Morgunblaðið - 14.09.1994, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1994 37
FRÉTTIR
Sérfræðingur Sotheby’s
heldur fyrirlestur
SOTHEBY’S uppboðsfyrirtækið
gengst fyrir fyrirlestri um lista-
verkamarkaðinn og ísland. David
Battie sérfræðingur hjá Sotheby’s
mun flytja fyrirlestur um Sothe-
by’s og listaverkamarkaðinn að
afloknum kvöldverði á Café óperu
fimmtudaginn 29. september og
alþjóðlega listaverkamarkaðinn og
hvemig ísland geti orðið hluti af
honum, föstudaginn 29. september
á morgunverðarfundi hjá Verslun-
arráði íslands.
Um er að ræða kvöldverð á
Café óperu 29. september þar sem
Sveinn Einarsson fyrrverandi leik-
hússtjóri verður veislustjóri. Boðið
verður upp á vín frá Chateau
d’Yquem og Einar Thoroddsen
læknir ræðir lítillega um vínið. Að
afloknum kvöldverði mun David
Battie fjalla um Sotheby’s og lista-
verkamarkaðinn. Agóði af kvöld-
verðinum og fyrir-
lestrinum mun renna
til Barnaspítala
Hringsins varðandi
byggingu sérhannaðs
barnaspítala.
Föstudaginn 30.
september fjallar
David Battie um al-
þjóðlega listaverka-
markaðinn og hvemig
ísland geti orðið hluti
af honum á morgun-
verðarfundi hjá Versl-
unarráði ísland á Hót-
el Sögu.
David Battie hefur
verið sérfræðingur hjá
Sotheby’s síðan 1976. Hann er
kunnur sjónvarpsmaður í Bretlandi
og hefur komið fram frá upphafi
í sjónvarpsþáttunum Antique Ro-
adshow sem hafa notið mikilla vin-
sælda síðan þeir hófu
göngu sína árið 1979.
Hann hefur skrifað
leiðbeiningabók um.
verð á postulíni og rit-
stýrt Sotheby’s
Encyclopedia of Porc-
elain. Hann hefur gert
fjölda sjónvarpþátta
um listaverk og flutt
fyrirlestra víða um
heim og ritað fjöl-
margar bækur og
greinar um listaverk.
Allar nánari upp-
lýsingar veitir Sigríð-
ur Ingvarsdóttir full-
trúi Sotheby’s á ís-
landi. Einnig er hægt að skrá sig
hjá yfirþjóni Café ópem. Skráning-
arfrestur í kvöldverðinn re.nnur út
21. september.
David Battie
Ráðstefna um ferðaþjónustu á
V estur- N orðurlöndum
RÁÐSTEFNA um uppbyggingu
og skipulag ferðaþjónustu í Græn-
landi, Færeyjum og íslandi og
móttöku ferðamanna í löndunum
þremur verður haldin á Hótel Loft-
leiðum í dag, miðvikudaginn 14.
september, kl. 9-14. Ráðstefnan
er öllum opin. Þar hafa framsögu
ferðamálastjórar íslands, Græn-
lands og Færeyja, auk fulltrúa frá
írska ferðamálráðinu, og fjalla um
ferðaþjónustu í Vetnorden-löndun-
um þremur, stöðuna í dag og fram-
tíðarsýn. Ráðstefnan er öllum
opin. Erindi og umræður verða á
dönsku.
Ráðstefnan er í raun upphaf
níundu ferðakauptefnu Vestnord-
en, sem hefst í íþróttahúsinu í
Kaplakrika í Hafnarfirði á fimmtu-
daginn og stendur til laugardags,
en þann dag verður sýningarsvæð-
ið opið almenningi og verður þá
boðið upp á margvíslega skemmt-
un og kynningu á ferðatilboðum í
Vestnorden-löndunum.
