Morgunblaðið - 30.12.1994, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 30.12.1994, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1994 11 I I > f i I > í ) í ) l FRÉTTIR Umsækjendur um embætti umboðsmanns barna Skorað á Þórhildi að segja af sér TVEIR umsækjendur um embætti umboðsmanns barna skora í bréfi til birtingar í Morgunblaðinu á Þórhildi Líndal, nýskipaðan umboðsmann, að segja sig frá embætti þar sem ljóst megi vera að vegna tengsla hennar við forsætisráðherra og starfsmenn forsæt- isráðuneytis hafí aðrir umsækjendur ekki notið jafnræðis við emb- ættisveitinguna. Þórhildi hafði ekki borist bréfið og neitaði að tjá sig um efni þess þegar leitað var til hennar. Morgunblaðið/Sverrir Lions- menn gefa leikföng LIONSKLÚBBURINN Fjörgvn afhenti Barnaspítala Hringsins LEGO-leikföng frá Reykjalundi fyrir jólin. Lionsmenn vonasttil að börnin geti stytt sér stundir um jólin sem og aðra daga. Myndin er tekin við afhendingu leikfanganna. F.v. Herta W. Jónsdóttir, Anna María Harðar- dóttir, Aldís Þorbjarnardóttir og Lionsmennirnir Ólafur Odds- son, Gísli Jónsson, Andrés F. Gíslason og Sighvatur Sigurðs- son. Bréfritararnir Páll Tryggvason, sérfræðingur í barna- og unglinga- geðlækningum og barnalækning- um, og Benedikt Sigurðsson, upp- eldisfræðingur og skólastjóri, minna á að þeir hafi gert athuga- semd við veitingu embættisins. Þeir muni leita allra leiða til að fá ákvörðun forsætisráðherra hnekkt og málinu verði vísað til umboðsmanns Alþingis. Áskorun Að lokum er skorað á Þórhildi Líndal að segja sig frá embætti þar sem ljóst megi vera að vegna tengsla hennar við forsætisráð- herra og starfsmenn forsætisráðu- neytisins hafi aðrir umsækjendur ekki notið jafnræðis við embætti- sveitinguna. Undir bréfið skrifa bréfritararnir Páll Tryggvason og Benedikt Sigurðsson. -----» ♦ -♦--- Ráðinn til Norrænu ráðherra- nefndarinnar GUÐMUNDUR Einarsson starfs- maður á aðalskrif- stofu EFTA í Genf hefur verið ráðinn deildarstjóri hjá Norrænu ráð- herranefndinni frá 1. mars á næsta ári, sam- kvæmt upplýsing- um frá forsætis- ráðuneytinu. Guðmundur er fæddur 1948 og er líffræðingur að mennt. Hann sat á Alþingi 1983-1987 fyrir Bandalag jafnaðarmanna og síðar Alþýðuflokkinn. Hann var fram- kvæmda stjóri Alþýðuflokksins þar til í febrúar 1989, en hefur síðan kennt við Háskóla íslands auk þess að vera framkvæmdastjóri þing- flokks Alþýðuflokksins. Hann var aðstoðarmaður Jóns Sigurðssonar iðnaðar- og viðskiptaráðherra til 15. mars 1993 þegar hann tók til starfa á aðalskrifstofu EFTA í Genf. Samkvæmt upplýsingum frá forsætisráðuneyti mun Guðmund- ur fara með málefni þegnanna hjá ráðherranefndinni, það er vinnu- markaðinn, félags-, heilbrigðis- og neytendamál svo eitthvað sé nefnt. -----♦ ♦-»---- Spikkenspan í Gallerí * Umbru í DAG verður minimalt sýning í Galleríi Úmbru við Amtmannsstíg. Á sýningunni er verk eftir Spik- kenspan. Sýningin stendur aðeins þennan eina dag og er opin á opnunartíma Gallerísins, frá klukkan 12-18. Mikið úrval - lægra verð Reynsla - þekking - þjónusta Hjálparsveitin óskar þér farsœldar á nýju ári og hvetur þig til að fara varlega með flugeldana um áramótin. LANDSBJORG Landssamband björgunarsveita Nóatún vestur í bæ (JLhúsið) Mörkin 6 (Ferðafélagshúsið) Skátabúðin (Snorrabraut) Skjöldungaheimilið (Við Sólheima) Ðílabúð Benna Globus (Vagnhöfða) (Lágmúla) \ Mjódd (Við Kjöt og fisk) 28.-30. DES. Kl. 10-22 31. DES. Kl. 10-16 -swmi mmúR Ý-svEir (^)eð því aö kaupa flugelda af Hjálparsveit skáta í Reykjavík styrkiröu björgunarstarf sem getur skipt sköpum á neyöarstund.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.