Morgunblaðið - 03.09.1994, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1994 37
BREF TIL BLAÐSINS
Hver er trú þín,
kirkjunnar þjónn?
Frá Daníel Þorsteinssyni:
HVER er trú þín kirkjunnar þjónn?
Ef heimurinn hatar yður, þá vitið
að hann hefur hatað mig fyrr en
yður. Væruð þér af heiminum,
mundi heimurinn elska sitt eigið.
Heimurinn hatar yður af því að þér
eruð ekki af heiminum, heldur hef
ég útvalið yður úr heiminum. Jóh.
15:18.
Með þessum orðum Jesú Krists
vil ég vekja athygli biskups þjóð-
kirkjunnar og séra Geirs Waage á
hve rangur málflutningur þeirra er
gagnvart þeim er héldu samkomuna
með Benny Hinn í Kaplakrika. Allt
frá því að umrædd samkoma var
boðuð gagntók vandlæting ýmsa
aðila, ekki var því von á góðu þeg-
ar kæmi að sjálfri samkomunni,
hvað þá þegar hún væri afstaðin.
Því fór svo að á samkomuna komu
einstaklingar með afar neikvæðu
hugarfari, gagngert í þeim tilgangi
að úthrópa það sem þarna færi fram
og með þessu fólki hefur þú, kæri
biskup, róið undir í málflutningi
þínum.
Vegna þessa vil ég vekja athygli
þína á að samkomur Benny Hinn
eru lofgerðar- og bænasamkomur
Guði til dýrðar. Lofgjörðin er ákall
til föðurins og heilags anda, hjálpar-
ans sem Jesús talar um að komi í
sinn stað. Jóh. 16:7-15. Þannig er
það lofgjörðin sem kallar nærveru
Guðs yfir staðinn, Hann dvelur í
lofgjörð síns lýðs, vegna þessa m.a.
fær fólk bót meina sinna á sam-
komu Benny Hinn. Jesús læknaði
sjúka og fyrir trú urðu þeir heilir
og hann gaf þeim sem sannarlega
boða Guðs orð fyrirheit um að þeir
mundu gera meiri verk en hann.
Jóh. 14:12. í stað þess að benda á
þetta hefur þú biskup, einnig Geir
Waage, tekið ranglega undir með
hneykslunarhellum þessa heims um
að þarna fari loddari er beitir eins-
konar múgseíjun og fjöldadáleiðslu.
Ég spyr því, ef svo var, hverjir voru
þá í ástandi og þess umkomnir að
lýsa því sem þarna fór fram? Þar
sem Geir Waage hefur einnig látið
DV leiða sig út í umijöllun um per-
sónu og fjármál Benny Hinn, þá
skuldar hann þjóðinni skýringar á
málefnum eigin kirkju. Þar vil ég
nefna eignamyndum þjóðkirkjunnar
og fjármál almennt. í hvaða til-
gangi er sú gífurlega eignamyndun
sem þar hefur átt sér stað og hvern-
ig er hún fjármögnuð? Ég vil einnig
spyrja hvað réttlætir hana og gerir
FRÁ einni af samkomum Bennys
Hinns.
hana rétthærri en þá eignamyndun
sem á sér stað í kristilegu starfi
Bennys Hinns? Geir Waage bendir
réttilega í DV á þau orð Páls að
það beri að reyna andann þegar
boðun Guðs orðs á sér stað. En
hann gétur þess ekki að sá einn
getur reynt andann sem hefur með-
tekið hjálpræðisverk Jesú Krists
fyrir trú.
Biskup íslands og Geir Waage
skulda þjóðinni sannan biblíuboð-
skap, þ.e.a.s. boðskap sem er
ómengaður af kennisetningum og
geðþóttaáliti manna. Trú fólks er í
molum.
DANÍEL ÞORSTEINSSON,
Mávahlíð 31,
Reykjavík.
Ukraína
Frá Júríj Iteshetov:
Kæri ritstjóri.
í sambandi við grein Arnórs
Hannibalssonar prófessors „Úkra-
ína“ 30. ágúst 1994 vil ég vekja
athygli á eftirfarandi.
1. Mikið og margvíslegt bar á
góma í samskiptum Úkraínu og
Rússlands í sögu þeirra. í 9-12 ald-
ir voru þau eitt ríki, sem hét Kiev
Rússland. Þetta var glæsilegt tíma-
bil í sögu þeirra.
2. Á sovéttímum var háskólinn
í Kiev aldrei „á rússnesku“. Flest
dagblöð í Úkraínu voru á úkra-
ínsku, úkraínskt mál var alltaf
kennt í skólum landsins. Af 89 at-
vinnuleikhúsum voru 75 á úkra-
ínsku. Hið stærsta þeirra, Óperu-
og balletleikhúsið í Kiev, heimsótti
á sínum tíma Island.
