Morgunblaðið - 31.12.1994, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 31.12.1994, Blaðsíða 22
22 B LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ HVAÐ SEGJA ÞEIR UM ÁRAMÓTIN? Forsvarsmenn ýmissa hagsmuna- og heildarsamtaka í samfélaginu horfa um öxl o g fram á veg hér á síðum blaðsins í tilefni áramóta. Haukur Halldórsson, formaður Stéttar- sambands bænda Bændur hafa lagt hart að sér - til að lækka verð á landbúnaðar- afurðum ÁRIÐ sem nú er að líða hefur verið viðburðaríkt hjá bændum enda hafa þeir tekið margar ákvarðanir sem munu hafa áhrif á þróun land- búnaðarins næstu árin og áratug- ina. Þannig var unnið markvisst að sameiningu Stéttarsambands bænda og Búnaðarfélags íslands, en þessi tvö samtök munu renna í eitt í upphafi nýs árs. Þessi samein- ing er eitt af mörgum skrefum sem bændur hafa tekið til að mæta nýj- um tímum - aukinni samkeppni og viðhorfum. GATT samkomulagið er nú innan seilingar og þær ráðstaf- anir sem bændur hafa þegar gert munu auðvelda þeim að mæta harðnandi samkeppni erlendis frá. íslenskur landbúnaður hefur gengið í gegnum mikla þrengingar- tíma undanfarin misseri. Það sem áður hvíldi á bjargi stöðugleika og festu gerir það ekki lengur. Breyt- ingar gerast ört og þær krefjast aðgerða og endurmats á flestu er lýtur að skipulagi og framleiðslu- háttum landbúnaðarins. Rauði þráðurinn í þeim breytingum er hagræðing til að bæta samkeppnis- stöðu bænda í harðnandi rekstrar- umhverfi og leit að nýjum sóknar- færum. Mun lægra verðtil framleiðenda Áður en lengra er haldið er rétt að benda á eftirfarandi, sem sýnir glögglega hvað bændur hafa lagt á sig til að lækka verð á landbúnaðar- afurðum. í mörgum tilfellum hefur orðið um að ræða hreina tekjulækk- un. Hér á eftir má sjá nokkur dæmi um þróunina á verði til framleið- enda á árunum 1989 fram til ágúst 1994: * Verð á lambakjöti hefur lækkað um u.þ.b. 14%. * Verð á mjólk hefur lækkað um u.þ.b. 15%. * Verð á kjúklingum hefur lækkað um u.þ.b. 22%. * Verð á eggjum hefur lækkað um u.þ.b. 29%. * Verð á svínakjöti hefur lækkað um u.þ.b. 32%. * Verð á nautakjöti hefur lækkað um u.þ.b. 40%. Árið 1980 var ijöldi sauðfjár um 900 þúsund en er nú tæplega 500 þúsund. Lækkað vöruverð landbún- aðarafurða hefur sannarlega komið íslenskum neytendum til góða, en útgjöld meðalfjölskyldu vegna kaupa á matvöru hafa lækkað um- talsvert á fáum árum. Þannig fóru 32% af ráðstöfunartekjum vísitölu- íjölskyldunnar í matarinnkaup árið 1965, en 1. september 1994 hafði þessi tala lækkað í 16,1% og er nú sambærileg við það sem gerist og gengur hjá nágrannaþjóðunum. Bændur hafa mátt þola mun meiri tekjuskerðingu en aðrir hópar þjóð- félagsins, en sjaldan er minnst á þá staðreynd. Endurskipulagning landbúnaðar- ins felst ekki aðeins í fækkun sauð- fjár heldur líka í fækkun afurða- stöðva - sem dæmi má nefna að nýbúið er að ákveða að leggja niður mjólkurbúið í Borgarnesi og á næstu árum mun sláturhúsum og mjólkursamlögum fækka enn frek- ar. Þetta ásamt mörgu öðru mun enn lækka vinnslukostnaðinn sem í mörgum tilvikum er of hár hér á landi miðað við nágrannalöndin. Það er eðlilegt að fólk fyHist svartsýni þegar afkomugrundvelli þess er raskað eða jafnvel koll- steypt, en í hruninu leynist oft fijó- magn nýrrar uppbyggingar. Þannig er það með íslenskan landbúnað. Ég trúi því að hann sé nú að rétta úr kútnum, en það er ekki fyrir atbeina annarra en bænda sjálfra. Þeir þekkja sinn vitjunartíma sem er meira en hægt er að segja t.d. um marga íslenska stjórnmálamenn sem helst vilja landbúnaðinn feigan og hefja ótakmarkaðan innflutning landbúnaðarafurða. Það hlálega við afstöðu þessara manna er sú stað- reynd að þeir vilja að íslenskur land- búnaður standi einn og óstuddur meðan lanbúnaður í samkeppnis- löndum okkar nýtur umtalsverðra styrkja. Sameiningarmálið Það mál sem brann heitast á bændum á árinu var sameining hagsmunasamtaka þeirra. At- kvæðagreiðsla um könnun á afstöðu bænda til sameiningar Stéttarsam- bandsins og Búnaðarfélagsins