Morgunblaðið - 14.09.1994, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Hugbúnaður
Skrif um skjáfaxið
mikill stuðningur
Hyundai vill dreifa hugbúnaðinum í S-Kóreu
„ÞESSI lofsamlega umfjöllun er mjög þýðingarmikil fyrir okkur, en við sjáum
sjálfsagt ekki hveiju hún skilar í sölu fyrr en eftir einhveija mánuði,“ sagði
Ásgrímur Skarphéðinsson, framkvæmdastjóri Tölvusamskipta hf. í samtali
við Morgunblaðið. Hugbúnaður fyrirtækisins, Skjáfax, var valinn besti búnað-
ur sinnar tegundar í samanburði nýjasta tölublaðs tölvutímaritsins PC-magaz-
ine og hlýtur kerfíð gæðastimpilinn „Editors Choice“. Hyundai í Suður-
Kóreu hefur lýst áhuga á að dreifa hugbúnaðinum þar í landi.
Arðsemi hluthafa OIís 30% það sem af er árinu
Niðurstöður úr 6 mánaða
milliuppgjöri, janúar-júní 1994
Rekstur
Rekstrartekjur
Rekstrargjöld
Fjármunatekjur og (fjárm.i
Skattar
Hagnaður
Veltufé frá rekstri
Efnahagur
Eignir
Skuldir
Eigið fé
1993
.1.-31.12.
1994
1.1 .-30.6.
^5.829.065.003 2.842.515.563
5.631.014.226 2.716.643.252
(98.520.843) (10.357.158)
8.297.720 33.930.284
91.232.214 81.584.869
267.919.796 149.636.187
4.134.497.525 4.383.160.111
2.320.779.120 2.540.966.718
1.813.718.405 1.842.193.393
Hagnað-
urinn 82
milljónir
HAGNAÐUR Olíuverslunar íslands,
Olís, var 81,6 milljónir samkvæmt
uppgjöri félagsins fyrir fyrstu sex
mánuði ársins eftir að gjaldfært
hefur verið 40 milljóna framlag í
niðurfærslusjóð útistandandi krafna.
Hagnaður Olís í árslok 1993 var
91,2 milljónir.
Rekstrartekjur Olís í lok júní sl.
voru 2.843 milljónir, samanborið við
5.829 milljónir í árslok 1993. Rekstr-
argjöld voru 2.717 milljónir á móti
5.631 milljónum í árslok 1993 og
var rekstrarhagnaður á fyrri árs-
helmingi þessa árs því 126 milljón-
um.
„Rekstur félagsins hefur verið
viðunandi það sem af er árinu," sagði
Einar Benediktsson, framkvæmda-
stjóri Olís í samtali við Morgunblað-
ið. „Það er líka ánægjulegt að sjá
hve arðsemi hluthafa, þ.e. útgreidd-
ur arður að viðbættri gengishækkun
hlutabréfa félagsins, hefur verið
mikil á árinu. Til ágústloka var arð-
semin 23% enda hækkaði gengi
hlutabréfanna um rúmlega 18%, úr
2,07 í lok síðasta árs í 2,45 í lok
ágúst. Sé tekið tillit til síðustu við-
skipta 12. september sl. á genginu
2,60 er arðsemin rúmlega 30%,“
sagði Einar.
Eigið fé Olís var 1.842 milljónir
30. júní sl., heildareignir 4.383 millj-
ónir og eiginfjárhlutfall 42%. Arð-
semi eigin íjár fyrstu sex mánuðina
var 9% á ársgrundvelli samanborið
við 5,4% allt árið 1993.
Tímaritið skoðaði fjögnr kerfí en
Skjáfaxið kom sérfræðingum þess
mjög á óvart, þótti afar sveigjanlegt
og henta jafnt fyrir litla tannlækna-
stofu og stórfyrirtæki. „Tímaritið,
sem er eitt útbreiddasta tölvutímarit
heims, er að koma út í einstökum
fylkjum Bandaríkjanna þessa dag-
ana,“ sagði Ásgrímur. „Þeir sem
fylgjast vel með markaðnum meta
vöru eftir tæknilegum skrifum á
borð við þessi, svo umfjöllunin er
gríðarlegur stuðningur. Þá getum við
notfært okkur þessa viðurkenningu
í auglýsingum, sem sýnir kaupendum
svart á hvítu að varan er yfírfarin
af sérfræðingum.“
Ásgrímur sagði að hjá Tölvusam-
skiptum væri nú verið að meta hvern-
ig fyrirtækið væri í stakk búið til
að mæta söluaukningu, ef af yrði.
„Við höfum þegar selt hugbúnað
fyrir 40-50 milljónir það sem af er
árinu, en í fyrra nam heildarsala
ársins tæpum fimmtíu milljónum.
