Morgunblaðið - 03.09.1994, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1994 35
Hundasýning
í Digranesi
TUTTUGU og fimm ár verða lið-
in þann 4. september frá stofnun
Hundaræktarfélags íslands. I til-
efni þess mun félagið standa fyr-
ir hundasýningu í Iþróttahúsinu
Digranesi í Kópavogi á sunnu-
daginn og hefst sýningin stund-
víslega kl. 9. Úrslit munu liggja
fyrir um kl. 16.45. Sýndir verða
yfir 200 hundar af 28 hundateg-
undum, en til gamans má geta,
að á fyrstu hundasýningu félags-
ins árið 1978, voru sýndir 19
hundar af 9 tegundum.
Samband norrænna hundarækt-
arfélaga, NKU, heldur þing sitt
um sama leyti í Reykjavík, í til-
efni afmælisins. Jörgen Hindse
Madsen, Danmörku, Eva Mjelde,
Noregi og Helga Lie, Noregi, eru
öll fulltrúar sinna félaga á fund-
inum og dæma jafnframt á af-
mælissýningunni. Þar fyrir utan
mun finnski alhliða dómarinn
Börje Ehnberg dæma, þ.á m. ís-
lenska fjárhundinn, en 16 slíkir
munu nú vera skráðir til leiks.
í tilefni afmælisársins fór HRFÍ
þess á leit við alþjóðasamband
hundarætkarfélaga, FCI, að fé-
lagið fengi leyfi til að halda 2
alþjóðlegar sýningar á árinu og
var það fúslega veitt. Fyrri sýn-
ingin var á Akureyri í júní sl.
og fengu þar 10 hundar stig til
alþjóðlegs meistara, en það þýðir
að dómararnir töldu þá hunda
framúrskarandi fulltrúa sinnar
tegundar. Afmælissýningin í
Digranesi er önnur alþjóðlega
sýning HRFÍ og munu vafalaust
margir glæstir hundar fara heim
með hvíta borða, til marks um
alþjóðlegt meistarastig að þessu
sinni.
Á sýningunni verða auk þess
sölu- og kynningabásar frá þeim
aðilum sem selja vörur fyrir
hunda og hundaeigendur og
einnig verða ræktunardeildir fé-
lagsins og hundaskóli með kynn-
ingu á sínu starfí.
Leikmannaskóli
kirkjunnar að hefjast
EINS og undanfarin ár verður
Leikmannaskóli þjóðkirkjunnar
starfræktur á vetri komanda.
Skólinn starfar á vegum Fræðslu-
deildar kirkjunnar í samvinnu við
Guðfræðideild Háskóla íslands.
Leikmannaskólinn býður upp á
fræðslu fyrir almenning um
kristna trú. Meginnámskeið vetr-
arins verður með sama sniði og
undanfarin ár. Kennslugreinar
verða: Þjónusta leikmannsins í
kirkjunni, inngangsfræði Gamla
testamentisins, inngangsfræði
Nýja testamentisins, trúfræði,
helgisiðir og táknmál kirkjunnar,
kirkjusaga, siðfræði og sálgæsla.
Kennsla hefst 14. september nk
og verður á miðvikudögum kl
20-22 í Odda, kennsluhúsnæð
háskólans, stofu 101. Auk þessc
samfellda námskeiðs, sem tekui
yfir haust- og vormisseri verðui
boðið upp á styttri námskeið un
kvennaguðfræði, hugmyndir un
Jesú frá Nasaret í nútímanum.
leiðsögn við lestur Biblíunnar og
kirkjudeildafræði - íslenskar kirkj-
ur og trúfélög.
Innritun er á Biskupstofu.
Taflæfingar barna
og unglinga
TAFLFÉLAG Reykjavíkur stend-
ur fyrir skákæfingum á hveijum
laugardegi kl. 14. Æfingarnar eru
opnar öllum börnum og unglingum
14 ára og yngri.
Á æfingum eru tefldar stuttar
skákir en auk þess er boðið upp á
fyrirlestra um skák, getrauna-
skákir, þar sem farið verður yfir
skákir þekktra meistara og þátt-
takendur reyna að spá fyrir um
leiki þeirra. Sterkir skákmeistarar
koma í heimsókn og tefla fjöltefli
og keppt verður við önnur taflfé-
lög. Þá verður boðið Upp á enda-
taflsæfingar. Sérstök verðlaun
verða veitt fyrir góða mætingu og
árangur á æfingum.
Fyrsta æfingin verður í dag,
laugardaginn 3. september, kl. 14
í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur
að Faxafeni 12.
- kjarni málsins!
FRÉTTIR
Kringlan
opiná
sunnudag
UM HELGINA verður Kringlan
opin bæði á laugardag og sunnu-
dag. Sunnudagsopnunin er gerð
í tilraunaskyni, en ákveðið hefur
verið að verslunarmiðstöðin verði
opin fyrsta sunnudag hvers mán-
aðar fram til vors.
