Morgunblaðið - 30.09.1994, Page 2

Morgunblaðið - 30.09.1994, Page 2
2 B FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Fast- eigna- sölur í blaðinu Ás 7 Ásbyrgi 22 Berg 28 Borgareign 17 Borgir 11 Eignamiðlunin 18 - 19 Eignasalan 20 Fasteignamark. 3 Fasteignamiðlun 25 Fasteignamiðstöðin 5 Fjárfesting 6-7 Fold 14 Framtíðin 6 Garður 19 Gimli 8-9 Hátún 22 Hóll 24-25 Hraunhamar 10-11 Húsakaup 12 Húsið 23 Húsvangur 27 Kjörbýii 4 Kjöreign 26 Laufás 17 Lyngvík 22 Séreign 21 og 23 Setrið 20 Skeifan 15 Stakfell 21 Þinghoit 16- 17 ÞETTA er vandað 154 ferm einbýlishús með 90 ferm bilskúr, sem er með rafmagni, vatni og hita. Að auki fylgir eigninni 86 ferm 3ja herb. ibúðarhús, sem þarfnast standsetningar, 54 ferm gróður- skáli með heitum potti, 100 ferm gróðurhús og 100 ferm vélageymsla. Eigninni fylgja ennfremur 5 ha Iands með 1 sek. lítra af heitu vatni. Asett verð er 12,5-13 millj. kr. Stor eign a hagstæðn vri'ði ■ Borgarfiröi VERÐ á fasteignum úti á landi er yfirleitt nokkru lægra en á höfuðborgar- svæðinu. Eignasalan auglýsir nú vandað 154 ferm einbýlishús í Borgarfirði ásamt 90 ferm bílskúr, sem er með rafmagni, vatni og hita. Að auki fylg- ir eigninni 86 ferm 3ja herb. íbúðarhús, sem þarfnast standsetningar, 54 ferm gróðurskáli með heitum potti, 100 ferm gróðurhús og 100 ferm véla- geymsla. Eigninni fylgja ennfremur 5 ha lands með 1 sek. lítra af heitu vatni. Ásett verð er 12,5-13 millj. kr. en margs konar eignaskipti möguleg. Þetta er mjög hagstætt verð fyrir svona mikla eign, sagði Magn- ús Einarsson, fasteignasali í Eigna- sölunni. — Aðal íbúðarhúsið er byggt 1978 og í mjög góðu ástandi. Minna íbúðarhúsið þarfnast hins vegar nokkurrar standsetningar. Það þarf væntanlega að setja þar ný gólf- efni, skipta um gler og snyrta húsið að utan og innan. Gróðurhúsið líka mjög skemmtilegt umhverfi og víðsýnt til allra átta. Það er sund- laug á þessu svæði og möguleikar fyrir hvers konar útivist eins og hestamennsku miklir. Magnús kvað fasteignamarkaðinn í heild hafa verið sæmilega líflegan að undanfarnu og sagði að lokum: — Það hefur verið nokkur stífla í húsbréfakerfinu, sem hefur virkað eins og viss bremsa á markaðinn, en allt er nú að komast í gang aft- ur. Þetta er ekkert nýtt. Það hefur alltaf vantað húsbréfaflokka af og til og óþægilegar tafir orðið af þeim sökum. En þetta hefur ekki hindrað sölu að neinu marki. Fólk gerir sín tilboð og svo liggja þau kannski aðeins lengur en venjulega hjá hús- bréfadeildinni, en eru svo afgreidd þaðan að lokum. þarfnast einnig nokkurrar endurnýj- unar. — Þessi eign býður upp á tals- verða möguleika, sagði Magnús enn- fremur. — Hún er í þéttbýliskjarna neðarlega í Borgarfirði, skammt frá veiðihúsinu við Grímsá, sem margir þekkja. Það er auðvelt að sækja vinnu annars staðar á svæðinu, en þarna eru góðir atvinnumöguleikar, enda atvinnuástand á þessu svæði gott. Eigninni fylgir stórt vélaverk- stæði, sem skapar möguleika á við- gerðavinnu og ennfremur er þarna myndarlegt gróðurhús með nægu heitu vatni, svo að möguleikar á gróðurrækt t. d. blómarækt eru góð- ir og líka væri hægt að hafa þama minni háttar búskap. Að sögn Magnúsar hafa viðbrögð við auglýsingunni verið góð og tals- vert spurt um eignina. — Það er mikill áhugi á eignum á þessu svæði og greinilegt, að margir vilja komast í sveitina, sagði hann. — Þama er llíisbrcf Fleiri umsókn- ii' vegna endurbóta AUKNING átti sér stað í inn- komnum umsóknum hjá hús- bréfadeildinni í ágúst og var hún hlutfallslega mest í um- sóknum vegna endurbóta eða 35 umsóknir miðað við 13 í sama mánuði í fyrra. Þetta kemur fram í nýút- komnu fréttayfirliti yfir ágústmánuð frá húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar ríkisins. Nýbyggingaumsóknir bygg- ingaraðila drógust hins vegar heldur saman, en þær vom 25 í stað 29 í ágústmánuði í fyrra. Aukningin í samþykktum skuldabréfum vegna notaðra íbúða er umtalsverð eða 307 á móti 183 í sama mánuði í fyrra. Lítil breyting var var á samþykktum skuldabréfum vegna endurbóta, en verulega dró þó úr þeim í nýbyggingum byggingaraðila. Þær voru 