Morgunblaðið - 14.09.1994, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 14.09.1994, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1994 MIIMNINGAR MORGUNBLAÐIÐ RÚNAR STEFÁNSSON + Rúnar Stefánsson fæddist á Húsavík 10. apríl 1962. Hann lést 24. ágúst síðastliðinn og var útför hans gerð frá Garðakirkju 30. ágúst. ÞEGAR það sem okkur er kærast er tekið frá okkur, erum við ef til vill fjærst því að skilja hver tilgang- urinn með lífinu kann að vera. Rún- ar frændi minn og vinur okkar hjón- anna, sagði eitt sinn að hann myndi Ijúka hlutverki sínu hér á jörðu ganga -'í gegnum allar þær hindranir sem á vegi hans yrðu, því að allar hefðu hindranirnar einhvem tilgang. Rúnar, frændi minn, hafði einstak- lega fima fingur og nam píanóleik þegar hann var ungur. Fyrst eftir að hann flutti til Reykjavíkur frá Húsavík, til að afla sér meiri mennt- unar í tónlistinni, bjó hann heima hjá fjölskyldu minni. Og hann náði miklum árangri, enda bæði duglegur og áhugasamur. Síðustu æviár sín vann hann svo í íþróttahúsi Réttar- holtsskóla, þrátt fyrir þau miklu veik- Skilafrest- ur vegna minningar- greina Eigi minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef útför er á mánudegi), er skila- frestur sem hér segir: í sunnu- dags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á *■ föstudag. í miðvikudags-, fímmtudags-, föstudags- og laug- ardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dög- um fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útr- unninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. indi sem hann átti þá orðið við að stríða. Sýnir það líklega best hversu áræðinn og æðrulaus hann var í veik- indum sínum, því að sjúkdómurinn var þess eðlis að hann vissi best sjálf- ur að hveiju hlaut að stefna. Allt sem Rúnar gerði og sagði kom beint frá hjarta hans, hvort svo sem öðrum líkaði það betur eða verr. Hann var hreinskiptinn og hispurs- laus í öllum samskiptum sínum við aðra og leyndi aldrei skoðun sinni. Fyrr í sumar giftum við hjónin okkur og var Rúnar frændi þá búinn að vera mjög veikur. Á brúðkaups- daginn var hann þó orðinn nokkuð hressari, svo að við ákváðum að fara til hans upp á deildina á spítalanum að lokinni athöfninni og skáluðum við þar við hann í kampavíni. Og það var stórkostlegasta og eftirminnileg- asta brúðkaupsgjöf sem við gátunv fengið. Rúnar frændi gafst aldrei upp þrátt fyrir sára líðan og margoft reif hann sig upp úr alvarlegum veik- indum, þvert ofan í allar spár þar um. Þar skipti miklu máli öll sú umhyggja og alúð sem foreldrar hans og aðstandendur sýndu á hinum mörgu erfíðu stundum. Sú fómfýsi og sá kærleikur var mikill og innileg- ur. Já, Rúnar vissi að hveiju stefndi, en hann grét ekki örlög sín heldur hélt áfram að skipuleggja og áætla um framtíðina fram á síðasta dag. Nú er hlutverki hans hér á jörðu lok- ið, en við hin vitum að hann heldur áfram að stefna fram á við, eins og alltaf áður. Að hafa fengið að kynn- ast Rúnari teljum við hjónin hafa verið dýrmæt forréttindi. Því kveðj- um við nú kæran og ljúfan vin. En minningin um hann mun alltaf lifa í hjörtum okkar. Elsku amma, afi, Hanna, Dilla, mamma, Stebbi og Guðný. Guð varð- veiti ykkur og styrki í ykkar miklu sorg. Bros Rúnars Stefánssonar verður í minningunni sorginni yfír- sterkari. Drottinn blessi minningu hans. Sigtryggur og Ragnheiður Sóley. t Bróðir okkar, KRISTJÁN SÆMUNDSSON prentari, lést í Landakotsspítala mánudaginn 12. september. