Morgunblaðið - 31.12.1994, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 31.12.1994, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1994 B 25 Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands ísl. útvegsmanna Umgengnin við sjávar- auðlindina í UPPHAFI þessa árs kom til alvarlegra átaka milli sjómanna og útgerðarmanna um kjaramál. Verkfall hófst um áramót og því lauk með útgáfu bráðabirgðalaga 17. janúar. I framhaldi af þessari deilu setti Alþingi ýmis ákvæði í lög um samskipti sjómanna og út- vegsmanna er varðar aflaheimildir. Lögin sem bönnuðu verkföll og verkbönn giltu til 15. júní. Fljótlega eftir það hófust viðræður við sjó- mannasamtökin um gerð nýrra kjarasamninga. Ekki tókst að fá öll samtök sjómanna að samninga- borði þrátt fyrir að kjarasamningar þeirra byggist á sömu hlutaskipta- reglum. Lauk viðræðum með því að LÍÚ og Sjómannasambandið undirrit- uðu kjarasamning í lok september sem átti að gilda út næsta ár. Að sögn forsvarsmanna Sjómanna- sambandsins beittu forystumenn FFSÍ og Vélstjórafélags íslands sér fyrir því að samningarnir væru felldir í sjómannafélögunum. Fór svo að þeir voru felldir í 18 sjó- mannafélögum af 36. Að þessari niðurstöðu fenginni taldi stjórn LÍÚ að ekki hefði feng- ist niðurstaða með þessari samn- ingagerð og felldi samningana. Er nú óvissa um framhaldið og er óskandi að því sundurlyndi ljúki sem verið hefur milli sjómannasam- takanna innbyrðis og að yfirmenn á fiskiskipum verði raunhæfari í kjaraviðræðum en verið hefur. Hagur sjávarútvegsins um þess- ar mundir markast af þrennu: Minnkandi þorskkvóta, lágu af- urðaverði erlendis og miklum skuldum. Afkoma þeirra báta og togara sem stunda hefðbundnar botnfiskveiðar fyrir fiskvinnslu í landi er mjög erfið. Afkoma frysti- togara og loðnuskipa er aftur á móti talin lofa góðu en það byggist á því að loðnuveiðar bregðast ekki í vetur. Það er sérstakt áhyggju- efni hversu illa hefur gengið að finna loðnu síðustu þrjá mánuði. Það veltur á miklu fyrir loðnuút- gerðina og fiskvinnsluna að loðnu- og loðnuhrognafrysting takist jafn vel í byijun næsta árs eins og í ár. Síldveiðar hafa gengið vel síð- ustu mánuði og gott samstarf hef- ur tekist á milli útgerðar og fisk- vinnslu um nýtingu síldar til mann- eldis þótt verð á síld sé lágt. Veiðar á úthafskarfa hafa vaxið mikið og veiddust um 56 þúsund lestir á árinu. Skipta þær veiðar miklu um afkomu frystitogaranna, en þær hafa nær eingöngu verið stundaðar á þeim skipum. Þorsk- veiðar í Smugunni jukust úr 11 þúsund lestum í 35 þúsund lestir. Staða sjávarútvegsins og þjóðar- búsins væri önnur og verri ef ekki hefði komið til veiða á úthafskarfa og þorskveiða í Smugunni. Rækju- veiðar hafa gengið vel í ár. Verð hefur hækkað og kvóti úthafsrækju var aukinn um 15.000 tonn og er nú 63 þúsund lestir eða sá hæsti frá upphafi þessara veiða. í heild er sjávarútvegurinn talinn . vera rekinn án hagnaðar um þessar mundir. Fiskverð á mörkuðum erlendis hefur verið lágt undanfarin miss- eri, en nú eru teikn á lofti um að botninum sé náð og fiskverð fer frekar hækkandi. Batnandi efna- hagsástand í helstu viðskiptalönd- um okkar í Evrópu og Bandaríkjun- um vekur vonir um að fiskverð muni hækka í kjölfarið. Það hefur aukið erfiðleika greinarinnar að samfara minnkandi veiðiheimildum hefur verðlag fiskafurða verið lágt og þrátt fyrir nokkra hækkun er langur vegur í að það nái meðal- verði undanfarinna fimm ára. Skuldastaða margra útgerða er erfið. Við ríkjandi aðstæður er lítil von til þess að hægt sé að grynnka á skuldum útgerðarinnar. Þvert á móti er í mörgum tilfellum um skuldaraukningu að ræða. Þegar svo er komið er það á ábyrgð stjóm- enda í viðkomandi útgerðum að taka ákvörðun um framhald rekstr- arins í samráði við lánardrottna. Fiskveiðasjóður hefur ákveðið að veita bátaflotanum sérstaka