Morgunblaðið - 31.12.1994, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 31.12.1994, Blaðsíða 24
24 B LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Benedikt Davíðsson, forseti Alþýðu- sambands Islands Kjaravið- ræður und- ir jákvæð- um for- merkjum ÞEGAR litið er yfir farinn veg á . liðnu ári ogjafnvel allargötur síðan á vordögum 1993 þegar síðast voru gerðir kjarasamningar á almennum vinnumarkaði, þá verður maður nú þrátt fyrir allt að gleðjast svolítið yfir því að nú virðist nokkuð bjart- ara framundan en menn óttuðust þá að verða myndi við þessi tíma- mót. Á þeim tíma var áætlað að þjóðartekjur myndu dragast veru- lega saman á samningstímabilinu, en niðurstaðan varð hins vegar sú að þær jukust. Þetta má að stórum , hiuta rekja til batnandi skilyrða vegna þess stöðugleika sem kjara- samningamir frá því I maí 1993 tryggði. Nú eftir langt samdráttarskeið í atvinnumálum og meðfylgjandi verri hag alls þorra fólks sem teng- ir afkomu sína atvinnulífínu, má loks að nýju sjá rofa nokkuð til. Það er því væntanlega skilningur á því hjá stjórnvöldum og þeim sem stýra atvinnulífinu að nú sé brýn nauðsyn á að nýta þann bata sem orðinn er á þessu ári og fýrirsjáan- legur er á næsta ári, til þess að koma til móts við réttmætar kröfur þess fólks sem samdrátturinn und- anfarin misseri fyrst og fremst bitn- ( aði á. Samdrátturinn í efnahagslífínu var fyrirsjáanlegur á sínum tíma og fólk sá því að nauðsyn væri að mæta honum með skynsamlegum hætti, sérstaklega með því að varð- veita stöðugleikann. Ella hefði mátt búast við mikið alvarlegri áföllum af völdum samdráttarins heldur en þó hafa orðið. Það er því mikilvægt nú ekki síður en þá að bregðast rétt við líka þegar betur árar, bæði til þess að flýta batanum og einnig til þess að festa hann í sessi. Brýn- asta verkefnið nú er að rétta fyrst hlut þeirra sem búa við hann lakast- ann. Því miður virðast ekki allir sjá þessa nauðsyn. Það verður t.d. ekki séð af yfirlýsingum ríkisstjórnar- innar frá 10. desember sl. að þar á bæ sé sama mat á því hverra hlut helst þurfi að rétta, eins og er inn- an' verkalýðshreyfíngarinnar og er það vissulega áhyggjuefni. Að vísu eru til í þeirri yfirlýsingu jákvæðir kaflar, ef eftir ganga, eins og t.d. um að leitað verði lausna vegna greiðsluvanda lántakenda húsnæðislána, jöfnun húshitunar- kostnaðar milli landshluta, bætt skattskil, markmiðssetning í at- vinnulífí og markaðssókn. En þegar litið er á þann þátt yfirlýsingarinn- ar sem ætlað er að jafna kjörin sýnist flest eins og öfugmæla fram- burður. Það datt engum í hug að bætt kjör stóreigna- og hátekjufólks yrði forgangsatriði nú þegar betur árar, engum í verkalýðshreyfing- unni í það minnsta. Við þær aðstæður sem nú eru, þó að tekist hafí nokkurn veginn að veija allra lægstu kjörin á síð- ustu misserum fýrir frekari áföllum, þá er augljóst að þann bata sem menn nú eygja í efnahagslífinu verður fyrst og fremst að nota til þess að bæta launakjör lág- og miðlungstekjufólks. Það er enda augljóst að batnandi kaupmáttur launatekna þess fólks mun skila sér best til aukinna umsvifa og bættrar stöðu bæði atvinnulífs og ríkisijár- mála. Allir almennir kjarasamningar losna nú um áramótin. Ég tel