Morgunblaðið - 03.09.1994, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1994 45
I
)
)
\
>
I
>
I
;
9
9
9
.
KNATTSPYRNA
Knattspymaná
eftir að eflast
- segir Omdal, formaður unglinganefndar UEFA
PER Omdal, formaður unglinganefndar Knattspyrnusambands
Evrópu, UEFA, og stjórnarmaður FIFA er sannfærður um að
uppbygging knattspyrnunnar, einkum í Evrópu, sé f mjög góðum
farvegi. Bilið á milli þjóða sé ávallt að minnka og gott og öflugt
starf Islendinga skili sér augljóslega æ betur í stöðugt samkeppn-
isfærari liðum.
B ROY Evans, fram-
kvæmdastjóri Liverpool, tók
aftur fram seðlaveskið í gær
og keypti varnarmanninn
John Scales frá Wimbledon
fyrir 3,5 milljónir punda og
hefur því eytt rúmlega 7 millj-
ónum punda í tvo leikmenn á
einum sólarhring, en hann
keypti varnarmanninn Phil
Babb fyrir 3,6 milljónir á
fimmtudag.
B JOHN Scales er 28 ára
gamall og var keyptur til
Wimbledon frá Bristol City
fyrir sex árum á aðeins 70
þúsund pund.
ÚRSLIT
Knattspyrna
3. deild:
Víðir - Reynir S.............1:0
Guðmundur Valur Sigurðsson
Þýskaland
Duisburg — Bayern Munchen....0:3
- (Neriinger 8., Witeczek 26., Hel-
mer 42.).
Freiburg — Werder Bremen.....1:3
Gladbach — Dynamo Dresden ...2:0
(Martin Dahlin 46., Effenberg 89.)
Islandsmót
Úrslitaleikur 3. fl. karla milii Fram
og KR verður á morgun á Vaibjarn-
arvelli kl. 17.
Handknattleikur
Reykjavíkurmótið
A-riðill:
U-18-ÍH....................19:27
Valur - KA ................21:21
KA-U-18....................36:21
ÍH - Valur.................21:27
KA-ÍH......................29:23
Valur-U-18.................26:20
B-riðill:
ÍR-Fram....................29:16
Haukar - Fylkir............28:24
Haukar - ÍR................27:25
Fylkir - Fram..............26:20
Fram - Haukar..............13:29
ÍR-Fylkir..................18:19
C-riðill:
UMFA-HK....................28:22
Víkingur- UMFA.............19:19
HK - Víkingur..............18:30
KR-FH......................21:28
D-riðill:
Stjarnan - KR .............23:17
FH - Breiðablik............28:24
EH - Stjarnan..............24:19
Breiðablik - KR............24:26
Stjarnan - Breiðablik......30:23
Omdal, sem er fyrrum formaður
Knattspymusambands Nor-
egs, og Maik Kiss, fram-
kvæmdastjóri unglinganefndar
UEFA, voru á ís-
Eftir landi í síðustu viku
Steinþór tU 30 kynna sér
Guðbjartsson knattspymuvelli,
æfíngaaðstöðu og
hótelgistingu vegna úrslitakeppni
Evrópumóts U-18 ára piltalandsliða,
sem verður á íslandi í lok júlí 1997,
og vom ánægðir með það sem þeir
sáu, en Omdal var auk þess eftirlits-
dómari á Evrópuleik ÍA og Bangor
City á Akranesi. Hann sagði að liður
í uppbyggingu knattspymunnar
væri að halda alþjóðleg mót og skipti
miklu að vel væri að ðllu staðið.
„Við reynum að dreifa mótshald-
inu eftir mætti, svo sem flestar þjóð-
ir fái tækifæri, en það liggur í aug-
um uppi að ísland er ekki í stakk
búið eins og er til að halda Evrópu-
keppni A-landsliða. U-16 keppnin
fer fram í apríl og sú tímasetning
hentar ekki Islandi, en U-18 keppn-
in er um hásumar, sem hafði mikið
með að gera að KSÍ fékk keppnina.
Reyndar sóttust margar þjóðir eftir
mótshaldinu 1997, en Eggert Magn-
ússon [formaður KSÍ] hafði í nokkur
ár líst yfir áhuga KSÍ og fylgdi
umsókninni vel eftir í fyrra, þegar
ákvðrðun var tekin. Annars uppfyllti
Island öll skilyrði og ég er viss um
að keppnin verður öllum til sóma
auk þess sem íslendingum gefst
kjörið tækifæri til að kynna fulltrú-
um sjö annarra þjóða, það sem þeir
hafa upp á að bjóða."
Sterk staða í Evrópu
Omdal sagði að staða knattspym-
unnar í Evrópu væri sterk. „í U-19
keppninni í Ástralíu var England
fremst Evrópuþjóða, í 3. sæti, og
þá sögðu margir að Evrópa væri í
lægð. Hins vegar átti Evrópa sjö af
átta sterkustu þjóðunum í HM í
Bandaríkjunum, sem undirstrikar
sterka stöðu Evrópu innan FIFA.
Öflugt starf félaga og sambanda
Evrópu hefur skilað sér í mörgum
frábæram knattspymumönnum,
sem styrkir stöðu okkar enn frekar
á alþjóða vettvangi og þó miklar
framfarir hafi víða annars staðar
átt sér stað, til dæmis í Afríku, era
möguleikar þar á frekari uppbygg-
ingu ekki eins góðir og hjá okkur.“
Að sögn Omdals segpr UEFA ekki
samböndum innan sinna vébanda
fyrir verkum varðandi uppbygg-
ingarstarf, en leggur fram æskilega
stefnu m.a. með því að stuðla að
keppni við hæfi í öllum aldursflokk-
um karla og kvenna með Evrópu-
mótin í huga. „Við leggjum línuna
og reynum þannig að örva sambönd-
in til dáða. Til dæmis viljum við að
12 ára og yngri leiki í sjö manna
liðum, en við höfum ekki vald til að
skipa fyrir."