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurjón Sæmundsson, Eiríkur J.B. Eiríksson. Móðir okkar, t ÓLÍNA PÉTURSDÓTTIR, Ekrugötu 3, Kópaskeri, verður jarðsungin frá Snartarstaðakirkju laugardaginn 17. septem- ber kl. 14.00. Fyrir hönd vandamanna, Þorsteinn Þorsteinsson, Valgerður Þorsteinsdóttir, Pétur Þorsteinsson. t Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, BRODDI JÓHANNESSON fyrrverandi rektor, sem lést 10. september, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 16. september kl. 15.00. Friðrika Gestsdóttir, Guðrún Broddadóttir, Guðjón Yngvi Stefánsson, Þorbjörn Broddason, Guðrún Hannesdóttir, Þorsteinn Broddason, Guðríður Steinunn Oddsdóttir, Ingibjörg Broddadóttir, Sigurður Jakobsson, Broddi Broddason, Björg Ellingsen, Soffía B. Sverrisdóttir. EVA BRYNDÍS SKAFTADÓTTIR + Eva Bryndís Skaftadóttir var fædd að Laug við Reykjavíkurveg í Skerjafirði 26. maí 1924. Hún andaðist á heimili dóttur sinnar og tengda- sonar 4. september síðastliðinn. Eva var dóttir hjónanna Guðfinnu Ólafsdótt- ur, frá Árbakka við Rauðarárstíg hér í borg, og Skafta Gunnarssonar, frá Lóni í Viðvíkur- sveit. Alsystkini Evu voru Ólafur, fæddur 31. desember 1922, sem andaðist 9. ágúst sl., Gunnar, fæddur 22. febrúar 1927, og Hulda, fædd 10. ágúst 1929, látin í júní 1990. Hálfsystur átti Eva sem hét Ólöf Helga Kristmundsdóttir, fædd 30. ágúst 1917, dáin 22. febrúar 1941. Eva giftist ekki en eignað- ist eina dóttur, sem hún lét heita Ólöfu Helgu. Hún er fædd 8. desember 1950. Helga er tvígift, fyrst Óskari Arnbjarnarsyni lækni og eiga þau einn son, Gunnar, f. 26. júlí 1975, þau skildu. Seinni maður Helgu er Hjalti Harðarson rafmagnsverk- fræðingur. Eva lauk námi frá Verzlunarskóla íslands árið 1941. Aðalstarf hennar var í Reykjavíkur Apóteki á skrifstof- unni. Einnig vann hún hjá Reykjavíkurborg í nokkur ár. Útför hennar fer fram frá Sel- (jarnarneskirkju í dag. GUÐFINNA og Skafti fluttust með fjölskyldu sína að Baugsvegi 9 árið 1932. Var það mikið myndar- og menningarheimili, þar sem ríkti frá- bær gestrisni og glaðværð. Það var ákaflega gaman fyrir mig, sem bjó ein hjá afasystur minni, sem ól mig upp, að kynnast svona stóru heim- ili, með öllu sem því fylgir. Við Eva vorum jafngamlar, 10 ára, og fórum í sama bekk í Skildinganesskóla og sátum saman. Oft þurfti að minna okkur á, því okkur hætti til að tala of mikið saman í tímum. Síðan fórum við í Verzlunarskóla Islands. Þá vor- um við 13 ára. Það þótti okkur mjög góður kostur þá og þykir sjálfsagt ennþá. I Verzlunarskólanum eignuð- umst við þrjár frábærar vinkonur, þær Önnu Þorbjörgu, Guðmundu og Halldóru. Þetta voru gleðidagarnir okkar, engar áhyggjur og allt svo skemmtilegt og var Eva okkar kát- ust, mjög fyndin, skemmtileg og góður vinur. Ég vík nú að heimilinu á Baugs- vegi 9. Fjölskyldan var mjög sam- hent á allan hátt. Allir hjálpuðust að t.d. í garðinum. Þar var Óli mesti blómafræðingurinn, en hinir sneru sér frekar að kartöflum, káli og alls kyns jurtum. Ég man sérstaklega eftir 1. maí. Þá var gert hreint, allt skúrað og skrúbbað frá lofti til gólfs og viðrað, bankað og barið og var þá öll fjölskyldan samankomin enda var litla timburhúsið ilmandi af hreinlæti. Eva fór að vinna á Landssímanum eftir að skólanum lauk, vann á langl- ínustöðinni, en árið 1947 réði hún sig í Reykjavíkur apótek og vann þar sleitulaust til ársins 1983 utan eitt ár, þegar hún fór til Frakkiands að Iæra frönsku, fatahönnun og saumaskap. Hún vann lítillega við það, en fór svo aftur í apótekið og þá á skrifstofuna. Hún vann svo hjá Reykjavíkurborg við endurskoðun frá árinu 1984 og allt til starfsloka. Eva eignaðist Olöfu Helgu 8. des- ember 1950 og varð hún augasteinn allra á heimilinu, hún kom eins og sólargeisli á þetta indæla heimili. Helga er kennari í MR og er hún cand. mag. í ensku. Helga eignaðist einn son með fyrri manni sínum og heitir hann