Morgunblaðið - 30.12.1994, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Morgunblaðið/Þorkell
Á MYNDINNI sést Ásgeir J. Guðmundsson, forstjóri Á. Guð-
mundssonar (t.v.) taka við viðurkenningarskjali um góðan að-
búnað frá Haildóri Jónassyni, formanni aðbúnaðamefndar Tré-
smiðafélags Reykjavíkur.
Á. Guðmundsson fær við-
urkenningu fyrir aðbúnað
Islandsflug ætlar að halda áfram Siglufjarðarflugi
Umsókn um flugleyfi
til Akureyrar hafnað
TRÉSMIÐAFÉLAG Reykjavíkur
hefur veitt fyrirtækinu Á. Guð-
mundssyni hf. á Skemmuvegi 4
í Kópavogi viðurkenningu fyrir
góðan aðbúnað starfsmanna á
vinnustað. Á. Guðmundsson er
húsgagnaframleiðandi og sér-
hæfir sig í gerð skrifstofuhús-
gagna. Hefur fyrirtækið starfað
að húsgagnaframleiðslu í nær 40
ár.
Þetta er í tíunda sinn sem
Trésmiðafélagið veitir þessa við-
urkenningu og hafa ýmist bygg-
ingaraðilar eða verkstæði hlotið
hana, að því er segir í frétt frá
félaginu. Aðbúnaðarnefnd fé-
FOKKER-flugvélaverksmiðjumar í
Hollandi þurfa viðbótarfjármagn
upp á nokkur hundruð milljóna
gyllina til þess að halda velli að
mati sérfræðinga á grundvelli leyni-
skýrslu, þar sem gerð er grein fyr-
ir neyðarráðstöfunum til að tryggja
framtíð fyrirtækisins.
Hlutabréf í Fokker lækkuðu um
14% í 10.20 gyllini þegar hollenzka
sjónvarpið vitnaði í skýrsluna, þar
sen komizt er að þeirri niðurstöðu
að loka verði verksmiðju ef fyrir-
tækið eigi að halda lífi.
„Ástandið er mjög alvarlegt,“
sagði Steef Bergakker, kunnur sér-
fræðingur. „Fyrirtækið tapar svo
miklu fé að erfitt er að halda því
gangandi. Ég geri ráð fyrir að til
nýrrar endurfjármögnunar verði að
koma.“
lagsins hefur verið að störfum
undanfarnar vikur og skoðað
ýmis fyrirtæki sem þóttu koma
til greina.
Fram kemur að þeim fyrir-
tælqum hafi fjölgað þar sem að-
búnaður sé viðunandi en ætíð séu
einhver fyrirtæki sem skari fram
úr öðrum hvað þetta snertir. Hjá
Á. Guðmundssyni sé rúmgóð og
björt matstofa. Sérstakar hirslur
séu fyrir hvern starfsmann.
Snyrtileg aðkoma að fyrirtækinu
og umgengni sé öll til fyrirmynd-
ar. Þá sé öll hreinlætisaðstaða í
góðu lagi og öryggismálum vel
sinnt.
Fyrr í mánuðinum lækkuðu
hlutabréf í Fokker í 9.50 gyllini,
lægsta verð í eitt ár, þegar uppnám
varð á fjármálamörkuðum vegna
frétta frá fyrirtækinu um að tap
þess í ár kunni að jafnast á við 460'
milljóna gyllina (263.9 milljóna doll-
ara) mettap þess 1993.
í fyrra lækkuðu hlutabréf í Fokk-
er í 8.10 gyllini, lægsta verð frá
upphafí, áður en Deutsche Aero-
space, sem er deild í Daimler Benz
AG, tók við fyrirtækinu.
í skýrslunni segir ráðgjafafyrir-
tækið Berenschot að flugvélar Fok-
kers séu of dýrar og draga verði
verulega úr kostnaði. Loka verði
verksmiðju og segja upp 500 starfs-
mönnum til viðbótar jafnmörgum,
sem þegar hafi verið ákveðið að
segja upp.
