Morgunblaðið - 09.09.1994, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 09.09.1994, Blaðsíða 49
KNATTSPYRNA TENNIS / OPNA BANDARISKA RALL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1994 49 ÍÞRÓTTIR Knattspyrnu- þjálfarar! Unglingaráð Knd. Vals óskar eftir umsóknum í allar þjálfarastöður yngri flokka félagsins. Um er að ræða 3.-7. flokk karla og 2.-6. flokk kvenna. Umsóknum skal skilað til afgreiðslu Mbl. merkt: „Þjálfun-1918“ fyrir þriðjudaginn 13. septembernk. Nánari upplýsingar f ást hjá f ramkvæmda- stjóra Knattspyrnudeildar Vals í símum * 623730 og 623731. 8 Unglingaráð Knattspyrnudeildar Vals. Guðni til Palace? Guðni Bergsson, fyrirliði Vals og íslenska landsliðsins hefur í hyggju að gerast atvinnumaður í knattspymu á nýjan leik, og ganga til liðs við Crystal Palace í Eng- landi. Þetta kom fram á Bylgjunni í gær. Guðni lék á sínum tíma með Tottenham í ensku deildinni en kom heim og hóf að leika sem sínum gömlu félögum í Val. Samkvæmt frétt Bylgjunnar hyggst Guðni fara út í haust og sagði hann að aðeins ætti eftir að ganga frá samningum við Crystal Palace, en það er einmitt félagið sem hann var orðaður við um það leyti sem hann var að hætta hjá Tottenham, en þá sagðist hann ekki hafa áhuga á að fara til félags- ins. Ekki náðist í Guðna í gær vegna þessa máls. ÚRSLIT Agassi í formi ANDRE Agassi er kominn í undanúrsiit í einliðaleik karla á Opna bandaríska tennismótinu, en honum var ekki raðað niður samkvæmt styrkleika í mótinu, enda hefur hann leikið illa að undanförnu. | j^jálfari Agassi undanfama mán- uði hefur verið Brad Gilbert sem var meðal fremstu tennisleik- ara heimsins í rúman áratug, og hefur árangurinn ekki látið á sér standa hjá Agassi. „Ég hef verið að reyna að segja honum að það . skipti máli að hugsa og nota kollinn aðeins, ekki bara leika fallegan . tennis,“ sagði Gilbert eftir sigur Agassi á þjóðveijanum Thomas Muster sem var númer 13 á styrk- | leikalista mótsins. Þar með hafði Agassi, sem hafði ekkert styrk- leikanúmer, slegið þijá slíka út. Vinni hann Todd Martin á laugar- daginn verður hann sá fyrsti, sem ekki er raðað, í sögu mótsins til að leggja fjóra sem raðað er. „Gilbert hefur alla tíð verið að vinna leiki sem hann hefði ekki átt j að vinna, en ég hef hins vegar ver- ið að gera tapa leikjum sem ég hefði átt að vinna. Ég held að við | náum að blanda þessu vel saman og ég er ánægður með hversu vel mér hefur gengið," sagði Agassi eftir sigurinn. Karel Novacek frá Tékklandi er einnig kominn í undanúrslit en hann sigraði Jaime Yzaga frá Perú í gær, 6-2, 6-7 (7-9), 6-1, 5-7 og 6-3. Pete Sampras, sem er efstur á styrkleikalistanum, tapaði óvænt fyrir Jaime Yzaga frá Perú í 4. umferð á Opna bandaríska meist- aramótinu í tennis á þriðjudags- kvöld. Leikurinn var jafn og hálf- gerður maraþonleikur sem stóð yfír í þijár klukkustundir og 37 mínút- ur. Lokatölurnar urðu 3-6 6-3 4-6 7-6 7-5 fyrir hinn 26 ára gamla