Morgunblaðið - 09.09.1994, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 09.09.1994, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1994 39 ! I I I I I I I I I I I I I FRÉTTIR Síðasta útivistarhelgin í Viðey UM komandi helgi lýkur þeirri skipulögðu dagskrá sem verið hefur í Viðey um helgar frá því á hvítasunnu í vor. Ljósmynda- sýningunni í Viðeyjarskóla var lokað 31. ágúst og hestaleigunni sl. sunnudag. Hvort tveggja var ágætlega sótt. Hópum, sem fara til Viðeyjar einhverra erinda, stendur þó að sjálfsögðu til boða leiðsögn og fræðsla eins og verið hefur. Einnig er hægt að opna ljósmyndasýninguna fyrir hópa enda verður hún látin standa áfram. Laugardagsgangan, sem hefst að venju á Viðeyjarhlaði kl. 14.15, verður nú farin á Vestu- reyna. Þetta er hálfs annars tíma ganga og nauðsynlegt að hafa gönguskó. A sunnudag messar sr. Jakob Agúst Hjálmarsson kl. 14 með aðstoð dómkórs og dómorgan- ista. Kl. 13.30 verður sérstök bátsferð með kirkjugesti. Kl. 15.15 verður staðarskoðun. Þá er þremur stundarfjórðungum varið til að skoða kirkjuna, forn- leifauppgröftinn og annað áhugavert í nágrenni Viðeyjar- stofu. Skoðuninni lýkur uppi á Heljarkinn, hæðinni fyrir austan stofuna. Þar er útsýn góð til margra sögustaða. Um þessar mundir er kúmenjurt- in komin með vel þroskuð fræ. Þeim sem hafa áhuga á að tína sér eitthvað af kúmeni, verður leiðbeint á íaugardag. Best er fyrir þá að hafa með plastpoka og skæri. Veitingar eru á boðstólum í Við- eýjarstofu. Bátsferðir eru á heila tímanum frá kl. 13 en á hálfa tímanum í land. Síðasta eftirmið- dagsferðin í land er kl. 17.30 og kvöldferðir hefjast kl. 19. Bamakór Grensáskirkju hefur vetrarstarfið BARNAKÓR Grensáskirkju hefur fimmta starfsár sitt' þriðjudaginn 13. september kl. 17. Kórinn skipa liðlega fimmtiu börn á aldrinum 7-15 ára, en hann mun starfa þrí- skiptur í vetur. í sumar fór kórinn í söngferð til Ítalíu og sótti heim ítalskan barna- kór og héldu kórarnir sameiginlega tónleika þar sem tenórsöngvarinn Kristján Jóhannsson var sérstakur gestur. Tónleikarnir tókust vel, en þeir voru helgaðir minningu söng- konunnar Unu Elefsen og haldnir til styrktar krabbameinssjúkum börnum. Kórinn æfir tvisvar sinnum í viku, á þriðjudögum og laugardög- um, og syngur við messur fyrsta og þriðja sunnudag hvers mánaðar. Börn úr kórskóla kórsins frá í vor eru sérstaklega boðin velkomin til starfa. Stjórnandi kórsins er Margrét Jóhanna Pálmadóttir og veitir hún nánari upplýsingar um starfsemina. Formaður foreldrafé- lagsins er Lilja Árnadóttir. 