Morgunblaðið - 03.09.1994, Síða 38
38 LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
EKTA SVEITABÖLL
Á MÖLINNI
Á HÓTEL ÍSLANBI
LAU8ABBASSKVÖLB
Fánar, ein vinsælasta
jcráarhljómsveit landsins
09
hijómsveitin Britnkló
ásamt
BjörgvinHalldórsson
flúsií opnaá (ti. 22.
Verð aðeins kr. 500
HGmfohAND
Sími 687111.
BAR
Smiðjuvegi 14 (rauð gata) .
í Kópavogi, sími: 87 20 20 *
Galastuð;
«
Anna Vilhjalms og *
Garðar Karlsson
flytja hressilega danstónlist .
Stórt bardansuólf *
Galamatur fyrir liópa
af ýmsu tilefni, nieð lifandi
tónlist í haupbœti
■hverja helgi
Sá stóri á aðeins 350 kr!
Enginn aðgangseyrir
JMiúrigitm1 Sjábu hlutina í víbara samhengi!
- kjarni málsins!
VAGNHÖFÐA 11, REYKJAVIK, SIMI 685090 - ,
Dansleikur
íkvöldkl. 22-03
Hljómsveitin Tónik leikur fyrir dansi
Miðaverð kr. 800
Miða-og borðapantanir
í símum 875090 og 670051.
F0STUDAGS- OG LAUGARDAGSKVOLD
t "Því ekki aö taka lífið létt!
'• ••. Borðapantanirísíma686220 * * • •’
IDAG
BRIDS
Umsjón Guðm. I’ á 11
Arnarson
„ÞÚ hefðir væntanlega spil-
að út tígli ef ég hefði sagt
lauf.“ Austur gat ekki stillt
sig þegar hann sá útspil
félaga síns gegn slemmu
suðurs. Það var laufdrottn-
ing, en sjálfur hafði hann
sagt tígul og vildi fá þann
lit út:
Suður gefur; A/V á
hættu.
Norður
♦ ÁG1097
V 73
♦ 1053
♦ K87
Vestur
♦ 654
V 9862
♦ -
♦ DG10953
Austur
♦ 82
V 5
♦ KDG9876
♦ Á62
Suður
♦ KD3
▼ ÁKDG104
♦ Á42
♦ 4
Vestur Norður Austur Suður 1 hjarta
Pass 1 spaði 2 tígiar 3 tíglar
Pass 4 spaðar Pass 4 grönd
Pass 5 tíglar Pass 6 hjörtu
Pass Pass Pass
Útspil: laufdrottning.
Sagnhafi lét kónginn á
drottninguna og austur drap
á ásinn. Og hélt áfram á
sömu nótum:
„Ég er ekki að leika mér
að því að koma inn á hætt-
unni á ónýtan lit. Eins gott
að þetta „frumlega" útspil
gaf ekki slemmuna," lauk
austur máli sínu og lamdi
laufsexunni á borðið. Sagn-
hafi trompaði og lagði upp.
og nú fékk vestur málið:
„Fyrirgefðu makker. Ég
hefði víst átt að styðja tígul-
inn. Þú hefðir þá örugglega
spilað tígli til baka í öðrum
slag.“
Mistök austurs eru auðvit-
að bamaleg, enda fór öll
hugsunin í að kenna makker
hiýðni. Hann hafði tvennt sér
til leiðsagnar: í fyrsta lagi
þá staðreynd að makker
hans spilaði ekki út tígli (sem
fór ekki fram hjá honum),
og annan stað ásaspumingu
suðurs. Með tvo eða fleiri
hunda í laufi hefði suður
aldrei spurt um ása.
E.S. Frá bæjardyrum suð-
urs kom til greina að dúkka
laufdrottninguna, en svo
grunsamleg spilamennska
hefði jafnvel getað kveikt á
pemnni hjá þessum tiltekna
austurspilara.
ÞESSAR stúlkur héldu hlutaveltu og færðu Rauða
krossinum ágóðann sem varð kr. 1.760 til styrktar
bágstöddum í Rúanda. Þær heita Erla, Valgerður,
Elín, Oddrún, Salka.
ÞESSAR stúlkur héldu hlutaveltu nýlega og varð
ágóðinn 2.820 krónur sem þær færðu Rauða kross-
inum til styrktar bágstöddum í Rúanda. Þær heita
Matthildur Sunna Þorláksdóttir og Kristín Björk
Einarsdóttir.
VELVAKANDI
Svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
ÍHVAÐFER
TRYGGINGJA-
GJALDIÐ?
VERKTAKI hringdi og
sagðist viija fá svör við
því í hvað það 6,55%
tryggingagjald sem
hann þarf að greiða af
tekjum sínum fer. Hann
segist fá mánaðarlega
sendan óútfylltan
gíróseðil frá Ríkisskatt-
stjóra sem hann á að
fylla út sjálfur í
samræmi við áætlaðar
tekjur og gert að greiða
hinn 1. hvers mánaðar.
