Morgunblaðið - 14.09.1994, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1994 19
Þegar ástín deyr
BOKMENNTIR
Ljöðabók
HAMINGJUSMIÐURINN
eftir Gísla Gíslason. Höfundur gefur
út, 1994 — 96 síður. 1.500 kr.
TILFINNINGAR og kenndir
yfirgnæfa stundum allt annað í
bókmenntaverkum. Stíll höfundar
og önnur bókmenntaleg gildi falla
í skuggann. Ekki vegna þess að
bækurnar séu illa skrifaðar heldur
sökum þess að efni þeirra á sér-
stakt erindi og túlkar nærtækan
veruleika.
Þannig er upplifun
mín af Ijóðabókinni
Hamingjusmiðurinn
eftir Gísla Gíslason.
Bókin hefur vissulega
galla og er ef til vill
ekkert tímamótaverk.
En höfuðstyrkur
hennar er einlæg og
opinská umfjöllun um
ást, sársauka skilnað-
ar og söknuð.
Bókinni skiptir Gísli
í sex flokka sem nefn-
ast Ástin, Veltu þér
ekki, Ástin deyr,
Söknuður, í ljósa-
skiptunum og Eyði-
fjörðurinn. Ljóðin eru
64 og fjalla um ýmis efni. Þó ber
að líta á bókina sem heild því að
á bak við þau má lesa sögu af ást
sem er á vissan hátt hugsjónaleg
og upphafín og er gjarnan túlkuð
með ljóðrænum náttúrumyndum.
Við sjáum líka fyrir okkur fagra
fjölskyldumynd sem verður sárs-
aukafullri sundrungu að bráð en
einnig söknuð og viðleitni til að
gera upp við tilfinningarnar.
Ljóð Gísla er óbundin en efni-
stökin nokkuð lík því sem við eig-
um að venjast meðal íslenskra
skálda. Myndefni er oftast sótt í
náttúruna, einkum þegar fjallað
er um ástina en skilnaðurinn og
sársaukinn tengist fremur borg-
inni og samfélagslegu lífi. Skáldið
sækist einungis í fáeinum tilvikum
eftir frumlegri myndsköpun eða
óvæntum hugsanatengslum og
tekst þá yfirleitt vel upp:
nakin drógum við
norðurljósin
uppað höku
og eineigð nóttin
söng okkur
vögguljóð
Oftar fer þó Gísli þekktari og
tiiþrifaminni leiðir í myndsköpun
sinni. Þegar ástin deyr er samband
fyrrum elskenda tengt ósýnilegum
hlekkjum, týndum lyklum eða lok-
uðum dyrum og söknuðinum líkt
við kulda, tóm og dáið hús: „Þið
farin/ húsið/ eins og deyr/ í fangi
mínu“.
Á tímum efasemda
um gildi málsins til
að túlka tilfinningar
vegna þess hversu
orðin, myndimar og
klisjurnar eiga á
hættu að virðast útj-
öskuð mætti ætla að
slík efnistök væru
ekki vænleg til árang-
urs. Þó ber hér nokk-
uð til. Eg hygg að
fremur fátítt sé að ís-
lenskir karlmenn ræði
svo opinskátt um til-
finningar sínar í
tengslum við skilnað,
jafnvel í ljóðum. Gísli
ryður því á vissan hátt braut með
bók sinni. Þar að auki tekst honum
þrátt fyrir fáeina annmarka text-
ans að tjá tilfinningar á einlægan
máta með því að forðast í senn
kaldhæðni og væmni en takast á
við verkefnið af alvöru og æðru-
leysi. Gott dæmi um þetta er upp-
gjörsljóðið Smiðurinn, titilljóð bók-
arinnar, þar sem ljóðmælandi
vaknar við rottugang tilverunnar
og rykið þyrlast upp:
hér þurfti
að taka til hendi
smíða eigin gæfu
teygði sig
eftir hamrinum
syfjaður
hamingjusmiðurinn
Skafti Þ. Halldórsson
Gísli Gíslason
Húsbréf
Innlausnarverð
húsbréfa í 4. flokki 1992
Innlausnardagur 15. september 1994.
4. flokkur 1992: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 5.765.814 kr.
1.000.000 kr. 1.153.163 kr.
100.000 kr. 115.316 kr.
10.000 kr. 11.532 kr.
Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka íslands
Suðurlandsbraut 24.
ATH. Útdregin óinnleyst húsbréf bera hvorki vexti
né verðbætur frá innlausnardegi.
cSd HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
HÚSBRÉFAOEIID • SUOURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 69 69 00
LISTIR
ÞAÐ ER gaman að sjá hversu
fjölbreytt yrkisefnin eru hjá krökk-
unum í 9. HG. í kverinu Hugnagi
sem þeir gáfu út í vor, er ort um
ólíkustu efni himins og jarðar.
