Morgunblaðið - 14.09.1994, Page 33

Morgunblaðið - 14.09.1994, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1994 33 MIIMNIIMGAR arfélagar gerðu sér ljósa grein fyr- ir hæfileikum þessa unga manns og fólu honum ýmsar trúnaðarstöð- ur og árið 1980 varð hann ritari Sjálfsbjargar í Reykjavík. Þáverandi formaður Sjálfsbjarg- ar, landssambands fatlaðra, Theod- ór A. Jónsson, sá einnig mannkosti Jóhanns Péturs, að þarna fór maður sem vert væri að fá til starfa fyrir landssamtökin. Einnig varð þessum tveimur mönnum vel til vina þó ald- ursmunur væri nokkuð mikill. Lífs- skoðanir þeirra fóru saman og þeir urðu nokkurs konar samlokur sem báðir höfðu það aðalmarkmið að vinna hagsmunum hreyfihamlaðra sem best. Árið 1984 hafði Jóhann Pétur lokið prófi í lögfræði við Háskóla íslands og var á leið í eins vetrar nám í norskum félagsmála- rétti við Óslóarháskóla, þá var tíma- bært að hann byði sig fram til starfa í embætti varaformanns samtak- anna, kjömefnd var því sammála og þingfulltrúar einnig. Þá varð ekki aftur snúið fyrir Jóhann Pét- ur. Þarna fór maður með bitra reynslu af mikilli hreyfíhömlun, með menntun sem allir geta verið fullsæmdir af og með hugsjón Sjálfsbjargar. Það voru ekki einungis Sjálfs- bjargarfélagar sem sáu hvaða mannkostamaður var þarna á ferð, Jóhanni Pétri voru faldar margar trúnaðarstöður. Hann var um tíma í stjórn íþróttafélags fatlaðra og í samstarfsnefnd Norræna félagsins og Æskulýðssambands íslands. í miðstjórn Framsóknarflokksins frá 1988 og í landsstjórn frá 1989 og formaður Framsóknarfélags Sel- tjarnarness frá 1990. Fyrir hönd Sjálfsbjargar var hann í stjórn Ör- yrkjabandalags íslands, í for- mannaráði Alþjóðasambands fatl- aðra og í stjórn Bandalags fatlaðra á Norðurlöndum frá 1988 og for- seti þess frá 1992. Það var árið 1988 sem Jóhann Pétur var kjörinn formaður Sjálfs- bjargar, landssambands fatlaðra. Það lá fyrir þessum unga formanni að leiða samtökin gegnum hremm- ingatíð og starfi hans var hvergi nærri lokið er hann lést. Ári eftir að Jóhann Pétur varð formaður missti Sjálfsbjörg fyrrver- andi formann sinn og framkvæmda- stjóra, þá varð að ráða nýjan mann til starfa. Þjóðfélagsaðstæður gerðu það að verkum að framundan var varnarbarátta fyrir þeim áunnu réttindum sem fatlaðir höfðu náð fram til þess tíma. Rekstur Vinnu- og dvalarheimilis Sjálfsbjargar var orðinn þungur í skauti og aðskilja varð rekstur samtakanna sem og var gert. Þessar framkvæmdir fóru ekki sársaukalaust fram, hvorki fyrir samtökin í heild, fram- kvæmdastjórn né starfsmenn. Aftur urðu samtökin að ráða nýtt fólk til starfa. Á þessum tima kom það vel í ljós hvern mann Jóhann Pétur hafði að geyma, maðurinn efldist með hverri raun. Undir hans leiðsögn lagði framkvæmdastjórn samtakanna á sig mikla vinnu og aldrei var farið af fundi án sameiginlegrar niður- stöðu, aldrei var sá tími talinn eftir sem fór í málefni Sjálfsbjargar. Við áttum líka hlýjar, glaðar og eftirminnilegar stundir á heimili þeirra hjóna úti á Seltjarnarnesi. Þrátt fyrir að við einsettum okkur að slaka aðeins á þurfti ekki nema eitt orð og við vorum öll komin á kaf í málefni samtaka okkar. Síðastliðið vor var nýtt fólk kjör- ið til starfa í framkvæmdastjórn Sjálfsbjargar fyrir utan okkur Jó- hann