórodds er orðin löng og ljúf. Þóroddur og bóndi minn voru skólabræður í MA, fýlgdust að í læknadeild Háskólans, tóku kandídatsárið saman á Landa- koti og settust síðan báðir að á Akureyri. Ekki minnkaði vináttan, þegar Þóroddur kvæntist sinni elskulegu konu, Guðnýju Pálsdóttur, nær að segja, að þá hafi vinskap- urinn orðið fullkominn. Þau hjónin fluttu svo til Breiðumýrar, þar sem Þóroddur var héraðslæknir í nær 20 ár, en samband okkar fjögurra hélzt hið sama, þótt við sæjumst sjaldnar. Þá var það að forsjónin sendi okkur þann stóra vinning í lottói lífsins, að Þóroddur varð hér- aðslæknir á Akureyri og ekki bara það, þau hjón keyptu og fluttu inn í næsta hús við hliðina á okkur. Næstu 20 ár voru því hæg heima- tökin að rækta og njóta einstakrar vináttu sem aldrei bar skugga á og aldrei verður metin að verðleikum. Þóroddur var gæfumaður. Hann var sprottinn upp úr traustum jarð- vegi, ólst upp á menningarheimili, lærði og starfaði við það, sem hugur hans stóð til. Hann átti elskulega konu, sem hann dáði frá unglings- árum, eignaðist fyrirmyndar börn, sem aldrei hafa verið honum til annars en sóma og ánægju og sama má segja um barnbörnin. Seinustu árin stríddi Þóroddur við meiri og erfiðari sjúkdóma og áföll en manni finnst leggjandi á einn og sama mann. Öllu þessu tók hann MINNINGAR með einstöku æðruleysi og vildi sem minnst um það tala. Þar stóð líka Guðný við hlið hans eins og klettur, fómaði sér fyrir hann, ef svo má að orði kveða, enda auðnaðist hon- um að fá að skilja við þetta líf í faðmi konu og barna heima í Ás- byggð 3. I nafni okkar hjóna og barna okkar kveð ég þennan kæra og dáða aldavin okkar með sárum söknuði og sendi ástvinum hans innilegar samúðarkveðjur. Bergljót Rafnar. Andlát Þóroddar Jónassonar kemur ekki á óvart eins og heilsu- fari hans var háttað síðustu árin. Söknuður fjölskyldu hans er sár. Stór hópur vina og skjólstæðinga sér á bak heilsteyptum, starfssöm- um, gifturíkum og skemmtilegum gáfumanni. Kynni okkar Þóroddar hófust í læknadeild þrátt fyrir þó nokkum aldursmun og kynntist ég þá strax tónlistaráhuga hans og hæfileikum sem margir þekkja vel til. Síðar áttum við samstarf í félagsstarfi lækna. Varð ég þar aðnjótandi þýð- ingarmikillar ráðgjafar hans sem byggð var á þeirri þekkingu og reynslu sem hann öðlaðist í erfiðu og gifturíku ævistarfi. Starf hans við endurskoðun og tillögugerð á lögum og siðareglum Læknafélags íslands var ómetanlegt enda þótt þegar væri ljóst að hann gekk ekki heill til skógar. Hann hlífði sér þó á engan hátt og ásamt konu sinni vann hann stórvirki við undirbúning Læknatals sem út kom árið 1984. Alltaf var jafn gaman að hitta Þórodd að máli og njóta þess hve margfróður hann var um menn og málefni, gamalt og nýtt, sögu og bókmenntir auk tónlistar og læknis- fræðinnar. Við andlát hans söknum við þess sárlega að eiga þess ekki lengur kost að sitja og spjalla, hlusta á smellnar sögur og fyndin tilsvör sem honum voru alltaf tiltæk þótt hann væri fyrst og fremst alvörumaður. Við hjónin flytjum Guðnýju og allri íjölskyldunni einlægar samúð- arkveðjur og biðjumþeim blessunar. Tómas Á. Jónasson. Þóroddur Jónasson var óvenjuleg- ur maður. Gáfur hans voru miklar og margs konar. Minni