Morgunblaðið - 14.09.1994, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Þorkell
AUÐ beð blöstu við þeim Val Sig^irðssyni, Atla Antonssyni,
Guðrúnu G. Björnsdóttur, og Laufeyju Jensdóttur þegar þau
mættu í skólagarðana í Skerjafirði í Reykjavík í gær.
Ingólfstorg dýr-
ara en ætlað var
Stolið úr
skóla-
görðum
FJÖLDI barna hefur síðustu
daga orðið fyrir barðinu á
óprúttnu fullorðnu fólki sem
stelur uppskeru þeirra í skóla-
görðunum. Búið er að hreinsa
uppskeru úr milli 50 og 60 görð-
um í skólagörðunum í Skerja-
firði og voru fæst barnanna
búin að taka nema lítinn hluta
af uppskeru sumarsins.
Að sögn Valgerðar Hallgríms-
dóttur, móður tveggja barna
sem hafa ræktað grænmeti í
skólagörðunum í sumar, höfðu
margir beðið með að taka upp
úr görðunum vegna þess hve
veðrið hefur verið gott. Þess
vegna áttu flestir megnið af t.d.
kartöfluuppskerunni óupptekið.
Hún segir augljóslega ekki um
skemmdarverk eða handahófs-
kennda rányrkju barna að ræða.
Greinilegt sé að farið sé skipu-
lega í garðana og þeir hreinsað-
ir. Hún segir að í gluggum
vinnuskúranna við skólagarð-
ana séu miðar sem á standi skýr-
um stöfum að börnin eigi upp-
skeruna.
Valgerður segist hafa hitt
mörg vonsvikin börn sem höfðu
komið að görðunum sínum eftir
að búið var að hreinsa úr þeim.
Hún segir að sennilega sé eitt-
hvað um þetta á hverju hausti
að fólk fari í skólagarðana og
nái sér í grænmeti. Sumum þyki
þetta greinilega sjálfsagt. í gær-
morgun hafi t.d. starfskona
skólagarðanna mætt fullorðinni
með grænmeti í poka. Hún hafði
komið með öll tól og tæki með
sér. Hún hefði fullyrt við starfs-
konuna að þetta væri ekkert
nýtt, „fólk hefði alltaf gert
þetta“.
Valgerður segir þetta óskap-
lega sárt fyrir börnin sem séu
búin að hlúa að grænmetinu allt
sumarið. Hennar börn og fleiri,
sem búið var að stela upp-
skerunni frá, fengu að fara í
svokallaða starfsmannagarða
og taka kartöflur upp úr þeim
í sárabætur. Það kæmi þó aldrei
í staðinn fyrir að taka upp sitt
eigið.
Endurbætur á
Geysishúsi kosta
227 milljónir
KOSTNAÐUR vegna framkvæmda
við gerð Ingólfstorgs í Reykjavík er
nú 173 milljónir króna og er áætlað-
ur kostnaður vegna lokafram-
kvæmda 40 milljónir til viðbótar.
Upphafleg kostnaðaráætlun við gerð
Ingólfstorgs að Hafnarstræti og
Aðalstræti var 145 millj. og munar
þar 68 millj. eða um 47%.
Með greinargerð vinnuhóps sem
lögð hefur verið fram í borgarráði
fylgja ábendingar og tillögur vegna
Ingólfstorgs, Grófartorgs og Geys-
ishúss. Þar kemur fram að á hönn-
unartímanum hafi verið til umræðu
að setja atmenningssalerni og snyrti-
aðstöðu í kjallara veitingaskála á
Ingólfstorgi en það þótti mjög dýr
framkvæmd og ekki aðgengileg fyr-
ir fatlaða. Hinsvegar var lagt til að
gert yrði ráð fyrir salernis- og snyrti-
aðstöðu í væntanlegri byggingu við
Vallarstræti 2.
Framkvæmdir við torgið hófust
með útboði en verkframkvæmd hófst
20. apríl 1993 og var áætlað að
henni lyki 23. september. Fram-
kvæmdinni lauk hins vegar 4. des-
ember 1993 en ýmis frágangsverk
hafa verið unnin í vor.
Fram kemur að hönnun á Grófar-
torgi liggi niðri og að fljótlega þyrfti
að taka ákvörðun um framhald
hennar. Áætlaður kostnaður við
framkvæmdina þar er um 50 milljón-
ir.
Borgarráð samþykkti að kaupa
Geysishús 21. janúar 1992 og tók
borgin við húsinu 1. apríl sama ár.
Húsið var auglýst til leigu og leigir
ferðaskrifstofa aðstöðu í hluta þess.
