Morgunblaðið - 30.12.1994, Page 19

Morgunblaðið - 30.12.1994, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1994 19 Mannrétt- indaskrif stofu lokað TALSMAÐUR mannréttinda- samtaka Tyrklands lýsti því yfir í gær að tyrknesk yfirvöld hefðu lokað aðalskrifstofu sam- takanna í suð-austurhlutanum, þar sem tyrkneskir hermenn og kúrdískir skæruliðar eigast við. Er ástæðan sögð rannsóklf á skýrslu um mannréttindamál sem skrifstofan birti nýlega. Texasnæst fjölmennast TEXAS er orðið fjölmennara en New York og þar með næst- fjölmennasta ríki Bandaríkj- anna. Texas-búar eru orðnir 18,4 milljónir, 200.000 fleiri en íbúar New York, samkvæmt þjóðskránni 1. júlí í ár, ogjjeim fjölgaði um 356.000. Ibúar New York eru 18,2 miiljónir, um það bil jafn margir og í fyrra. Kalifornía er enn fjöl- mennasta ríkið, með 31,4 millj- ónir íbúa. Máli Clintons frestað DÓMARI í Arkansas úr- skurðaði í gær að mál sem Paula Corbin Jones hefur höfðað á hendur Bill Clinton Bandaríkja- forseta um kynferðislega áreitni, verði ekki tekið fyrir dóm fyrr en Clinton lætur af embætti. Hins vegar verði ekki tafir á vitnisburði í málinu. Ráðherra svarar ásökunum DÓMS- og innanríkisráðherra Spánar m.un í dag koma fyrir þingið til að svara ásökunum um að spænska stjórnin hafi verið flækt í leynilegt stríð á hendur Böskum á síðasta ára- tug. Málið er einnig fyrir dóm- stólum og hefur ríkisstjórnin hingað til verið andsnúin því að spurningum væri svarað á þinginu. Samstarfs- maður Brandts fyrir rétt NÁINN samstarfsmaður Willys Brandts, fyrrum kanslara Þýskalands, kemur fyrir dóm í næsta mánuði en hann er sak- aður um að hafa njósnað fyrir Austur-Þjóðveija á tímum kalda stríðsins. Karl Wienand var agameistari þingsflokks Jafnaðarmanna á sjöunda ára- tugnum. Fjórðungur trúir á Guð AÐEINS einn af hverjum fjór- um Tékkum trúir á Guð, sam- kvæmt skoðanakönnun sem birt var í gær. Þá trúa 12% til viðbótar á einhvers konar yfirnáttúruleg öfl og 31% út- loka ekki að Guð sé til. ERLEIMT Afsögn yfirmanns bandarísku leyniþjónustunnar CIA Linkind í Ames-málinu varð Woolsey að falli James Woolsey setti sér í upphafi það mark- mið að vinna gegn þeirri venju innan banda- rísku leyniþjónustunnar að vemda gamla en óhæfa starfsmenn en þessi ósiður varð síðan sjálfum honum að falli AFSÖGN James Woolseys, yfirmanns bandarísku leyniþjónustunnar CIA, sem tilkynnt var í fyrra- kvöld, er fyrst og fremst rakin til óánægju með þá ákvörðun hans að refsa ekki embættismönnum stofnunarinnar vegna Ames- njósnamálsins. Þegar Woolsey tók við embætt- inu fyrir tæpum tveim árum sagði hann meginmarkmið sitt að breyta því sem hann kallaði „njósnamenn- ingu“ CIA. Hann kvaðst vilja gera stofnunina opnari og binda enda á bræðralagshugarfarið sem hefur verndað vanhæfa og óheiðarlega embættismenn innan stofnunarinn- ar. Fréttaskýrendur segja það því kaldhæðnislegt að tregða hans til að refsa embættismönnum CIA skuli hafa orðið honum að falli. Ames var yfirmaður Sovétdeildar gagnnjósna CIA og lengi hafði ver- ið vitað að hann ætti við persónuleg vandamál að stríða, auk þess sem ríkmannlegur lífsmáti hans var grunsamlegur. Hann var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrr á árinu fyrir að láta Sovétmönnum og Rússum í té leynilegar upplýsingar í hartnær níu ár. Fyrir það þáði hann meira en tvær milljónir dala, jafnvirði tæpra 140 milljóna króna. Talið er að upplýsingarnar frá honum hafi kostað að minnsta kosti tíu njósn- ara á vegum CIA lífið. Lét áminningar nægja Woolsey neitaði að verða við kröfum frá almenningi og banda- rískum þingmönnum um að refsa embættismönnum, sem bæru ábyrgð á njósnahneykslinu. Hann veitti hins vegar sjö fyrrverandi og fjórum núverandi embættismönn- um CIA skriflega áminningu. Woolsey lét svo um mælt að það hefði verið hyggilegt af pólitískum ástæðum að reka embættismenn- ina fjóra sem enn starfa fyrir CIA en kvaðst hafa hafnað þeim mögu- leika þar sem það hefði ekki verið sanngjarnt. Patrick