Morgunblaðið - 09.09.1994, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 09.09.1994, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1994 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Pressan og Eintak Leitað eftír auknu hlutafé UNNIÐ hefur verið að því að und- anförnu að endurskipuleggja fjárhag útgáfufyrirtækja vikublaðanna Pressunar og Eintaks sem bæði hafa átt við rekstrarerfiðleika að etja um hríð. Þannig hefur Friðrik Friðriks- son, útgefandi Pressunnar, að und- anförnu kannað hug nokkurra fjár- sterkra aðila með það fyrir augum að fá inn nýtt hlutafé til að styrkja grundvöll útgáfunnar. Svipaðar þreifingar hafa átt sér stað hjá út- gefendum Eintaks og jafnvel hefur verið rætt um sameiningu biaðanna. Meðal þeirra sem komið hafa við sögu í þessu máli er Jóhann Oli Guðmundsson, forstjóri Securitas, -en honum hafa bæði borist boð frá útgefanda Pressunar og Eintaks um þátttöku í útgáfu blaðanna. Jóhann Óli kvaðst í samtali við Morgunblað- Mestur hag- vöxtur í Kanada Ottawa. Reuter. HAGVÖXTUR í Kanada var 6,4% á öðrum fjórðungi ársins, sá mesti í sjö ár og jafnframt sá mesti í nokkru iðnríki. Kemur þetta fram í nýjum tölum frá kanadísku hagstofunni en búist er við, að hagvöxtur í Kanada verði sá mesti í iðnríkjunum næsta eina eða hálfa annað árið. Útlit er fyrir, að hagvöxtur verði 4% á öllu árinu en OECD hafði spáð, að hann yrði 3,7% í Kanada en 4% í Bandaríkjunum. Spáin fyrir næsta var hins vegar um 4,3% hagvöxt í Kanada, 3% í Bandaríkjunum og 3,2% í Bretlandi. ið ekki hafa áhuga á þátttöku í út- gáfu þeirra að óbreyttu þegar horft væri til stöðu þessara fyrirtækja. Hins vegar væri hann tilbúinn að skoða málið aftur ef útgefendur vildu reyna að breyta stöðu þeirra. Andrés Magnússon, stjórnarmað- ur í Eintaki, sagði viðræður hafa átt sér stað við hóp manna um að leggja nýtt hlutafé í útgáfufyrirtæk- ið en engin niðurstaða lægi fyrir. Þessir aðilar hefðu sett mjög ströng skilyrði fyrir þátttöku sinni sem unnið væri að því að uppfylla. Þeir hefðu hins vegar veitt fyrirtækinu ákveðna fyrirgreiðslu til að koma greiðslustöðunni í viðunandi horf. Þetta hefði jafnframt gert kleift að hefja markaðsátak í því skyni að auka útbreiðslu blaðsins en ýmsar aðrar breytingar væru einnig fyrir- hugaðar. Andrés kvaðst eiga von á því að það skýrðist um næstu mán- aðamót hvort samningar tækjust við þessa aðila um að þeir legðu fram nýtt hlutafé og kæmu að fullum þunga inn í reksturinn. Hafnaði sameiningu Pressunnar og Eintaks Friðrik Friðriksson, útgefandi Pressunnar, staðfesti í samtali við Morgunblaðið að hann ætti í viðræð- um við aðila um að styrkja blaða- og tímaritaútgáfu sína en ekki væri unnt að nafngreina þá á þessu stigi. Viðræðurnar væru komnar alllangt og kvaðst hann bjartsýnn á að já- kvæð niðurstaða fengist á næstu vikum. „Þessi viðleitni mín miðar að því að styrkja grunninn þannig að blaðið geti staðið af sér sam- keppni þó það kalli á taprekstur um einhvern tíma.