Morgunblaðið - 03.09.1994, Síða 40
, 40 LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1994
FÓLK í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ
Mannfagnaður
Casa-
blanca
opnar á ný
SKEMMTISTAÐURINN
Casablanca mun opna um
næstu helgi eftir nokkurt hlé.
Það var því auglýst eftir starfs-
fólki og sóttu 250 manns um,
en aðeins 35 voru ráðnir.
Á myndinni sést starfsfólkið á
kvöldverðarfundi þar sem lagt
var á ráðin fyrir veturinn.
Skemmtanastjórar verða þeir
Gunnar Jóhannsson, Jón Páll
Gestsson og Kristinn S. Thor-
arensen.
► ALLIR þekkja frönsku þokka-
gyðjuna Brigitte Bardot. Hún
*. þótti á sínum tíma vera svo kyn-
þokkafull að það horfði beinlínis
til vandræða. Þegar kvikmyndin
„And God Created Woman“ var
sýnd í Dallas, bannaði lögreglan
svörtu fólki að horfa á myndina
af ótta við að því yrði of heitt
í hamsi. I gamaldags smábæ i
New York-fylki keypti prestur
alla miða á sýningu myndarinn-
ar til að hindra að bæjarbúar
sæju Bardot nakta á hvíta tjald-
inu.
» Núna nálgast sextugsafmæli
leikkonunnar og henni hefur
loksins tekist að finna tilgang
með lífi sinu eftir að hún hætti
kvikmyndaleik. Hún er orðinn
öflugur talsmaður dýravernd-
unarsinna og berst fyrir vernd-
un allra dýra, allt frá kanadísk-
um selum til mongólskra úlfa.
En það tók hana tima að ná jafn-
vægi á líf sitt. Þegar hún fékk
leið á kvikmyndaleik reyndi hún
nokkrum sinnum að fremja
sjálfsmorð. Hún varð einnig að
horfast í augu við að hafa brugð-
ist í móðurhlutverkinu eftir að
hafa ekki séð dóttur sína í tíu ár.
Allt þetta kemur fram í nýrri
' ævisögusemgefinhefurverið
út um Bardot og nefnist „Bard-
ot: Two Lives“. Þar kemur einn-
ig fram að núna blasa betri
tímar við leikkonuninni. „Ég er
endurborin," segir hún, „allt
Polanski
ennþá útlægur
ROMAN Polanski flúði Bandaríkin
árið 1977 eftir að hafa verið
dæmdur fyrir samræði við þrettán
ára stúlku. Hún sættist við Pol-
anski á síðasta ári, eftir að hafa
fengið greiddar bætur frá honum.
Yfirvöld í Kaliforníu segja að mál
hans þurfi samt að fara fyrir dóm-
stóla snúi hann aftur til Bandaríkj-
anna og ekki sé útilokað að í kjöl-
farið fylgi fangelsisdómur. Pol-
anski er nú sextíu ára gamall og
hefur komið sér vel fyrir í Frakk-
landi. Þar leikstýrir hann hverri
úrvalskvikmyndinni á fætur ann-
arri ásamt því að ala upp eins árs
dóttur sína með eiginkonu sinni,
leikkonunni Emanuelle Seign-
er, en hún er tuttugu og
átta ára gömul.
Starfsfolkið ræddi malm á
kvöldverðarfundi.
Bardot
Dýraverndunarsinninn Brig-
itte Bardot endurborin.
Tvö líf
Þessi mynd var tekin af Pol-
anski i fangelsi í Kaliforníu
þar sem hann undirgekkst
geðrannsókn eftir að hafa ját-
að að hafa haft samræði við
þrettán ára gamla stúlku.
Hann flúði Bandaríkin
skömmu síðar.
sem ég hafðist að áður en ég
vann að dýraverndun á ekki
lengur við mig. í raun er
verndunin ekki vinna heldur
trúarbrögð."
Trent
Reznor
enginn
Cobain
TRENT Reznor, söngvari
hljómsveitarinnar Nine Inch
Nails, er oft mjög þunglyndur
og sagði nýlega í viðtali: „Ég
er ekki stoltur af því, en ég
þoli ekki sjálfan mig og líkar
engan veginn hvernig ég er.“
Hann sagði þó að ekki myndi
fara eins fyrir sér og Kurt
Cobain, sem framdi sjálfsmorð
í vor. „Við erum ólíkir að þvi
leyti að ég er ekki heróínfik-
ill,“ segir hann. „Ég sé hlutina
í skýrara ljósi en hann gerði.
Þótt ég fari f þunglyndi sting
ég ekki nál í handlegginn á
mér og sprauta mig með heró-
íni.
/ kvöld kl. 8.30 sýnum við stutta
kynningarmynd um DTS digital hljóðkerfi
Háskólabíós á undan sýningu á
Sönnum lygum sem að sjálfsögðu er í DTS
digital. Brot úr nokkrum myndum sem
skarað hafa framúr í hljóðvinnslu verða
sýnd. Áhugaverð mynd fyrir alla unnendur
góðra kvikmynda.
Múslimar mótmæla „True Lies“
MÚSLIMAR víða um heim eru nú
æfir út af „True Lies“, nýjustu
mynd Arnolds Sehwarzeneggers.
Ástæðan er sú að þeim þykir það
bera vott um kynþáttahatur í þeirra
garð að illmenni myndarinnar eiga
að vera bókstafstrúaðir íslamskir
hryðjuverkamenn sem hóta að
fremja hryðjuverk með kjarnorku-
vopnum í Bandaríkjunum.
Talsmenn múslima í Bandaríkj-
unum segjast viðurkenna að það
sé að vísu ekkert nýtt að Hollywood
leiti illmenna í fjarlægum löndum
(samanber íslenska íshokkíliðið í
Mighty Ducks 2) en segja að „True
Lies“ stuðli að útbreiðslu fordóma
og haturs í garð trúarbragða þeirra
og menningarheims. Þeir hafa þess
vegna brugðið á það ráð að hvetja
tíu milljónir múslima í Bandaríkjun-
um til þess að sniðganga myndina
og einnig sent út hvatningu til allra
þeirra sem vilja vinna gegn út-
breiðslu fordóma og haturs að gera
slíkt til sama.
Þá.hafa múslimaleiðtogarnir sett
sig í samband við 54 ríki í heiminum
þar sem múslimar eru við völd og
hvatt þá til að banna dreifingu
myndarinnar í löndum sínum.
Aðstandendur myndarinnar
segja hins vegar að þessi hörðu við-
brögð séu með öllu ástæðulaus.
„Við berum mikla virðingu fyrir
arabaheiminum," sagði Schwarzen-
egger á blaðamannafundi þar sem
spjótunum var beint að honum
vegna þessa. James Cameron, hinn
írskættaði leikstjóri, hefur þetta um
málið að segja: „Mig vantaði bara
einhver hentug illmenni. Það gæti
hafa orðið hver sem er. Ég gæti
eins hafa valið írska hryðjuverka-
menn.