Morgunblaðið - 30.09.1994, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 30.09.1994, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1994 B 13 Morgunblaðið/Sverrir PÁLL V. Bjarnason arkitekt. Mynd þessi er tekin fyrir framan húsið Þrúðvang að Laufás- vegi 7. Húsið er úr hlöðnu grágrýti, byggt 1918. Það var orðið mjög slitið, er Páll keypti það 1989, en þá hafði það verið notað sem skóli í fjörutíu ár. Páll endurnýjaði húsið nánast allt að innan en í upphaflegum stíl. ÞESSI mynd er tekin inni í stofu í húsinu Þrúðvangi. Teborðsettið er í stíl. Það átti Einar Benediktsson skáld en skáldið bjó um skeið í húsinu. ílltelit á fasteignum ætti að vera skilyröi vió sölu ÁHUGI á því að gera upp gömul hús fer ört vaxandi hér á landi og það fyrst og fremst af brýnni nauðsyn. Þeim húsum fjolgar stöðugt, sem þarf að endurnýja. Þá er ekki bara átt við hús frá því fyrir aldamót, heldur hús og íbúðir frá áratugnum 1950-1960 og fyrir þann tíma. Vegna aldurs eru þessi hús komin í þann flokk, sem þarf á endumýjun að halda og ef ætlunin er að varð- veita þau að innan og halda í upphaf- legt útlit, þarf aðstoð fagmanna. Ella er hætt við ýmsu sé breytt, þannig að upphaflegt útlit og gerð húsanna fari forgörðum. Þetta kom fram í viðtali við Pál V. Bjarnason arkitekt, en hann hefur lagt það sérstaklega fyrir sig að endurhanna gömul hús. A meðal húsa, sem Páll hefur endurhann- að, má nefna Sjó- minjasafn íslands eða Brydepakk- húsið í Hafnar- firði, gamla Kennaraskólann við Laufásveg Álafosshúsið við Vesturgötu 2 (Bryggjuhúsið), þar sem nú er Kaffí Reykjavík og nú er í gangi endur- bygging gamla Stýrimannaskólans við Oldugötu, sem Páll hefur séð um hönnun á. Á nokkrum stöðum úti á landi hefur Páll einnig hannað endur- byggingu gamalla húsa, sem hafa minjagildi, t. d. í Ólafsvík og Grinda- vík. — Oft má gera upp gömul hús á hagkvæman hátt, auk þess sem það hefur aðra kosti að gera upp gömul hús til þess að búa í þeim. Margir hafa gert sér grein fyrir þessu og sækja því í gömul hverfi, segir Páll. — I Þingholtunum í Reykjavík hefur t. d. orðið mikil breyting á undan- förnum tíu árum, en það er búið að gera upp meiri hlutann af gömlu húsunum þar. Þó að það kosti sitt að viðhalda gömlum hverfum, þá kostar það líka mikið að þenja byggð- ina stöðugt út. Þá þarf að byggja nýja skóla og koma upp margs kon- ar annarri félagslegri aðstöðu. ítarleg úttekt öllum í hag Páll hefur víða farið til þess að kynna sér gömul hús og endurnýjun þeirra og var fyrir skömmu í Kanada í þessum tilgangi. — Þar vakti það athygli mína, að þar er mun betur búið um hnútana en hér, þegar fast- eignir fara í sölu, segir Páll. — Þetta á jafnt við gamlar sem nýjar eignir. Kaupandinn fær byggingafróða menn, yfirleitt arkitekta, sem eru vanir slíkum verkefnum, til þess að gera tæknilega úttekt á viðkomandi eign, áður en gengið er til samn- Sigurðsson inga. Stundum bijóta þeir jafnvel upp veggi og rannsaka lagnir að innan með sérstökum myndavélum eða á annan hátt til þess að ganga úr skugga um, hvernig ástandi þeirra er farið. Hér á landi fer yfirleitt engin út- tekt af þessu tagi fram við íbúðar- kaup. Þar breytir litlu, þó að seljandi hafí upplýsingarskyldu og kaupand- inn skoðunarskyldu. Það eru helzt vinir og kunningjar, sem eitthvað vit hafa á byggingum, sem fengnir eru til að skoða eignina. Þessi skoðun er oftast ómarkviss og álitið, sem byggt er á henni oftast munnleg og yfírborðskennt. Stundum hefur kaupandinn enga byggingafróða til þess að skoða eignina, en lætur sér nægja að skoða hana sjálfur, enda þótt hann hafi kannski aldrei nálægt byggingum komið. Kaupendur eru samt gjarnan með aleiguna í höndunum og ætla sér kannski að búa í