ákaf- lega þýðingar mikið að samnings- laust tímabil verði þá sem allra styst. Langt samningslaust tímabil nú gæti skapað hér mikla hættu á langvarandi óstöðugleika í efna- hagslífinu. Þetta á ekki síst við vegna þeirra pólitísku aðstæðna að starfstímabili ríkisstjórnarinnar er að ljúka en einnig vegna þess að langvarandi óvissa í samningavið- ræðum á vormánuðum getur verið varasöm eftir að allar hömlur á gjaldeyrismarkaði verða afnumdar nú um áramótin. Slíkur óstöðugleiki gæti jafnvel eytt öllum þeim ábata sem nú þegar hefur orðið í efna- hags- og atvinnulífinu og þar með möguleikanum til þess að nýta hann til þess að bæta í raun kjör al- menns launafólks. Það verður trú- lega mikil umræða á næstu vikum á hinum pólitíska vetvangi um efna- hags- og kjaramál. Ýmsir telja sig trúlega vita um bestu lausnirnar nú fram að kosningum. En ég held að það sé valt að treysta á einhveij- ar töfralausnir út úr efnahagslægð- inni. Við þurfum lausnir, sem renna styrkari stoðum undir fjölbreytt atvinnulíf, sem færir fleiri vel laun- uð störf. Með því móti er líklegt að takist að vinna á því óþolandi atvinnuleysi sem nú hijáir okkur. Með því móti er einnig líklegt að skapist aukin umsvif sem tryggi það að þær launabreytingar sem nauðsynlegt er að næstu kjara- samningar feli í sér skili raunveru- legum kaupmáttarauka. Kjarasamningaviðræður fara nú fram undir jákvæðari formerkjum í efnahags- og atvinnulífi en um langt skeið og almennt viðurkennt að raunhæft svigrúm er til bættra kjara. Það má vissulega ekki taka út allan batann fyrirfram, eða láta hann villa okkur sýn um framtíðár- möguleika okkar. Álþýðusambandið kynnti í byijun vetrar niðurstöðu af víðtækri umræðu innan verka- lýðshreyfingarinnar um framtíðar- sýn í atvinnumálum undir yfirskrift- inni „Atvinnustefna til nýrrar ald- ar“. Kjarni þessarar stefnu er að með meiri menntun, sérstaklega verk- og tæknimenntun, má auka aðlögunarhæfni atvinnulífsins og skapa forsendur fýrir aukinni fram- leiðni og meiri gæðum. Þannig náum við að auka verðmætasköp- unina í atvinnulífinu til þess að standa undir stöðugt betri kjörum launafólks. Sá bati sem nú hefur orðið í atvinnulífínu, sérstaklega hjá samkeppnis- og útflutningsiðnaði, er mikilvægt skref í þessa átt og því er brýnt að varðveita hann og treysta. Það er því mikilvægt að tengja yfirstandandi kjarasamn- ingaviðræður við markvissa áætlun um uppbyggingu kaupmáttar þann- ig að kjör hér á landi verði sambæri- leg því sem best gerist í okkar ná- grannalöndum. En það gengur ekki að þeir sem lagt hafa á sig fórnir svo árum skipti til þess að ná fram þessum bata fái ekki notið rétt- mætrar hlutdeildar í honum þegar hann loksins næst. Við þá kjara- samningavinnu sem nú stendur yfir held ég að sé ákaflega mikilvægt að hafa þetta í huga og að vinna samkvæmt því. Það eru ekki bara hinir beinu samningsaðilar sem þurfa að tileinka sér þetta. Stjórn- völd í landinu geta, með fram- kvæmd skattastefnu og ríkisfjár- mála og með því að skapa skilyrði fyrir atvinnulífið, ráðið meiru um það en allir aðrir hvort efni gerðra kjarasamninga hveiju sinni skili þeim árangri sem að er stefnt. Við í -verkalýðshreyfingunni ger- um okkur grein fyrir því að atvinnu- málin