“ Aðspurður um hvort til greina kæmi að sameina Pressuna og Eintak sagði Friðrik að það hefði staðið til boða en hann hefði ákveð- ið að hafna þeim kosti. Osta- og smjörsalan fær vottun á gæðakerfi OSTA- og smjörsalan sf. hefur tekið upp gæðakerfið ISO 9002 og fékk nýlega staðfestingu þar um frá úttektarfyrirtækinu Vott- un hf. Unnið hefur verið að upp- byggingu kerfisins undanfarin misseri og er fyrirtækið fyrsta íslenska matvælafyrirtækið inn- an landbúnaðargeirans sem tek- ur upp vottað gæðakerfi. Stefnt er að því að mjólkurbúin taki einnig upp ISO-kerfið og byggi þá m.a. á þeirri reynslu sem feng- ist hefur hjá Osta- og smjörsöl- unni sf. Ljóst er að með væntan- legum milliríkjaviðskiptum með búvörur mun samkeppni harðna og nauðsynlegt að íslenskur mjólkuriðnaður standi sem best að vígi og sé með viðurkennt gæðakerfi sambærilegt og notað ÚTGÁFA sveitarfélaga á lang- tímaskuldabréfum það sem af er þessu ári nemur um 2,5 milljörðum króna og stefnir í að verða 4-5 milljarðar á árinu i heild. Þetta er veruleg aukning frá árinu 1993, en þá var áætlað að útgáfa slíkra bréfa hafi numið um 2-3 milljörð- um, að því er fram kemur í frétta- bréfi Landsbréfa. Skuldabréfaútgáfa sveitarfé- laga hefur vaxið jafnt og þétt frá miðju sl. ári og ýtti vaxtalækkunin í nóvember enn frekar undir að sveitarfélögin leituðu á þennan markað. Bæði stór og smá sveitar- félög hafa nýtt sér markaðinn til að fjármagna stór og smá verkefni eða til endurfjármögnunar. Hafa smærri sveitarfélög með færri en 2 þúsund íbúa nýtt sér tækifæri sem bjóðast á markaðnum í vax- SAMVINNUFERÐIR-Landsýn hafa náð samvinnu við írska flug- félagið Air Lingus um flug til nokkurra borga í Evrópu um Dyflinnarflugvöll. „Við náðum verulega góðum samningi við Air Lingus sem skilar sér í því að þessar ferðir eru á verulega lægra verði en áður hefur verið í boði,“ sagði Helgi Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Samvinnuferða- Landsýnar, í samtali við Morgun- blaðið. „Einu skilyrðin eru þau að flogið sé út á mánudegi og heim aftur á fimmtudegi eða föstudegi.“ Samvinnuferðir-Landsýn eru með 3-4 flug í viku til Dyflinnar. Samkvæmt samningnum við Air Lingus verða sértilboð á flugi áfram til London á 29.900 krónur, Parísar á 35.600 krónur, Brusseí á 29.900 krónur, Frankfurt á 34.900 krónur og Mílanó á 45.200 krónur. Miðað er við flug frá Keflavík til áfangastaðar en um er í mjólkuriðnaði í nágranna- löndunum, segir í frétt frá fyrir- tækinu. Myndin var tekin við áfhend- ingu staðfestingarskjalsins. Frá vinstri eru Gunnar H. Guðmunds- son, ráðgjafi Ráðgarðs hf., en andi mæli, en einstakar útgáfur hafa verið á bilinu 10 til 400 millj- ónir króna. í fréttabréfi Landsbréfa segir jafnframt að fjármögnun sveitarfé- laga á verðbréfamarkaði geti í mörgum tilfellum verið ódýrari en aðrir valkostir sem þeim bjóðist á lánamarkaði og því sé hægt að lækka fjármagnskostnað í mörgum tilvikum. Þannig er bent á að ávöxtunarkrafa hjá stærri sveitar- félögum, að Reykjavíkurborg frá- talinni, hafi verið á bilinu 5,5-6,5%. Þetta séu betri kjör en þau hafí á sama tíma getað fengið annars staðar og hagstætt hafi verið fyrir sveitarfélög að afla fjárma'gns með þessum hætti. Sveitarfélögin hafa einnig leitað eftir fjármagni til skamms tíma á verðbréfamarkaði og telja Lands- er að ræða sértilboð sem gildir frá byijun október fram undir miðjan desember nk. „í kjölfar þess að Flugleiðir hafa verið með sértilboð á Banda- ríkjaflugi þótti okkur tilvalið að freista þess að ná samningum um sértilboð á flugi til Evrópu í miðri viku,“ sagði Helgi. „Þessar ferðir eru líklegar til þess að verða fyrst og fremst nýttar af fólki í við- skiptaerindum og þeim sem þurfa að sækja stutta fundi eða ráðstefn- ur á þessa staði.