Morgunblaðið - 09.09.1994, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 09.09.1994, Blaðsíða 40
40 FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Grettir kd/vujm we>{S OGSP/LU/U TU- '/lac/M )l ÖKE/P/S P/KIH IÆ, /E, ÉGSBM*//ie FAfZlAI AE> HLAkKA 77L SU/HARS/NS H/AP LAH6T HÓFUM V!Ð BFM ‘A \FtyrjA ? X ’•< yújtií. \ 6.,5 OKFS/Oistr. BULLS Ferdinand i / 50ME PEOPLE THINK | ( CAT5 ARE 5MARTER. I V THAN D0S5.. > 50ME PEOPLE THINK BIRD5 AND DOS5 ARE 5MARTER THAN CAT5 CAT5 PON'T WEAR VI50R5 ( UIHY DO > ,THEY THINK V THAT? j ~~ •AWFfr.t/ttttffftr, ~ . .//t/t//i/' Sumir álíta að kettir Sumir halda að fuglar Kettir ganga Af hverju halda séu snjallari en hund- og hundar séu gáfaðri ekki með þeir það? ar ... en kettir. derhúfu. JlttripmMtóiífr BRÉF TTL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reylqavík • Sími 691100 • Símbréf 691329 Heiður blaða- manna að veði Frá Brynhildi Birgisdóttur: Á SÍÐUSTU dögum og vikum hefur mátt lesa æði margar greinar um meint óheilindi Guðmundar Árna í starfi bæjarstjóra í Hafnarfirði, sem heilbrigðisráðherra og nú síðast sem félagsmálaráðherra. Virðist á stundum sem fjölmiðlar séu í innbyrðis samkeppni um hveij- ir geti grafið upp eitthvað sem þeir geti smjattað á og helst eitthvað neikvætt og hneykslanlegt. Eru þessi skrif og orðræður fjöl- miðla orðin slík, að þau teljast ekki boðleg lesendum og hlustendum þessara miðla. Orð eru til alls fyrst. Blaðamenn virðast ekki átta sig á því að það fijálsræði, sem nú ríkir innan þess- arar stéttar, útheimtir aga gagnvart sjálfum sér fyrst og fremst. Frelsið er okkur dýrmætt, en vandmeðfarið. Eins og málum er nú háttað virðist fólk algjörlega vamarlaust gagnvart fjölmiðlum; er eins og þeir geti tek- ið hvern þann fyrir sem þeim dettur í hug í það og það skiptið og svipt ærunni án blygðunar. Þessi skrif um störf og verk Guðmundar Árna hafa orðið til þess að ég hef meir en áður hugleitt áhrifamátt fjölmiðla og þá miklu ábyrgð sem fjölmiðlafólk hefur. í þeirri samkeppni sem nú ríkir á fjöl- miðlamarkaðnum virðist allt leyfí- legt og ekkert heilagt. Ég álít brýnt að skerpa siðaregl- ur blaðamanna og krefjast vandaðri vinnubragða af þeim en við höfum mátt búa við t.d. í þessari umfjöllun um Guðmund Áma o.fl. sem orðið hafa fyrir barðinu á þeim. Guðmundur Árni hefur sem bæj- arstjóri verið virtur stjómmálamað- ur og hefur viljað veg síns bæjarfé- lags sem mestan. Yfirbragð bæjar- ins hefur gjörbreyst til hins betra. íbúar annarra sveitarfélaga hafa flust til Hafnarfjarðar og hróður Hafnarljarðar hefur borist út um allt land. Hvergi hefur orðið meiri fólksfjölgun en í Hafnarfirði á síð- ustu ámm, enda hefur allt verið gert til að efla menningu og listir hvers konar, íþrótta- og tómstunda- starf hefur eflst, fyrirtæki hafa flust til bæjarins, samgöngur um bæinn og við önnur bæjarfélög batnað, og svo mætti lengi telja. Listahátíðir hafa verið haldnar með heimsfrægu listafólki og okkar bestu listamönnum, bænum til mik- ils sóma. Bærinn hefur tekið stór- kostlegum stakkaskiptum. Og af því ég minntist á Listahá- tíð, get ég ekki orða bundist. Ég las nefnilega í blaði frétt frá núver- andi stjórnendum bæjarins, að Listahátíð hafi farið fram úr áætlun hvað varðar kostnað. Hvar hafa þessir menn verið? Ég segi nú bara kynnið ykkur hvernig Listahátíð hefur verið rekin í Reykjavík, borg sem stjórnað hefur verið af Sjálf- stæðisflokki. Styrkt af ríki og bæ og fleiri aðilum, hefur hún alltaf farið margfalt fram úr áætlun. Nei, ég veit að Hafnfirðingar hefðu ekki viljað vera án þessara listavið- burða. Og svona mætti lengi telja. Það hefur verið litið upp til okkar Hafn- firðinga hvar sem við höfum komið og það hefur verið gaman að vera Hafnfirðingur síðustu árin og það vil ég eindregið þakka Guðmundi Árna. Það skítkast og smátíningur sem blaðamenn nú tína upp segir meir um persónu þeirra en persónu Guð- mundár Árna. Ég óska Guðmundi Árna alls hins besta og vona að við fáum áfram að njóta góðs af verkum hans um ókomin ár. BRYNHILDUR BIRGISDÓTTIR, Smyrlahrauni 42, Hafnarfirði. Bréf til Klettaútgáf- unnar og „Söngfugla- nefndarinnar“ Frá Theódóri Einarssyni: ÞEGAR út er komin Nýja söngbók- in, númer tvö í röðinni, er rétt að óska útgefendum og nefndinni sem valdi sönglögin til hamingju með framtakið því aldrei verður gert of mikið af því að gefa út íslensk, og erlend, vinsæl sönglög sem gengið hafa, sum hver a.m.k. manna á milli og aldrei verið gefin út í að- gengilegu formi. Það væri skiljan- legt að sönglög sem þannig er hátt- að með væru eignuð öðrum en rétt- um höfundum og jafnvel skráð röng. Það sem hins vegar rekur undir- ritaðan til að skrifa þetta bréf er að á bls. 65 í söngbókinni er texti undir nafninu „Ég vil dansa“. Höf- undur textans er sagður vera Guð- brandur Þ. Guðbrandsson og lagið er eignað Geirmundi Valtýssyni. Þetta er ekki rétt og raunar illskilj- anlegt að slík villa skuli geta slæðst inn í bók þar sem efni er valið að nefnd, í þessu tilfelli „Söngfugla- nefndinni", þar sem maður skyldi ætla að í slíka nefnd væri valið fólk sem hefði staðgóða þekkingu á viðfangsefninu. Svo virðist ekki vera í þessu tilfelli því umræddur texti hefur margoft verið gefinn út á prenti og auk þess er lag og texti til hljóðritað þar sem rétt er farið með nafn textahöfundar og þess getið að lagið sé þýskt, sem það er. Textinn er eftir undirritaðan, Theódór Einarsson, heitir „Á hörp- unnar óma“ og er fimmtíu ára gam- all. Lagið er einhveiju eldra. Það sem ekki verður séð að Klettaútgáfan ætli sér að leiðrétta þessi mistök opinberlega vil ég koma þessu á framfæri því öllum, sem verða fyrir því að afkvæmi þeirra eru rangfeðruð, hlýtur að líða eins og mér nú þó að í þessu til- felli sé einungis um sönglagatexta að ræða. Með kveðju og von um að næst verði vandað betur til slíkrar út- gáfu. THEÓDÓR EINARSSON, Akranesi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.