11 nú en voru 24 í ágústmánuði í fyrra. Vanskil fasteignaveðbréfa 30 daga og eldri voru 917,2 millj. kr. í ágústlok, sem svar- ar til 1,64% af höfuðstól fast- eignaveðbréfa. Markaðurinn látló samhengi í um- ræðnm um Imsnæðismál Húsbréfaviðskipti Hjá okkur nýtur þú ávallt hagstæðs verðs og góðrar ráðgjafar í húsbréfaviðskiptum. Vettvangur húsbréfaviðskipta. L Landsbanki ísiands BanW alira landsmanna /f LANDSBREFHF. Löggilt veröbréfafyrirtæki. Aöili aö Veröbrófaþingi íslands. Landsbréf hf. eru viðskiptavaki húsbréfa skv. sérstökum samningi viö Húsnæðisstofnun ríkisins. EÐLI máls samkvæmt eru oft uppi miklar umræður um hús- næðismál hér á landi og koma þær upp með mismunandi stuttu milli- bili. Þetta er ekki óeðlilegt því öruggt húsnæði er einn af horn- steinum velferðar hverrar fjöl- skyldu og skiptir íslendinga án efa meira máli en marga aðra. Því miður eru þessar umræður oft samhengislausar og ekki líklegar til þess að bæta ástandið í hús- næðismálum, en þó er farið að bera á uppbyggilegum sjónarmið- um í þeim efnum innanum. Jákvæðar umræður Samtök heimilslækna hafa bent á hve mikilvæg húsnæðismál- in eru fyrir velferð fjölskyldna. Að þeirra mati er brýnt að breytingar verði á því munstri sem flestir íbúð- arkaupendur þekkja, þ.e. langur vinnudagur til að standa undir of hárri greiðslubyrði vegna íbúðar- kaupa og eða lágra launa. Þeir telja nauðsynlegt að unnið verði að því að gera íbúð- arkaup auðveldari en nú er. Þessar ábendingar eru þarfar. Samtök iðn- aðarins hafa einnig bent á nauðsyn þess að auðvelda íbúðarkaup hér á landi og vísa helst á þá leið að hækka lánshlutfallið í húsbréfa- kerfinu úr 65% í 75% af verði íbúð- ar, en heimild er til þess í lögum. Það myndi geta leitt til allt að 20-25% lækkunar á greiðslubyrði íbúða sem eru ódýrari en 8-9 millj- ónir króna, en hefði minni eða eng- in áhrif á greiðslubyrði vegna dýr- ari íbúða. Umræður um húsnæðis- mál af þessum toga eru jákvæðar. Neikvæðar umræður Það er algengara að umræður um húsnæðismál séu neikvæðar og á það oftast aðallega við um hús- næðislánakerfið. Menn verða lík- eftir Grétor J. Guðmundsson lega seint sammála um hvemig best sé að halda á þessum málum og virðist það að mestu fara eftir því hvemig þeir koma að þeim. Það er t.d. ekki óalgengt að heyra full- yrðingar eins og þær, að félagslega húsnæðiskerfið sé ómögulegt. Slíkt fullyrða reyndar aðallega þeir sem þekkja ekki vel hvaða tilgangi það kerfi þjónar. Félagslegum íbúðum hefur fjölgað verulega á síðastliðn- um árum og er svo komið að þær eru nú rúmlega 9% af heildarfjölda íbúða hér á landi. Þetta stafar fyrst og fremst af nauðsyn. íbúðum í félagslega húsnæðiskerfinu er út- hlutað til þeirra sem þurfa á að halda og eiga ekki möguleika á íbúðarkaupum á hinum frjálsa markaði. Kosturinn við félagslegar íbúðir er sá að vextir af lánum vegna þeirra eru lægri en af lánum vegna íbúða á hinum almenna markaði, lánstíminn er lengri og lánshlutfallið er hærra. í kerfinu er hins vegar ákvæði sem kveður á um að vextir skulu hækkaðir eftir ákveðinn tíma ef tekjur íbúanna hafa hækkað upp yfir ákveðin lág- mörk. Ef til vill er unnt að finna einhverja sem hafa fengið úthlutað íbúðum í þessu kerfi, sem hefðu ekki átt rétt á því og hefðu getað spjarað sig á hinum almenna mark- aði. Það gerir kerfið sem slíkt hins vegar ekki ómögulegt. Breytingar á fasteignamarkaði íbúðarkaup hafa tekið miklum breytingum að undanförnu. Kaup- endur eru varkárari en áður og leggja almennt minni áherslu á dýrar íbúðir. Þetta er eðlileg afleið- ing af lækkandi tekjum margra. Fólk gerir sér almennt grein fyrir því að íbúðarkaup eru vandasöm og það skiptir miklu máli hvernig að þeim er staðið. Tíðar breytingar hafa verið gerð- ar á húsnæðislánakerfinu hér á landi í gegnum árin. Með tilkomu húsbréfakerfisins hefur ríkt meiri stöðugleiki á fasteignamarkaði en oftast áður. Breytingar þar á gætu haft afdrífaríkar afleiðingar í för með sér fyrir fasteignamarkaðinn. Því er heppilegra þegar umræður um húsnæðismál eru á jákvæðum nótum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.