Að kaupstefnunni stendur
Ferðamálaráð Vestnorden, sem er
samstarf íslands, Grænlands og
Færeyja á sviði ferðamála. Ferða-
þjónusta er vaxandi atvinnugrein
í öllum löndunum og hefur Vest-
norden-samstarfið aukið mjög á
ferðamannastraum á milli land-
anna þriggja. Um 300 erlendir
gestir víðsvegar að úr heiminum
munu sækja kaupstefuna, einkum
fulltrúar fyrirtækja í ferðaþjón-
ustu erlendis sem lagt hafa áherslu
á sölu ferða til íslands, Grænlands
og Færeyja.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
50.000
merki í
söfnun
AÐSTANDENDUR veitingastað-
anna, sem reknir eru undir nafni
Hróa hattar, afhentu síðastliðinn
föstudag Þorvaldi S. Þorvaldssyni,
formanni Landgræðslusjóðs,
50.000 barmmerki, sem síðan verða
seld til styrkfar hvatningarátakinu
Yrkjum ísland. Verðmæti gjafar-
innar er um 1.250.000 krónur, og
tilefni hennar er 50 ára afmæli
Landgræðslusjóðs og íslenzka lýð-
veldisins.
BRIPS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bikarkeppni Norðurlands
1993-1994
Bikarkeppni Norðurlands 1993-1994
er nú lokið. Alls tóku 26 sveitir þátt í
keppninni; sem staðið hefur yfir frá sl.
hausti. Urslitaleikurinn var spilaður
laugardaginn .10. september sl. á Dal-
vík, en til úrslita spiluðu sveitir Islands-
banka á Siglufirði og sveit Antons Har-
aldssonar á Akureyri. Hafði sveit Ant-
ons sigur með nokkrum mun. Spilarar
í sigursveitinni voru Anton Haraldsson,
Pétur Guðjónsson, Stefán Ragnarsson
og Hörður Blöndal, allir frá Akureyri.
Afmælismót Bridsfélags kvenna
Laugardaginn 17. september verður
haldið opið tvímenningsmót í Sigtúni 9
í tilefni 45 ára afmælis félagsins. Mót-
ið hefst kl. 11 f.h. Spilaðar verða tvær
umferðir með Mitchell-sniði. Góðar
veitingar verða í hléinu. Keppnisgjald
verður kr. 1.500 á spilara og spilað um
silfurstig. Peningaverðlaun. Pör get
skráð sig í símum 619368, BSÍ, 32968,
Ólína og 10730, Sigrún.
Bridsfélag kvenna
Sl. mánudag hófst vetrarstarf félags-
ins með eins kvölds tvímenning. 25 pör
mættu til leiks og urðu úrslit þannig:
NS.
Anne M. Kokholm - Lilja Halldórsdóttir 219
Inga L. Guðmundsdóttir - Unnur Sveinsdóttir 210
Kristín Jónsdóttir - Erla Ellertsdóttir 209
Asgerður Einarsdóttir - Kristín Karlsdóttir 202
AV.
Lovísa Jóhannsdóttir - Erla Sigvaldadóttir 228
Sigríður Pálsdóttir - Ingibjörg Halldórsdóttir 216
GróaGuðnadóttir-Júlianaísebam 202
Bryndís Þorsteinsdóttir - Elín Jóhannsdóttir 199
AldaHansen-NannaÁgústsdóttir 199
Nk. mánudag hefst þriggja kvölda
Butler-tvímenningur hjá félaginu, spil-
uð verða forgefin spil, allir félagar eru
hvattir til að mæta og eru nýir félagar
velkomnir. Pör geta skráð sig í síma
32968, Ólína og 10730, Sigrún.
Bridsdeild Umf. Geisla á Súðavík
Opið tvímenningsmót (brids var hald-
ið laugardaginn 3. september sl. Nokkur
vonbrigði voru hve fáir sáu sér fært að
mæta til keppninnar, en aðeins tóku 16
pör þátt, þrátt fyrir vegleg verðlaun.
Mótið heppnaðist þó að öðru leyti vonum
framar undir öruggri keppnisstjóm
Sveins Rúnars Eiríkssonar.
Lengi vel leit út fyrir að enginn
ætlaði að ógna þeim Ragnari Torfa
Jónassyni og Tryggva Ingasyni í bar-
áttunni um toppsætið, en þeir leiddu
mótið allt þar til í lokaumferðinni.
Undir lokin misstu þeir hins vegar flug-
ið og eftir harða keppni í 10 klst. stóðu
uppi sem sigurvegarar þeir Rúnar Víf-
ilsson og Kristinn Kristjánsson með
tæplega 61% skor, en Ragnar Torfi og
Tryggvi féllu niður í 5. sætið.