Gunnar. Hann er 19 ára nemi. Óli var svo ólánsamur að fá MS- veiki, þegar hann var rúmlega fimm- tugur. Hann var þá húsvörður í Hafnar- húsinu. Þá voru Skafti og Guðfínna látin, Gunnar kvæntur Ebbu Kornerup-Hansen en systurnar bjuggu enn á æskuheimilinu. Systkinin gerðu allt sem þeim var unnt til að létta Óla lífíð. Hon- um hrakaði þó smátt og smátt og kom að því að þau gátu ekki búið þar lengur og keyptu Eva og Óli þá íbúð á Eiðistorgi 1, sem var hönnuð fyrir fatl- aða en hann var þá bundinn hjóla- stól, en Hulda eignaðist íbúð í Breið- holtinu, en hún var mjög bakveik og þoldi ekki neitt erfíði. Eva hjúkr- aði Óla heima eins lengi og mögu- legt var, en hann flutti svo í Hátún 12 og naut þar mjög góðrar aðhlynn- ingar, en hann kom þó alltaf heim á sunnudögum og dvaldi þá allan daginn og var Eva óþreytandi að gera fyrir hann allt sem í hennar valdi stóð. Helga var líka mjög góð við Óla og auðvitað Hulda og Gunn- ar líka. Óli var svo æðrulaus og duglegur í sínum ægilegu veikindum að undrun sætti. Þegar Óli var flutt- ur og Hulda dáin, fór Eva að hugsa sér til hreyfings. Hún keypti íbúð á Skólabraut 3, sem er hús fyrir aldr- aða, en þar fékk hún fallega litla íbúð sem hún snyrti á alla vegu. Leið henni þar vel. Þar gat hún keypt mat einu sinni á dag og haft vefstól- inn sinn í handavinnustofu og tók hún til við að vefa af miklu kappi, mjög fallega hluti. Svo fórum við gömlu konurnar stundum í leikhús eða á tónleika og söfn. Við vorum allar orðnar einar og var það okkur mikil gleði að hafa hver aðra til að styðjast við. Þarna leið henni vel í ca. tvö ár en fór þá að verða lasin og reyndist það vera krabbamein í nýra. Hún var skorin upp í október sl. en það náðist ekki fyrir það. Þá var Helga óþreytandi að vera hjá mömmu sinni og gera allt, sem hún gat fyrir hana. Hún tók hana heim til sín og dvaldist Eva hjá henni þegar mögulegt var og voru þau mjög samhent Helga og Hjalti í því. Þegar ég nú kveð Evu, mína elstu vinkonu og skólasystur, bið ég henni Guðs blessunar svo og Helgu og öllu hennar fólki. Kristjana Þorkelsdóttir. Eva var þrettán ára og ég mán- aðargömul, þegar hún kom fyrst vestur á ísafjörð til að gæta Hjart- ar, bróður míns á öðru ári. Skafti, faðir hennar, og Jón, faðir Önnu, móður minnar, voru systra- og bræð- rasynir, og móðir mín hafði notið góðvildar og gestrisni Skafta og Guðfínnu, konu hans, á skólaárum sínum í Reykjavík. Éva tók miklu ástfóstri við okkur, sérstaklega móð- ur mína, og kom aftur næstu sum- ur. Síðar átti hún líka til að leggja á sig sjóferð með olíuskipinu Skelj- ungi, ef hún átti frí, þegar hann sigldi vestur, þó að hún væri sjóveik og dvölin hjá „Önnu frænku" á ísafirði gæti aðeins orðið einn eða tveir dag- ar. Við fiuttum suður haustið 1943 með mjög stuttum fyrirvara, þegar föður mínum var veitt embætti í Reykjavík. Foreldrar mínir áttu marga vini hér syðra, en það voru Guðfínna og Skafti, sem buðu móður minni að vera hjá sér á Baugsvegi 9 í Skeijafirði með okkur systkinin þijú, þangað til húsið okkar yrði íbúðarhæft. Við vorum þijár vikur hjá Skafta, Guðfinnu og börnum þeirra fjórum, og það væsti ekki um okkur. Eva var þá nítján ára, hafði lokið námi í Verzlunarskólanum og vann á Landsímanum. Hún var ljóshærð, lagleg, há, grönn og beinvaxin. Hún var mikil hannyrðakona, kenndi mér krosssaum og garðapijón. Hún var næstelzt systkinanna, en virtist vera stóra systir allra systkina sinna og okkar líka. Við litum mikið upp til hennar, og hún lét sér mjög annt um okkur. Það hélzt til hinztu stund- ar. Eva stundaði nám í fatahönnun í París 1949-50. Vorið eftir að hún kom heim átti ég að fermast, og þá fengust engir kjólar á landinu. Eva valdi franskt snið á fermingarkjólinn og konu til að sauma hann, en „eftir- fermingarkjólinn" saumaði hún sjálf, og hann var auðvitað ekki síðri, hvað snið og handbragð snerti. Frændfólkið í Skeijafirðinun var jafnan gestir á hátíðum á heimili foreldra minna, en Eva tolldi oft ekki lengi í því hlutverki. Hún var óðar en varði farin að rétta hjálpar- hönd, einkum í afmælum föður míns, sem hafa stundum verið fjölmenn. Fyrir rúmum tveimur árum hringdi Eva og sagði: „Pabbi þinn var að bjóða mér í níræðisafmælið sitt. Má ég ekki hjálpa til?