Morgunblaðið - 14.09.1994, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1994 39
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
Um skólabækur
GUÐRÚN Hulda segir að nemendur séu skyld-
aðir til að kaupa nýjar, lítið bættar útgáfur
skólabóka og þær gömlu séu bannaðar.
Frá Guðrúnu Huldu Eyþórsdóttur:
NÚ í byijun september eru skólarn-
ir óðum að fyllast af lífi. Fram-
halds- og háskólanemar að tínast
úr sumarfríum sem og kennarar.
Lífið virðist þó einkum vera mest í
sölukössum bókaverslana þar sem
seðlar fátækra nema fylla kassana
af lífi. Hvort sem það er af völdum
sýkla eða tölustafa er látið ótalið.
Margur nemandinn stendur uppi
slyppur og snauður eftir að fégráð-
ug bókaforlög, verslanir og kennar-
ar hafa strokið budduna.
í þrjú og hálft ár hef ég keypt
skólabækur og látið troða á mér í
viðskiptum við fyrrgreinda aðila, og
nú langar mig að fræða hina nem-
endurna aðeins um hvað þeir eru
að láta bjóða sér upp á.
Áður en ég byija vil ég minna
bókaverslanir á að það eru nemend-
ur sem eru þeirra viðskiptavinir og
ber a.m.k. að mínu mati að koma
fram við þá sem slíka.
Um verslanir
Þegar ég og skólafélagarnir ætl-
uðum að fara að versla í Eymunds-
son í fyrrahaust, með fullar töskur
af notuðum velmeðförnum bókum,
þurftum við fyrst að bíða mjög lengi
eftir afgreiðslu. Loftið var þungt
og margur þreyttur. Eftir alla biðina
var okkur tjáð að af öllum þessum
bókum yrði aðeins tekið við 3 bók-
um! Svipaða sögu hef ég að segja
frá Máli og menningu. Engin skýr-
ing! Aðeins fýldur svipur af-
greiðsludama og bendingar sem
gáfu til kynna að ekki yrði meira
við okkur rætt. Þegar við svo ætluð-
um að kaupa inn notaðar „ódýrar“
bækur voru þær ekki til! Aðeins
nýjar á „tilboðsverði“ aðeins á
5-6.000 krónur stykkið. Sumar
voru ekki til á lager, verslanimar
áttu von á þeim „einhverntíma“ í
næstu eða þarnæstu viku.
Nú jæja, ég keypti bækur fyrir
30.000 kr. í Eymyndsson og ætlaði
að nota mér skólafsláttinn svo að
ég kæmist nú heim í strætó. En þá
var það nefnilega þannig að daman
á kassanum andvarpaði þunglega
og horfði á mig þunglyndislegum
augum um leið og hún sagði: „Þú
áttir að segja það strax.“ Horfði svo
fast á mig og var greinilega tilbúin
í að gera þetta að stórmáli. Ég sagði
náttúrulega að hvergi væri sagt um
það á afsláttarkortinu og ég gæti
heldur ekki séð neinn miða í verslun-
inni sem gæfi það til kynna. Aldrei
hef ég verslað í Eymundsson síðan
og mun ekki gera nema neydd til.
Um útgáfugleði kennara
Kennarar eru eins og allir vita
mannlegir. Sumir eru góðir, aðrir
ættu frekar að vinna við beijatínslu.
Sumir eru sérfræðingar í persónuá-
rásum á nemendur, aðrir eru sjálfir
kúgaðir af nemendum sínum. En
það er nú önnur saga. Aðalmálið
er útgáfugleði kennara.
Margir nemar kannast við það
að þeir hafa keypt nýja útgáfu af
t.d. stærðfræðibók við upphaf annar
og ætlað sér við upphaf þeirrar
næstu að selja þá bók en þá hefur
annar eða sami höfundur gefið út
nýja þannig að nemendurnir sitja
uppi með verðlausa skruddu. Ég
ætla að nefna hér eitt dæmi. Á síð-
ustu önn var til sölu stærðfræðibók-
in Stæ 363 í FÁ. Nú í haust var
gefin út ný bók sem ber sama heiti
en er gefm út á þessu ári. Nemend-
urnir sem voru í þessum stærðfræði-
áfanga sl. vor ætluðu að sjálfsögðu
að selja bókina í bóksölu skólans.
En þar sem ný útgáfa var til staðar
var það ekki hægt. Þegar bækurnar
voru svo bornar saman var ekki
annað að sjá en að ástæðan fyrir
nýrri bók væri sú að fimm villur
voru í svörum stærðfræðidæmanna
í allri bókinni. Fimm villur! Persónu-
lega þætti mér mjög fyndið að sjá
höfund skáldsögu gefa út sömu
skáldsöguna aftur út af fimm prent-
eða stafsetningarvillum. Þetta dæmi
er eitt af mörgum svipuðum. Aug-
ljóslega er verið að koma í veg fyr-
ir endursölu bókanna, þar sem það
gefur greinilega ekki nógu mikið
af sér.
Kennarar eru oftast þeir sem
gefa út kennslubækur. Þeir skylda
nemendur til að kaupa nýjar, lítið
bættar útgáfur og banna þær
gömlu. Þeir ráða mestu um verð-
lagningu bókanna sem þeir gefa út
á bókamarkaði. Ekki er allt upp
talið, því að greinilegt er og hver
heilvita manneskja tekur eftir því
að námsbækur eru yfirleitt miklu
dýrari en aðrar bækur fyrir utan
það að gæðin eru frámunalega léleg
og bækurnar hanga varla saman
út fyrstu vikuna.