Röð efstu para:
Rúnar Vífilsson - Kristinn Kristjánsson 112
Júlíus Siguijónsson - Hrannar Erlingsson 98
Óskar Elíasson - Friðrik Egilsson 65
JóhannÆvarsson-PéturJúlíusson 60
Ragnar Torii Jónasson - Tryggvi Ingason 46
FrankGuðmundsson-ÞorsteinnGeirsson 44
Mótshaldarar vilja þakka öllum
þátttakendum fyrir skemmtilega
keppni og þeim fjölmörgu fyrirtækjum
og einstaklingum sem gerðu það kleift
að halda mótið kærlega fyrir veittan
stuðning.
Bridsfélag Breiðfirðinga
Starfsemi félagsins hefst flmmtu-
daginn 15. september. Spilaður verður
eins kvölds tvímenningur með Mitchell-
fyrirkomulagi. Sami háttur verður
hafður á fimmtudaginn 22. september.
29. september byijar síðan þriggja
kvölda haust-Barómeter.
Spilað er í Sigtúni 9 og hefst spila-
mennska kl. 19.30. Allir eru velkomnir.
auglýsingar
W RLGLA MIISTKRISRIDDARA
Myndlist - byrjendur
Námskeið fyrir fólk á öllum aldri.
Fyrstu námskeiðin hefjast 20.
sept. Síðustu innritunardagar.
Uppl. hjá Margréti í s. 622457.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
SAMBAND ISLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
RMHekla
14.9. VS.
Pýrmídinn -
andleg
miðstöð
Hvað er andlegt tilraunakvöld?
Miðvikudagskvöld kl. 20-22 með
June og Geoff Hughes. Komið,
sjáið og reynið. Opið öllum.
Pýramldinn
Dugguvogi 2,
símar 882526 og 881415.
Háaleitisbraut 58-60
Kristniboðssamkoma í kvöld f
kristniboðssalnum kl. 20.30.
Helgi Hróbjartsson kristniboði
talar. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Bibiíulestur kl. 20.30. Ræðu-
maður Hafliði Kristinsson. Allir
hjartanlega velkomnlr.
Mlðlun
Pýrmídinn -
andleg
miðstöð
Hinn frábæri mið-
ill, June Hughes,
verður með
skyggnilýsingu á
morgun, fimmtu-
daginn 15. sept-
ember, kl. 20 f
Pýramídinn húsi Pýramídans.
Dugguvogi 2,
símar 882526 og 881415.
Toyota Corolla 1300 XL árg. '92, ek. 50
þús. km., vínrauður. Verð kr. 880.000.
Honda Accord árg. '91, ek. 92 þús. km.
blásans. Verð kr. 1.390.000. Ath. skipti.
NYJA BILAHOLLIN FUNAHOFÐA V S:
BILATORG FUNAHOFDA T S:
Nissan Sunny SLX árg. '92, Ijóssans.,
sjálfsk., ek. 82 þús. km. Verð kr.
990.000.
Peugeot 505 ST GTI árg. '86, hvítur, 7
manna, ek. 132 þús. km. Verö kr.
750.000.
Nissan Patrol árg. '86, hvítur,
upphækkaöur, 33" dekk, turbo, dísel, ek.
180 þús. km. Verð kr. 1.650.000. Skipti.
Mercedes Benz 190E árg. '88, gullsans.,
sóllúga, læst drif, hleðslujafnari, sjálfsk.,
mjög fallegur bíll, ek. 100 þús. km. Verð
kr. 1.700.000. Skipti.
Subaru Legacy GL station árg. '90, ek. 38
þús. km., grænsans., sjálfsk. Verð kr.
1.290.000.
MMC L-300 Minibus árg. '88, 8 manna
2x4. Verð kr. 790.000. Ath. skipti.
Subaru 1800 DL árg. '91, hvitur, ek. 92
þús. km. Verð kr. 980.000.
Range Rover árg. '85, 2 gullfallegir bílar.
Sjón er sögu ríkari.
VANTAR ALLAR GERÐIR BILA A STAÐINN - GOÐ SALA