Leahy, fyrrverandi vara- formaður leyniþjónustunefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings, sagði í viðtali við útvarpsstöðina Voice of America að Woolsey hefði sýnt alltof mikla linkind í Ames- málinu, miðað við umfang þess. „Það að veita embættismönnun- um skriflega áminningu, og ef til vill að hindra stöðuhækkanir, var var langt frá því að nægja,“ sagði Leahy. „Málið hlaut að kalla á alls- heijaruppstokkun innan margra deilda stofnunarinnar." Stansfield Turner, sem var yfir- maður CIA á valdatíma Jimmy's Carters, sagði hins vegar í viðtali við Voice of America að Woolsey hafi verið í mjög erfiðri stöðu. „Annars vegar kröfðust þingmenn og almenningur harðra refsinga. Hins vegar hefur lengi ríkt sú hefð innan CIA að varast refsingar, embættis- mennirnir hafa mjög lengi haft það hugarf- ar að þeir viti allt best og njóti forréttinda. Að mínu mati má draga þann lærdóm af afsögn Woolseys að við verðum að tryggja að þetta hugarfar breyt- ist.“ Óvinirnir færri Woolsey tók við embættinu þegar stjórn Clintons var að endurskoða utanríkisstefnu Bandaríkjanna og hlutverk leyniþjónustunnar við mótun hennar. Síðustu áratugi hef- ur CIA einbeitt sér að baráttunni gegn kommúnismanum en Turner segir að eftir endalok kalda stríðs- ins hljóti leyniþjónustan að hafa meiri áhuga á að safna upplýsing- um um ríki sem kunni nú að vera vinsamleg Bandaríkjunum. „Þegar beitt er njósnurum er hætta á að upp komi vandræðaleg staða ef verið er að njósna um eitt- hvert ríki sem er að minnsta kosti sæmilega vinsamlegt,“ sagði Turn- er. „Núna eru aðeins tvö, þijú eða fjögur ríki sem eru yfirlýstir óvinir Bandaríkjanna. Þess vegna beita menn njósnurum með miklu var- færnislegri hætti núna til komast hjá því að verða staðnir að njósnum um vinaþjóðir." Woolsey hafði lagt áherslu á hættuna á að hermdarverkamenn kæmust yfir kjarna-, sýkla- og efnavopn. Woolsey sætti einnig gagnrýni vegna andstöðu sinnar við að fjár- framlögin til CIA yrðu minnkuð, en þau eru nú um 30 milljarðar dala á ári, meira en 2.000 milljarðar króna. Þingmenn gagnrýndu hann einn- ig vegna leynilegrar skrifstofubyggingar í Virginíu sem kostaði 310 milljónir dala, 21,4 milljarða króna. Byggingin þykir alltof stór. Embættismenn- ■ i Hvíta húsinu sögðu að Bill Clinton forseti hefði ekki óskað eftir afsögninni en hún hefði þó ekki komið þeim á óvart. Heimildarmenn Jteuters-fréttastof- unnar sögðu að forsetinn hefði í nokkra mánuði haft hug á að fá nýjan mann í starfið og svo hefði farið að lokum að Woolsey hefði glatað stuðningi í helstu valda- stofnunum stjórnkerfisins. Deutch líklegur eftirmaður Bandarískir þingmenn, jafnt demó- kratar sem repúblikanar, fögnuðu ákvörðun Woolseys. Helsti and- stæðingur hans, Dennis DeConcini, formaður leyniþjónustunefndar öldungadeildarinnar, sagði að Clinton fengi nú tækifæri til að tilnefna mann sem hefði „raunveru- legan hug á að breyta starfsemi CIA“. Að sögn dagblaðsins San Francisco Chronicle er John Deutch aðstoðarvarnarmálaráðherra lík- legastur til að verða fyrir valinu sem eftirmaður Woolseys. Hann mun hins vegar hafa sett sem skil- yrði að fá reglulega fundi með for- seta Bandaríkjanna en slíkan að- gang tókst Woolsey ekki að tryggja sér. James Woolsey ^ Macintosh Performa 475 er öflug einkatölva, sem hentar sérlega vel hvort heldur er fyrir heimili, skóla eða fyrirtæki. Macintosh Performa 475 er með 15" Apple-litaskjá, stóru hnappa- borði, mús, 4 Mb vinnsluminni og 250 Mb harðdiski. [E jrrfrnf'ymTi TIL ALLT AÐ 36 MANAOA VISA RAÐGREIOSLUR Þá kemur aðeins ein tölva til greina: Macintosh Performa 475 Apple-umboðið hf. Skipholti 21, sími: (91) 62 48 00 Macintosh Performa 475 kostar aðeins 125.263,- kr. 119*000," kr stgr 4 242 - eöa JL»átá kr.* á mánuði í 36 mán. wmmmmm imipii ■ — * * * * - 5i., . .. i i i ' '■ i l \ M \ \ 1 Upphæðin er meðaltalsgreiSsla meS vöxtum, lántökukostnaSi og færslugjaldi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.