Haustið er mesti sölutími ársins og
því höfðum við reiknað með um 70%
söluaukningu milli ára. Sú áætlun
var gerð áður en umfjöllun PC-
magazine birtist, svo aukningin gæti
orðið enn meiri, en við eigum ekki
von á að hún skili sér öll fyrr en á
einhveijum mánuðum eða árum.“
Hyundai kannar
dreifingn í S-Kóreu
Fulltrúar suður-kóreanska fram-
leiðandans Hyundai hafa verið hér á
landi að undanförnu, til að kynna sér
skjáfaxið. „Við erum þegar komnir
inn á markaðinn í Asíu og erum með
dreifíngaraðila í Singapore, Hong
Kong og Japan,“ sagði Ásgrímur.
„Hins vegar hefur það staðið okkur
fyrir þrifum, líkt og öðrum framleið-
endum, að við höfum ekki haft vald
á því stafasetti, sem þar er notað.
Ef af samstarfínu við Hyundai verð-
ur, þá senda þeir menn hingað, sem
breyta forritinu.“
Heildartap Flugleiða hf. eykst frá síðasta ári þrátt fyrir að rekstrarafkoman hafi batnað
Tapið fyrri Muta árs
nam 732 milljónum
HEILDARTAP Flugleiða hf. á fyrri
árshelmingi nam 732 milljónum
króna skv. milliuppgjöri en á sama
tímabili í fyrra var heildartap félags-
ins 572 milljónir. Undanfarin ár hef-
ur reglan verið sú að tap er af rekstri
Flugleiða fyrstu sex mánuði ársins
vegna árstíðasveiflu í flutningum.
Rekstrarafkoma Flugleiða eftir
fyrstu sex mánuði þessa árs að við-
bættum fjármagnskostnaði batnaði
hins vegar frá síðasta ári. Að sögn
Einars Sigurðssonar, upplýsingafull-
trúa Flugleiða, má rekja ástæðu
þess að betri rekstrarafkoma skilaði
sér ekki í bættri heildarafkomu, til
óhagstæðrar gengisþróunar og þess
að lækkun tekjuskattsskuldbinding-
ar kemur félaginu ekki til góða á
þessu ári líkt og í fyrra. Töluvert
hafi hins vegar miðað í rétta átt í
þeim liðum rekstrarins sem stjórn-
endur gætu haft áhrif á frá degi til
dags.
Heildartekjur Flugleiða námu
6.414 milljónum á fyrri árshelmingi
og hækkuðu úr 5.489 milljónum frá
sama tímabili í fyrra eða um tæp
17%. Að sögn Einars endurspeglar
þessi tekjuaukning á milli ára já-
kvæða þróun í efnahagsmálum hér
á landi og erlendis, nýjar áherslur
og öflugra starf í markaðsmálum.
Heildargjöld Flugleiða námu
6.621 milljónum í lok júní sl. saman-
borið við 5.815 milljónir á sama tíma
árið áður. Hækkunin milli ára nam
tæpum 14%. Rekstrartap án fjár-
munatekna og fjármagnsgjalda
fyrstu sex mánuði þessa árs var því
207 milljónir samanborið við 326
milljónir á sama tíma í fyrra.
Þróun vaxtakjara á tímabilinu var
Flugleiðum hagstæð. Fjármagnsliðir
voru neikvæðir um 474 milljónir í
lok júní en á sama tíma í fyrra voru
þeir neikvæðir um 600 milljónir.
Afkoman af reglulegri starfsemi,
þegar tekið hefur verið tillit til fjár-
magnskostnaðar, hefur því batnað
verulega á milli ára, úr 926 milljón-
um eftir fyrri árshelming í fyrra í
681 milljón nú.
Óhagstæð gengisþróun
„Óhagstæð gengisþróun á veruleg-
an þátt í því að betri rekstur skilar
sér ekki í betri heildarafkomu," sagði
Einar Sigurðsson. „Misvægi gengis
og verðlags, sem skilaði 192 milljóna
tekjufærslu fyrstu sex mánuðina í
fyrra leiddi nú til 69 milljóna gjald-
færslu og er ástæðan aðallega sú að
gengi dollars lækkaði um tæp 5% frá
áramótum til loka tímabilsins.“
Bókfært verð flugvélaflota Flug-
leiða í íslenskum 'krónum er endur-
metið með hliðsjón af gengi dollars.
Lækkandi gengi hans þýðir að í ís-
lenskum krónum lækkar bókfært
verð flugvélaflotans og því kemur
til umræddrar gjaldfærslu. „Það má
geta þess að á sama tíma og þessi
gjaldfærsla kemur inn í krónuupp-
gjör Flugleiða hefur markaðsverð
flugvéla fyrirtækisins í dollurum
verið að styrkjast," sagði Einar.