íbúðinni um langan tíma, stundum alla æfí. Þeir þurfa því að vita, í hvaða ástandi eignin er, sem þeir eru að kaupa. Ég tel því brýna nauðsyn á, að tæknileg úttekt fari fram á húsum og íbúðum, áður en þær skipta um eigendur. Að mati Páls þarf slík úttekt ekki að vera mjög dýr. Hún myndi senni- lega kosta 10.000-20.000 kr. eftir stærð og ástandi eignarinnar. — Þetta er ekki há ijárhæð miðað við þá hagsmuni, sem í húfi eru fyrir kaupandann, segir Páll. — Kaupand- inn gæti hugsanlega fengið eignin fyrir lægra verð; ef eitthvað hefur komið fram við skoðunina, sem rýrir hana í verði. Úttektin gæti líka kom- ið sér vel fyrir seljandann. Ef kaup- andi hefur á orði, að gluggar séu fúnir, af því að málingin á þeim er farin að springa, þá getur seljandinn líka skírskotað til úttektarinnar, ef þar stendur, að enginn fúi sé í giugg- um. Málningin getur verið sprungin af ýmsum öðrum ástæðum. Þessi úttekt getur því orðið báðum til gagns og raunar fasteignasalanum líka, því að hún sparar hvimleið eftir- mál. En Páll telur, að þessi úttekt ætti ekki bara að vera tæknileg, heldur ætti hún einnig að fara fram með hliðsjón af byggingarreglugerð. — Með því yrði komið í veg fyrir, að íbúðir verði seldar með herbergi und- ir 7 ferm, en það er lágmark sam- kvæmt reglugerðinni, segir Páll. — Þetta á sér stundum stað og ég tel það alveg undir hælinn lagt, hvort allir hlutar íbúða standist alltaf byggingareglugerð. Kaupandinn á þó að geta treyst því, að íbúðin sé lögleg. Ég er hræddur um, að stundum sé verið að selja 2ja herbergja íbúðir sem 3ja herbergja, vegna þess að það er lítið herbergi til staðar, sem HÚS Náttúrulækningafélagsins að Laugavegi 20B. Þetta hús var gert upp fyrir nokkrum árum samkvæmt forskrift Páls. MARKMIÐIÐ með endurnýjun gamla Stýrimannaskólans var ekki einungis það að koma húsinu í nothæft ástand á ný miðað við nútíma kröfur heldur jafnframt að hafa húsið sem líkast því og það var upphaflega, segir Páll V. Bjarnason arkitekt. svo ekki nær 7 fermetrum, jafnvel smákompa, sem svo er seld sem sér- herbergi. Stundum eru salerni alltof lítil miðað við ákvæði byggingar- reglugerðarinnar, en þau mega ekki vera minni en fjórir fermetrar. Loft- hæð er líka oft ónóg miðað við það sem viðurkennt er í íbúðarhúsnæði. Þetta vandamál er meira áberandi í gömlum húsum, en samt er alls ekki búið að fyrirbyggja það í nýjum hús- um. í fótspor Einars Benediktssonar Páll hefur m. a. gert upp húsið Þrúðvangi að Laufásvegi 7, en hann er nú sjálfur eigandi þess. Þetta er stórt og íburðarmikið hús, byggt 1918. Grunnflötur þess er um 160 ferm en alls er húsið um 430 ferm. Þess má geta, að Einar Benediktsson skáld bjó um skeið í þessu húsi. Frá því um 1950 var húsið notað sem skóli, fyrst af Tónlistarskólanum í Reykjavík, en síðan af Menntaskól- anum í Reykjavík, sem hafði þar skólastofur fram til ársloka 1989, er Páll keypti það. Að sögn Páls var ástand þessa hús bágborið, er hann eignaðist það. Að vísu hafðu Framkvæmdasjóður ís- lands, sem Páll keypti húsið.af látið gera það upp að utan sumarið áður. En húsið var mjög slitið að innan af fjörutíu ára skólahaldi. Þar höfðu verið 5-7 skólastofur og hurðir, vegg- ir og stigi höfðu því látið mjög á sjá. Það þurfti því að skipta um allt inni í húsinu, t. d. allar lagnir og setja ný efni á veggi, gólf og í loft. — Það verður að kaupa það sem hæfir í hús af þessu tagi, segir Páll. — Það eignast enginn svona hús með því hugarfari að nota í það ódýrustu efnin né heldur að notast við ódýr- ustu aðferðir við að gera það upp. Það verður að nota sams konar hluti og voru í því í upphafí og hafa sams konar frágang til þess að breyta ekki yfírbragði hússins. Allt annað þarf þá að vera í