“ Ég þakkaði henni hugulsemina, en reyndi að afþakka hjálpina. Þá sagði hún: „Ég kem samt með svuntuna." Eva var komin inn á Flókagötu á undan þeim, sem höfðu verið ráðnar til aðstoðar. Hún smeygði sér úr dragtaijakkanum og sagði: „Ég var heiðursgestur í af- mælum mömmu þinnar, en í afmæl- um pabba þíns hjálpa ég alltaf til.“ Henni varð ekki haggað. Mér er í bamsminni, að Helga, fóstra móður minnar, sagði: „Eg yrði ekki hissa, þó að bömin í Skeija- firðinum giftust ekki. Heimilið er svo gott og skemmtilegt, að þau vilja áreiðanlega ekki fara að heiman.“ Hún reyndist að miklu leyti sannspá. Eva og Guðmundur Elíasson mynd- höggvari, sem var við nám í París, eignuðust dótturina Ólöfu Helgu, en Eva fór ekki aftur að heiman. Dóttir hennar ólst upp á Baugsveginum við ástríki móður sinnar, afa og ömmu, á meðan þeirra naut við, og móður- systkina. Eva var sínum nánustu mikil hjálparhella, ekki sízt Ólafí, bróður sínum, sem var sautján mánuðum eldri en hún. Á barnsaldri fékk hann alvarlegan augnsjúkdóm, sem hann fékk enga bót á, fyrr en hann var kominn á fullorðinsár. Eva studdi hann frá unga aldri og las m. a. fyr- ir hann námsbækurnar, svo að hann gæti notið skólagöngu. Fyrir meira en tuttugu árum kom í ljós, að Ólaf- ur var með heila- og mænusigg, sem dró hægt og bítandi úr honum mátt- inn, svo að hann var bundinn við hjólastól um árabil. Hins vegar megnuðu sjúkdómar aldrei að draga úr honum kjarkinn eða gera hann leiðan á lffínu. Hann leit þeim mun bjartari augum á tilveruna sem sjón- in dapraðist aftur og mátturinn þvarr. En hann þurfti á hjálp að halda, og hana veitti Eva. Árið 1980 seldu þau systkinin húsið í Skeija- fírðinum, en þá gat Ólafur ekki leng- ur gengið stiga. Þau Eva keyptu íbúð á fyrstu hæð á Eiðistorgi 1, og Ólaf- ur var heima, eins lengi og nokkur kostur var. Starfsferil Evu rek ég ekki. En hún var vel gefin, dugleg og samvizkusöm, og hún var einnig ós- érhlífin í öllu, sem hún tók sér fyrir hendur. Þess hafa allir vinnuveitend- ur hennar notið. Eva fór ekki varhluta af veikindum um ævina. Fyrir rúmum tuttugu árum gekkst hún undir skurðaðgerð, sem hafði erfíð eftirköst, og aðra nokkrum árum síðar. En Eva var eins og reyrinn, hún svignaði um stund í mestu veikindunum, en stóð óðara jafnrétt aftur, hafði að vísu grennzt við átökin. Hún virtist ein- hvern veginn óbugandi. Undanfarin misseri lá hún stundum heltekin á sjúkrahúsi, en þess á milli reis hún upp og flutti heim til sín. Hún, sem var svo fús að axla byrðar annarra, vildi ekki vera öðrum byrði. Síðasta hálfa árið var hún heima hjá Ólöfu Helgu, manni hennar og syni. Þar sá ég hana síðast á sjötugsafmæli hennar í vor. Hún var fölari á vanga og hár og talsvert miklu grennri en fyrir hálfri öld, að öðru leyti var hún sama Evan og ég hafði alltaf þekkt. Þegar ég kveð Evu, frænku mína, er hún í huga mér ung, ljóshærð, há og beinvaxin, en umfram allt trygg, hjálpfús, hláturmild og hlý. Þakkir föður míns og okkar systkin- anna fylgja henni. Ölöfu Helgu og öðrum ástvinum Evu vottum við inni- lega hluttekningu. Ragnheiður Torfadóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.