Morgunblaðið - 30.12.1994, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Mikið tjón
af eldi
og reyk í
íbúðarhúsi
MIKIÐ tjón varð af völduni elds,
reyks og vatns í íbúðarhúsi í
Glerárhverfi á Akureyri síðdeg-
is í gær.
Kona og barn voru í húsinu
þegar eldurinn kom upp sam-
kvæmt upplýsingum slökkviliðs
sem kvatt var á staðinn um kl.
16.30 í gærdag. Talið er að eld-
ur af kerti hafi komist í j óla-
skreytingu í stofu hússins með
þeim afleiðingum að það fuðr-
aði upp á skömmum tíma. Eld-
tungur stóðu út úr stofunni þeg-
ar slökkvilið kom að. Húsið, sem
er timburhús á einni hæð, fyllt-
ist af reyk. Greiðlega gekk að
slökkva eldinn en síðan tók við
að losa reyk úr húsakynnum.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
ELDTUNGUR stóðu út um stofugluggann þegar slökkvilið kom að.
Kvennalistinn
Flestar vilja
Elínu Ant-
onsdóttur
ELÍN Antonsdóttir atvinnumála-
fulltrúi á Akureyri fékk flestar til-
nefningar til að skipa fyrsta sæti
á lista Kvennalistans í Norður-
landskjördæmi eystra.
Gunnhildur Bragadóttir í upp-
stillingarnefnd Kvennalistans
sagði að bréf hefði verið sent til
félagskvenna þar sem beðið er um
tilnefningar á listann og skar nafn
Eb'nar sig úr hvað fjölda tilnefn-
inga varðar.
Uppstillingarnefnd er þegar far-
in að raða á listann, en stefnt er
að því að þeirri vinnu ijúki á fyrstu
vikum janúarmánaðar.
Rafveita Akureyrar
Hagnaður áætlaður
um 25 mílljónír
Tekjur Hafnarsjóðsins á næsta ári um 82 milljónir
AÆTLAÐ er að hagnaður af rekstri
Rafveitu Akureyrar verði rúmlega
25 milljónir króna á næsta ári.
Gert er ráð fyrir í rekstraráætlun
Rafveitu Akureyrar að rekstrartekj-
ur veitunnar verði um 430 milljónir
króna á árinu, þar af eru 405 millj-
ónir vegan raforkusölu. Rafveitan
áætlar að kaupa raforku fyrir rúm-
lega 290 milljónir króna árið 1995,
rekstur aðveitu- og dreifikerfis kost-
ar um 35 milljónir króna og skrif-
stofu- og stjómunarkostnaður veit-
unnar er áætlaður tæpar 27 milljón-
Breytingar á
Sparileiðum vegna
nýrra reglna
Seðlabanka Islands
Frá og með l.janúar 1995 koma til framkvæmda nýjar
reglur frá Seðlabanka íslands um verðtryggingu sparifjár.
Reglurnar hafa eftirfarandi áhrif á Sparileiðir íslands-
banka:
Sparileið 3
Verðtrygging leggst af. Óheimilt er að verðtryggja
óbundið sparifé og verður pví hætt samanburði á
ávöxtun nafnvaxta og verötryggðra kjara. Reikn-
ingurinn ber pví eingöngu nafnvexti.
Sparileið 12,24 og 48
Reglur um úttektir breytastAð loknum binditíma,
eru reikningar lausir með fimm mánaða millibili,
einn mánuö í senn.
ISLAN DSBAN Kl
ir. Rekstrarkostnaður veitunnar
nemur því 352 milljónum króna á
næsta ári að því er fram kemur í
áætlun um rekstur hennar næsta ár.
Fram kemur að hagnaður veit-
unnar á árinu án fjármunatekna,
fjármagnsgjalda og afskrifta er
áætlaður um 78 milljónir króna.
Gert er ráð fyrir að 56 milljónir
króna verði afskrifaðar á árinu.
160 milljónir til
eignabreytinga
Áætlað er að um 160 milljónir verði
notaðar til eignabreytinga á vegum
veitunnar á komandi ári, en þar
munar mestu um viðbót við aðveitu-
og bæjarkerfi hennar samtals 64
milljónir króna.
