Morgunblaðið - 14.01.1995, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 1995 C 7
LISTIR
„Svo skal dansinn duna“
TONOST
Þjóölcikhúsi ö
ÞJÓÐDANSAR
Stjómandi sýningar, danshöfundur
og sviðssetning; Sigríður Þ. Valgeirs-
dóttir. Tónlist: Jón Asgeirsson.
Hljómsveitarstjóri: Jón Stefánsson.
Söngur: Kanunerkór Langholts-
kirlgu. Hljóm.sveit: Kammersveit
Langholtskirkju. Ljós: Páll Ragnars-
son, Bjöm Guðmundsson. Þjálfun
dansfólks: Kolfinna Sigurvinsdóttir.
SÉRHVER þjóð leggur jafnan
metnað sinn í að rækta menningar-
arf sinn og miðla honum áfram til
nýrra kynslóða. Söguritun fyrri alda
hefur borið hróður okkar land víða.
En menning er ekki eingöngu sögu-
ritun, heldur einnig kveðskapur,
tónlist og dans. Það er ekki rík
hefð fyrir dansi á íslandi og þjóð-
lagahefð jafnvel nokkuð fátækleg
miðað við margar nágrannaaþjóðir.
Þeim mun virðingarverðara er það,
þegar fólk tekur sig til og blæs loga
í glóðir menningar, sem hætta er á
að deyi út meðal fólksins. Afrakstur
slíkrar vinnu máttu einmitt sjá á
fjölum Þjóðleikhússins á þriðjudag-
inn. Þá hélt þjóðdansafélag Reykja-
víkur mjög viðamikla sýningu og
TONIIST
Iláskólabíó
SINFÓNÍ UTÓNLEIKAR
•
Leikin létt tónlist frá Vínarborg.
Einsöngvari Þóra Einarsdóttir.
HljómsveiÞirstjóri Páll P. Pálsson.
Fimmtudagur 12. janúar 1995.
VÍNARTÓNLEIKAR Sinfóníu-
hljómsveitar Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands eru orðnir fastur Iiður í starf-
semi hljómsveitarinnar
og njóta þeir mikilla vin-
sælda hjá hlustendum.
Efnisskráin var byggð á
verkum eftirtalinna höf-
unda skemmtitónlistar;
Franz von Suppé, Jóhann
Strauss yngri, Hermann
Dostal, Eduard Strauss,
Jacques Offenbach, Ric-
hard Heuberger, Franz
Lehár, Emil Waldteufel
og Wilhelm A. Jurek.
Það getur verið nokk-
uð snúið að velja úr stóru
safni skemmtitónlistar og
sú leið, að taka til með-
ferðar mikið af fremur
óþekktum verkum, getur
orkað tvímælis, því aðdá-
endur slíkrar tónlistar
vilja helst heyra uppá-
haldsverk sín. Flieger
Marsch, eftir Dostal,
Polkinn eftir Eduard
Strauss, forleikurinn að
óperudansleiknum eftir
Heuberger, forleikurinn
að Vínarfrúnum, eftir
Léhár og leiðinlegur
Regiments-Marsch, eftir
einhvern Jurek, voru
naut þar aðstoðar hljómsveitar og
söngvara. Tveir einstaklingar
standa þó uppúr þeim dygga hópi,
sem vann að sýningunni, en það
voru tónskáldið og útsetjarinn Jón
Ásgeirsson (þó hér verði ekki fjallað
um tónlistina) og Sigríður Þ. Val-
geirsdóttir, sem sá um dansana og
sviðssetninguna.
Hvað er til ráða, þegar hætta er
á, að hluti menningar hverfi og úr
þjóðlífinu? Fyrir mörgum árum kom
Sigríður Þ. Valgeirsdóttir auga á
svarið. Hún gekk í smiðju hjá eldra
fólki, lærði spor og dansa, söngleiki
og annað það, sem unnt var að
komast yfir. Einnig lagðist hún í
grúsk og leitaði í heimildum, sam-
ræmdi og bar saman, hlustaði á
uppbyggingu danslaganna, orðin í
kveðskapnum og studdist við það
litla, sem til er af rituðum lýsingum
dansa á íslandi. Með því að styðj-
ast við lýsingar í bókum, sagna-
kvæði og ekki síst með hliðsjón af
danshefð fyrri alda í Evrópu, má
leiða líkur að því, hvernig dansarn-
ir hafa verið. Uppbygging laga og
kvæða er oft með þeim hætti, að
þau „dansa sig sjálf“. Eins og fræði-
maður gengur Sigríður til verks og
hefur nú lagt afrakstur sinn og
samverkamanna fýrir okkur. Hún
hefur fyrirvara á því, að þannig
dæmi um sviplaus og skiljanlega lítt
þekkt verk, sem auðheyrt var að
hlustendur hrifust lítt af, jafnvel þó
hljómsveitin léki þau ágætlega undir
lifandi stjórn Páls P. Pálssonar.