Vernd unglinga mikihræg
Flest knattspymusambönd í Evr-
ópu leyfa hveiju liði að tefla fram
þremur erlendum leikmönnum
hveiju sinni og tveimur að auki hafi
þeir leikið með unglingaliðum félag-
anna í ákveðinn tíma. Eftir því hefur
verið tekið að atvinnulið sækjast í
auknum mæli eftir að gera samninga
við yngri erlenda leikmenn til að
geta teflt þeim fram sem „innlend-
um“ síðar meira eða líta á þá sem
góða fjárfestingu með söluhagnað í
huga. Omdal sagði að UEFA reyndi
að koma í veg fyrir þetta, því mikil-
vægt væri að vemda unglingana.
„Séu slíkir samningar gerðir krefi-
umst við þess að tekið sé tillit til
skólagöngu og námsmöguleika og
að foreldrar séu hafðir með í ráðum,
en annars eram við á móti því að
ungir og óreyndir strákar skrifi und-
ir samning við erlend lið.“
plNARELLO
Heimsmetið féll
Miguel Induraín, fjórfaldur Tour de France-meistari frá Spáni, setti heimsmet í Bordeaux í gær er
hann hjólaði 53,040 kílómetra á einni klukkustund. Fyrra metið war 52,713 kílómetrar og war það í
elgu Graeme Obree frá Skotlandi og sett á sömu braut fyrir fjórum mánuðum. Indurain hefur werið
meira fyrir götuhjólreiðar, en hann kunni wel wið sig á hjólabrautinni í Bordeaux þar sem hann hefur
œft síðasta mánuð til að undirbúa sig. „Fyrstu tíu kílómetarnir woru erfiðastir, en eftir það gekk wel
en ég war þó ekki wiss um að mér tækist að slá metið fyrr en undir lokin,“sagðí Indurain.
Morgunblaðið/Kristinn
Per Omdal, formaður unglinganefndar UEFA, til winstri og Maik
Kiss, framkwæmdastjóri unglinganefndar UEFA, á Laugardals-
welli. Á milli þeirra er Eggert Magnússon, formaður KSÍ.
Peningana I uppbygginguna
Engum dylst að miklir peningar
era í alþjóða knattspymu og greiða
mörg félög háar upphasðir fyrir ein-
staka leikmenn. Omdal segir þessa
þróun ekki ákjósanlega.
„Jákvæða hliðin er að félögin, sem
era í Evrópukeppni, eiga vísar góðar
tekjur vegna beinna sjónvarpssend-
inga og auglýsinga, en I sumum
löndum sjáum við að ríkari félögin
verða ríkari og þau kaupa alla bestu
leikmennina samanber AC Milan.
Keppnislega verður umhverfið ekki
ákjósanlegt og með knattspymuna
í huga væri betra að þeir bestu
dreifðust á fleiri lið. Einnig er hætta
fólgin í því að einstaka leikmenn og
jafnvel þjálfarar leggja meiri áherslu
á hvað þeir geta fengið í sinn hlut
frekar en að huga að frekari upp-
byggingu knattspyrnumannsins.
Þetta er varhugavert. Ég hef séð
þetta gerast í löndum, þar sem svo-
nefnd áhugamennska hefur breyst í
atvinnumennsku án þess að krefjast
meira af leikmönnunum. Það gengur
ekki. Stjómarmenn verða að gæta
þess að eyða ekki um efni fram og
ef peningar era til skiptanna er þeim
betur varið í uppbyggingarstarf
yngri leikmanna en einstaka leik-
menn.“
Framfarir styrfcja heildina
Norðmaðurinn sagði að þó ein-
staka íþróttir eins og handbolti á
íslandi, íshokkí í Finnlandi og skíða-
ganga í Noregi nytu vinsælda væri
knattspyman í Evrópu á sér stalli
og í stöðugri sókn.
„Með fjölgun sambanda innan
UEFA hefur breiddin aukist og lið
minni sambanda eiga æ meiri mögu-
leika á að blanda sér í keppni þeirra
bestu. í þessu sambandi má benda
á ísland, þar sem gott unglingastarf
hefur skilað sér. Bilið á milli þeirra
bestu og hinna er alltaf að minnka.
Fyrir bragðið verður knattspyman
enn áhugaverðari, sem er gott fyrir
þjóðir eins og ísland en enn betra
fyrir Evrópu, sem verður áfram
styrkasta stoðin í alþjóða knatL
spymu.“
7. SEPT. KL. 20:00
Starfandi dómarar og aðrir með gild aðgangskort
lá afhenta aðgöngumiða á leikinn á Laugardalsvelli,
sunnudaginn 4. septemberkl. 11:00 - 18:00 og
mánudaginn 5. septemberkl. 11:00 -18:00.
ATH! MIÐAR VERÐA EKKI AFHENTIR
FYRIR UTAN ÞENNAN TÍMA.
Aðilar utan af landi, með gild aðgangskort,
geta hringt á skrifstofu KSÍ á sama tíma
og látið taka ffá fyrir sig miða sem síðan verða
afhentir samkvæmt nánara samkomulagi.
Breiðablik - ÍA
á Kópavogsvelli í dag kl. 14.00
Öllu Breiðabliksfólki er boðið að mæta kl. 12.30
að skoða íþróttahúsið og félagssvæðið.
P/zza og gos i boði Ömmupizzu.
VIÐARHF
byggingaverktaki.
ÉÉ Skandia
Lifandi samkeppni,
lægri iðgjöld.