Perúmann. „Það er ömurlegt að tapa þessu svona. Mér líður eins og ég geti ekki hugsað mér að halda á tennis- spaða næstu fjóra mánuði," sagði Sampras, sem sigraði á þessu móti í fyrra. Hann hefur átt við meiðsli að stríða í ökkla og þau háðu honum í leiknum. „Tilfínningin er frábær, ég get ■ SKALLAGRÍMUR hefur fengið liðsstyrk í úrvalsdeildinni í körfu- knattleik, sem hefst 29. september. Sveinbjörn Sigurðsson úr Grinda- vík hefur gengið til liðs við Borgnes- inga, en hann lék ekkert með UMFG í fyrra. H FRAMHERJAR ætla að hittast í Framheimilinu eftir leikinn við ÍBK í kvöld. ■ JOHN Daly tók ekki þátt í Evr- ópu Masternum í Sviss um helgina. Gömul bakmeiðsli tóku sig upp vik- una áður þegar hann lenti í áflogum við föður annars kylfings eftir golf- mót í Ohio. ■ MÓTIÐí Sviss var fyrsta mótið sem telur fyrir Ryder-keppnina, sem verður í Bandarikjunum eftir ár. Fyrir hvert enskt pund sem menn vinna sér inn í verðlaunafé fá þeir stig og tíu kylfingar komast þannig í sveit Evrópu en liðsstjórinn, Bem- ard Gallacher mun síðan velja tvo kylfinga til viðbótar. ■ ERIC Cantona, knattspymu- maðurinn snjalli hjá Manchester United, verður væntanlega hjá fé- laginu þar til hann leggur skóna á hilluna. Frakkinn, sem lék með níu félögum á tíu árum, er 28 ára. Hann kom til United frá Leeds og segist vilja vera hjá félaginu lengi enn. Cantona á tvö ár eftir af samningi sínum, en Alex Ferguson, stjóri United, sagði um helgina að seinna í vetur myndi hann bjóða leikmannin- um samning til langframa. Reuter ANDRE Aggasi er í miklu stuði þessa dagana enda með nýjan þjálfara sem virðist ætla að ná taki á honum. ekki hugsað mér hana betri,“ sagði Yzaga eftir sigurinn. „Þetta var mjög tvísýnt í lokin. En ég náði að halda haus og Sampras var ekkert á því að gefa leikinn þó hann væri meiddur, hann er sannur meistari.“ mmi FOLK Flest hestöf I Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson METRÓ íslandsmeistaranna Ásgeirs Sigurðssonar og Braga Guðmundssonar og Ford Escort Cosw- orth Peter Vassallo og Alan Cather eru best útbúnu bílar rallsins. Báðir eru fjórhjóladrif nir og smíðaðir í Bretlandi. Ásgeir og Bragi hafa unnið alþjóðarallið tvö ár í röð. Skemmtileg Jjeið fyrir áhorfendur í Öskjuhlíð FIMMTÁNDA alþjóðarallið sem haldið hefur verið hérlendis hefst við Perluna í Reykjavík í dag kl. 15.00, en keppnin stendur í þrjá daga og lýkur við Hjólbarðahöllina í Fellsmúla kl. 15.00 á sunnudaginn. í kvöld verður m.a. sérleið í Öskju- hlíð kl. 19.56 þar sem keppendur aka á fullri ferð í tvígang. Islandsmeistararnir Ásgeir Sig- urðsson og Bragi Guðmundsson fara fyrstir af stað í sinni fyrstu keppni á árinu. Þeir aka. sérsmíðuð- um 275 hestafla Metró. í dag verður ekið um ísólfsskála, Reykjanes og í kvöld Knattspyrna 1. deild karla Laugardalsv.: Fram - ÍBK 20 (•Leikurinn átti að vera á sunnu- daginn en var færður fram.). 