Rekstrartekjur Hafnarsjóðs Ak-
ureyrar á næsta ári eru áætlaðar
um 82 milljónir króna, þar af verða
hafnartekjur um 57 milljónir, seld
þjónusta að upphæð tæpar 14 millj-
ónir og leigutekjur nema tæpum 11
milljónum króna. Rekstrargjöld
sjóðsins eru áætluð um 42,6 milljón-
ir króna. Rekstur hafnarmannvirkja
kostar tæpar 15 milljónir króna og
annarra eigna tæpar 5 milljónir.
Hafnarvarsla og skrifstofu- og
stjórnunarkostnaður nemur tæplega
24 milljónum.
Hagnaður án fjármunatekna, fjár-
magnsgjalda og afskrifta er áætlað-
ur um 39 milljónir en hagnaður án
afskrifta 19,3 milljónir króna.
Frostið bítur ekki á fasta-
gesti og hreystimenni
FASTAGESTIR Sundlaugar Ak-
ureyrar láta gaddinn ekki á sig
fá - þeir taka sinn sundsprett
sama hvaðan vindar blása. Til
viðbótar þeim hafa síðan örfá
hreystimenni sótt sundlaugina
síðustu daga, enda kalt í veðri
og hríðarkóf í gær þegar ljós-
myndari kom við í lauginni auk
þess sem margir hafa annað að
sýsla þessa daga. Reyndar var
aðsókn nokkuð góð annan dag
jóla en virku dagana milli hátíða
hafa fáir fundið hjá sér hvöt til
að synda. Sundlaugarvörður
tjáði blaðamanni að rennibrautir
væru ekki í gangi þar sem frost-
ið væri mikið og engum afísing-
arbúnaði til að dreifa, en lokun
brautanna hefði ætíð í för með
sér minni aðsókn.
Gamlárs-
hlaup
HIÐ árlega gamlárshlaup
Ungmennafélags Akureyrar
verður 31. desember. Hlaupið
var fyrst árið 1989 þannig að
þetta er í fimmta sinn sem
hlaupið er á þessum degi.
Þetta hlaup er bæði ætlað
trimmurum og hlaupurum en
þátttakendum er skipt niður í
flokka eftir aldri eins og venja
er í almenningshlaupum. Boð-
ið er upp á tvær vegalengdir,
10 kílómetra og 4 kílómetra,
og verður hlaupið innanbæjar
á Akureyri.
Hlaupið hefst og endar við
Dynheima, en hlaupið er um
miðbæ, Oddeyri, og Innbæ.
Þátttökuskráning er í Dyn-
heimum frá kl. 11 eða klukku-
stund áður en hlaupið hefst.
Allir þátttakendur fá viður-
kenningarpening auk þess sem
fyrsti maður í hveijum flokki
fær verðlaun. Einnig verða
dregin út aukaverðlaun gefin
af verslunininni Sportverki og
veitingahúsinu Greifanum.
Fjórir fjörug-
ir á týróla-
buxum
GILFÉLAGIÐ ásamt Café
Karólínu stendur fyrir sér-
stakri áramótaskemmtun í
Deiglunni í kvöld, föstudags-
kvöldið 30. desember, þar sem
hljómsveitin „Fjórir fjörugir á
týrólabuxum" skemmta. Þeir
munu halda uppi stanslausu
stuði með rússneskum þjóðlög-
um, austur-evrópskri tatara-
tónlist og íslenskum sjó-
mannalögum. Hinir fjórir fjör-
ugu eru Daníel Þorsteinsson,
harmonikkuleikari, Ármann
Einarsson, klarinettu- og slag-
verksleikari, Jón Rafnsson,
kontrabassaleikari og Karl
Petersen slagverksleikari.
Skemmtunin hefst kl. 22.00.
Styrkir úr
Afreks- og
styrktarsjóði
STYRKIR og viðurkenningar
úr Afreks- og styrktarsjóði
voru afhentir í Hallarsal
Iþróttahallarinnar á Akureyri
í gær. Veittir voru styrkir til
fjölmargra íþróttafélaga í
bænum og viðurkenningar
veittar til handa þeim sem
unnið hafa til íslandsmeistar-
atitla á árinu sem nú er senn
að líða. Þá voru veittar sér-
stakar viðurkenningar til Har-
aldar Helgasonar, Jóns Odd-
geirs Guðmundssonar og Har-
aldar Sigurgeirssonar, sem
mjög hafa komið við sögu
íþróttaiðkunar á Akureyri í
áranna rás. Fjölmenni var mik-
ið við athöfnina enda stórir
hópar íþróttafólks sem unnu
titla á þessu ári.