3. Höfundurinn segir að hrær-
ingar í úkraínskum bókmenntum
næðu lítt til bænda. Ekki get ég
verið sammála honum. Úkraínskt
mál var alltaf talað einmitt í sveit-
um landsins og mikil rækt var lögð
við það og úkraínskar bókmenntir
þar.
4. Þegar prófessorinn er að
segja frá seinni heimsstyijöld forð-
ast hann að minnast á Þjóðveija.
Þýðir það að hörmungar stríðsins
væru líka Rússum að kenna?
5. „Sovétstjórnin gerði Úkraínu
að afskekktu kornræktarhéraði.“
Ekki veit ég hve afskekkt það var,
en um aldir hefur Úkraína verið
kornræktarhérað og íbúar landsins
voru stoltir af því, enda var hveitið
heimsfræg útflutningsvara Úkra-
ínumanna. Það er einmitt vanda-
mál að ekki er hægt að selja það
núna með sama hætti.
6. Úkraína var eitt mikilvæg-
asta iðnaðarlýðveldi Sovétríkjanna
— Dniepr rafmagnsorkuver var
byggt einmitt í Ukraínu 1932. í
Úkraínu voru framleiddar flugvél-
ar, allskonar skip og bátar, dráttar-
vélar, vélar, rafmagnsútbúnaður,
útvarps- og sjónvarpstæki, kæli-
skápar o.fl. Kiev og Kharkov voru
stærstu iðnaðar-, vísinda- og menn-
ingarborgir í Sovétríkjunum. Lífs-
kjör almennings (húsnæði, mat-
væli) voru betri í Kiev en í Moskvu.
Var allt þetta gert til að „henta
nýlenduvaldinu“, eins og Arnór
Hannibalsson segir?
7. „Úkraína var gerð efnahags-
lega háð Rússlandi.“ Má líka segja
að Rússland hafi verið gert efna-
hagslega háð Úkraínu, enda eðli-
legt í nútímaþjóðfélagi. í síðustu
kosningum sagði Leonid Kútsjma
forsetaefni margsinnis að þeir sem
vildu slíta þessi eðlilegu bönd Úkra-
ínu og Rússlands hefðu eyðilagt
efnahag landsins. Þetta voru hans
sterkustu rök og var hann eftir
öllu að dæma þess vegna kosinn
forseti.
8. Mikið óréttlæti var framið
gegn Krimtatorum á dögum Stal-
íns, en þeir voru þó alltaf minni-
hlutahópur á Krím, borið saman
við aðrar þjóðir sem búa þar.
9. „Úkraína hefur ekkert sem
þarf til að halda úti flota: Skipa-
smíða og viðgerðastöðvar..." Al-
kunnugt er að í Úkraínu eru
stærstu skipasmíða- og viðgerða-
stöðvar Sovétríkjanna í Nikolaev
og Kherson. Mörg skip, sem til-
heyra Svartahafsflotanum, mörg
skip, sem heimsækja ísland, voru
smíðuð þar.
10. Síðustu kosningar í Úkraínu
hafa sýnt að þeir sem vilja auka
andúð milli Rússa og Úkraínu-
manna hafa lítinn stuðning al-
mennings. Samstarf Úkraínu og
Rússlands á grundvelli jafnréttis,
lýðræðislegrar þróunar verður eitt
af forsendum friðar og velgengni í
Evrópu.
JÚRÍJ RESHETOV,
sendiherra Rússlands.
KOR LANGHOLTSKIRKJU
Getum bætt viö söngfólki.
Góð rödd og tónheyrn er frumskilyrði. Söngfólk með
tónlistarmenntun gengur þó að öðru jöfnu fyrir.
Upplýsingar í Langholtskirkju í símum 689430 og
33173 á skrifstofutíma fyrir 10. september.
fyrir börn og unglinga. - Skólinn verður settur 15. september.
Kennslugreinareru tóníræði, tónheym, raddþjálíun og samsöngur.
Kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 17 -18:10
fyrirbyrjendurog 17:50 -19:10 fyrirþá semhafaundirstöðuþekkingu
í tónlist. Kennarar eru Signý Sæmundsdóttir, Helga Björg Svansdóttir
og Jón Stefánsson. Kennslugjald er kr.12.000 fyrir hvora önn.
Nánari upplýsingar og innritun í Langholtskirkju í simum
35750 og 689430 á skrifstofutíma fyrir 15. september.
Stórgóð
heimilisþ
5 kg. - 800 snúningar á mínútu
imilistæki hf
Umboði
X Ný verkfæraverslun
^Ví Skeifunni 13 (á móti Hagkau
í tiléfni opnunarinnar bjóðum við á
Skrúf-
járnasetf
kr. 590
Verið
velkomin
Opið
um helgina
Verkfæralagerinn
Skeifunni 13, sími 88 60 90
Skrúf- stykki 150 mm, m/snúningi kr. 3.256 Lyklasett op./iok., 12 stk. 6-22 mm kr. 990 Tangasett 6 stk. kr. 990 Klauf- hamar m/fiberskafti kr. 495