30 þúsund skogar- plöntur á íþrótta- svæðið við Ásvelli KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ Hauk- ember, verður skógræktardagur á ar í Hafnarfirði hefur á síðustu árum unnið að mikilli uppgi-æðslu og skógrækt á íþrótta- og útivistar- svæði félagsins á Ásvöllum. Á næstu árum verður gert enn frek- ara átak í þessum efnum því Skóg- rækt ríkisins og Skeljungur hf. hafa ákveðið að styrkja félagíð myndar- lega næstu þijú árin með kaupum á allt að 30 þúsund tijáplöntum sem félagsmenn munu gróðursetja á Ásvöllum. Á sunnudaginn kemur, 11. sept- Keppni í hlustun á stuttbylgju NORRÆNIR áhugamenn um stuttbylgjusendingar efna á hveiju ári til samkeppni um hlustun á sendingar á erlendum útvarpsstöðvum. í tilefni af því ‘verður aukasending héðan á stuttbylgju á laugardaginn. Utvarpið hefur látið gera sér- stakan pistil á ensku, sem sendur verður um fjarskiptastöðina í Gufunesi laugardaginn 10. sept- ember kl. 13 til Evrópu og kl. 14.40 til Ameríku og verða báðar sendingarnar á 13860 kHz og 15770 kHz. Áhugamenn um stuttbylgju- sendingar víða um heim munu fylgjast með þessari sendingu, sem verður hluti af norrænni al- þjóðlegri keppni. Hún miðar að því að ná sem flestum stöðvum og senda skýrslu um það til keppnisstjórnar. í þessari send- ingu verður sagt frá Ríkisútvarp- inu og starfsemi þess, þar á meðal stuttbylgjusendingum. Ennfremur verða þar upplýs- ingar um land og þjóð. Opin skákæf- ing fyrir börn og unglinga TAFLFÉLAG Reykjavíkur held- ur skákæfingar fyrir börn og unglinga á hveijum laugardegi Asvöllum sem hefst kl. 10. Sérstök athöfn verður kl. 15 þegar undirrit- aður verður samningur Hauka og Skógræktar ríkisins og Skeljungs hf. um uppgræðslu á Ásvöllum næstu þijú árin. Allir félagar og stuðningsmenn Hauka eru hvattir til að mæta og taka þátt í skógræktarstarfinu á þessum merku tímamótum, segir í fréttatilkynningu. Boðið verður upp á veitingar á staðnum. kl. 14. Æfingarnar eru haldnar í húsnæði Taflfélagsins í Faxa- feni 12. Þær eru opnar öllum börnum og unglingum 14 ára og yngri og eru ókeypis. Taflfélagið útvegar töfl og klukkur og því þurfa þátttakend- ur ekkert að hafa með sér til að geta tekið þátt í æfingunum. Á næstu æfingu, laugardaginn 10. september, verður teflt sjö umferða mót. Hver þátttakandi fær tíu mínútur til umhugsunar í hverri skák. Verðlaun verða veitt fyrir þijú efstu sætin. Saab stolið BIFREIÐ var stolið frá Hvas- saleiti 155 aðfaranótt sunnu- dagsins 4. september. Bifreiðin er silfurgrár Saab 900, fjögurra dyra, árgerð 1984, með skráningarnúmerið X-5698. Þeir sem gætu gefið upplýs- ingar um hvar bifreiðin er niður komin eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í Reykja- vík. Frumsýning „Grease“ á morgun SÖNGLEIKURINN „Grease“ verður frumsýndur á Hótel ís- landi á morgun, laugardaginn 10. september. Ranghermt var í frétt blaðsins í gær að frumsýningin yrði viku síðar. Beðist er velvirð- ingar á því. Söngsmiðjan stendur að þessari mannmörgu sýningu, sem verður á föstudögum og laugardögum nú í september. Hrids__________ Umsjón Arnór G. Ragnarsson Sumarbrids í Reykjavík Úrslit í Sumarbrids sl. föstudag, 2. september (28 pör), urðu: N/S: Erlendur Jónsson - Vilhjálmur Sigurðsson 315 Guðlaugur Sveinsson - Lárus Hermannsson 315 Maria Asmundsd. - Steindór ingimundars. 