Morgunblaðið - 10.01.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.01.1995, Blaðsíða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1995 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MEÐ 40 MÖRK í 5 LEIKJUM Á ÁTTA DÖGUM. MEÐALTAL, 8 MÖRK f LEIK SIGURÐUR SVEINSSON ■ INGI Björn Albertsson var með sigurliðið í nýársmóti Gróttu í innanhússknattspymu í þriðja sinn. Hann þjálfar nú Keflvíkinga sem sigruðu að þessu sinni, unnu Grindvíkinga 5:3 í úrslitaleik. ÍA varð í þriðja sæti eftir sigur á Víði 4:1 í leik um bronsverðlaunin. Þetta var í fjórða sinn sem Grótta stendur fyrir nýársmóti. ■ ÞORVALDUR Örlygsson lék með Stoke í markalausu jafntefli gegn Bristol City á útivelli í enska bikamum á laugardaginn. Hann fékk gula spjaldið í leiknum. Lárus Orri Sigurðsson kom inná sem varamaður í síðari hálfleik. ■ RÚNAR Kristinsson, lands- liðsmaður í knattspymu, byija æfingar hjá sænska liðinu Orgryte um helgina. Hann hélt utan í vík- ing á laugardaginn. ■ MARGRÉT Ólafsdóttir, landsliðskona úr Breiðabliki, var útnefnd besti leikmaður alþjóðlegs knattspyrnumóts sem fram fór á Miami milli jóla og nýárs. Hún lék þar með dönsku meisturunum Fortuna Hjörring ásamt Ásthildi Helgadóttur úr KR. En félagið bauð þeim að vera með liðinu í mótinu. Sem kunnugt er leikur FÖLK Auður Skúladóttir leikur með danska_ liðinu. ■ BJÖRG Hafsteinsdóttir, körfuknattleikskona úr Keflavík, gerði sjö þriggja stiga körfur fyrir lið sitt gegn Breiðabliki í 1. deild- inni á laugardaginn. Keflavík vann leikinn 89:66 og gerði Björg alls 25 stig í leiknum. Fyrmm fé- lagi hennar, Olga Færseth, var stigahæst í liði Blika með 28 stig. Þess má geta að Penni Peppas var ekki með Blikum. ■ SIGURSTEINN Gíslason, knattspyrnumaður, var um helgina útnefndur íþróttamaður Akraness fyrir árið 1994. Athöfnin fór fram að lokinni þrettándabrennu að Jað- arsbökkum að viðstöddu fjölmenni. Sigursteinn hlaut 87 stig í kjör- inu, Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur, varð í öðru sæti með 74 stig og Óskar Guðbrandsson, sundmaður í þriðja með 42 stig. ■ PÉTUR Þ. Grétarsson, kylf- ingur, var útnefndur íþróttamaður ísafjarðar fyrir árið 1994. Þrír aðrir íþróttamenn voru heiðraðir af bæjarstjórn ísaijarðar við sama tækifæri fyrir góðan árangur á árinu; Ásta Halldórsdóttir, skíða- kona, Haukur Benediktsson, knattspyrnumaður og Aðalheiður Ýr Gestsdóttir, sundkona. ■ DAGUR Sigurðsson, landsl- iðsmaður í handknattleik, hefur verið útnefndur íþróttamaður Vals Í994., ■ PÁLL Ólafsson, handknatt- leiksmaður, hefur verið valinn íþróttamaður Knattspyrnufélags- ins Hauka 1994. Páll fékk fullt hús stiga, eða alls 90. Pétur Ing- varsson, körfuknattleiksmaður, var í öðru sæti með 50 stig. ■ JIM Courier, tenniskappi frá Bandaríkjunum, sigraði á móti í Adelaide í Ástralíu um helgina. Þetta var fyrsti sigur hans á tennismóti í 16 mánuði. Hann tap- aði ekki setti í mótinu og sigraði Frakkann Arnaud Boetsch í úr- slitaleik, 6:2, 7:5. Þessi sigur ætti að gefa honum aukið sjálfstraust fyrir opna ástralska tennismótið sem hefst í næstu viku. STUÐNINGUR Undirbúningur íslenskra knattspyrnuliða fyrir átök sumarsins er í fullum