Stíllinn nær yfir mest allan skal-
ann frá alvarlegt til galsafengið
en einna athyglisverðast þótti mér
hve skáldin eru alþjóðlega þenkj-
andi og vísa gjama útí veröld víða
í ljóðum sínum. „Góði fugl á leið
yfir hafíð/ sendu kveðju til/ krakk-
anna í Zimbabwe/ frá krökkunum
í/ Ölduselsskóla“, segir til að
mynda eitt skáldanna og brýtur
um leið niður múra. Stríð og frið-
ur, líf og dauði eru áleitin efni en
ekki síður blóð og víg' sem etv.
segir nokkuð um áhersluefni kvik-
myndaframleiðenda sem stíla uppá
þennan aldurshóp. En ef dæma
má af téðu kveri, virðist útsýn
ungmrnna yfir heiminn aukast stig
af stigi og er það vel.
„Bók þessa mega allir gera við
það sem þeir vilja — þegar þeir
eru búnir að lesa hana“, eru ein-
kunnarorð Ljóðdreka IV og V eft-
ir nemendur í Verslunarskólanum
í samantekt Þórðar Helgasonar.
Ljóðdrekar Verslunarskólans
yrkja meira um tilfinningar og
samskifti einstaklinga en kollegar
þeirra í 9. HG enda u.þ.b. heilt
gelgjuskeið milli þeirra í aldri. Það
er athyglisvert - þó það komi
ekki beinlínis á óvart - að stelpur
yrkja frekar ástarljóð en strákar
en viðhafi þeir slíka tilburði er það
mest í hálflræringi. Sjöfn er m.ö.o.
í meiri hávegum hér, sé saman-
burði við níundabekkinn haldið
Ortvið
púlt
BÓKMENNTIR
Ljóð
HUGNAG
LJÓÐDREKAR
Eftir ýmsa höfunda. Utgefendur: 9.
HG í Ólduselsskóla. Verslunarskóli
Islands
áfram, spumingar varðandi tilvist
mannsins farnar að láta á sér
kræla, gamalkunnar spurningar
eins og: hver er ég, hvað er heim-
urinn, hvaðan komum við, á hvaða
leið erum við o.s.frv. Einnig er
spurt um vonir og vonleysi, varn-
arleysi mannsins frammi fyrir ill-
um örlögum og fleiri slíkar tilvist-
arspurningar skjóta upp kolli en
er að vanda torsvarað. Heims-
harmurinn og hinn grái raunveru-
leiki láta sig ekki vanta hér frem-
ur en svo víða í ljóðum alvarlegra
skálda og þarmeð þráin eftir litrík-
ari tilveru. Þó er hér innanum og
í bland að finna ágætan húmor, í
ljóðum sem gjarna miða að ákveð-
inni niðurstöðu sem verður eins-
konar húmorískur lykill að ljóðinu.
Sérhvert skáld verður að glíma
við tungumálið, útlit þess og hljóm.
Þetta er nokkuð sem ekki er hægt
að afgreiða í eitt skipti fyrir öll
sem hvern annan undirbúning
heldur fylgir glíman skáldinu í
hveiju nýju verki, allt þar til yfír
lýkur.
Skáldin í 9. HG fara stundum
nokkuð grófum höndum um tung-
una, eins og mönnum er líklega
tamast meðan þeir eru að læra á
nýtt tæki. Þegar komið er uppí
Versló er umgengnin við það orðin
öllu nærgætnari, tilfinningin
næmari fyrir virkni þess og svör-
un. Því eldri og reyndari sem
skáldin eru, þeim mun mýkri er
meðferð þeirra á tungumálinu.
Þetta hefur vitanlega jákvæð áhrif
á myndmál og líkingamál og
margir ljóðdrekar hafa náð um-
talsverðri leikni í meðferð tung-
unnar. Ég hlýt þó að viðurkenna
að mér þykir margt heillandi við
skáldskapariðkun sem er mest til
sjálfrar sín vegna en slær öllum
umþenkingum um málfar og regl-
ur á frest. Óhefta tjáningu af því
tæi mætti hafa meira vægi í öllu
skólanámi en raun er.
Nú þegar hattar eru aftur í
tísku, er ástæða til að taka ofan
fyrir þessum útgáfum 9. HG og
Verslunarskólanema. Auk þess að
verða skáldunum ógleymanlegar
þegar fram líða stundir, er ekki
að vita nema þessi reynsla þeirra
verði bókaþjóðinni til gleði og
blessunar í skáldskap og bókaút-
gáfu komandi ára. Vonum það.
Kjartan Árnason
Tölvur
Sunnudagsblaði Morgunblaðsins, 2. október nk., fylgir blaðauki sem
heitir Tölvur. í þessum blaðauka verður fjallað um sýndarveruleika,
margmiðlun, Power Mac, tölvukennslu í skólum og nýjungar á
tölvumarkaðnum. Einnig verður umfjöllun á ýmsum sviðum tölvumála
sem snýr að fyrirtækjum og einstaklingum og margt fleira.
Þeim sem áhuga hafa á að auglýsa í þessurn blaðauka, er bent á að tekið
er við auglýsingapöntunum til kl. 17.00 mánudaginn 26. september.
Nánari upplýsingar veita Agnes Erlingsdóttir,
Dóra Guðný Sigurðardóttir og Petrína Ólafsdóttir,
starfsmenn auglýsingadeildar
í síma 69 1111 eða símbréfi 69 1110.
- kjarni málsins!