Þau viðfangsefni hljómsveitarinn-
ar sem náðu máli sem skemmtitónl-
ist voru forleikir eftir Suppé og Of-
fenbach, „Skautavalsinn" eftir
Waldteufel og lögin sem Þóra Einars-
dóttir söng, en það voru Draussen
in Sievering, og Frúhlingsstimme,
eftir Jóhann Strauss yngri, Liebe du
Himmel auf Erde, Vilja Lied og
Meine Lippen, öll þrjú
eftir Léhár.
Þóra Einarsdóttir er
ein af efnilegustu söng-
konum okkar íslendinga
og er. um það að Ijúka
framhaldsnámi í Eng-
landi. Hún hefur létta og
hljómfallega rödd, ágæta
tækni, er tónvís og hefur
þegar öðlast nokkum
þroska sem listamaður,
er kom vel fram í öllum
viðfangsefnunum og sér-
staklega í einu aukalag-
inu, Wien, du Stadt
meiner Táume, eftir Ru-
dolf Sieczynski, sem var
einstaklega fallega sung-
ið og má segja að Þóra
hafi slegið í gegn í þessu
Ijúfa lagi.
Það vantaði nokkuð á
fjörleg tilþrif á þessum
tónleikum, enda voru
undirtektir áheyrenda
fremur daufar og hin
rétta stemmning kom
aðeins fram eftir að hinni
eiginlegu efnisskrá var
lokið.
Jón Ásgeirsson
hafi dansarnir verið dansaðir. Það
sem ekki er nákvæmlega vitað um
danssporin, hefur hún fyllt í eyðurn-
ar, líkt og listmálari, sem er að
gera við málverk, sem tímans tönn
er að má út. Af alúð og vandvirkni
hafa hún og Kolfinna Sigurvins-
dóttir unnið að uppsetningu sýning-
arinnar.
Fyrri hlutinn er byggður á rann-
sóknum á dönsum og tónlist frá
13.-15. öld. Með tónlist, kvæðum
og dansi er sagt brot úr Bósa sögu
og Herrauðs. Þar mátti sjá ýmsa
sagnadansa, þar sem dansararnir
syngja með forsöngvara, hringbrot
og vikivaka. Síðari hlutinn heitir
Gleði í Vík og er látinn gerast í
Reykjavík á 18. öld. Þá fer meira
að bera á dönsum, þar sem aðrir
syngja fyrir dansi en dansararnir
sjálfír. Er það hliðstæð þróun og
varð í þjóðdönsum nágrannaland-
anna, en sagnadansarnir virðast
hafa tíðkast lengur fram eftir öldum
hér á landi en erlendis. Sýnt var
brot úr ýmsum vikivakaleikjum, svo
sem Hestaleikur, Tröllaslagur,
Háu-Þóru-leikur, Hjartarleikur og
Finngápn. Tónlistin var reyndar svo
stór þáttur sýningarinnar, sem og
söngurinn, að líta verður á allt þetta
og einnig búningana sem eina mjög
fallega og fræðandi heild.
PÁLL Skúlason, prófessor í heim-
speki við Háskóla íslands, mun
ræða spuminguna Hvað er list?,
svara fyrirspumum og leiða um-
ræður, mánudagskvöldið 16. jan-
úar. Einnig mun Einar Clausen ten-
ór syngja nokkur einsöngslög og
ásamt kvartettnum Út í vorið við
píanóundirleik Bjarna Þ. Jónatans-
sonar.
Kvartettinn Út í vorið var stofn-
aður í lok október 1992 og hélt sína
fyrstu opinberu tónleika í Listasafni
Siguijóns Ólafssonar í júní 1993.
Síðan hefur kvartettinn haldið tón-
leika víða.
Sömuleiðis hefur hann komið
fram á lokuðum samkomum, í út-
varpi og Ríkissjónvarpinu. Sl. sum-
Þó svo að forsvarsmenn sýning-
arinnar „Svo skal dansinn duna“
hafí með sýningunni unnið stórvirki
á sviði þjóðlegrar menningar, þá
vil ég sérstaklega geta frammistöðu
félaga í Þjóðdansafélagi Reykjavík-
ur. Fimmtíu dansarar komu fram,
auk á fjórða tug hljóðfæraleikara
og söngvara. Hér voru áhugamenn
að dansa, en hafa ber í huga að
verið var að syngja og dansa al-
þýðulög og dansa. Þá hentar ein-
mitt sá alþýðlegi blær, sem ein-
kenndi sýninguna. Dansarar voru á
öllum aldri og fyrir vikið verður
útkoman tiúverðug alþýðulist, enda
skemmtu leikhúsgestir sér hið
besta.
Ef við sem búum í þessu landi
viljum teljast menningarþjóð, ber
okkur skylda til að hlúa að þjóð-
dönsum okkar. Ég hygg, að til
skamms tíma hafí af öllum list-
greinum reynst erfiðast að skjal-
festa dansa. Nú gefst tækifæri til
að festa á myndband árangur ára-
tuga rannsókna og ómælds áhuga.