lána- fyrirgreiðslu til þess að mæta afla- samdrætti síðustu þriggja ára. Það er viðleitni til að hjálpa lífvænleg- um útgerðum yfir þetta sam- dráttarskeið. Þegar Þróunarsjóður sjávarút- vegsins tók til starfa um mitt þetta ár var hækkað það hlutfall af vá- tryggingarverði skipa sem útgerðir eiga kost á að fá greitt við úreld- ingu skipa eða úr 30% í 45%. Með þessari breytingu jókst áhugi margra útgerða á úreldingu. Er nú svo komið að stjóm sjóðsins hefur samþykkt að greiða 3.224 milljónir króna vegna úreldingar 164 þilfars- skipa og 94 milljónir króna vegna 92 opinna báta. Ekki er líklegt að af úreldingu allra þessara skipa verði, en eigi að síður er hér um verulega aukningu að ræða. Þess misskilnings virðist gæta að um sé að ræða styrk úr ríkissjóði, en svo er ekki, því þeim sem gera út á næstu árum er ætlað að greiða þennan kostnað. Æskilegra væri að miða úreld- ingarstyrk við rúmmál í stað verð- mætis. Við þær aðstæður myndu elstu skipin hverfa í stað nýjustu skipanna eins og nú virðist eiga sér stað. Hugmyndir um breytingar á þessu fyrirkomulagi hafa ekki náð eyram stjórnvalda. Þorskstofninn, sem er okkar mikilvægasti fiskistofn, er nú með allra minnsta móti svo að í óefni stefnir. Að óbreyttum ársafla er þess ekki að vænta að stofninn geti rétt úr kútnum nema á mörg- um árum og gæti eins minnkað ef magn loðnu, aðalfæðu þorsksins, minnkar. Æskileg stofnstærð sem gæfi hagkvæma nýtingu er u.þ.b. 1,5 milljón tonn, en núverandi stofnstærð er metin innan við 600 þúsund tonn. Vantar því mikið upp á að núverandi stofnstærð sé í lagi. Orsakir þessa eru miklar veiðar á ungum fiski árin 1987-1989 úr síðustu tveimur stóru árgöngunum (árg. frá 1983 og 1984) sem þessi stofn hefur getið af sér. Hrygning- arstofn er nú talinn mjög lítill og hefur verið lítill allar götur frá 1980. Líkur á stórum árgangi eru taldar mun minni úr litlum hrygn- ingarstofni en stórum. Einnig er talið að lífslíkur afkvæma eldri fiska séu mun meiri en lífslíkur afkvæma yngri fiska. Það er því verulegt áhyggjuefni að ekki ein- asta eru horfur á að hrygningar- stofn þorsksins verði lítill áfram heldur er hann einnig samsettur af sífellt yngri fiskum sem ekki eru líklegir til að geta af sér stóran stofn. Sjómenn hafa að undanförnu sagt að aflabrögð í þorski hafi glæðst og sumir hafa sagt að ekk- ert hamli þorskveiðum annað en vöntun á kvóta. Það er reyndar ekki að undra að þorskafli glæðist nokkuð um þessar mundir. Bæði hefur stofninn fengið nokkurn frið á meðan flotinn hefur einbeitt sér að öðrum veiðum, og eins hafa verið að koma inn í veiðistofninn tveir skárstu árgangarnir, frá 1989 og 1990, í röð 10 lélegra árganga (1985-1994). Þessir tveir skárstu árgangar eru u.þ.b. 2/3 af stærð meðalárgangs hvor, í fjölda ein- staklinga talið. En hætt er við að skárri aflabrögð. muni reynast skammgóður vermir, því að í kjöl- farið kemur lélegasti árgangur sem sést hefur í stofninum frá því að mælingar hófust, 1991-árgangur- inn, sem talinn er einungis ‘/3 af meðalárgangi. Það er því nauðsyn- legt að fara ekki of geyst í veiðar úr skárri árgöngunum tveimur á undan, því að vart er um aðra fiska að ræða sem efling þorskstofnsins gæti byggst á. Þurfa nú allir að leggjast á eitt við að umgangast auðlindina af skilningi um nauðsyn uppbygging- ar stofnsins og láti það ekki koma til álita að henda fiski í sjóinn, sem veiddur hefur verið. Allir, sem hafa lífsviðurværi sitt af sjósókn, verða að taka höndum saman og sýna gott fordæmi í umgengni um auð- lindina í sjónum, því lífskjör næstu kynslóða munu ráðast af því hvern- ig til tekst. Haraldur Sumarliða- son, formaður Samtaka iðnaðarins Ramminnn og raun- veruleikinn ÞEGAR litið er yfir árið sem er að líða þá ber hæst að nú virðist efnahagslægðin vera að renna sitt skeið á enda. Hún hefur varað sam- fleytt í sex ár og reynt verulega