verða ekki leyst með ein- hverri einni aðgerð. Heldur ekki kjaramálin, þau verða ekki endan- lega leyst með gerð einna kjarasam- inga. Þetta eru mál sem sífellt þurfa að vera í vinnslu ef árangur á að verða viðunandi. Ég vænti þess að í ljósi þeirra upplýsinga að nú séu sterkar vísbendingar uppi um nokkra uppsveiflu, þá takist hið fyrsta að ljúka gerð næstu kjara- samninga og að þeir leiði til veru- legra, varanlegra kjarabóta. En því aðeins er það líklegt að fólk gangi samstillt til verka og hafí sömu meginsjónarmið að leiðarljósi. Að svo mæltu árna ég öllum lands- mönnum árs og friðar. Ögmundur Jónasson formaður BSRB Kjarajöfn- un - for- senda framfara Erfitt ár fyrir f orræðishyggju Á ÁRINU lagði Evrópuhraðlestin upp í för norður á bóginn, fyrst til Finnlands, síðan Svíþjóðar og að lokum til Noregs, en í öllum þessum löndum fór fram þjóðaratkvæða- greiðsla um aðild ríkjanna að Evr- ópusambandinu. Niðurstöður komu ekki á óvart, Finnar samþykktu með yfírburðum, mjórra var á mun- unum í Svíþóð en í Noregi einum var aðild hafnað. Það sem ef til vill mætti teljast merkilegt var hve andstaðan var mikil þrátt fyrir að allt stofnana- veldið — og gildir þá einu hvort um var að ræða innstu koppa í búri í stærstu stjórnmálaflokkunum, innsta hringinn í verkalýðshreyf- ingu og vinnuveitendasamtökum eða íjölmiðlakerfíð — nánast allir þeir sem héldu um hina sýnilegu valdatauma í þjóðfélaginu lögðust af mikilli eindrægni á sveif með aðild. Lærdómurinn sem draga má af þessu vekur bjartsýni, en hann er sá að forræðishyggju eru sett takmörk. Þetta hefur einnig verið undirstrikað á Ítalíu þar sem for- sætisráðherrann Berlusconi beið pólitískan ósigur enda þótt hann ætti eða stjórnaði mörgum áhrifa- mestu fjölmiðlum landsins. í Noregi varð Evrópusinnum það að sjálfsögðu mikið hryggðarefni að norska þjóðin skyldi hafna aðild að Evrópusambandinu og líta þeir svo á að Norðmenn standi nú utan gátta. Tvennt hefur án efa ráðið mestu um afstöðu Norðmanna. Annars vegar að þjóðinni þótti nóg um afsal suður til Brussel á for- ræði í eigin málum og hins vegar mun hafa vegið þungt það mat að yfirráð Norðmanna yfir fískimiðun- um yrðu ekki tryggð til frambúðar við núverandi fískveiðstefnu Evr- ópusambandsins. Nýir samstarfsmöguleikar í norðri Okkur ætti að verða það umhugs- unarefni hvort þessi nýja staða kalli ekki á endurmat á því hvar hags- munir og samstarfsmöguleikar okk- ar liggja, því þrátt fyrir ágreining um veiðisvæði í úthafinu eiga þjóð- irnar á norðurslóðum mikið undir því komið að varðveita í sameiningu þær auðlindir sem felast í víðáttum hafsins i kringum okkur. í stað sundurlyndis þarf samstöðu og bandalag þjóðanna í okkar heims- hluta sem byggja á sjávarútvegi. Verkefni bandalags fískveiðiþjóð- anna í norðri væri tvíþætt, annars vegar að vernda hafsvæðin gegn mengun og ofveiði og hins vegar að ná sameiginlega fram hagstæð- um tollasamningum gagnvart hin- um stóru neytendamörkuðum heimsins, ekki síst um fullunnar sjávarafurðir. Hér á landi á enn eftir að koma að fullu reynsla á EES-samninginn en að sjálfsögðu þurfum við að nýta okkur kosti hans til hins ítr- asta. Hvað samtök launafólks áhrærir er mikilvægt að tryggja að þau