hans var svo trútt, að undrum sætti, enda gerðist hann ungur brattstígur í lærdómi. Orðgáfu átti hann í ríkum mæli, smekk og tilfinningu. Kunnátta hans í persónusögu var sjaldgæflega víðfeðm og traust. Þessa naut ég. Áratugum saman var hann að fræða mig um hugðarefni mín og gerði það ekki utan við sig. Hann taldi ekkert eftir, sparaði enga fyrirhöfn, enda var hann áframgengur til allra verka. Ég er að vísu ekki fær um að segja frá hljómvísi hans eða tóngáf- um, en mér er sagt að hann hafi verið í þeim örfámenna hópi sem hefur algera tónheyrn og var þá annað eftir því. í raun og veru var Þóroddur Jón- asson alvitringur og má nærri geta hversu vitsmunir hans og gáfur hafa verið honum notadijúgar í lífs- starfi hans. Hann hafði hjartalag til þess að hressa og lífga og græða mein. ÖIl hans afstaða var lífgjöful og allt viðhorf hans mótaðist af rétt- lætiskennd, sannfæringarmætti og virðingu fyrir öðrum mönnum. Nú falla niður frá mér hringingar og spurningar, þegar efni vandast. En eftir stendur minningin um fræð- arann, græðarann og boðanda sann- inda og réttlætis. Manninn sem umfram þetta allt var listamaður, og það vammlaus listamaður. Þóroddur skrifaði ekki margt, en það sem hann skrifaði bar öll þau einkenni sem áður er lýst. „Ræðan hans var ekki rituð á blað/en rist inn í fáein hjörtu.“ Höfundur Hávamála vissi að menn lifa, þótt þeir deyi, í verkum sínum, orðstír og niðjum. Skaði mikill er íslendingum eftir slíkan mann sem Þórodd lækni, en vissu- lega lifír hann, og það góðu li'fi, í niðjum sínum, verkum og orðstír. Gísli Jónsson. GUNNAR HELGI ÓLAFSSON + Gunnar Helgi Ólafsson, Eski- hlíð 3, Sauðárkróki, fæddist 21. febrúar 1974 á Sauðárkróki. Hann lést 26. ágúst síðastliðinn. For- eldrar Helga eru Steinunn Árnadóttir og Ólafur Arnfjörð Guðmundsson en fósturfaðir hans var Atli Már Óskarsson. Gunnar Helgi gekk í skóla á Sauðár- króki en stundaði sjómennsku síðustu tvö árin. Hann átti þrjá yngri bræður, Óskar Má, Árna Þór og Jón Gest Atlasyni. Utför Gunnars Helga verður gerð frá Víðimýrarkirkju í dag. í dag kveðjum við kæran vin okkar, Gunnar Helga. Með hann í hópnum höfum við fagnað áföngum í lífi okkar, upphafi skólagöngunn- ar, fermingunni og öðrum tímamót- um. Þess vegna er sárt til þess að hugsa að hann er ekki lengur á meðal okkar. Hann var glaður og góður og alltaf tilbúinn að hjálpa öðrum. Við munum minnast hans við nýja áfanga í lífinu, á bekkjaraf- mælum og á öðrum samfundum okkar. Við söknum hans en við treystum því að honum líði vel. Við kveðjum hann með bænar- orðum sálmsins: Stýr mínu fari heilu heim í höfn á friðarlandi, þar mig i þinni gæslu geym, ó, Guð minn allsvaldandi. (V. Briem.) Foreldrum og bræðrum, ömmum og afa og ástvinum öðrum sendum við innilegar samúðarkveðjur. Bekkjarárgangur 1974, Gagnfræðaskóla Sauðárkróks. Við minnumst með söknuði látins vinar og skipsfélaga. Hann dó langt fyrir aldur fram, þegar lífíð var rétt að byija. Hann var einstaklega góður, hlýr, einlægur og traustur vinur. Starfsfélagi var hann góður og mikilvægur í okkar þrönga fé- lagsskap um borð. Oft kom hann með innskot og athugasemdir sem mikið var hlegið að því hann var fundvís á það broslega og lagði allt- af gott af mörkum