á þolrif heimila og fyrirtækja. Iðnað- urinn hefur ekki farið varhluta af þessari lægð, en hann hefur þurft að þola verulega þyngri búsifjar en samdráttur í landsframleiðsiu gefur tilefni til. Um þessar mundir eru ýmis já- kvæð teikn á lofti. Veltutölur benda til að umsvif í atvinnulífinu séu að aukast og útflutningur hefur einnig aukist verulega miðað við árið á undan. Þessu til viðbótar sýnir könnun sem Þjóðhagsstofnun gerði fyrir Samtök iðnaðarins á afkomu í almennum iðnaði að nokkur bata- merki eru í rekstri hans. Hagnaður nemur nú um 3,5 prósent af tekjum en á sama tíma í fyrra var rekstrar- halli sem nam um 1 prósenti og hefur svo verið undanfarin ár, að almennt hafa iðnfyrirtæki verið rekin með halla. Við þessi batnandi starfsskilyrði hefur byggingariðnaður nokkra sérstöðu. Þar eru nú miklir og vax- andi erfiðleikar og fyrirsjáanlegur verkefnaskortur næstu misseri að óbreyttu. Hinn almenni bati í efnahagslíf- inu grundvallast á þeim stöðugleika og þeim hagstæðu rekstrarskilyrð- um sem hafa skapast á síðustu árum. Lækkandi raurigengi, lítil verðbólga, lægri 'vextir og minni skattar á fyrirtæki hafa myndað skilyrði fyrir bættri afkomu og auknum umsvifúm auk efnahags- batans í umheiminum. Hagstæð þróun raungengis hef- ur styrkt samkeppnisstöðu útflytj- enda gagnvart erlendum keppi- nautum og gert þeim kleift að bjóða vöru sína á samkeppnishæfu verði. Þannig hefur þessi jákvæða þróun átt sinn þátt í því að auka útflutn- ingstekjur íslendinga og stuðla að afgangi á viðskiptum við önnur lönd. Ef raungengi verður haldið í skefjum þegar fram líður má búast við frekari markaðssókn og land- vinningum hjá íslenskum útflytj- endum. Auk þess tryggir það þann árangur sem þegar hefur náðst. Ef hinsvegar raungenginu verður leyft að ijúka upp með gamla lag- inu þegar kominn er skriður á upp- sveifluna í þjóðarbúskapnum, miss- um við fljótt niður þann árangur sem náðst hefur með ærinni fyrir- höfn. Viðsnúningurinn nú er ánægju- leg þróun sem sýnir að iðnaður á íslandi hefur nýtt sér sóknarfærin. En það er engu að síður ástæða til að hafa uppi varnaðarorð og minna á að batinn stendur veikum fótum. Það má lítið útaf bera til að það glatist sem áunnist hefur ef ekki er farið að með gát. Auk þess er enn langt í það að iðnaður- inn nái fullum styrk, eftir þá erfið- leika sem hann hefur búið við und- anfarin ár. Nú eru framundan almennir kjarasamningar í landinu. Það deil- ir enginn um að gott væri að allir gætu fengið mikla launahækkun og vissulega þurfa margir á því að halda, en við getum ekki litið fram- hjá þeim veruleika sem við stöndum frammi fyrir. Miklar hækkanir nú eru ávísun á aukna verðbólgu og rof stöðugleikans til tjóns fyrir alla. Við getum ekki ákveðið með samn- ingum hvað mikið er til skiptanna. Við verðum að halda okkur við þann ramma sem raunveruleikinn markar okkur og semja um hækk- anir sem raska ekki jafnvæginu. Ef fótunum er kippt undan stöðug- leikanum nú, með óraunhæfum samningum, þá óttast ég skelfíleg- ar afleiðingar fyrir þjóðarbúið. Hvernig framtíð bíður þá þessarar þjóðar? Atvinnulífið getur ekki vax- ið og dafnað við þau skilyrði, og hvernig meðal er það í viðureign- inni við atvinnuleysið? Það mun væntanlega skýrast á næstu vikum hvort okkur íslend- ingum tekst að nýta okkur stöðug- leikann til aukins hagvaxtar, eða hvort við fórnum honum fyrir óljósa skammtímahagsmuni sem ekki eiga sér stoð í raunveruleikanum. Þá fara fyrir lítið þau hagstæðu rekstrarskilyrði sem hafa verið mynduð hér og eru forsenda þess að takast megi að skapa allan þann fjölda nýrra starfa sem þörf er fyr- ir á næstu árum. Áframhald batans og hagvöxtur næstu árin kemur með öðrum orðum til með að ráð- ast af niðurstöðu komandi kjara- samninga og því hvemig til tekst með hagstjóm. Því má ljóst vera að þýðingarmikil og brýn viðfangs- efni