réttindi sem launafólk býr við hér á landi séu í engu lakari en á hinu Evrópska efnahagssvæði. Hitt er svo annað mál að sífellt kemur betur í ljós hve mjög EES- samningurinn hefur skert forræði okkar á ýmsum sviðum og sannast það á linnulausum innflutningi til- skipana frá Brussel sem nú er haf- inn. Þar er fyrst og fremst um að ræða kröfur um einkavæðingu og markaðsvæðingu, enda eru þetta grundvallarforsendur EES-samn- ingsins. Þótti mörgum völd okkar íslendinga ekki meiri en svo að við mættum við því að afsala okkur þeim inn í miðstýringu meginlands Evrópu. Það er hins vegar að ger- ast í ríkari mæli en margan grunar. Jákvæð teikn þrátt fyrir pólitiskan mótvind Innanlands eru sem betur fer ýmis teikn á lofti sem gefa ástæðu til bjartsýni. Þjóðin hefur sýnt frum- kvæði og sjálfsbjargarviðleitni á ýmsum sviðum og hefur þetta bætt upp erfiðleika sem hlotist hafa af ytri skilyrðum. Þannig hafa sjó- menn nýtt nýjar fisktegundur þegar þorskurinn brást, vöruvöndun og áhersla á gæði hafa fengið aukið vægi og hefur þetta aukið arðsemi í sjávarútvegi, ferðamannaþjónust- an hefur blómstrað og eru þar vaxt- arsprotar sem bera þess vott að fjöldi hugmyndaríkra einstaklinga er að störfum, í hugbúnaðargeiran- um fæst fjöldi fólks við áhugaverða og verðmætaskapandi hluti. Á ís- landi er það að sannast að margt smátt gerir eitt stórt. Þar sem margir komast að með hugmyndir og kraft lætur árangurinn ekki á sér standa. Hinu er ekki að leyna að þrátt fyrir þetta hafa hinir pólitísku vind- ar blásið í gagnstæða átt. Þar er efst á dagskrá samþjöppun valds og fjármagns, áhersla á stórar ein- ingar, einokun og fákeppni. Dæmi um þetta er að fínna í smásölu, iðnaði og samgöngum, en alvarleg- asta hættan er í sjávarútvegi þar sem hagsmunir örfárra einstaklinga eru látnir vega þyngra en hagsmun- ir þjóðarinnar. Að undanförnu hefur jafnvel ver- ið um það rætt hvort einstaklingar megi veðsetja kvótann, og þar með sameiginlega auðlind þjóðarinnar. Bæði útgerðarmenn og forsvars- menn banka verða að átta sig á því að hér er komið út fyrir einbera viðskiptahagsmuni. Hér eru bank- arnir farnir að gera kröfur og út- gerðarmennimir veita loforð sem þeir hafa ekki siðferðilegan rétt á, einfaldlega vegna þess að um er að ræða eigur annarra. Einkavæðing í kreppu Helsta uppspretta auðs hjá hug- myndasnauðum fjármálamönnum hefur á undanförnum árum verið að sölsa undir sig almannaeigur með því að fá pólitíska einkavini sína til að færa sér á silfurfati stofn- anir og fyrirtæki sem almenningur hefur byggt upp með skattframlagi á löngum tíma. Einkavæðingar- bylgjan hefur farið víða yfir og valdið mikilli eyðileggingu. Pening- ar sem hefðu átt að fara til nýsköp- unar og uppbyggingar hafa farið í steindauðan hring í fyrirtækjum og stofnunum sem þegar voru til. Það sannast sífellt betur að einkavæð- ingarstefnan er einhver geldasta stjórnmálastefna sem nokkurn tím- ann hefur komið fram þótt hún óneitanlega hafi fært völdum hópi einstaklinga ofsagróða á kostnað almennings. Ekki er um það deilt að almenn framleiðslu- og þjónustu- fyrirtæki á samkeppnismarkaði eiga þar heima þótt þau hafi af einhveijum ástæðum einhvem tím- ann lent í opinberri eign. Öðru máli gegnir um