í frétt frá Kringlunni segir að
fyrirtæki hafi nú ákveðið að gera
tilraun með lengri opnunartíma
um helgar. Kringlan verður opin
fyrsta sunnudag hvers mánaðar
og mun tilraun þessi standa nú
í vetur og fram á vor. Opið verð-
ur fyrsta sunnudag hvers mánað-
ar frá kl. 13-17 og fyrsti sunnu-
dagurinn sem tilraun þessi er
gerð er sunnudagurinn 4. sept-
ember.
Um helgar verða ýmsar kynn-
ingar í húsinu, Helgina 3. og 4.
september verður lögð áhersla á
að kynna vetrartískuna í fatnaði
og förðun ásamt skólavörum og
skólafatnaði. Þá eru báðar bóka-
verslanir hússins með skiptibóka-
markað. Þá verður kynning á
snyrtivörum og tísku- og dans-
sýning.
50 þúsund
fá Mjólkur-
bikarinn
MJÓLKURBIKARLEIKNUM
sem íslenskur mjólkuriðnaður
hefur staðið fyrir í sumar er nú
formlega lokið. Þátttaka hefur
farið langt fram úr því sem búist
var við. Upphaflega hafði verið
gert ráð fyrir 20.000 þáttakend-
um, en þátttökuseðlar sem bárust
urðu alls u.þ.b. 140.000 talsins.
Samkvæmt þessu má ætla að
40.000-50.000 fjölskyldur hafi
tekið þátt í leiknum.
Ekki reyndist unnt að anna
eftirspurn eftir mjólkurbikarglös-
unum v/sumarleyfa framleiðanda
erlendis. Þeir sem ekki hafa feng-
ið glös í sínar hendur hafa nú
þegar fengið inneignarávísanir
og mega vænta glasanna fyrri
hluta okótbermánaðar. Verður
þá auglýst sérstaklega hvar og
hvenær hægt verður að nálgast
mjólkurbikarglösin.
Lýðveldisganga
Utivistar
Gangan tengd
árinu 1974
í LÝÐVELDISGÖNGUNNI
sunnudaginn 4. september er
Útivist komin að atburðum ársins
1974. Á því ári var m.a. haldið
upp á ellefu hundruð ára afmæli
íslandsbyggðar, hringvegurinn
opnaður og Norræna eldfjalla-
stöðin tók til starfa. Þessir þrír
atburðir verða aðalþema
göngunnar.
Farið verður að venju frá Ing-
ólfstorgi kl. 10.30 og gengið um
borð í skemmtiferðaskipið Árnes
og siglt út Kollafjörðin og vestur
fyrir Gróttu síðan til baka inn á
Reykjavíkina. Lagst verður að
Miðbakka og gengið upp Grófína
suður að bæjarstæðum Víkur.
Á leiðinni segir Þorleifur Ein-
arsson, jarðfræðingur, frá því
hvernig umhorfs var á Reykjavík-
ursvæðjnu árið 874 og á fyrstu
árum íslandsbyggðar. Úr Kvo-
sinni verður gengið með Tjörn-
inni og um háskólahverfið suður
í Skeijafjörð og með strönd Foss-
vogs upp á Veðurstofu. Þar mun
Páll Halldórsson, eðlisfræðingur,
sýna þátttakendum jarðeðlissvið
Veðurstofunnar. Að því loknu
verður gengið niður Klambratún
að Vegagerð ríkisins. Einar
Haukur Kristjánsson, skrifstofu-
stjóri fjallar þar um gerð hring-
vegarins krginum landið.
Að lokum verður gengið með
ströndinni vestur á Ingólfstorg.
Lýðveldisgöngunni lýkur þar á
milli kl. 16 og 17.
Lokaskemmtun
Fjörkálfanna
HALDIN verður tólfta og síðasta
barna-, unglinga- og fjölskyldu-
skemmtun Fjörkálfanna fimm
með þá Ómar og Hemma í farar-
broddi á Hótel Islandi nk. sunnu-
dag og hefst skemmtunin kl. 15.
Þar koma fram ellefu sigur-
vegarar úr keppninni úr öllum
landshlutum ásamt nokkrum
söngstjörnum nútímans, þeirra á
meðal Sigríður Beinteinsdóttir,
Stefán Hilmarsson, Páll Óskar
Hjálmtýsson og Rúnar Júlíusson.
Valinn verður söngvari æskunnar
á höfuðborgarsvæðinu í opinni
keppni. Úrslitakeppni í íslands-
mótinu í limbódansi verður háð,
þar sem reynt verður að slá ís-
landsmetið sem er 55 sentimetrar
sett á Selfossi.
Dregið verður í happdrætti
Fjörkálfa um ferð fyrir heila fjöl-
skyldu á vegum Flugleiða til
Kaupmannahafnar og auk þess
verða leikþættir, söngur og grín
á dagskrá.
f
T I L S Ö L U
.500.
Permaformhús í Skeljatangahverfi
Mosfellsbæ
PERMAFORM
Fulltrúar frá Álftárós
veita upplýsingar í
síma: 91-641340,
laugardag og sunnudag,
frákl. 13:00-15:00.
Þessi Permaformhús eru til sölu í Skeljatanga, Mosfellshœ