„Markaðsverð flugvélanna hefur
alltaf verið hærra en bókfært verð
þeirra og eftir því sem sá munur
verður meiri eykst dulin eign félags-
ins í flugvélum."
Engin tekjuskattsskuldbinding
í ársbyijun 1993 hvíldi 180 millj-
ón króna tekjuskattsskuldbinding á
Flugleiðum. Einar sagði að skatta-
legt tap félagsins á síðasta ári hefði
eytt þeirri skuldbindingu og fyrir
vikið hefði komið samsvarandi tekju-
færsla í rekstrarreikninginn. „I upp-
hafi þessa árs hvíldi engin tekju-
skattsskuldbinding á fyrirtækinu og
því var ekki um slíka tekjufærslu
að ræða þrátt fyrir skattalegt tap á
fyrri hluta þessa árs,“ sagði Einar.
Einar sagði ennfremur að það
væri regla að tap væri af rekstri
Flugleiða á fyrri árshelmingi vegna
árstíðasveiflu í flutningum. „Við
höfum verið með góða nýtingu yfir
sumarmánuðina og sem dæmi má
nefna að það voru tæplega þrisvar
sinnum fleiri farþegar í júlí en í febr-
úar. Bókanir í alþjóðaflugi Flugleiða
næstu mánuði eru líka töluvert betri
en á sama tíma í fyrra, bæði í flugi
milli íslands og Evrópu og til Flórída.
Framboð sæta út árið verður svipað
og í fyrra og við vonumst því eftir
betri nýtingu."
FRUMSYNINGAR
^VEISLA^
17. septemLer 1994
Glæsilegfur matseáill, sérvalin vín.
Húsið opnaá kl. 18:00 með forárykk.
Vinsamlegfast pantiá korá tímanlega.
Borðapantanir i sima 19636/Fax 19300
Bandaríkjamenn
deila um klórbann
Umhverfisvernd
Washington. Reuter.
Umhverfisvemdarstofnun
Bandaríkjanna gefur í dag út 2.000
blaðsíðna skýrslu um eiturefnið dí-
oxín sem myndast í ýmsum klórefn-
issamböndum. Umhverfisverndar-
sinnar segja að niðurstaða skýrsl-
unnar kalli á bann við notkun klórs
í ýmis konar iðnaðar- og matvæla-
framleiðslu.
Samtök bandarískra fyrirtækja
eru á öndverðum meiði og segja að
ekkert nýtt komi fram í skýrslunni.
Lítið sé enn vitað um hvemig díox-
ín myndast og hvaða áhrif efnið
hafi á heilsu manna. Skýrslan muni
því aðeins sýna að rannsaka þurfí
málið frekar áður en hægt verði að
setja ströng lög um notkun klórs í
iðnaði.
Díoxín er hættulegt eiturefni sem
myndast meðal annars við brennslu
á ýmiskonar pappír og plasti sem
framleitt er úr klór, og við ýmiskon-
ar iðnframleiðslu.
Díoxín er komið í fæðukeðjuna
og samkvæmt skýrslu, sem gefín
var út í vor, nægir díoxínmagnið,
sem fínnst í Bandaríkjamönnum, til
að hafa áhrif á heilsu og æxlun til-
raunadýra. Umræðan hefur aðal-
lega snúist um hversu hættulegt
díoxín er sem krabbameinsvaldandi
efni, en í skýrslunni er íjallað um
önnur áhrif eiturefnisins, svo sem á
æxlunar- og ónæmiskerfín og fóst-
urvöxt.
Milljarðar dala eru í húfi fyrir
iðnfyrirtæki og ýmsa matvælafram-
leiðendur í Bandaríkjunum.
----♦ ♦ ♦--
Spielberg
auðugastur
New York. Reuter.
BANDARÍSKI kvikmyndaleik-
stjórinn Steven Spielberg er efstur
á lista tímaritsins Forbes yfir 40
hæst launuðu skemmtikrafta
heims. Spielberg
vann sér inn 170
miiyónir dala, 11,7
milljarða króna, í
fyrra og Forbes
áætlar að hann
þéni 165 milljónir
dala, 11,3 miHjarða
króna, í ár. Tíma-
ritið miðar listann
við tvö ár og Spielberg þénaði því
samtals 355 mil^ónir dala. Forbes
áætlar að auðæfi hans séu nú rúm-
lega milljarður dala, 69 milljarðar
króna. Næst á listanum kom Oprah
Winfrey, en hún vann sér inn 105
milljónir dala. I þriðja sæti er risa-
eðlan Barney, en höfundur hennar
og framleiðandi þénuðu 84 milU-
ónir dala.