Pétur. Voru það þau Sigurður Björnsson, Birna Frímannsdóttir og Baldur Bragason. Ný framkvæmdastjórn var rétt að hefja sig til flugs í starfi að rétt- indabaráttu hreyfihamlaðra þegar andlát Jóhanns Péturs bar að. Því var það hnípin stjórn sem kom sam- an ásamt nánum samstarfsmönnum hans tveimur dögum síðar. Jóhanni Pétri hafði samt tekist að sá fræi baráttuvilja og eindrægni í hug okkar allra og að ekki má leggja árar í bát þótt móti blási, sæta skal lagi um leið og það gefst. Framkvæmdastjórn Sjálfsbjarg- ar vottar eiginkonu Jóhanns Péturs, móður hans og systkinum samúð sína. Þökk fyrir allt og allt, far þú í friði. Fyrir hönd framkvæmdastjórnar Sjálfsbjargar, landssambands fatl- aðra, Guðríður Ólafsdóttir varaformaður. Vel sé þér, vinur, þótt vikirðu skjótt Frónbúum frá í fegri heima. Ljós var leið þín og lífsfögnuður; æðra eilífan þú öðlast nú. Oft kvaðstu áður óskarómi heimfýsnar ljóðin hugumþekku; vertu nú sjálfur á sælli stund farinn í friði til föðurhúsa. Við þá atburði, sem nú hafa gerst koma mér í huga þessar löngu lesnu ljóðlínur, úr kvæði Jónasar Hall- grímssonar um séra Stefán Pálsson. — Jóhann Pétur Sveinsson er fallinn frá. — Þó ekki sé nema rúmt ár frá því leiðir okkar lágu saman, þegar ég hóf störf hjá Sjálfsbjörg, eiga þau kynni eftir að marka djúp spor í líf mitt. Jói, eins og hann var ætíð kallaður af öllum, sem hann þekktu, átti til þann lífsneista og þá lífsgleði, sem fáum er gefinn. Engan mann hef ég þekkt, sem átti jafn auðvelt með að hrífa aðra með sér, hvort sem var í starfi eða leik. í byijun var Jóhann Pétur fyrir mér fyrst og fremst yfirmaður, í starfi sínu sem formaður fram- kvæmdastjórnar Sjálfsbjargar, yfir- maður sem vann öll sín verk af ótrúlegri elju og kappsemi. Hann gerði miklar kröfur til sjálfs sín og annarra og ætlaðist til að öll verk væru unnin af fullri einbeitingu. Hálfkák var ekki til í hans hugsun- argangi. Allt samstarf með honum var þó ávalt skemmtilegt, því gam- ansemin og léttleikinn var alltaf stutt undan. Þegar á leið varð þó Jói mér fyrst og fremst vinur; kær vinur, sem ánægjulegt var að vinna með að baráttumálum fatlaðra hér heima; vinur, sem gott var að ferðast með á fundi í útlöndum; vinur, sem gam- an var að taka lagið með og gleðj- ast með á góðum stundum að loknu dagsverki. Og þær stundir voru margar, þegar Jói átti í hlut, þrátt fyrir erfið og tímafrek verkefni sem starfsfólk og framkvæmdastjórn Sjálfsbjargar þarf iðulega að takast á við. Jói var nýbúinn að bjóða fjöl- mörgum vinum sínum í 35 ára af- mælisveislu sína, næstkomandi laugardag. Það afmælisboð verður því miður ekki haldið, að minnsta kosti ekki í þessum heimi. Þess í stað fylgjum við Jóa til hinstu hvílu í Skagafirðinum, fæðingarstað hans, sem hann unni svo mjög. Það var aðeins tveimur dögum áður en Jói varð allur, að hann og Harpa konan hans, litu inn til okkar hjón- anna í kaffi og þá var margt spjall- að eins og gengur, og þar á meðal framtíðaráform hans og Hörpu. Þau voru á þá leið að þegar tímabili hans lyki, sem formanns Sjálfs- bjargar eftir tvö ár, ætluðu þau með barnið sem enn er ófætt, að flytjast í Skagafjörðinn og setjast þar að. Það kom okkur öllum, sem þekktu Jóa, svo gjörsamlega á óvart hvernig þessi framtíðaráform hrundu