310 Sigrún Jónsdóttir - Ingólfur Lilliendahl 281 A/V: Vignir Hauksson - Kristinn Þórisson 324 Hjördís Siguijónsd. - Ragnheiður Nielsen 309 ÓÍafur Oddsson - Þórir Flosason 306 Alfreð Kristjánss. - JónViðarJónmundsson 302 Á sunnudeginum var spilað í einum riðli. Úrslit urðu: Erlendur Jónsson - Þröstur Ingimarsson 125 Gylfi Baldursson - Bjöm Theodórsson 124 Lárus Hermannsson - Þórður Sigfússon 121 BjörnÁmason-ÓlafurLárusson 121 Um kvöldið mættu svo 22 pör til leiks. Úrslit urðu: N/S: Guðmundur Sveinsson - Kristinn Ólafsson 350 Sigurbjörn Haraldsson - Sverrir Haraldsson 330 Erlendur Jónsson - Þröstur ingimarsson .307 A/V: , Guðný Guðjónsdóttir - Jón Hjaltason 320 Jón Viðar Jónmundsson - Eggert Bergsson 309 LámsHermannsson-ÓskarKarlsson 294 Halldór Guðjónsson - Brynjar Jónsson 294 Sumarbrids lýkur á föstudaginn kemur, með afhendingu verðlauna fyr- ir 3 efstu sætin í Sumarbrids. Á laugardeginum og sunnudeginum verður svo silfurstigamót með sveita- keppnisfyrirkomulagi (líkt og á Flug- leiðamótinu) þar sem allar helstu sveit- ir landsins mæta til leiks. Þegar eru 20 sveitir skráðar til leiks, en lokað verður á 25-30 sveitir (skráning hjá BSÍ og í Sumarbrids). Frá Bridsfélagi Skagfirðinga í Reykjavík Félagið hefur hauststarfsemi sína þriðjudaginn 13. september (í hæstu viku) með eins kvölds tvímennings- keppni. Fljótlega hefst svo haustbaro- meterinn (tvímenningur). Spilað er í Drangey við Stakkahlíð 17 og hefst spilamennska kl. 19.30. Allt spila- áhugafólk velkomið. Stjórnandi er Ólafur Lárusson. Sumarbrids á Reyðarfirði þriðjudaginn 30. ágúst Mætt voru 6 pör og spiluð var sveitakeppní. Ragna Hreinsdóttir/Svala Vignisdóttir - Guðmundur Magnússon/Jónas Jónsson 39 Aðalsteinn Jónsson/Kristján Kristjánsson - Magnea Magnúsdóttir/Sigrún Haraldsdóttir 27 Þorsteinn Bergsson/Sveinn Heijólfsson - EmaNielsen/FannarElísson 24 Paraklúbburinn Dagskráin hefir verið ákveðin til áramóta og verður eftirfarandi: 13. og 20. sept. kl. 19.30 eins- kvöldstvímenningur. 27. sept., 4. okt. og 11. okt. þriggja kvölda tvímenningur. 18. og 25. október eins kvölds tví- menningur. 1., 8., 15., 22., og 29. nóvember sveitakeppni. 6. og 13. des. jólatvímenningur. Stjórn féiagsins skipa eftirtaldir: Rafn Thorarensen formaður, Guðný Guðjónsdóttir varaformaður, Ólöf Þorsteinsdóttir gjaldkeri, Júlíus Snorrason ritari og Sigurður Sigur- jónsson meðstjórnandi. Bridsféiag Suðurnesja Spilaður var síðsumarstvímenningur sl. mánudagskvöld í félagsheimilinu og urðu úrslit þessi: Gísli Torfason - Jóhannes Sigurðsson 257 Grethe íversen - Þorgeir Ver Halldórss. 237 Stefán Ólafsson - Hjalti Bergmann 230 Heiðar Agnarsson - Birkir Jónsson 225 Meðalskor 210 Síðasta spilakvöldið að þessu sinni ! félagsheimilinu að Mánagrund verður nk. mánudagskvöld og skal ítrekað að spilamennskan hefst kl. 19.30. Bridsklúbbur Félags eldri borgara, Kópavogi Spilaður var tvímenningur föstu- daginn 2. september ’94. 16 pör mættu og urðu úrslit þessi: Helga Ámundad. - Hermann Finnbogason 259 Eysteinn Einarsson - Garðar Sigurðsson 257 Ásthildur Sigurgíslad. - Lárus Arnórsson 252 Júlíus Ingibergsson - Jósef Sigurðsson 248 Meðalskor 210 Spilaður var tvímenningur þriðju- daginn 6. september. 