Morgunblaðið - 11.01.1995, Side 1
A
Á
plKrgmlplpiili
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG
B
PRENTSMIÐJA MORGUNBLADSINS
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 1995
BLAD
NÝIR TOGHLERAR GERÐIR KLÁRIR
Morgunblaðið/Jón PáU Ásgeirsson
ÁHÖFNIN á Helgu II var fyrir helgina í óða önn að gera klára nýja toghlera sem eru á fimmta tonn stykk-
ið. Helga II er þessa dagana í rækjutúr fyrir loðnu en rækjulínan um borð var öll endurnýjuð yfir hátíðarn-
ar. Aflinn er frystur um borð en skipstjóri á Helgu II er Geir Garðarsson.
Aflaverðmæti togara UA
1.734
0 Mikil breyting að
verða í rússnesk-
um sjávarútvegi
Viðtal
7 Ricardo Parisi
Munoz fram-
kvæmdastjóri
Intertec í Chile
milljónir króna
AFLAVERÐMÆTI togara Út-
gerðarfélags Akureyringa nam
á síðasta ári 1.734 milljónum
króna sem er 174 milljónum
króna meira aflaverðmæti en á
árinu 1993. Helsta skýringin á auknu aflaverðmæti eru hærra hlutfall afla
frystitogara félagsins á síðasta ári miðað við 1993. ísfisktogarar félagsins
öfluðu alls 13.148 tonn að verðmæti 745,7 milljónir kr. og frystitogararnir
8.534 tonn að verðmæti 988,4 milljóna kr.
Hærra hlutfall afla
frystitogara félagsins
Kaldbakur aflaði 2.928 tonn að verð-
mæti 153,9 milij. kr., Svalbakur 1.662
tonn að verðmæti 99 millj. kr., Harð-
bakur 3.030 tonn að verðmæti 162,7
millj. kr., Hrímbakur 2.618 tonn að
verðmæti 153,1 millj. kr. og Árbakur
2.910 tonn að verðmæti 177 millj. kr.
Frystitogararnir öfluðu alls 8.534
tonn að verðmæti 988,4 millj. kr. Sval-
bakur EA 2 aflaði 3.320 tonn að verð-
mæti 288,9 millj. kr., Sléttbakur 3.181
tonn að verðmæti 447,5 millj. kr. og
Sólbakur 2.033 tonn að verðmæti 252
millj. kr. Samtals var afli togara ÚA
21.682 tonn.
Verömæti framleiðslu
ílandi 1.620 millj.kr.
Fyrstu ellefu mánuði ársins var
verðmæti framleiðslu ÚA í landi 1.620
milljónir kr. en á þessum tíma voru
unnin 15.382 tonn í frystihúsi félags-
ins. Allt árið 1993 voru unnin tæp
17.800 tonn í frystihúsinu og var
framleiðslan 7.769 tonn að verðmæti
rúmlega 2 milljarðar króna.
Afli á hvern úthaldsdag fyrstu
ellefu mánuði 1994 skiptist þannig á
ísfisktogarana að Kaldbakur var með
13.320 tonn, Svalbakur með 8.561
tonn, Harðbakur með 10.996 tonn,
Hrímbakur 9.502 tonn og Árbakur
10.597 tonn. Hjá frystitogurum fé-
lagsins varð afli á hvern úthaldsdag
fyrstu ellefu mánuði ársins þannig að
Svalbakur fékk 17.521 tonn, Sléttbak-
ur 10.835 tonn og Sólbakur 7.508
tonn.
Fréttir
Flotteinatóg frá
Hampiðjunni
■ HAMPIÐJAN hefur haf-
ið framleiðslu og sölu á
fléttuðu flotteinatógi fyrir
grásleppu- og ýsunet hjá
smærri bátum í sverleikun-
um 12,14 og 16 millimetr-
ar. Örn Þorláksson hjá
söludeild Hampiðjunnar
segir að tilraunir hafi verið
gerðar á rannsóknastofu
Hampiðjunnar og eiga tóg-
in að standast allar þær
kröfur sem sjómenn gera
til slíkra veiðarfæra./2
Verðmæta-
aukning hjá
HB á Akranesi
■ VERÐMÆTI heildar-
framleiðslu Haraldar Böð-
varssonar hf. á Akranesi
var 14% meira í fyrra en
árið á undan þrátt fyrir að
vinnslumagn drægist sam-
an um 12%. Þá var verð-
mæti aflans sem skip fyrir-
tækisins skiluðu á land 6%
meira en árið 1993 þótt
magnið væri 23% minna.
17.550 tonn að verðmæti
1.430 milljónir króna voru
framleidd lyá HB hf. á síð-
asta ári, að mestu í frysti-
húsi og fiskimjölsverk-
smiðju fyrirtækisins. 3.650
tonn af fiski voru unnin í
frystihúsinu sem er 17%
aukning frá árinu á undan
og skilaði það 975 milljón-
um króna í verðmætum
sem er 37% aukning./2
Fækkar í
kaupskipaflot-
anum
■ ÍSLENSKI kaupskipa-
flotinn varð tveimur skip-
um fátækari á árinu 1994.
22 skip eru nú í flotanum
-18 í eigu íslensku útgerð-
anna undir íslenskum og
erlendum fánum, þijú á
þurrleigu og eitt tímaleigu-
skip. Á síðastliðnu ári
minnkaði flotinn um 10% -
um ofangreind tvö skip og
um það bil 9.000 brúttó-
rúmlestir og nær sömu tölu
í burðartonnum. Þótt
stöðugildum farmanna hafi
fækkað um tæp 30, eða at-
vinnutækifærum þeirra um
45, varð sá samdráttur all-
ur í stöðum sem þjónað
hafði verið af erlendum
farmönnum./8
Markaðir
62% samdráttur
á útflutningi
á ísuðum þorski
• SALA á ísuðum þorski á
ferskfiskmarkaðina í Bret-
landi á síðastliðnu ári nam
aðeins um 3.200 tonnum,
sem er 62% samdráttur frá
árinu áður. Útflutningur á
ísuðum þorski hefur minnk-
að mjög hratt á undanförn-
um árum. Því veldur hvort
tveggja minni aflaheimildir
og lækkandi verð. Verð
hækkaði reyndar milli ára
nú um 7 krónur á kíló, eða
5% í krónum talið. Meðal-
verð allt síðasta ár var 141
króna á móti 134 árið 1993
en í pundum hækkaði verðið
aðeins um 1% milli ára.
Þorskur á fisk-
mörkuðum í Englandi
1993-94
1,°% ^ ..........-
0,0 i.—.
1993 1994
----------------> , „
19% hækkun á
þorskverði hér
• RÚMLEGA tíu sinnum
meira af ísuðum þorski fer
af íslenzkum skipum á inn-
lenda markaði en þá brezku,
eða alls 36.644 tonn í fyrra.
Það var þó 23% samdráttur
frá árinu áður, er 47.710
tonn fóru á markaðina. Það
var þá fimmfalt meira en
en fór utan. Verðið hér
heima var í fyrra 96 krónur
á kíló að nteðaltali og hafði
hækkað um 19% milli ára.
Hæst varð verðið á haust-
niánuðum allt að 113 krón-
ur./6