gangi. Reyndar eru íslenskir knatt- spymumenn að nánast allt árið en vegna ytri aðstæðna er undir- búningstímabilið helmingi lengra en sjálft keppnistímabilið. Þrátt fyrir aðstöðu- leysið sækir knatt- spyrnan stöðugt í sig veðrið á alþjóða vett- vangi en DV greindi frá því í síðustu viku að ísland er í 26. sæti fyrir niðurröðun Evr- ópumóta félagsliða í knattspyrnu í ár og því rétt frá þátttökurétti í 24 liða meistaradeildinni. Þó gildi íþrótta sé almennt viðurkennt og keppnisíþróttir í hávegum hafðar reynist æ erfið- ara að halda úti öflugu Iþrótta- starfi. Óhjákvæmilegur kostn- aður fylgir starfseminni og þess eru dæmi að aukinn útgjöld fylgi velgengni samanber Evrópu- keppni félagsliða í handknattleik. Hins vegar aukast tekjur félags í Evrópukeppni í knattspymu í hlutfalli við árangur og þátttaka í meistarakeppninni getur tryggt félagi fjárhagslegt öryggi til langframa. Undanfarin misseri hafa tals- menn knattspymuhreyfingarinn- ar lagt áherslu á mikilvægi yfir- byggðra knattspyrnuvalla en enn sem komið er virðist erfitt að fjármagna slíkar framkvæmdir. Því hafa knattspyrnumenn æft við erfiðar aðstæður á veturna en mörg félög hafa lagt áherslu á æfinga- og keppnisferðir til annarra landa á vormánuðum með tilheyrandi kostnaði. Stund- um hefur heyrst að þessar ferðir svari ekki kostnaði og þær hafa verið gagnrýndar. Skagamenn fengu orð í eyra fyrir að fara á mót erlendis snemma árs 1992 en þeir svöruðu fyrir sig með íslandsmeistaratitli að hausti. Síðan hafa þeir farið í æflnga- og keppnisferð á fyrsta fjórðungi hvers árs, haldið Islandsmeistar- atitlinum á Akranesi, sigrað tvö- falt eitt árið og gert góða hluti í Evrópukeppninni. Norðurlandaþjóðirnar hafa Spuming um að bestu félögin í knattspymu njóti ávaxtanna gert sér grein fyrir mikilvægi Evrópumóta félagsliða í knatt- spymu. Sænska félagið Gauta- borg hefur tryggt sér fleiri hundruð milljónir króna í meist- arakeppninni (vetur og þarf vart að hafa áhyggjur af framtíðinni. Norðmenn hafa stutt vel og dyggilega við íþróttir í Noregi og árangur á alþjóða vettvangi hefur ekki látið á sér standa. Næsta skref er í Evrópumótum félagsliða í knattspymu og þar veðja norsk íþróttayfirvöld á ís- lendinginn Teit Þórðarson og Lilleström sem hann þjálfar. I viðtali við DV um helgina segir Teitur að þriggja ára stuðningur við félagið og leikmenn hafi mik- ið að segja og spennandi tímabil sé framundan. Leikmenn Reykjavíkurliðanna í knattspyrnu hafa fengið að æfa í Reiðhöllinni í Víðidal undan- famar vikur og verið mjög ánægðir með það en óvist er með framhaldið. Knattspyrnumenn annarra liða hafa ekki haft slíka aðstöðu. Æfinga- og keppnis- ferðir til útlanda eru víða á dag- skrá á næstu mánuðum. í Noregi eru Evrópuliðin styrkt til slíkra ferða með framhaldið í huga. það er athugunar vert hvort ámóta stuðningur við bestu lið íslands skili sér ekki þegar fram í sækir. Steinþór Guðbjartsson Æ rBJÖRG HAFSTEINSDÓTTIR þriggja stiga skotin sérstaklega? Tek þriggja stiga skot í huganum BJÖRG Hafsteinsdóttir, körfuknattleiksstúlka úr Keflavík, gerði sér lítið fyrir og skoraði sjö þriggja stiga körfur í leik gegn Breiðabliki. Björg hefur leikið