bíða úrlausnar á árinu sem fer í hönd. Um þessi áramót er eitt ár liðið síðan sex helstu samtök iðnaðar í landinu lögðu niður starfsemi sína og sameinuðust með stofnun Sam- taka iðnaðarins. Óhætt er að full- yrða að sú stutta reynsla sem kom- in er á starfsemi hinna nýju Sam- taka bendir eindregið til þess að ákvörðunin um að sameinast í ein heildarsamtök var bæði tlmabær og skynsamleg. Öll höfðu eldri sam- tökin meira og minna verið að vinna að sömu málefnum, þ.e. almennri hagsmunagæslu iðnaðar og at- vinnulífs. Hér var því um að ræða meiriháttar hagræðingu og sparn- að. Það sem mestu skiptir er þó að eftir standa öflugri samtök sem hafa burði til að vinna skipulegar og af meiri þrótti að þeim málum sem mesta þýðingu hafa fyrir iðnaðinn. Með breiðri samstöðu og skipulegum aðgerðum hefur á einu ári tekist að móta hin nýju samtök í þeim anda sem að var stefnt, þ.e. raunveruleg heildarsamtök iðn- aðarins í landinu. í því ljósi mun ársins 1994 verða minnst sem tíma- mótaárs í sögu iðnaðar á íslandi. Ég vil að lokum þakka félögum Samtaka iðnaðarins ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða og óska þeim og landsmönnum öllum velfarnaðar á komandi ári. Arnar Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðva Fisk- vinnslan um áramót ÞEGAR leggja skal mat á rekst- ur og afkomu sjávarútvegsins á árinu 1994 verður niðurstaðan. mjög misjöfn eftir einstökum grein- um. Rúmlega helmings samdráttur í þorskafla undanfarin sjö ár hefur komið fjölda fyrirtækja í þrot á síðustu misserum. Þorskafli hér við land er áætlaður 170 þúsund tonn á þessu ári, en var 251 þúsund tonn árið 1993 og 390 þúsund tonn árið 1987. En það hafa ekki ein- göngu verið dapurleg tíðindi í sjáv- arútvegi á þessu ári. Stórauknar úthafsveiðar okkar á Reykjanes- hrygg, í Smugunni og á Flæmska hattinum, ásamt mikilli loðnuveiði og vinnslu fyrr á þessu ári, hafa skipt sköpum í rekstri margra fyrir- tækja. Þessu til viðbótar má nefna stórauknar veiðar og vinnslu á rækju. Verðþróun á sjávarafurðum hefur í heild sinni verið heldur hag- stæð á árinu. Verðlag á sjávaraf- urðum hefur hækkað á sl. 12 mán- uðum um 4-5% hvort sem mælt er í ísl. krónum eða SDR. Aftur á móti eru verðbreytingar mjög mis- jafnar á milli vinnslugreina. Þannig hefur verð á landfrystum afurðum staðið í stað en verð á saltfíski og rækjuafurðum hefur hækkað um- talsvert síðari hluta ársins. Verð á loðnulýsi og mjöli er jafnan nokkuð sveiflukennt, lýsisverð lækkaði sl. vor en mjölverðið er svipað og í upphafi árs. í ársbyijun tók EES- samningurinn gildi sem hefur bætt samkeppnisaðstöðu okkar á Evr- ópumarkaði. Þá hefur mjög lítil verðbólga einnig hjálpað til en hún er nú lægri hér en í okkar helstu viðskiptalöndum. Heildarafli í ár verður tæplega 1500 þúsund tonn, þar af rúmlega 750 þús. tonn loðna, liðlega 500 þús. tonn af botnfiski, tæp 150 þús. tonn af síld, rúm 70 þús. tonn af rækju og um 10 þús. tonn af hörpudiski og humri. Árið er ná- lægt meðaltali í heildarafla undan- farinna ára og jafnframt hefur orð- ið talsverð aukning í útflutnings- verðmæti sjávarafurða í fsl. kr. á milli ára. En hafa verður I huga áhrif gengislækkunar í júní 1993. Eftir sem áður stendur óleystur hinn geigvænlegi vandi þeirra fyrir- tækja og byggðarlaga sem byggja nær alla sína afkomu á veiðum og vinnslu á þorski. Minnkandi þorskafli og hækkað hráefnisverð Samdráttur í þorskafla hefur leitt til verulegra hækkana á hrá- efnisverði til vinnslunnar á þessu ári. Þannig er áætlað að hráefnis- verð til botnfiskvinnslu verði að meðaltali 10% hærra á þessu ári en árið 1993. Nokkur fiskvinnslu- fyrirtæki hafa reynt að bæta sér -upp samdrátt í þorskafla með kaup- um á innfluttu hráefni. Áætlað er að 13 þúsund tonn af þorski hafi verið flutt inn af erlendum veiði-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.