Morgunblaðið - 03.09.1994, Síða 36

Morgunblaðið - 03.09.1994, Síða 36
36 LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens cjfAur/kitthfi/aJt fleim, san þerjjtar Í4>_ Grettir Tommi og Jenni Ferdinand .ANP 50ME PENCIL5, 50ME PAPER, A PEN ANP A L005E-LEAF EINPER.. XAN HOO THINK OF AN'fTHINö EL5E I MI6HT NEEP FOR SCHOOL ? ... og fáeina blýanta, fáein blöð, penna og lausblaðamöppu. Geturðu látið þér detta í hug eitt- hvað annað sem ég kynni að þarfnast fyrir skólann? Spurðu hvort hann selji gáfur ... Fástu ekki um hana, hr., hún er óhóflega skrýtin! BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329 Kærar þakkir, Akranes Frá Guðmundi Jóhannssyni: FORUSTUSVEIT eftirlauna- deildar Póstmannafélags íslands hafði skipulagt ferð til Akraness þriðjudaginn 16. ágúst og tekin yrði samgöngufeijan Akraborg. Dagurinn rann upp fagur og bjart- ur og hjá ferðalöngum ríkti sól í sinni og hópurinn var fullur eftir- væntingar um hvað hans biði. Far- kosturinn lagði stundvíslega kl. 9.30 af stað frá bryggju og tók rétta klukkustund milli hafna. Á bryggjunni á Akranesi tók á móti hópnum Hermann Guðmundsson, fyrrverandi stöðvarstjóri Pósts og síma, og var leiðsögumaður á staðnum, hann var bæði strangur stjómandi en um leið gamansamur og vitnaði óspart til þess að hér væri á ferð gönguhópur sem yrði að leggja nokkuð á sig og sveikst sjálfur ekki undan merkjum og að leikslokum var hann nokkuð ánægður með hve hann dugði til gangsins. Ekki bara sögur af þeim sem höfðu með sér „þarfasta þjón- inn“ nútímans og léttu sér gönguna svona öðru hvoru og sumra ann- arra. Fyrst lá leiðin að stór fyrir- tækinu Haraldur Böðvarsson hf., þar tók á móti okkur rekstrarstjóri þess og fræddi okkur í stómm dráttum um vaxtarskeið þess allt frá upphafi er árabátamir vora alls ráðandi til fiskiróðra og til nútíma skipa dagsins í dag. Af þessari kynningu lokinni barst rekstrar- stjóranum liðsauki þar sem yfir verkstjórinn kom honum til aðstoð- ar til að stjóma þessum föralýð. Þessir heiðursmenn gáfu okkur síð- an leikreglur um þrifnað og hegðun og skiptu síðan hópnum á milli sín og lögðu á stað í hringferð um vinnusvæðið. Þarna var margt framandi fyrir fáfróða að sjá. Vinnsluhringurinn er margbrotinn og hinar mörgu og fögra frúr og meyjac þurfa að hafa vökul augu við hin vandasömu og nákvæmu störf sem þama fer fram. Ekki er að efa að svona heimsóknir á vinnu- staði hafa traflandi og teíjandi áhrif á stjómendur og annað starfs- fólk. En þrátt fyrir það þá nutum við góðrar og fræðandi upplýsinga og sáum hvemig vinnandi hönd breytir hráefni í verðmæta vöra á erlendan markað þjóð vorri til framdráttar. Allt hreinlæti þama er í fyrirrúmi og ekki verður séð þegar gengið er um utandyra hvað fram fer innan veggja. Að yfirferð lokinni var boðið upp á kaffisopa Gagnasafn Morgimblaðsins Allt efni sem birtist í Morgun- blaðinu og Lesbók verður fram- vegis varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskil- ur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endur- birtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. í hinum vistlega kaffisal starfs- fólks. Er hér var komið voram við farin að syndga upp á matartíma leiðsögumanna okkar og var því tími til kominn að kveðja og þakka fyrir sig. Kærar þakkir Haraldur Böðvars- son hf. fyrir góða og skemmtilega heimsókn til ykkar. Sögubrunnur Nú lá leiðin að veitingastaðnum Langasandi þar sem orkan var endurnýjuð svo mönnum sæktist betur það sem framundan var. Þegar neytt hafði verið orku- gjafans, var haldið að Byggðasafni staðarins. Þar bar margt fyrir augu, sem sýndi lífsreynslusögu forfeðranna og hve listasmiðir þeir hafa verið. Þetta safn er mikill sögubrannur og eiga þeir, sem framkvæðið áttu að varðveislu hlutanna og uppsetningu þeirra, þakkir skyldar. Það iiggur mikilí menningarbrannur í safni sem þessu. Þegar hópurinn hafði mettað sig af forvitni við skoðun hlutanna og degi farið að halla bæði í eigin- legri og óeiginlegri merkingu lá leiðin að öldrunarheimilinu Höfða. Glöggt er gests augað stendur þar, og með það í huga var engin merki þess að sjá að íbúarnir væra neinar homrekur, allt sem fyrir augu bar, bar þess vitni að vel væri fyrir öllu séð, og vistmennim- ir eyddu efri árunum við góða að- hlynningu og yndu vel við sitt. Þessari heimsókn lauk með því að stöðvarstjóri Pósts og síma, Ragnar Helgason, bauð hópnum upp á myndarlegar veitingar á Langasandi, sem vora vel þegnar eftir erfiði dagsins. Kærar þakkir, Ragnar. Menn voru léttir í lund og létu gamansemi ráða ríkjum. Leiðsögu- maður okkar, Hemiann, fylgdi okkur til borðs í Akraborgina þar sem við kvöddum hann full þakk- lætis fyrir góða leiðsögn og góðan dag. í lygnum sjó og veðurblíðu naut hópurinn ferðarinnar yfir Faxaflóa með góðar minningar eftir daginn. Ég tek mér það bes- saleyfi að færa þakkir fyrir félag- ana og segja: Kærar þakkir fyrir daginn, Akranes. GUÐMUNDUR JÓHANNSSON, formaður Landssambands eftir- launaþega ríkis og bæja.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.