Þar hafa einnig verið skipulagðar
sýningar í samstarfi við ýmsar borg-
arskrifstofur.
Breytingar á Geysishúsi
í greinargerðinni segir að í sam-
ræmi við tillögu að kaupum hússins
hafí arkitekt verið falið að hanna
útlit og innra skipulag. Þá segir að
augljóst sé að sú umfangsmikla
starfsemi sem fram fari í húsinu fái
ekki þrifíst nema til komi tengibygg-
ing. í frumtillögum hönnuðar er
gert ráð fyrir að á 1. hæð Aðalstræt-
is 2 og í tengibyggingu verði starf-
semi Upplýsingaskrifstofu ferða-
mála. Kostnaðaráætlun vegna Geys-
ishúss er tæpar 228 milljónir.
Sveitarfélög á Vestfjörðum
Tillaga um sam-
einingu lögð
fram á næsta ári
Morgunblaðið/Þorkell
PRESNJA-KÓRINN í anddyri Morgunblaðshússins í gær ásamt stjórnanda sínum, Ljudmilu Golits-
inu (fremst fyrir miðju), og rússnesku sendiherrahjónunum.
Rússneskur stúlkna-
kór heimsækir Island
NEFND, sem vinnur að tillögum um
sameiningu sex sveitarfélaga á norð-
anverðum Vestfjörðum, stefnir að
því að leggja fram tillögur snemma
á næsta ári og að kosið verði um
tillögurnar síðar á árinu. Nefndin
hefur myndað þijá vinnuhópa til að
skoða hvern málaflokk fyrir sig.
Bolungarvík og Súðavík taka ekki
þátt í starfi nefndarinnar.
Sveitarfélögin sex eru Þingeyri,
Mýrarhreppur, Mosvallahreppur,
Flateyri, Suðureyri og ísafjörður.
Tæplega 4.900 manns búa í þessum
sveitarfélögum.
Þegar nefndin var sett á laggirnar
var Bolungarvík og Súðavík boðið
að vera með, en þau settu skilyrði
fyrir þátttöku sem hin sveitarfélögin
féllust ekki á.
Nefndin hefur skipað þrjá vinnu-
hópa til að skoða einstaka þætti
málsins. Einn hópur vinnur að tillög-
um um stjórnsýslu nýs sveitarfélags
og fjármál, annar fjallar um skóla-
mál, heilbrigðismál og önnur félags-
mál og þriðji hópurinn fjallar um
framkvæmdir.
VERÐ á nautakjöti hækkaði um 10%
um síðustu mánaðamót. Að sögn
Guðmundar Lárussonar, formanns
Landssambands kúabænda, er orsök
verðhækkunar minna framboð á nau-
takjöti. Verð á nautakjöti hefur
lækkað nær stöðugt í rúmt ár vegna
offramboðs.
Grundvallarverð á nautakjöts-kílói
fór niður í 195 kr., en hæst var það
um 380 kr. Eftir síðustu verðbreyt-
ingu er grundvallarverð til bænda
228,50 krónur.
„Það hefur átt sér stað geysileg
verðlækkun vegna offramboðs á nau-
takjöti. Nú er þessu offramboði að
Ávinningur af sameiningu
„Ég held að það séu allir nefndar-
menn sammála því að það sé ávinn-
ingur af sameiningu," sagði Þor-
steinn Jóhannesson, formaður sam-
einingarnefndar. Hann sagði að
nefndin ætli að gefa sér góðan tíma
til að undirbúa tiliögurnar og kynna
málið vel fyrir kjósendum áður en
óskað verði eftir dómi þeirra.
„Sameiningarmál eru alltaf upp á
teningnum. Byggðin hér er að þétt-
ast ár frá ári. Eg geri ráð fyrir að
eftir að göngin koma verði þetta
meira og minna eitt atvinnusvæði.
Samstarf sveitarfélaganna mun auk-
ast í framtíðinni. Þetta er meira
spurning um form á hlutunum,"
sagði Ágúst Oddsson, forseti bæjar-
stjórnar Bolungarvíkur.
Ágúst sagði að ein af ástæðunum
fyrir því að Bolungarvík ákvað að
taka ekki þátt í nefndarstarfinu
hefði verið að tillaga um sameiningu
var felld með miklum meirihluta í
Bolungarvík í atkvæðagreiðslu 20.
nóvember sl.
linna og það er að nást ákveðið jafn-
vægi á markaðinum. Þess vegna
þokast verðið upp,“ sagði Guðmund-
ur Lárusson.