Eftir að hafa innt eft-
ir því hjá tollembættinu
hvaða gjald þetta væri,
var honum sagt að þetta
væri í raun ekkert annað
en viðbótarskattur sem
gæfi honum engin rétt-
indi í sambandi við
tryggingar.
Nú vill hann fá svör
við því hvaða réttindi
og/eða skyldur þessi
skattur færir honum og
í hvað þetta gjald fer.
Borgnm þeim
fyrir verkfallið!
HRINGT var til Velvak-
anda og stungið upp á
að tónlistarmönnum
þeim, sem ætla í verk-
fall í Óperunni, verði
borgaðar 6.000 krónur á
dag fyrir að vera sem
lengst í verkfalli. Það er
sú upphæð sem þeir fá
á kvöldi fyrir að spila.
Allir. geta séð hvað
það sparar þjóðinni stór-
ar upphæðir ef Kristján
Jóhannsson getur ekki
sungið þar, því hann fær
800.000 krónur fyrir
hvert skipti sem hann
kemur fram.
Tapað/fundið
Úr tapaðist
SILFRAÐ úr af gerðinni
Orient tapaðist á bíla-
stæði, annaðhvort við
Hamraborg 7 eða bíla-
stæði á horni Háteigs-
vegar og Þverholts, fyrir
rúmum tveimur vikum.
Finnandi vinsamlega
hringi í síma 42515 eða
683024.
Farsi
Víkverji skrifar...
Ferðamannastraumur hefur
aukizt mikið þetta sumar. Lík-
legt er að aukningin verði á bilinu
10 til 12%, eða svipuð aukning og
í fyrra og er þá miðað við árið áður
í báðum tilfellum. Mikilvægt er að
menn fái réttar upplýsingar um
ferðamöguleika og hvernig bezt sé
að ferðast um landið, svo að útlend-
ingarnir verði ánægðir og komi aft-
ur og segi vinum sínum frá ánægju-
legri ferð til íslands.
Nýlega hitti Víkveiji Austurríkis-
mann, sem keypt hafði ferð um
ísland í Vínarborg. Ferðaáætlunin
var svolítið óvanaleg, a.m.k. hefði
Víkveiji engum ráðlagt að ferðast
um landið með þeim hætti, sem
austurríska ferðaskrifstofan skipu-
lagði ferðina.
Ferðalangurinn kom til Reykja-
víkur á mánudegi og gisti fyrstu
nóttina á Hótel Sögðu. Um morgun-
inn fór hann síðan með flugi til
Hafnar í Homafirði, þar sem beið
hans bílaleigubíll. Síðan var honum
gert að aka á Kirkjubæjarklaustur,
þar sem hann átti að gista næstu
nótt. Hann varð því að aka um
Suðursveit og Öræfin í einum
spreng til þess að ná háttum á
Klaustri, enda þótt margt sé for-
vitnilegt að skoða á þessari leið.
Næsti náttstaður var síðan
ákveðinn Skógar og síðan Hótel
Örk í Hveragerði. Þá var ferðinni
heitið að Laugarvatni og dvalist á
Hótel Eddu og loks við Bláa lónið.
Austurríkismaðurinn var afskap-
lega ánægður með dvölina við Bláa
lónið. Þar voru honum og konu
hans boðnar heimabakaðar kökur
og honum fannst hótelið þar af-
skaplega heimilislegt og þægilegt.
Loks lauk þessari ferð um landið
með dvöl á Hótel Sögu, þaðan, sem
upphaflega var haldið af stað í ferð-
ina.
xxx
Heldur fannst Víkveija þessi
leiðalýsing óvenjuleg og er
þess fullviss að íslendingur, sem
þekkti landið, myndi aldrei skipu-
leggja hana með þessum hætti.
Einnig var gestinum boðið upp á
að fara að Eldey til þess að skoða
þá miklu fuglabyggð, sem þar er.
Mun þá vera ekið með ferðalangana
að Reykjanesvita og þeim fenginn
sjónauki til þess að kíkja út á eyna.
xxx
Ivikunni snæddi Víkveiji kvöld-
verð í Viðey. Þessi perla við
Sundin skartaði sínu fegursta í frá-
bæru veðri. Farið var með erlenda
gesti í eyna þetta kvöld og allir sem
einn hrifust af fegurð eyjarinnar,
þar sem menn geta andað jafnt að
sé fersku sjávarloftinu og þeirri
miklu sögu, sem þar er við hvert
fótmál. Borgarstjórn Reykjavíkur,
sem endurreisti hina fornfrægu
Viðeyjarstofu og kom þar upp
fyrsta flokks veitingastað, á mikinn
heiður skilinn. Það er í senn
skemmtilegt og ánægjulegt að geta
farið með erlenda gesti á slíkan
stað.