1. deild kvenna Síðasta umferð: Ásvellir: Haukar - KR 18 Kópavogsv.: UBK - Stjaman .20 •Breiðablik fær íslandsmeista ra- bikarinn afhentan í leikslok. Valsv.: Valur - ÍA .18 Dalvíkurv.: Dalvík - Höttur .18 4. dcild karla Leikur utn 3. sætið: Siglufjv.: Magni - KS .18 Stapa. í kvöld verður ekið í Öskju- hlíð og síðan verða bílarnir í viðgerð- arhléi við Vöruflutningamiðstöðina í Borgartúni kl. 20.39. Þar má bú- ast við handagangi í öskjunni, þar sem viðgerðamenn undirbúa bílana fyrir átök laugardagsins, sem er erfiðasti dagur keppninnar. Ford Escort Cosworth Bretans SUND Peter Vassallo er öflugasti bíll keppninnar, en Rúnar Jónsson og Jón Ragnarsson á Mazda 323 og Steingrímur Ingason og Hjörtur P. Jónsson á Nissan aka einnig öflugum bílum. Rúnar hefur foiystu í íslands- mótinu, en Steingrímur er skammt undan. Kumho alþjóðarallið hefur tvöfalt vægi að stigum, þannig að útkoman úr því er mikilvæg í stiga- keppninni um titilinn. Sú nýbreytni verður í rallinu að síðasta sérleiðin verður ekin í Jósepsdal á sunnudag- inn kl. 13.30, rétt á undan Norður- landamótinu í torfæru. Heimsmef á HM Sveit Kína setti heimsmet í 4x100 m skriðsundi á heimsmeistaramótinu í Róm á miðvikudaginn. Sveitin synti á 3.37,91 mín. en hana skip- uðu Le Jingyi, Shan Ying, Le Ying og Lu Bin. Bandaríkjamenn áttu gamla metið, 3.39,46, sett á Ólympíuleikunum í Barcelona 28. júlíl 1992. Kínveijar hafa verið sigursælir á mótinu og eftir átta daga eru þeir í fyrsta sæti, hafa unnið til 10 gullverðlauna, 7 silfur og einna brons. Rússar eru í öðru sæti með 3 gull, 4 silfur og 3 brons. Knattspyrna Ítalía Bikarkeppnin, fyrri leikun Udinese - Fiorentina..........2:2 Evrópukeppni U-21. Slóvenía - Ítalía.............1:1 Noregur - Hvíta-Rússland......4:0 íslandsm. 2. fl. karla KR-ÍA........1................2:1 ■KR nægði jafntefli til að hreppa íslands- meistaratitiiinn en ÍA gat skotist á toppinn með sigri. fA náði forystunni ( fyrri hálf- leik en KR-ingar svöruðu tvívegis í þeim síðari. Körfuknattleikur Reykjavíkurmótið ÍS-ÍR.........................58:73 Golf Opna Evrópumótið Mótið er haldið í Uekfield í Englandi. Staða efstu manna eftir fyrsta dag er þannig. 66- Colin Montgomerie 67- Russell Claydon 68- Seve Ballesteros, Costantino Rocca), Mark James, Frank Nohilo, Jose Maria Olazabal, Andrew Murray 69- Mats Lanner 70- Retief Goosen, David Curry, Steven Richardson, David Gilford, Sandy Lyle, Barry Lane 71- Michel Besanceney, Philip Price, Ian Palmer, Santiago Luna, Anders Fors- brand, Jonathan Lomas, Andrew Colt- art, Howard Clark, Darren Clarke, Derrick Cooper. Pedro linhart, Paul McGinley, Jose Manuel Carriles, Klas Eriksson HELGARGOLFIÐ Akureyri Opna Coca Cola mótið verður haldið á Akur- eyri um helgina. Leiknar verða 36 holur. Garðabær Opna Sjóvá-Almennar mótið verður á sunnudag. Sandgerði Opna Lýsis mótið verður á sunnudag. Unglingamót Opna SPRON unglingamótið verður á Nes- inu á laugardag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.