svo snögglega. Vissulega átti Jói við veikindi að stríða, en engum kom í hug að hann hyrfi frá okkur á þennan hátt. Þremur tímum áður en hann lést, ræddum við sam- an í síma, vegna skipulagningar fundar starfsfólks og framkvæmda- stjórnar, sem stóð til að halda ný- liðna helgi og þá var hann að venju fullur ákefðar og áhuga á að sá fundur tækist sem best. Þann fund átti að halda í Skagafirðinum. Því miður verður ferðin í Skagafjörð ekki farin undir stjórn hins mikla skipuleggjanda, stjórnanda og vin- ar, sem Jói var, heldur til að kveðja hann hinsta sinn. Eftir lifir minningin um mann, sem barðist í gegnum lífið við erfið- ari aðstæður en flestir þurfa nokkru sinni að reyna. Sá sjúkdómur sem lagðist á hann sem barn og varð þess valdandi að stærstan hluta lífs síns fór hann allra sinna ferða í hjólastól, bugaði hann þó síður en svo. Hann bjó yfir ótrúlegum gáfum og þolinmæði og brosið var alltaf nálægt. Hann lauk menntaskóla- námi 19 ára og embættisprófi í lög- fræði sex árum síðar. Lögmennska var hans aðalstarf upþ frá því, en jafnframt var hann fyrst um sinn varaformaður Sjálfsbjargar og seinna formaður til dauðadags. Hann sinnti einnig mikilvægum störfum fyrir Bandalag fatlaðra á Norðurlöndum og Alþjóðasamband fatlaðra. Árið 1992 varð hann for- seti Bandalags fatlaðra á Norður- löndum. Ég varð þeirrar ánægju aðnjótandi að fylgjast með og taka þátt í störfum hans á þessu sviði, sem öðrum. Þar héldust í hendur leiðtogahæfileikar hans og hinn hlýi, skemmtilegi og gamansami Jóhann Pétur. í norræna samstarf- inu flykktist fólk að Jóa líkt og annars staðar, og í öllum norrænu löndunum á hann marga kæra vini og samstarfsmenn, sem syrgja fall- inn leiðtoga og vin, ekki síður en ótalmargir landar hans. Það sem máli skiptir nú er þó, að öll ævi Jóa verður þeim sem eftir lifa innblást- ur til góðra verka, og minnir á að lífshamingjan kemur innan frá og það er á valdi hvers og eins að láta hana blómstra. Ég mun geyma minninguna um foringjann, vininn og gleðimanninn Jóhann Pétur Sveinsson innra með mér svo lengi sem ég lifi. Ég þakka forsjóninni fyrir að hafa gefið mér tækifæri til að kynnast honum og elskulegri eiginkonu hans, Hörpu Ingólfsdóttur. Hörpu, móður Jóa og systkinum hans votta ég innilega samúð á þessari sorgarstund og til að bæta upp fátækleg minningarorð mín hef ég hér eftir ljóðlínur úr Hávamálum, sem eiga svo vel við á þessari stund: Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. Sigurður Einarsson, framkvæmdastjóri Sjálfs- bjargar, landssambands fatlaðra. Kveðja frá MS-félagi íslands Við kveðjum í dag félaga okkar sem um langt skeið hefur verið í fararbroddi hagsmunabaráttu fatl- aðs fólks. Jóhann Pétur var lýsandi dæmi um það, hveiju fatlaður mað- ur getur áorkað með viljakrafti og dugnaði. Þannig hefur hann orðið mörgu fötluðu fólki að fyrirmynd. Við söknum félaga og vinar sem við áttum samleið með í gegnum Sjálfsbjargarhúsið og margvísleg félagsstörf. Aðstandendum sendum við samúðarkveðjur. Minning hans mun lifa lengi í okkar röðum. Kveðja frá SEM-samtökunum Fallinn er frá einn mesti baráttu- maður fyrir málefnum og hagsmun- um fatlaðra. Jóhann Pétur Sveinsson var einn ötulasti stuðningsmaður Samtaka endurhæfðra mænuskaddaðra og leituðu