körfuknattleik ífjórtán ár, eða sfðan hún byrjaði að æfa körfuknattleik með strákum í Keflavík ellefu ára. Þegar Keflvíkingar byrjuðu að þjálfa kvennalið á árum áður, var Björg yngsta stúlkan, nú er hún orðin „öldungurinn11 í liði Keflavíkur, eins og hún segir sjálf. Björg, sem er 25 ára, er ein Ieikreyndasta körfuknatt- leikskona landsins, hefur leikið ^■■■■1 næst flesta lands- Eftir leiki, eða 23. Hún SigmundÓ. ætlaði að leggja Steinarsson skóna á hilluna eft- ir sl. keppnistíma- bil, en þegar ljóst var að þrjár aðrar reyndar stúlkur ákváðu að skipta um félög, fannst Björgu að hún gæti ekki yfirgefið hið unga Keflavíkurlið. Hvernig er að vera elsta stúlkan í herbúðum Keflvík- inga? „Það er mjög skemmtilegt. Eg hef þann forgang að fá ýmsu að ráða, en annars skiptir aldurs- munurinn engu máli — ég er einn hlekkur í góðu liði.“ - Það er ekki á hverjum degi sem leikmaður í 1. deiid kvenna skorar sjö þriggja stiga körfur í leik. Æfir þú langskot sérstakiega? „Nei, það geri ég ekki. Ég tek aftur á móti oft þriggja stiga skot í huganum.“ - Hvernig tilfinning var það að sjá hvert skotið á fætur öðru rata rétta leið? „Það er stórkostlegt og mjög gaman þegar heppnin er með mér. Eg náði góðri einbeitingu í leiknum gegn Breiðabliki og var því óhrædd við að reyna langskot." Það má segja að Björg hafi og sé mikið á ferðinni eff ir Reykjanes- brautinni, þar sem hún hefur verið í skóla í Reykjavík á undanförnum árum — fyrst í Verslunarskólanum og nú í Háskólanum, þar sem hún er að ljúka námi í sjúkraþjálfun. Fer ekki mikill tími í að æfa og Ieika körfuknattleik? „Jú, það hefur ferið mikill tími hjá mér og þá sérstaklega þar sem ég hef þurft að ferðast á milli Morgunblaðið/Júlíus Björg Hafsteinsdóttir, iandsliöskona úr Keflavík, hefur veriðá ferðinnl á mllll Keflavíkur og Reykjavíkur í átta ár. Keflavíkur og Reykjavíkur. Ég hef þó alltaf tekið námið framyfir körfuknattleikinn; reyni að stunda hann eins og námið leyfir. Það hefur, með góðri skipulagningu, gengið ágætlega. Ég er með litla íbúð í Reykjavík, sem ég er í ef ekki eru æfingar í Keflavík á kvöldin. Þetta verður annað Iíf í vor, þegar ég lýk námi,“ sagði Björg, sem hefur verið við nám í Reykjavík í átta ár. Keflvíkurliðið æfir fíórum sinnum í viku, en Björg fær að sleppa úr einni æfingu, til að geta einbeitt sér betur að nám- inu. - Þií hefur ekki séð eftir hinum mikla tíma, sem hefur farið íkörfu- knattleikinn? „Nei, alls ekki. Ég hef verið svo heppin að vera í mjög góðum fé- lagshópi, þar sem mjög góður andi ræður ríkjum. Þá hef ég verið svo heppin að fá tækifæri til að leika með landsliðinu, ferðast og kynn- ast leikmönnum úr öðrum liðum.“ - Keflavíkurliðið hefur verið nær ósigrandi undanfarin ár og er nú í efsta sæti í 1. deildarkeppninni. Sér Björg sigurgönguna halda áfram næstu ár? „Róðurinn verður erfiðari, því að keppnin í deildinni er miklu jafn- ari nú heldur en hún hefur verið. Ungu stúlkurnar hjá okkur eiga eftir að öðlast þroska og reynslu — það mun mikið mæða á þeim á næstunni. Þá mun það koma í ljós hvað ungu stúlkurnar í öðrum lið- um spila úr sínum spilum."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.