almannaþjónustu á sviði heilbrigðis, mennta- og sam- göngumála og aðra gmnnþjónustu samfélagsins. Hvarvetna sem einkavæðing þessarar almannaþjónustu hefur verið reynd hefur störfum fækkað, launabil aukist, þjónustan iðulega rýrnað og dregið hefur úr samfé- lagslegu eftirliti og ábyrgð. Bretar hafa, sem kunnugt er, verið um langt skeið ofurseldir einkavæðing- aráráttu stjórnvalda. Á þessu ári sjást fyrstu merki þess að jafnvel í stjómarherbúðunum bresku eru menn að vakna til vitundar um þann þjóðfélagsskaða sem þessi glórulausa stefna hefur kallað yfir þjóðina en til marks um þetta má nefna að ráðherranum Heseltine tókst ekki að afla nægilegs stuðn- ings í íhaldsflokknum til að einka- væða breska póstinn. Frækinn sigur starfsmanna SVR Og hér á landi unnu starfsmenn SVR frækinn sigur, hrifu með sér almenningsálitið og veltu í leiðinni meirihluta sjálfstæðismanna úr sessi í Reykjavík þegar þeir hnekktu einkavæðingu strætisvagnanna og færðu fyrirtækið að nýju í eðlilegt horf. Allir eru reynslunni ríkari af þeim átökum sem urðu um SVR hf. og skyldi enginn vanmeta fólk sem býr yfír staðfestu og trú á rétt- mætan málstað. Mín tillaga er sú að í stað einka- væðingar verði hugað að nýsköpun og uppbyggingu og myndu þeir ómældu fjármunir sem hingað til hafa farið í einkavæðingarnefndir ríkisins nýtast betur í slíkri viðleitni heldur en reyna í sífellu að svipta almenning eignum sínum og stofna þannig til ófriðar í landinu þegar þörf er á samstöðu. í anda samstöðu hefur þó ekki verið stjórnað, en á þessu ári hafa verið að birtast afleiðingar þeirra stórfelldu eignatilflutninga sem framkvæmdir hafa verið hér á landi á undanförnum árum. Milljöðrum hefur verið létt af stórfyrirtækjum og stóreignafólki en skattklyfjum og margvíslegum þjónustugjöldum verið hlaðið á almenning að sama skapi. Þegar tekjur íslensku þjóðar- inar eru skoðaðar kemur í ljós að óvíða gerast þær betri með þjóðum og er nöturlegt að horfa upp á lít- inn hluta þjóðarinnar fylla allar sín- ar hirslur þótt þar hafí verið ærið fýrir, á meðan aðrir hafa fyrir löngu gengið á síðasta forða sinn. Barist gegn láglaunastétt Og í launakerfunum hefur verið stimplaður inn aukinn launamunur — en gegn þeirri stefnu hafa sjúkra- liðar risið í verkfalli sem nú hefur staðið í hátt í tvo mánuði og eru fá dæmi þess að ríkisvaldið sé reiðu- búið að reka jafn harða og óbil- gjarna baráttu gegn láglaunstétt. Verkefni næstu ára er að snúa þessari öfugþróun við — snúa þjóð- félagsþróuninni til aukins jafnaðar. Það er bæði nauðsynjaverk og hið mesta þjóðþrifaverk. Ojöfnuður hef- ur aukist á íslandi fyrir beinan til- verknað stjórnvalda og enn ágerst með atvinnuleysi. Misréttið er þegar orðin hættuleg meinsemd í íslensku þjóðfélagi. Það er með öllu ólíð- andi, það grefur undan samkennd þjóðarinnar og stendur framförum fyrir þrifum. Ekki leikur á því vafi að þegar búið verður að koma á auknu jafn- vægi í tekjuskiptingu mun efnahag- ur allur blómgast, bjartsýni og kraftur þjóðarinnar til góðra verka aukast og henni skila fram á veg á öllum sviðum. Þetta verk þarf að hefja nú þegar og þá mun enn renna upp öld framfara og bjartsýni á íslandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.