forsvarsmenn félagsins oft á tíðum til hans og var aðstoð hans ávallt auðfengin. Þessi samtök sem og mörg önnur samtök fatlaðra hafa misst ötulan, ósérhlífan og fórnfúsan baráttumann sem ávallt hafði sanngirni og réttlæti að leiðar- ljósi í öllu því sem hann tók sér fyrir hendur. Okkur félögum í SEM-hópnum er efst í huga innilegt þakklæti þegar við kveðjum þennan glaðværa og góða dreng. Við vottum öllum aðstandendum og vinum Jóhanns Péturs okkar dýpstu samúð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Samtök endurhæfðra mænuskaddaðra. Hann Jói vinur minn er dáinn. Þegar mér var tilkynnt andlát Jóa trúði ég ekki mínum eigin eyr- um. Margar góðar minningar hrönnuðust upp. Kynni mín af Jóa hófust fyrir um það bil 13 árum þegar ég fluttist í Dvalarheimil Sjálfsbjargarhússins þar sem Jói bjó fyrir. Milli okkar myndaðist strax einlæg vinátta því að auðvelt var að laðast að persónuleika hans og glaðlegri framkomu. Það leyndi sér ekki þegar hann var að koma eftir ganginum í heimsókn til mín því þá heyrði ég nálgast kraftmik- inn skagfirskan söng, sunginn við undirspil mótorhljóðsins í raf- magnsstólnum. Jói eignaðist yndislega konu, Hörpu Ingólfsdóttur, og bjuggu þau fyrst um sinn í Sjálfsbjargarhúsinu. Þar átti ég og kona mín margar skemmtilegar stundir með þeim. Mér er sérstaklega minnisstætt eitt atvik þegar þau komu til okkar og til stóð að fara út að skemmta sér saman. Sonur okkar, þá tveggja ára, hafði uppi mótmæli þegar hann átti að fara að sofa og bauðst Jói til að koma stráksa inn í drauma- landið. Var það auðsótt mál og síð- an heyrðum við óma lagið „Sofðu unga ástin mín“ með hans dimmu en mjúku rödd. Kom Jói síðan fram frá stráksa og sagði þetta hafi nú verið lítið mál því sá litli væri stein- sofnaður. Greiðvikni Jóa var einstök, því þrátt fyrir að hann væri ofursetinn vinnu, þá átti hann alltaf tíma fyrir vini sína og stöndum við hjónin í eilífri þakkarskuld við hann. Komið er að því að kveðja vin sem alla mína ævi verður eftirsjá og sjónarsviptir að. Við vottum aðstandendum og öllum öðrum sem eiga um sárt að binda okkar dýpstu samúð við þenn- an mikla missi. Megi minningin um góðan dreng lifa. Hér mætast vinir sem helst vilja gefa, hugga og lækna og binda um sár, fyllast af kvíða og angist og efa, er ástvinur nákominn deyr fyrir ár, Hvert á að leita og hvers á að spyija? Hvar er sú von er svo snögglega brást? Hvemig skal lifa og hvar á að byrja? Hvers vegna eru svo margir sem þjást? Kærleikans máttur er aflið sem eyðir andvökustundum um heldimma nótt, mildar og styrkir og laðar og leiðir, lifgar og nærir og veitir oss þrótt, umbreytist ekki þótt brunnin sé borgin, brostin sé vonin og lífið sé kvöl. Kemur sem engill er sverfur að sorgin, sameinar hjörtun og læknar allt böl. (Hjálmar Gislason) Víðir Þorsteinsson og Sigríð- ur Sóley Friðjónsdóttir. í dag kveðja ungir framsóknar- menn góðan félaga og vin, Jóhann Pétur Sveinsson. Hann starfaði um margra ára skeið í Framsóknar- flokknum og var ávallt boðinn og búinn til starfa fyrir Samband ungra framsóknarmanna. Jóhann var tillögugóður og hollráður, ritfær vel og orðhagur. Hann tók gjarnan til máls á fundum, lét skoðun sína ótvírætt í ljós og benti á það sem betur mætti fara. Jóhann var vel máli farinn og