Fyrir utan að vera hin besta
skemmtun, var hér á ferðinni sam-
eiginleg greinargerð fræðimanna á
sviði. alþýðutónlistar og þjóðlegra
leilqa og dansa.
ar kom hann fram á sex tónleikum
víða á Suður-Englandi og í London
í tónleikaferð Kórs Langholtskirkju.
Kvartettinn skipa þeir Einar
Clausen, Halldór Torfason, Þorvald-
ur Friðriksson og Ásgeir Böðvars-
son. Undirleikari er eins og áður
sagði Bjarni Þ. Jónatansson en hann
er jafnframt aðal þjálfari og leið-
beinandi kvartettsins. Bjarni starfar
sem píanóleikari og organisti í
Reykjavík og hefur starfað með
fjölda einsöngvara og kóra.
Dagskrá Listaklúbbsins fyrir jan-
úar og febrúar Iiggur nú frammi
víðsvegar um bæinn til upplýsingar
fyrir þá sem áhuga hafa. Einnig
er hægt að nálgast hana í miðasölu
Þjóðleikhússins.
Ragnar
Björnsson
leikur verk
eftir Bach
RAGNAR Björnsson leikur Das
Orgelbuchlein, - Litlu orgel-
bókina eftir J.S. Bach á orgel
Hvammstangakirkju á morgun
sunnudag kl. 14.
Litla orgelbókin er safn 48
sálmforleikja og nær yfir allt
kirkjuárið. Ragnar áætlar að
flytja þessa efnisskrá eftir rúma
Viku í Digraneskirkju á hið nýja
orgel þar og síðan í Kristskirkju
í Reykjavík, en hitar upp með
því að flytja forleikina fyrst á
æskuslóðunum.
Flutningur forleikjanna tek-
ur um tvo klukkutíma með
tveim hléum og mun Helgi Ól-
afsson organisti kirlq'unnar lesa
skýringar á forleikjunum á und-
an flutningi hvers eins.
Tónleikarnir eru á vegum
Hvammstangakirkju.
Sýning
' Hafdísar í
Gerðubergi
HAFDÍS Helgadóttir opnar
myndlistarsýningu í Menning-
armiðstöðinni Gerðubergi
sunnudaginn 15. janúar kl. 15.
í kynningu segir: „Eldsneyti
sýningarinnar er sótt í „strætó“
og ummyndað í skjálist og
blandaða tækni á pappír.
Hafdís stundaði nám í Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands
1988-1992 og Kunstakademiet
í Trondheim. Hún hefur verið í
framhaldsnámi í Bildkonstaka-
demin í Helsinki þar sem hún
er að ljúka mastersnámi.
Þetta er fyrsta einkasýning
Hafdísar en hún hefur áður tek-
ið þátt í samsýníngum.
Sýningin er opin frá kl. 10-21
mánudaga til fímmtudaga og
frá kl. 13-16 um helgar. Sýn-
ingunni lýkur 12. febrúar.
„Kokkteil-
veisla“ í
Slunkaríki
ÁSGEIR Þórðarson opnaði
sýningu 1 Slunkaríki á ísafírði
7. janúar síðastliðinn. Sýning-
in er innsetning og ber heitið
„Kokkteilveislan".
Þetta er fyrsta einkasýning
Ásgeirs sem stundar nám við
Framhaldsskóla Vestfjarða á
Isafirði. Sýningin er opin frá
kl. 16-18 frá fímmtudegi til
sunnudags og lýkur sunnu-
daginn 22. janúar.
Herman
í Norræna
húsinu
NORSKA kvikmyndin Herman
verður sýnd í Norræna húsinu
sunnudaginn 15. janúar kl. 14.
í kynningu segir: „Myndin
gerist árið 1961 þegar Zosso
er aðalhetjan í kvikmyndahús-
unum og klipping hjá rakaran-
um Tjukken kostar 3. krónur.
Herman er 11 ára gamall strák-
ur sem á mömmu sem vinnur
í búð og pabba sem keyrir vöru-
bíl. Dag einn breytist líf hans
skyndilega þvi hann veikist og
missir hárið. Krakkarnir í skól-
anum stríða honum en hann
lætur það ekki á sig fá því hún
Ruby með rauða hárið brosir
svo fallega til hans og það er
alveg nóg fyrir hann.“
Þessi kvikmynd er frá árinu
1990 og er gerð eftir sam-
nefndri sögu eftir Lars Saabye
Christiansen. Allir eru velkomn-
ir og aðgangur er ókeypis.
Ólafur Ólafsson
Vínartónleikar
KVARTETTINN Út í vorið ásamt undirleikara Bjarna Jónatanssyni.
Listaklúbbur Leikhúskiallarans
Hvað er Iist?
Þóra Einarsdótiir
Páll P. Pálsson