með glaðværð sinni. Þannig hugsaði hann um fjöl- skyldu sína. Okkur hinum kom það á óvart hvernig hann í siglingunum fyllti klefann sinn með alls konar vörum, sem hann ætlaði að gefa ömmu sinni, foreldrum og bræðr- um. Ánægjustundirnar með honum voru margar, bæði á sjó og landi, ofan þilja og niðri í lest. Okkur finnst að stundum hefði verið óbærilegt á löngum vöktum í lest- inni ef hann hefði ekki verið þar með sína léttu lund og dugnað. Helgi var harður við '' sjálfan sig, ósérhlífínn og því afar vel liðinn um borð. Á sjónum þurfa allir að vinna mikið þegar mikill físk- ur er. í löngum túrum, eins og núna í sumar í Smugunni, var hann einn af þeim sem létti lífið og stytti stundirn- ar. Hann var fullur af lífí og í sumar vorum við með ýmsa framtíð- ardrauma, sem biðu þess að verða uppfylltir. Þess vegna er það svo undarlegt núna að hann skuli vera farinn, dáinn. Og einmitt að hann skyldi hafa veikst og dáið með þess- um hætti. Líknargjafinn þjáðra þjóða, þú, sem kyrrir vind og sjó, ættjörð vor í ystu höfum undir þinni miskunn bjó. Vertu með oss, vaktu hjá oss, veittu styrk og hugarró. Þegar boðinn heljar hækkar, Herra, lægðu vind og sjó. (Jón Magnússon.) Fjölskyldu Helga færum við okk- ar innilegustu samúðarkveðjur. - - Þórður Hólm Björnsson, Snæbjörn Hólm Björnsson. í nokkrum orðum viljum við minnast látins vinar okkar, Gunnars Helga Ólafssonar. Við vorum ná- grannar og vinir í gegnum allan grunnskólann og vináttan hélst eft- ir að skólagöngu lauk. Frá þessum tíma er margs að minnast og margt var brallað. Á gagnfræðaskólaárunum er okkur það t.d. minnisstætt þegar jólapróf- in hófust í 9. bekk. I stað lærdóms þetta kvöld tókum við okkur til og rökuðum á okkur hausana. Þegar svo átti að halda í próf þorðum við ekki að láta sjá á okkur kollana svo við settum klúta yfir klippinguna og þannig mættum við í prófið allir þrír og vorum eftir það kallaðir „Rambó-bræður“. Helgi var skemmtilegur og góður vinur. Hann létti alltaf stundimar og okkur fannst hann alltaf geta gefið af sjálfum sér. Hann vildi allt fyrir alla gera, gat ekki sagt nei við nokkurri bón, ef hann gat hjálp- að. Þannig var hann við alla, t.d. yngri bræður sína. Fjölskylda Helga var honum dýrmæt og við vomm ■ alltaf velkomnir á heimili hans og eigum þaðan minningar um margar góðar stundir. Við vottum öllum ástvinum hans samúð okkar. Við skulum hugga okkur við það að allir eiga góðar minningar um hann. Við munum sakna sárt, en Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til þess að breyta því sem ég get breytt og vit til þess að greina þar á milli. Finnur og Sveinn. t Elskuleg dóttir mín, vinkona, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG V. TÓMASOÓTTIR, Skarðshlíð 38F, Akureyri, er lést 29. ágúst, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju mánudag- inn 5. september kl. 13.30. Fyrir hönd annarra vandamanna, Sóley Sveinsdóttir, Sigtryggur Davfðsson, Sólveig Guðmundsdóttir, Tómas Guðmundsson, Rebekka Björnsdóttir, Sigurlaug Guðmundsdóttir, Hermann R. Jónsson, Guðmundur Guðmundsson, Helga G. Ásgeirsdóttir, Sóley Guðmundsdóttir, Ævar Pálsson, Kjartan Guðmundsson, Guðrún E. Skírnisdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.