góður ræðumaður. Hann hafði sérstakan áhuga á breyttu kosningafyrirkomulagi og kjördæmaskipan og hafði tekið þátt í starfi okkar þar að lútandi. Eftir- minnilegust eru þó hnyttin tilsvör Jóhanns Péturs og athugasemdir. Var hann einkar laginn við að finna spaugilegar hliðar á þeim málum sem til umfjöllunar voru hveiju sinni. Fyrir fáeinum vikum fórum við Jóhann Pétur við fimmta mann á þing norræna unglingahreyfinga miðjuflokka, sem haldið var í Sví- þjóð. Þar tók hann virkan þátt í þingstörfum, stjórnaði nefndar- starfí og fylgdist vel með. Vakti hann mikla athygli norrænu félaga okkar fyrir dugnað og eljusemi sína. Á kvöldin var Jóhann Pétur síðan hrókur alls fagnaðr eins og venju- lega, reytti af sér brandara og gam- ansögur og stjórnaði íslensku söng- sveitinni að sönnum skagfírskum sið. Þarna dvöldum við í vikutíma við leik og störf og líður sú vika seint úr minni. í ferðinni var ákveð- ið að Jóhann Pétur myndi rita ferða- söguna þegar heim kæmi, enda manna hæfastur til þess. Því verki var hins vegar ólokið þegar hann féll frá. Fyrir hönd Sambands ungra framsóknarmanna vil ég þakka Jó- hanni Pétri fyrir stuðning, velvild og góð störf gegnum árin. Hans verður minnst sem góðs og skemmtilegs vinar í okkar hópi. Ég bið algóðan Guð að blessa hann um eilífð alla og styrkja konu hans og fjölskyldu í þeirra miklu sorg. Dæm svo mildan dauða, Drottinn, þinu bami, eins og léttu laufi, lyfti blær frá hjarni, eins og lítill lækur ljúki sínu hjali, þar sem lygn í leyni liggur marinn svali. (M.Joch.) Guðjón Ólafur Jónsson, formaður Sambands ungra framsóknar manna. Jóhann Pétur Sveinsson er látinn langt um aldur fram. Það var fyrir nokkrum árum að hópur ungmenna úr Skagafirði gekk til liðs við Skagfirsku söngsveitina í Reykja- vík. Upp til hópa var þetta afburða gott söngfólk og var því mikill feng- ur fyrir kórinn að þessu unga fólki. Einn þessara nýju félaga var Jó- hann Pétur Sveinsson. Þessi hópur hélt vel saman og stofnuðu þau fljótlega lítinn kór sem starfaði innan Skagfírsku söng- sveitarinnar og var Jóhann Pétur þar fremstur í flokki. Lengi vel var þessi litli kór nafnlaus þar sem erf- itt reyndist að finna nógu gott nafn. En viti menn, Jóhann Pétur kom með nafnið; „Veirurnar" skyldi hann heita sem var samþykkt án athugasemda. Veirurnar fluttu að- allega músík af léttara taginu og sungu jafnan á skemmtunum hjá kórnum og víðar. Jóhann Pétur kynnti ávallt lögin og þá á sinn gamansama hátt. Þetta lýsir Jó- hanni Pétri vel, í öllu sem hann tók sér fyrir hendur eða tók þátt í var hann ávallt fremstur í flokki. Jó- hann Pétur var sannur Skagfirðing- ur, hafði yndi af góðum söng og eins hafði hann gaman af því að gera sér glaðan dag í góðra vina hópi. Þótt æviárin væru ekki nema tæplega 35 var Jóhann Pétur búinn að afreka mikið á lífsleiðinni og það sem sneri að okkur í Skagfirsku söngsveitinni viljum við þakka af alhug. Minningin um góðan dreng og frábæran félaga mun lifa með okkur sem kynntust honum. Harpa mín, fjölskylda og vinir, við vottum ykkur innilega samúð okkar. Söngstjóri og söngfélagar í Skagfirsku söngsveitinni í Reykjavík. Fleiri minningargreinar um Jóhann Pétur Sveinsson bíða birtingar og munu birt- ast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.