“ Helgi sagði að með þessu sértil- boði væri ekki ætlunin að keppa við þjónustu Flugleiða á Saga Class enda væri sú þjónusta sem Fiugleiðir byðu á viðskiptafarrými sínu sú besta í heiminum. „Við erum eingöngu að koma til móts við þá aðila sem þurfa að komast til útlanda á þessum tíma og vilja gera það á sem ódýrastan hátt.“ hann aðstoðaði við uppbyggingu gæðakerfisins, Kjartan J. Kára- son, framkvæmdastjóri Vottunar hf., Oskar H. Gunnarsson, for- stjóri OSS, Þorsteinn Karlsson, framkvæmdastjóri tæknisviðs OSS. bréf að veltan á þeim markaði hafí numið vel á annan milljarð á fyrri hluta ársins. Þessi skamm- tímafjármögnun felst í útgáfu víxla eða endurkaupasamninga um verð- bréf. Ávöxtunarkrafa á þessum bréfum lækkaði verulega í kjölfar vaxtalækkunarinnar í nóvember og geta stærri sveitarfélög nú selt 3 mánaða víxla á verðbréfamark- aði með 5,9-7,5% ávöxtunarkröfu. Til samanburðar er nefnt að vextir af yfirdráttarlánum séu á bilinu 13-15%. Einnig hafa endurkaupa- samningar verið að ryðja sér til rúms, en þeir fela í sér að viðkom- andi sveitarfélög gefa út skulda- bréf með eingreiðslu til 5-10 ára og föstum vöxtum en gerir síðan sérstakan samning um endurkaup þeirra allt frá 3-12 mánaða. Hljómbær í Skeifuna? BJARNI Stefánsson, fram- kvæmdastjóri Hljómbæjar hf., segir að áhugi sé fyrir því að flytja starfsemi fyrirtækisins í Skeifuna, en húsnæði Hljómbæj- ar við Hverfisgötu 103 var ný- lega auglýst til leigu eða sölu. Helsta ástæða væntanlegs flutn- ings Hljómbæjar er að sögn Bjarna sú að fyrirtækið hefur einangrast mikið eftir nýlegar framkvæmdir við Skúlagötuna sem gerðu að verkum að erfitt væri að komast að húsnæðinu við Hverfisgötu. Bjarni sagði að áætlað væri að um 60-70 millj. króna fengj- ust fyrir húseignina við sölu. Um er að ræða 432 fm verslunarhús- næði og 332 fm lagerhúsnæði á 1. hæð og 125 fm skrifstofuhús- næði á 2. hæð auk lagerrýmis. Lóðin er 1.604 fm. Bjarni sagði aðspurður að ekk- ert ákveðið húsnæði væri komið til sögunnar í Skeifunni. Þar væri hins vegar töluvert framboð af álitlegu húsnæði. „Það er ekk- ert fastákveðið enda viljum við fyrst kanna hvaða möguleika við eigum á að koma okkur héðan. Síðan getur þetta allt breyst þannig að við verðum áfram hér á Hverfisgötunni," sagði Bjarni, en Hljómbær hefur verið þar til húsa frá 1981. Húsbréf Utdráttur húsbréfa Nú hefurfarið fram útdráttur húsbréfa í eftirtöldum flokkum: 16. útdráttur í 1. flokki 1989 13. útdráttur í 1. flokki 1990 12. útdráttur í 2. flokki 1990 10. útdráttur í 2. flokki 1991 5. útdráttur í 3. flokki 1992 1. útdráttur í 2. flokki 1993 Koma þessi bréf til innlausnar 15. nóvember 1994. Öll númerin verða birt í næsta Lögbirtingablaði. Auk þess verða númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum hér að ofan birt í Tímanum föstudaginn 9. september. Upplýsingar um útdregin húsbréf liggja frammi í Húsnæðisstofnun ríkisins, á Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum. C&] húsnæðisstofnun ríkisins LJ HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SlMI 69 69 00 Sveitarfélög leita í vaxandi mæli á verðbréfamarkað Skuldabréfaútgáfa stefnir í 4-5 milliarða á árinu Samvinnuferðir-Landsýn semja við írska flugfélagið Air Lingus Sértilboð á flugi til Evrópuborga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.