fór fram í tengslum við sveitarstjómar- kosningarnar í vor sem leið. Þátt- taka var mjög mikil eða um 81% þeirra sem á kjörskrá voru. Af þeim sem afstöðu tóku sögðu 87,7% já, en nei sögðu 12,3%. Þessi niður- staða styrkti mjög þá aðila sem hafa unnið þrotlaust að sameining- unni sem mun auðvelda enn aðlög- un íslensks landbúnaðar að þeim raunveruleika sem við blasir. Til þess að landbúnaðinum takist farsællega að fóta sig í breyttu starfsumhverfi er bændum nauð- synlegt að hafa með sér öflug sam- tök sem á skilvirkan hátt vinna að hagsmunamálum þeirra. Ný bændasamtök, sem formlega verða til í mars, geta gert það á sómasam- legan hátt. Eitt af því sem ný samtök bænda verða að láta meira til sín taka er sala og markaðssetning ýmissa búvara, en þar hefur sums staðar ríkt ringulreið með undirboðum í verði, greiðslufrestun og stórfelldu tapi fjármuna í viðskiptum við heild- sala og smásala sem hafa orðið gjaldþrota. Ætla verður að samein- uð samtök bænda hafi meira afl til að sveigja þessi mál inn á rétta braut en margskipt samtök auk þess sem þeir fjármunir sem bænd- ur veija til hagsmunabaráttu sinn- ar, hljóta að nýtast betur í einum heildarsamtökum en tvennum og auðveldara verður að koma við sparnaði. Hagsmunir neytenda felast ekki í því að bændur undirbjóði hver annan. Kollsteypur í landbúnaði munu ekki koma neytendum til góða þegar til lengri tíma er litið - og aum er sú þjóð sem ekki getur framleitt bróðurpart þeirra mat- væla sem hún neytir. Samkeppni er af hinu góða en á því sviði höfum við íslendingar gengið skrefi lengra en við hefðum átt að gera. Taumlaus samkeppni skaðar jafnt_ landbúnaðinn sem og neytendur. Á þróuðum mörkuðum eins og í Bandaríkjunum komast menn ekki upp með stjómlaus und- irboð, þar er venjulega gripið til aðgerða til að koma í veg fyrir slíkt. Ymsir fögnuðu t.d. undirboðum kartöflubænda í haust - töldu að loks væri. eðlileg samkeppni að sjá dagsins ljós. En eðlileg samkeppni felst ekki í að sem flestir verði gjald- þrota. Menn verða að horfa til fram- tíðar og átta sig á hvert þeir ætla að stefna og að þjóðfélagið í heild hagnist og atvinna aukist. Þar get- ur landbúnaðurinn leikið stórt hlut- verk. GATT og íslenskur landbúnaður Margar þeirra breytinga sem átt hafa sér stað í landbúnaðarmálum á liðnum árum hafa undirbúið jarð- veginn fýrir gildistöku GATT-sam- komulagsins. Megin atriði samn- ingsins sem snerta landbúnaðinn er að innflutningur búvara verður fijáls nema þar sem heilbrigðisregl- ur takmarka, en heimilt verður að leggja á jöfnunartoll, þ.e.a.s. svo- kölluð tollaígildi sem mega nema mismun á svokölluðu meðalheims- markaðsverði ársins 1988 og heild- söluverði innanlands. Ákvæði eru um lágmarks innflutning og lækkun tollaígilda, útflutningsbóta og innra stuðnings á aðlögunartímanum, sem er sex ár. Með GATT-samkomulaginu er ekki verið að leggja af íslenskan landbúnað - vandinn felst miklu fremur í þeirri staðreynd að allt er á huldu um það hvernig stjórnvöld taka á framkvæmd samningsins, hvernig beitt verður heimildum um álagningu tollaígilda og hvernig staðið verður að framkvæmd lág- marks innflutnings. Þegar sumir stjórnmálamenn ræða um 500 til 700% tolla reyna þeir að gera tollverndina tortryggi- lega. Sannleikurinn er sá að toll- vemdin getur aldrei orðið hærri en verð vörunnar var framreiknað frá 1988 og skal síðan lækka í áföngum á hveiju ári til aldamóta - að meðal- tali 6% á ári. Hin háa tollprósenta byggist á því að til viðmiðunar er notað lægsta heimsmarkaðsverð sem fundist hefur í viðskiptum á viðkomandi ári, en oftast eru innan við 1% af búvörum seldar á slíku verði milli landa. Tilgangurinn með GATT-samn- ingum er að stuðla að raunhæfari verðmyndun á búvörum. Slíkt getur verið jákvætt fyrir íslendinga sem matvælaframleiðsluland. íslending- ar hafa gengið lengra í lækkun útflutningsbóta og innri stuðnings en flestar aðrar þjóðir. Því hlýtur það að teljast eðlileg krafa af hálfu bænda að tollvemdinni verði beitt að því hámarki