í vor stofnuðu kúabændur sérstakt
fyrirtæki til að annast, sölu á nauta-
kjöti. Þá voru tæplega 200 tonn af
nautakjöti tekin út af markaðnum
og sett í frystigeymslu. Guðmundur
sagði að þetta væri lakasta kjötið á
markaðinum sem eingöngu væri
hæft í vinnslu. Hann sagðist gera
sér vonir um að hægt verði að setja
þetta kjöt á markað innan ekki mjög
langs tíma.
STÚLKNAKÓR frá Moskvu í Rúss-
landi kom til landsins í gær. í kórnum
er 21 stúlka á aldrinum 14 til 18
ára og eru þær allar nemendur í
Presnja-kórskólanum sem hefur tón-
listarkennslu sem meginviðfangs-
efni. í hann eru valdir úrvalsnemend-
ur úr venjulegum grunn- og mennta-
skólum sem þykja hafa góðar raddir.
í Presnja-skólanum eru 450 böm á
aldrinum 5 til 18 ára og eru sjö skóla-
kórar starfandi við skólann.
Presnja-kórinn er einn af elstu
skólakórum Moskvu og á að baki 46
ára farsælt starf. Hann hefur heim-
sótt yfir 50 borgir og héruð í Rúss-
landi og Sovétríkjunum sem voru og
farið í margar tónleikaferðir, m.a.
til Þýskalands, Frakklands, Tékk-
lands og Búlgaríu. Kórinn hefur einn-
ig tekið þátt I alþjóðlegum kóra-
keppnum og oft staðið á verðlauna-
palli.
Fjölbreytt efnisskrá
Efnisskrá kórsins er viðamikil og
fjölbreytt, allt frá tónlist rússnesku
rétttrúnaðarkirkjunnar og kaþól-
skrar kirkjutónlistar til þjóðlaga og
nútímaverka. Söngur kórsins er í
háum gæðaflokki og þykir flutningur
hans á kirkjutónlist sérstaklega góð-
Syngur á tónleik-
um í Skálholti og
Langholtskirkju
ur. Kórinn hefur einnig sungið inn á
fjölmargar plötur og geisladiska.
Stjórnandi kórsins er Ljudmila Go-
litsina.
Ferð kórsins er fjármögnuð að
hluta til af foreldrum stúlknanna og
að hluta af öðrum styrktaraðilum.
Kórinn fær engin opinber framlög
til ferðarinnar.
Sungíð fyrir Morgunblaðsfólk
Kórinn hóf íslandsdvölina með
heimsókn í blaðhús Morgunblaðsins
en þangað kom hann beint af flug-
vellinum. Þar söng hann fyrir starfs-
fólk tvö verk úr messu eftir Tsjesn-
okov, bæn fyrir Rússland eftir
Tsjajkovskíj og þýskt jólalag.
Eftir skoðunarferð um Morgun-
blaðið hélt kórinn beint í Skálholt
þar sem hann dvelur í sumarbúðum
í þrjá daga. í dag verður m.a. farið
í Tungnaréttir og skoðunarferð að
Gullfossi og Geysi. Kórinn á eftir að
koma víða við næstu vikuna, bæði
til að skoða sig um og til að syngja.
Tvennir opinberir tónleikar verða
með kómum, þeir fyrri í Skálholts-
kirkju kl. 20.30 annað kvöld og hin-
ir síðari kl. 16.00 í Langholtskirkju
á laugardag. Kórinn heldur af landi
brott á fímmtudagsmorgun í næstu
viku.
Veður og móttökur hlýjar
Blaðamaður tók tali þijár stúlkur
úr kórnum, þær Anastasju, Tönju
og Veru. Þær voru allar spenntar
yfír því að fá að koma til Islands.
Þær sögðust vita mjög lítið um land-
ið og ekki þekkja neinn sem hefði
komið hingað. Þær sögðu að útsýnið
úr flugvélinni hefði verið stórkostlegt
þegar flogið var inn jrfír landið. Þeim
fannst skrítið að sjá engin tré og
þegar þær sáu jöklana voru þser
sannfærðar um að hér hlyti að vera
óskaplega kalt. Svo reyndist þó ekki
vera, það var bara tiltölulega hlýtt,
fyrir utan móttökumar sem hefðu
verið einstaklega hlýjar. Þær sögðust
hlakka til að fá að kynnast lífi ís-
lenskra fjölskyldna en þær flytja inn
á heimili bama úr Skólakór Kársness
á föstudaginn. Þær hafa búið inni á
heimilum í Þýskalandi og þeim fínnst
spennandi að bera Iífið hér saman
við það sem þær kynntust þar.
Yerð á nautakjöti
hækkar um 10%
i
i
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
\
)
i