HALLDÓR Blöndal samgönguráð-
herra hefur hafnað umsókn íslands-
flugs hf. um að fá 15% hlut í flugleið-
inni milli Reykjavíkur og Akureyrar.
íslandsflug hafði sagt að óvíst væri
um áframhaldandi flug félagsins til
Siglufjarðar fengist slíkt leyfi ekki,
en félagið hyggst þó halda áfram
að fljúga þangað þrátt fyrir þessa
niðurstöðu, að sögn Ómars Bene-
diktssonar, stjórnarformanns ís-
landsflugs. Þar kemur til meðal ann-
ars bætt aðstaða á Siglufirði og að
hlutur íslandsflugs í flugleiðinni
Reykjavík-Egilstaðir er aukinn úr
10% í 15%.
Ómar sagði að þó að aukningin á
Egilstaðafluginu - sem íslandsflug
hefur nýtt sér í tengslum við flug
til Neskaupstaðar - tengdist ekki
Siglufjarðarfluginu beint þá styddi
hún það óbeint með því að bæta
almenna stöðu fyrirtækisins. „Síðan
fyrstu
KAUPFÉLAG Rangæinga hefur
boðið út samvinnuhlutabréf í B-deild
stofnsjóðs að nafnvirði um 30 millj-
ónir króna. Útboðið er einungis talið
henta hagsmunaðilum og öðrum
þeim sem þekkja gaumgæfilega til
rekstrar félagsins og hafa hag af
áframhaldandi starfsemi þess, eins
og segir yfirlýsingu Landsbréfa hf.,
umsjónaraðila útboðsins, í útboðslýs-
ingu.
Tilgangur með sölu bréfanna er
að afla áhættufjár til starfsemi fé-
lagsins ásamt því að styrkja eigin-
ijárstöðu og almenna rekstrarhæfni
félagsins. í útboðslýsingu segir m.a.
að almennir erfiðleikar í iðnaði hér
á landi hafi m.a. lýst sér á þann
hátt að framleiðsluiðnaður sem örð-
inn var verulegur hjá félaginu hafi
dregist mjög saman án þess að
hægt væri í sama mæli að selja aft-
ur þær eignir sem fjárfest var í
vegna framleiðslunnar. Það sé von
stjórnenda félagsins að styrking eig-
infjárstöðunnar með sölu samvinnu-
hlutabréfa geti orðið til þess að efla
þá þætti starfseminnar sem snúi að
verslun, þjónustuiðnaði, flutningum
og þjónustu við ferðamenn.
Undanfarin ár hefur verslun verið
um 80% veltu félagsins en það hefur
hafa siglfirsk fyrirtæki hvatt okkur
mjög til að halda áfram og ætla þá
að beina meiri viðskiptum innan
þessarar áætlunarleiðar," sagði
Ómar.
Líka synjað um Sauðárkrók
íslandsflug hafði upphaflega sótt
um flugleyfi til Sauðárkróks í tengsl-
um við Siglufjarðarflugið, en því var
hafnað vegna andstöðu Flugleiða,
sem hafa sérleyfi á leiðinni. íslands-
flug bað þá um leyfi til að fljúga
milli Reykjavíkur og Akureyrar og
sagði í umsókn sinni að samgöngu-
ráðherra hefði heimild til 'að veita
öðrum aðilum en Flugleiðum 15%
hlut í flugleiðinni. Hann hefði nú
ákveðið að nýta sér ekki þá heimild.
Ómar sagði að það sem réttlætti
áframhaldandi flug til Siglufjarðar
þrátt fyrir þessa niðurstöðu væri
meðal annars að búið væri að leggja
einnig rekið iðnað og þjónustu.
Stærsta verslunardeildin er fóður-
og byggingavörudeild á Hvolsvelli
sem auk fóðurs og byggingavara
verslar með áburð og aðföng til land-
búnaðar. Þetta er um 30% af versl-
unarveltu félagsins. Rekstrartekjur
fyrstu níu mánuði ársins voru alls
um 445 milljónir, sem er um 3%
samdráttur frá árinu á undan, skv.