sem samningurinn gerir ráð fyrir. í þessu sambandi má nefna þá útfærslu á GATT- samningum sem Norðmenn hafa þegar ákveðið. Ef íslensk stjómvöld móta ekki heilsteypta stefnu nú þegar í þess- um málaflokki getur slíkt haft af- drifaríkar afleiðingar. Til móts við framtíðina Enda þótt breytingum í íslensk- um landbúnaði sé hvergi nærri lok- ið er rétt að meta hvaða kostir eru framundan og hvaða leið menn vilja fara til þess að ná s§ttu marki. Enginn vafi er á því að hreinleiki íslenskrar náttúru og sérstök gæði íslenskra búvara geta skapað lands- mönnum sérstæða markaðssetn- ingu sem er á grundvölluð á holl- ustu, gæðum og vistvænum bú- skaparháttum. Eftirspurn eftir vistvænum og lífrænum afurðum fer nú ört vax- andi í Evrópu, Bandaríkjunum og Japan svo dæmi séu tekin. Kaup- endur eru þjóðfélagshópar sem hafa mikla kaupgetu og er verðlag slíkra matvæla verulega hærra en ann- arra. Islenskir bændur verða að skoða mjög vel hvort þeir eiga möguleika á hinum sérhæfðu mörk- uðum þar sem gæði og hreinleiki matvæla eru metin umfram annað. Enda þótt gæði og heilnæmi ís- lenskra búvara séu mikil er margt sem á skortir í framleiðslu, vöruþró- un og markaðssetningu þegar um er að ræða að keppa á mörkuðum eins og hér um ræðir. Bændur hafa fram til þessa haft tilhneigingu til að framleiða eitthvað sem aðrir eiga að selja. Þessu verður að breyta - og það er að gerast hægt og bít- andi. Landsmenn verða að venja sig af þeirri hugsun að útflutningur búvara sé í því fólginn að losna við umframframleiðslu og leysa vand- ræði. Þeir verða að fara að fram- leiða til útflutnings ef mörgulegt á að vera að ná árangri á því sviði. „Frá jörðu til borðs“ Erlendir kaupendur á þeim mark- aði sem hér um ræðir gera miklar kröfur - og þær þarf að uppfylla. Koma þarf á gæðastjórnun allt frá upphafí til þess að varan hafnar á borði neytandans. Á stundum hef ég nefnt þennan feril „frá jörðu til borðs". Mikilvægt er að hafa í huga að hér er um að ræða langtímaverk- efni sem leysir ekki vanda dagsins í dag heldur gæti farið að skila árangri eftir þijú til sjö ár. Þetta er langur tími - ekki síst fyrir stétt sem hefur mátt þola ótrúlegar þrengingar, bragðbættar með skammsýnum stjórnmálamönnum. íslendingar hafa allt til að bera svo þeir verði leiðandi í framleiðslu á úrvals landbúnaðarafurðum. Landið er hreint og hér býr mennt- að fólk sem kann til verka. Íslensk- ur landbúnaður getur lyft grettis- taki og orðið einn af máttarstólpum í útflutningi, en það verður ekki nema stjórnvöld komi nú þegar til móts við bændur og aðstoði þá við að ná fótfestu á erlendum mörkuð- um. ísland á að marka sér sess sem ómengað land. Þetta kostar sam- vinnu ótal aðila og skiptir þá ekki máli hvort rætt er um landbúnað, sjávarútveg, heilbrigðis- og ferða- þjónustu. Bændur eiga að taka for- ystuna í þessum málum - og það munu þeir gera. Magnús Oddsson ferðamálastjóri Meiri um- svif í ferða- þjónustu en nokkru sinni fyrr ÞEGAR þeir, sem starfa við ferðaþjónustu á íslandi, líta yfír árið sem er að líða og freista þess að meta árangurinn verður niður- staðan mismunandi eftir fyrirtækj- um, landshlutum og fleiru. Þegar hins vegar er litið á fyrirliggjandi upplýsingar um heildarárangur er Ijóst að umsvifin hafa aldrei verið meiri en í ár. Erlendir gestir, sem heimsækja okkur á þessu ári, verða um 180.000 eða nærri 15% fleiri en árið áður og hafa aldrei fyrr verið svo margir á einu ári. Aukningin nemur um 25% á síðastliðnum 2 árum. Hingað komu því að meðal- tali 500 erlendir gestir hvern ein- asta dag ársins. Þessu til viðbótar komu hingað 17.662 ferðamenn með skemmtiferðaskipum í alls 38 ferðum og hafa þeir aldrei verið fleiri og hefur fjölgað um 50% á síðastliðnum 2 árum. Þá er ekki síður athyglisvert að á árinu mun um helmingur erlendu gestanna eða um 90.000 þeirra koma utan hins svonefnda hefð- bundna ferðamannatíma. Hér er að skila sér árangur af nýjum áhersl- um í vöruþróun og markaðssetn-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.