Hvemig væri nú, kæru kennarar,
að koma sér endanlega saman um
hvaða efni á að kenna, hverskonar
dæmi á að leggja áherslu á og fyrst
og fremst hvað á að kenna svo að
nemendur geti lifað á öðru en blað-
síðum í september. Þið vitið það
sjálfir að það er óhollt að borða
prentaðan pappír og mjög dýrt, eins
og áður hefur komið fram. Það jafn-
ast á við að fara út á fínan veitinga-
stað og borða vel fyrir tvo, án víns.
Margir nemendur þui'fa að sjá
fyrir sér
Sumir kennarar virðast ekki gera
sér grein fyrir því að margur nem-
andinn þarf að sjá sér og jafnvel
öðrum, þá oft-
ast börnum sín-
um, fyrir lifi-
brauði. Á þetta
við nemendur í
dagskóla. Nem-
andi í dagskóla
getur ekki tekið
námslán, hann
.getur ekki séð
fram á að geta
borgað af
bankaláni þar
sem hann hefur
ekki nægar
tekjur. Nemandi
í dagskóla sem
sér fyrir sér þarf
að vinna í öllum
frístundum sín-
um til að eiga fyrir leigunni. Þeir
nemendur sem hafa vinnu á sumrin
hafa u.þ.b. 50.000 kr. í mánaðar-
laun. Hann þarf að borga leigu kr.
30.000, rafmagn og hita 3.000 kr.
pr. mánuð, strætókort kr. 2.500-
2.900 pr. mán. (verðmismunur
vegna þess að sumir hafa ekki stúd-
entaskírteini). Afgangur fer í mat
fyrir eina manneskju sem er jafnvel
með barn á framfæri, kr. 14.300!!!
Ég veit dæmi þess að nemendur sem
leigja og eru að reyna að klára stúd-
entsprófið séu atvinnulausir. Engar
bætur, ekkert. Ég veit það að til
eru nemendur sem borða úr sykur-
poka kr. 50. Einnig veit ég dæmi
þess að 17 ára nemandi hafi ekki
borðað neitt í heila viku nema af-
ganga af öðrum diskum hjá vinum
og kunningjum.
Með þessum dæmum er ég að
biðja kennara og okurbúlluverslan-
irnar (bókabúðimar) um að slaka
aðeins á kapítalismanum og horfa
í kringum sig, þá með opin augu.
GUÐRÚN HULDA
EYÞÓRSDÓTTIR,
Grettisgötu 28,
Reykjavík.
Líttu inn í Litaver því það hefur ávallt borgað sig ...
Stök teppi
Sarah
60 x 105
Verð nú
kr. 1.169,
Gólfteppi
20-50%
Stök teppi
Veggfóður 15-50%
Veggdúkur 15-50%
Málning 15-20%
Áhöld 15%
Borðar 15-50%
Keramik
gólf- og
veggflísar
20-50%
Dreglar
mottur
lím og
spartl
15-30%
Málningarkynnin
frá Málningu hf.
Islensk málnin
I - já takk
Gæðafiltteppi
frá kr. 345,-
Gólfdúkar
20-40%
VANTAR ALLAR GERÐIR BIFREIÐA Á SKRÁ OG Á STAÐINN MIKIL SALA
BÍLAHÖLLIN, BÍLDSHÖFÐA 5, SÍMI 674949
J.R. BÍLASALAN, BÍLDSHÖFÐA 3, SÍMI 670333
Mitsubishi Gaiant 4x4 árg. ‘91, hvítur
ekinn 58 þ.km., 15" álfelgur.
V. 1.400 þús.
Toyota Touring GLi árg. ‘91, rauður,
ek. 87 þ.km. álfelgur, sumar/vetrardekk.
V. 1.120 þús.
Mitsubishi Pajero, langur V-6, árg.
'89, hvítur, ek. 106 þ.km. álfelgur, ný
dekk 31”. V. 1.750 þús. Sk. ód.
Fiat Uno 45 artic árg. ‘93, blár, ekinn
16 þ.km., 5 dyra, 5 g. V. 680 þús.
VW Caravella diesel, árg. ‘87,
rauður/hvítur, skiptivél, ek. 60 þ.km. sæti
fyrir 9. V. 650 þús. Fæst á 3ja ára
skuldabréfi.
M. Benz 914 árg.’87, rauður/hvítur, ek.
151 þ. km., buröargeta 4 tonn, kassi 6 m
langur, 1,5 tonn lista. Verð kr. 3150 þús.
m/vsk.
Range Rover árg. ‘85, grænn, ek. 117
þ.km., upphækk., 38" dekk, loftdæla,
stýristjakkur. Verð kr. 990 þús.
MMC L-300 árg. ‘91,2,4L, ek. 58 þús.
drapplitaður. V. 1.800 þús.
Ford Econoline árg. ‘90, 4x4,rauðu/grár, ek.
27 þ.km. Húsbíll m/svefnaðst., eldav., 4,56
drif,loftlæs. aftan og framan, tvöf. rafkerfi, auka
millikassi, 400 L tankar, spil o.fl. V. 3.750 þ.
Toyota Carina E árg. ‘93, 2,0 GLi,
rauður, ek. 22 þ.km., sjálfsk., 5 dyra.
V. 1.680 þús.