óendurskoðuðu milliuppgjöri. Það
sýnir tæplega 2 milljóna tap á tíma-
bilinu og stefnir í áð reksturinn verði
nokkru hagstæðari en í fyrra þegar
bundið slitlag á flugvöllinn á Siglu-
firði. Áður hafi oft ekki verið hægt
að lenda þar vegna aurbleytu og
þess í stað lent á Sauðárkróki og
ekið til Sigluljarðar með tilhéyrandi
kostnaði. Þá væri nú flogið eftir
hádegi til Siglufjarðar en ekki á
morgnana, sem hefði í för með sér
bætta nýtingu flugvéla, því morgn-
arnir eru mesti annatíminn.
Þróun í frjálsræðisátt
„Það er alveg ljóst að það stefnir
í fijálsræðisátt í fluginu og við horf-
um meðal annars til þess,“ sagði
Ómar aðspurður um hvort hann
væri sáttur við synjun um Akur-
eyrarflugið. Gefa á innanlandsflug
frjálst árið 1997, að minnsta kosti
á flugleiðum með yfir 30.000 farþeg-
um á ári. Ómar sagði að ennþá hefði
ráðherra ekki gefið félaginu neina
ástæðu fyrir ákvörðun sinni.
rösklega 10 milljóna tap varð af
starfseminni. Eigið fé var bókfært
67 milljónir en skuldir námu alls 291
milljón.
I útboðslýsingu er tekið fram að
óvarlegt sé að ætla að hægt verði
að greiða arð af samvinnuhlutabréf-
um félagsins á næstu árum. Vænt-
anlegir kaupendur samvinnuhluta-
bréfa verði því fremur að lita á kaup-
in sem ijárfestingu til lengri tíma
og skoða jafnframt þann óbeina hag
sem þeir hafi af áframhaldandi
þróttmiklu starfi kaupfélagsins.
Dollar nær sér á strik
London. Reutcr.
DOLLARINN átti í erfiðleikum í
Evrópu í gær vegna umróts, sem
þriðjungs lækkun mexíkóska pes-
ósins hefur valdið, en gjaldeyris-
sérfræðingar sögðu að þar sem
dollarinn væri raunverulega traust-
ur mundi hann fljótlega ná sér á
strik.
í fyrrinótt snarlækkaði dollarinn
í New York vegna bollalegginga
um að seðlabanki Mexíkó mundi
skipta pesóum fyrir bandaríska og
kanadíska dollara til þess að stöðva
lækkun pesóans.
Bandaríska ijármálaráðuneytið
sagði síðar að Mexíkó hefði ekki
keypt dollara, en þá var skaðinn
skeður.
Orðrómurinn var til kominn
vegna þess að Mexíkó hefur fengið
sex milljarða dollara lán frá Banda-
ríkjunum og annað lán frá Kanada
að upphæð einn milljarður
Kanadadala.
Flugvélasmíði
Fokker-verksmiðjurnar
beijast fyrir lífi sínu
Amsterdam. Reuter.
Kaupfélag Rangæinga býður út 30 milljóna hlutabréf
Afkoman íjámwn
níu mánuðina
N Ú E R RÉTTI TÍMINN TIL A Ð FÁ SÉR GSM FARSÍMA
Ókeypis símtöl um helgar!
í desember og janúar gefst GSM farsímaeigendum kostur á
aö hringja gjaldfrjálst um helgar.* Tilboðið gildir frá
10. desember 1994 til 29. janúar 1995 á tímanum frá
kf. 20:00 á föstudagskvöldum til kl. 08:00 á mánudagsmorgnum.
PÓSTUR OG SÍMI
*Tilboðið á ekki við um símtöl til útlanda eða í Símatorg. Símtöl í GSM
farsimakerfið úr venjulegum síma eru gjaldfærð á venjulegan hátt.