Morgunblaðið - 30.12.1994, Qupperneq 18
18 FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
A í < A /v\ 6' i A
CETRAUN
Fréttatengd áramótagetraun Morgtmblaðsins birtist í blaðinu
31. desember nk. og verður hún þrískipt:
barnagetraun, unglingagetraun og fullorðinsgetraun.
Veitt verða þrenn verðlaun fyrir hvern flokk.
RARJVAGETRALW (ætluð öllum á aldrinum 5-11 ára).
1. Adidas-íþróttavörur að eigin vali frá Sporthúsi Reykjavíkur
að andvirði 20.000 kr.
2. Bækur að eigin vali frá Vöku-Helgafelb
að andvirði 10.000 kr.
3. Geislaplötur að eigin vab frá Skífunni
að andvirði 5.000 kr.
Um;LMM'Gj\CÍÍ]rllU\lJl\1 (ætluð öllum á aldrinmn 12-17 ára).
1. Vöruúttekt að eigin vab frá IKEA að andvirði 20.000 kr.
2. Fataúttekt að eigin vab frá verslununum
Kókó/Kjabaranum að andvirði 10.000 kr.
3. Geislaplötur að eigin vab frá Skífunni
að andvirði 5.000 kr.
FIJLLORÐINSGETRAIIN (ætluð öUum 18 ára og eldri).
1. Ævintýrabréf að Hótel Búðum á SnæfeUsnesi fyrir tvo.
Innifabð: Gisting í eina nótt, morgunverðarhlaðborð,
þríréttaður kvöldverður og hesta- eða bátsferð.
2. Bækur að eigin vab frá Vöku-HelgafeUi
að andvirði 10.000 kr.
3. Geislaplötur að eigin vab frá Skífunni að andvirði 5.000 kr.
Auk þess fá allir vinningshafar íþróttatösku merkta Morgunblaðinu.
Úrlausnir þurfa að berast Morgunblaðinu fyrir kl. 16.00 mánudaginn 16. janúar.
fMwgptntMftMft
- kjarni málsins!
FRÉTTIR: EVRÓPA
Evrópuráðherra Austurríkis
Vill auka kaup-
mátt almennings
Vín. Reuter.
BRIGITTE Ederer, Evrópuráðherra
Austurríkis, segir að kaupmáttur
austurrískrar meðalfjölskyldu muni
aukast um 6.000 krónur er Austur-
ríkismenn gerast aðilar að ESB um
áramótin.
Hún sagði vega þyngst að mat-
væli myndu lækka verulega í verði
og að framfærsluvísitala myndi
lækka um 0,3% af þeim sökum.
Þá myndu vefnaðarvörur og bif-
reiðar einnig lækka í verði á næsta
ári.
Hún varaði hins vegar stórfyrir-
tæki við því að ætla að stinga hagn-
aðinum í eigin vasa í stað þess að
láta neytendur njóta góðs af breytt-
um aðstæðum. Þá myndi ríkisvaldið
grípa í taumana. „Ég lít á það sem
persónulega skyldu mína að tryggja
að allir hagnist á ESB-aðild Austur-
ríkis,“ segir Ederer.
VöldEÞaukin?
YFIRHEYRSLUR nefnda Evrópuþingsins yfir nýjum fram-
kvæmdastjórnarmönnum munu fara fram á fyrstu dögum nýja
ársins. Búizt er við að Evrópuþingmenn noti tækifærið og geri
kröfur um að völd þingsins verði aukin á ríkjaráðstefnu Evrópu-
sambandsins 1996. Þeir hafa sterkt vopn í höndum, þar sem EÞ
getur nú, samkvæmt Maastricht-sáttmálanum, hafnað fram-
kvæmdastjórninni í heild. EÞ á að greiða atkvæði um traust á
framkvæmdastjórnina 18. janúar og framkvæmdastjórnarmenn
taka til starfa 24. janúar. Hér sést þingsalur Evrópuþingsins í
Evrópuhöllinni í Strassborg, en þingið fundar einnig í Brussel.
Ríkisstyrkir
til Iberia
átakamál
• BÚIZT er við að annar
skammtur ríkisstyrkja til
spænska ríkisflugfélagsins
Iberia verði helzta átakamálið
innan Evrópusambandsins á
fyrstu vikum nýja ársins. Flug-
félagið, sem á í miklum fjár-
hagserfiðleikum, hefur skilað
upplýsingum um framtíðar-
áætlanir sínar til fram-
kvæmdastjórnar ESB, í þeirri
von að hún samþykki nýjan
ríkisstyrk. Neil Kinnock, sem
fara mun með samgöngumál í
nýju framkvæmdastjórninni,
mun standa frammi fyrir vali
um að láta undan kröfum Iber-
ia eða standa við fyrirheit
framkvæmdastjórnarinnar um
að auka samkeppni í flugsam-
göngum með því að leggja blátt
bann við ríkisstyrkjum.
• FRAKKAR, sem taka við
forsæti í ráðherraráði ESB um
áramót, vilja fækka vinnu-
tungumálum sambandsins úr
ellefu í fjögur eða fimm. Lík-
legt er að þetta mæti harðri
andstöðu, þar sem Belgar og
Hollendingar fari fremstir í
flokki, að sögn Wa.Il Street
Journal. Tungumálafjöldinn
hjá ESB er undirrót mikils
þýðingar- og túlkunarkostnað-
ar.
• KLAUS Kinkel, utanríkis-
ráðherra Þýzkalands, hefur
sagt í viðtali við þýzkt blað að
hann tejji að taka eigi upp
meirihlutaákvarðanir um utan-
ríkismál í ráðherraráði ESB.
Líklegt er að Bretar og fleiri
ESB-þjóðir leggist gegn þess-
um hugmyndum.
• SVIAR hafa, líkt og Finnar,
lýst yfir áhuga á áheyrnaraðild
að Vestur-Evrópusambandinu,
sem á að verða varnarmála-
armur ESB. írland og Dan-
mörk eru nú áheyrnaraðilar
að VES. Noregur, Tyrkland og
Island eru hins vegar svokall-
aðir aukaaðilar, sem þýðir að
ríkin geta tekið þátt í sameig-
inlegum hernaðaraðgerðum,
en það gera áheyrnaraðilar
ekki.
Frakkar vilja styðja Afríku
BERNARD Debre, ráðherra í ríkis-
stjóm Frakklands, segir að Frakkar
muni leggja áherslu á að tryggja
fjárhagslegan stuðning við Afríku
er þeir taka við forystunni í ráð-
herraráði ESB um áramótin.
Debre segir í viðtali við Le Monde
að þó sum Evrópuríki virðist «vilja
leggja mesta áherslu á að þróa sam-
skiptin við Mið- og Austur-Evrópu
og Suður-Ameríku hyggist Frakkar
ætla að tryggja að stuðningurinn
við Afríku verði áfram ásættanleg-
ur.
Sagði ráðherrann að á þeim sex
mánuðum sem Frakkar yrðu í for-
ystu myndi hann leggja áherslu á
það í Brussel að Evrópusambandið
mætti ekki draga úr stuðningnum
við Afríku.
Aftur á móti mætti gera stuðn-
inginn skilvirkari.