stíl. Annað sögufrægt hús, sem Páll hefur endurhannað, er gamli Stýri- mannaskólinn við Öldugötu. Húsið var reist 1898 og þar starfaði þessi skóli fram til 1945, er Sjómannaskól- inn var tekinn í notkun. Skólahaldi var hins vegar haldið áfram í hús- inu. Fyrst var Gagnfræðaskóli Vest- urbæjar þar og síðan tók Grunnskóli Vesturbæjar við. Húsið verður notað áfram sem skóli í framtíðinni, en Menningar- og fræðslusamband al- þýðu hefur fengið umráð yfír húsinu og hyggst nota það fyrir fullorðins- fræðslu sína og sér því um endur- byggingu hússins. Áður en byijað var á þessu um- fangsmikla verkefni, varð að fram- kvæma ítarlega rannsókn á húsinu til þess að fá nákvæma vitneskju um upphaflega gerð þess eins og hvaða litir voru notaðir inni og úti og hvers konar innréttingar, veggklæðningar og gólfefni voru í húsinu. Þó’ að miklu hefði verið breytt í húsinu í nærri aldargamalli sögu þess, þá var mikið hægt að lesa úr innviðum, naglaförum og alls konar smáatriðum. Suma hluti var búið að taka niður og þeir algerlega horfnir t. d. skyggni yfír anddyri og fleiri atriði, sem skiptu máli fyrir útlit hússins og þá varð að notast við ljós- myndir frá því á fyrstu áratugum hússins. — Markmiðið með endurnýjun Stýrimannaskólans er ekki einungis að koma húsinu í nothæft ástand á ný miðað við nútíma kröfur heldur jafnframt að hafa húsið sem líkast því og það var í upphafí, segir Páll. — Það var því að mörgu að hyggja. í fyrsta lagi þurfti að endurhanna húsið að innan, en inni stóðst húsið engan veginn nútímakröfur. Her- bergjaskipan er samt höfð lík því sem hún var í fyrstu og efni og litir og innréttingar svipuð. En það þurfti að leysa ótal tæknileg atriði. Sem dæmi má nefna, að hanna varð nýja gólflista til þess að koma rafmagns- rennum fyrir. Síðan þurfti að ákveða einstök atriði varðandi útlit hússins, t. d. hve mikið ætti að skipta um af gluggum og hvort það ætti að vera í þeim einfalt eða tvöfalt gler. Kostnaðaráætlun um 25 miiy. kr. Kostnaðaráætlanir eru nú ofarlega á baugi í opinberri umræðu og Páll var spurður að því, hvort þetta yrði dýrt verkefni og hvort byggingariðn- aðurinn í heild tæki kostnaðaráætl- anir nógu hátíðlega, hvort sem það væru byggingameistarar, arkitektar eða aðrir? — Ég gerði ekki kostnaðar- áætlun fyrir þetta verk, enda þótt ég taki slík verkefni stundum að mér, segir Páll. — En þetta verður ekki dýrt verkefni. Kostnaðaráætlun- in hljóðar upp á 25 millj. kr., sem ég tel ekki dýrt miðað við sum göm- ul hús, sem gerð hafa verið upp og það sem meira er, hún mun standast að mestu. — Að mínu mati em samt marg- ir og þá einkum opinberir aðilar ekki nægilega iðnir. við að spara, heldur Páll áfram. — Þegar gera á upp gamlar byggingar, þarf auðvitað að byija á því að gera á þeim tæknilega úttekt. Það kostar töluverða vinnu, af því að þá þarf að opna húsið og rífa bámjárn og veggklæðningar ut- an af því til þess að sjá, hvað er undir, hvort þar sé fúi og annað af því tagi. Síðan á að gera kostnaðar- áætlun, sem byggist á þessari úttekt. Þetta er ekki alltaf gert. Stundum er gerð kostnaðaráætlun án nokkurs frekar og eftir að verkið er hafíð, koma svo margvísleg atriði í Ijós, sem ekki var gert ráð fyrir í upphafí. Þá fer upphaflega kostnaðaráætlun úr böndum. — Ég held samt, að okkur íslend- ingum fari fram að þessu leyti, segir Páll V. Bjarnason að lokum. — Mis- tök af þessu tagi má sennilega að mestu rekja til þess, að endurbygging gamalla húsa er enn tiltölulega nýtt fag hér á landi. Þetta fag er ennþá í mótun og ekki til staðar fastar hefðir um það eins og nýbyggingar, enda miklu auðveldara að gera raun- hæfar kostnaðaráætlanir fyrir ný hús.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.