18 pör mættu og var spilað í tveim riðlum A - B úrslit í A-riðli (10 pör) urðu: Bergur Þorvaldsson - Þórarinn Árnason 129 EggertEinarsson-KarlAdolfsson 128 Ásthildur Sigurgíslad. - Lárus Arnórsson 121 Meðalskor 108 B-riðill Hannes Alfonsson - Einar Elíasson 107 Árni Jónasson - Stefán Jóhannsson 97 Elín E. Guðmundsd. - Bragi Salómonsson 95 Meðalskor 84 BílamarkaÖurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbra Kópavogi, sfmi 5718on Opið sunnudaga kl. 13-18 Fjörug bílaviðskipti Vantar góða bíla á skrá og á staðinn. Ekkert innigjald. MMC pajero Diesel Turbo m/lnterc. '91, hvítur, 5 g., ek. 100 þ. km. 31“ dekk, m/mæli o.fl. Góður jeppi. V. 1.850 þús. MMC Colt GL ’90, grænsans., 5 g., ek. 80 þ. km. V. 650 þús. Einnig MMC Colt GLX ’89, 5 g., ek. 92 þ. km., rafm. í rúðum o.fl. V. 620 þús. Honda Civic LSi ’92, rauður, sjálfsk., ek. 18 þ. km., rafm. í rúðum o.fl. Toppeintak. V. 1.180 þús. Cherokee Laredo 4.0 L ’88, blár, sjálfsk., ek. 113 þ. km., sóllúga, álfelgur, m/spili o.fl. V. 1.490 þús. MMC Lancer GLXi hlaðbakur '91, rauð- ur, sjálfsk., ek. 71 þ. km. Toppeintak. V. 990 þús. Nissan Sunny SLX Sedan ’94, 5 g., rk. 3 þ. km., álfelgur, spoiler o.fl. V.W Golf CL ’91, 3ja dyra, 5 g., ek. 67 þ. Gott eintak. V. 780 þús. MMC Lancer GLX ’89, sjálfsk., ek. aðeins 53 þ. km. V. 720 þús. Playmouth Voyager SE EFi 7 manna '90, sjálfsk., ek. 107 þ. km. V. 1.580 þús. Nissan Sunny SLX Sedan '92, 5 g., ek. 61 þ. km. Ýmsir aukahlutir. V. 990 þús. MMC Galant GLSi hlaðbakur '91, 5 g., ek. 54 þ. km. V. 1.250 þús. Toyota Corolla GL Liftback '93, ek. 16 þ. km., sóllúga, álfelgur, rafm. í öllu o.fl. V. 1.390 þús. Subaru Legacy Artic 2000 station '93, sjálfsk., ek. 20 þ. km., álfelgur o.fl. V. 2.100 þús. Toyota Corolla Touring XL '91, 5 g., ek. 86 þ. km. V. 1.080 þús. Subaru Legacy 1.8 station '91, 5 g., ek. 80 þ. km. V. 1.390 þús. Sk. ód. Renault Clio RN ’93, rauður, 5 g., ek. 24 þ. km. V. 790 þús. Ford Ranger XLT EX Cap 4x4 '91, blár, sjálfsk., ek. 62 þ. km., 31“ dekk, álfelgur, rafm. í rúðum o.fl. V. 1.490 þús. Sk. ód. Cherokee Laredo 4.0 L '90, sjálfsk., ek. 88 þ. km., álfelgur, rafm. í rúðum o.fl. V. 1.950 þús. Sk. ód. Suzuki Sidekick JLX '91, 4ra dyra, rauð- ur, 5 g., ek. 61 þ. km., 30" dekk, rafm. í rúðum o.fl. Fallegur jeppi. V.1.650 þús. Daihatsu Feroza special EL-II EFi ’90, 5 g., ek. 34 þ. km., hvítur, toppeintak. V. 1.150 þús. Suzuki Vitara JLX '90, Ijósblár, 5 g., ek. 58 þ. km., upphækkaður, 31“ dekk o.fl. V. 1.150 þús. ■ uyuio •♦rvuimtji uiesei iuruo m/imerc. '94, 5 g., ek. aðeins 17 þ. km., upphækk- aður 4:88 hlutföll, leðurklæddur, sóllúga, 35“ dekk, álfelgur, kastarar, aukatankur, geislaspilari o.fl. o.fl. V. 3.680 þús. Ford Explorer Eddie Bauer V-6 '91, blár, sjálfsk., ek. 46 þ. km., 32“ dekk, álfelgur, sóllúga, rafm. í öllu o.fl. V. 2.950 þús.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.