Morgunblaðið - 10.02.1995, Page 1

Morgunblaðið - 10.02.1995, Page 1
20 körfu- boltavellir í Kolaportinu KÖRFUBOLTAUNNENDUR geta nú fengið aðstöðu í Kolaportinu frá því á mánudögum og fram á fímmtudag og nýtist húsnæðið því þann tíma sem seljendur bjóða vör- ur sínar þar um helgar. Það er Körfuknattleikssamband íslands sem hefur húsnæðið á leigu og er opið frá klukkan fjögur og fram til klukkan ellefu á kvöldin. Þeir sem vilja geta fengið aðstoð hjá þjálfara sem er á svæðinu á meðan opið er. Hægt er að hafa um tuttugu veili á svæðinu og kostar hver völl- -ur 600 krónur á klukkustund. Körfuboltamót í næstu vlku Þann 14. og 15. febrúar næst- komandi verður haldið körfubolta- mót í Kolaportinu, tveir á tvo, en fram til þessa hafa mótin verið þrír á þtjá. Mótið, sem er öllum opið, verður aldursflokkaskipt, þátttak- Morgunblaðið/Þorkell ALDURSSKIPT körfubolta- mót verður í Kolaportinu 14. og 15. febrúar næstkomandi. endur verða frá 11-15 ára og siðan 16 ára og eldri. Væntanlega verður í Kolaportinu haldið skólamót í körfubolta þann 28. febrúar. ■ HEILDARGJALDEYRISTEKJUR af ferðaþjónustu árið 1994 voru 16.846 milljarðar króna en 14.928 milljarðar 1993. Aukning milli ára er því 12,8%. Þetta er samkvæmt upplýsingum sem Seðlabanki íslands birti í gær. Þar sést að tekjur af hverjum ferðamanni eru 93.985 krónur og hafa lækkað um 0,6%. í frétt Seðlabankans koma einnig fram heildartekjur í Bandaríkjadollur- um; 243,3 milljónir sem er aukning um 11,3%. Séu meðaltekjur af ferðamanni reiknaðar í dollurum hafa þær lækkað um 2%. Erlendum ferðamönnum hingað flölgaði á árinu 1994 um 13,5% eins og fram hefur komið í blaðinu. Hver erlendur gestur skildi því eftir um 540 krónum minna en árið 1993. Rétt er að benda á að í þessum tölum er einvörðungu gjaldeyrisskil til Seðla- bankans en alls konar aðrar tekjur, s.s. bensínsala þegar menn ferðast um á bílaleigubílum/eigin bílum, matar- kaup, afþreying o.fl. er ekki í þessum tölum. Magnús Oddsson, ferðamálastjóri, sagðist aðspurður telja að skýringin á því að tekjur hefðu lækkað lítillega á hvern ferðamann væri sú að eftir því sem meiri aukning væri á ferðamönnum utan háannatíma kæmu gestir hingað á ýmsum sértilboðum, hótelverð væri lægra og flugmiðar og því kæmi út eilítið lægra meðaltal. Samkvæmt skýrslum Alheimsferðar- áðsins eru meðaltalstekjur af hveijum erlendum gesti hér með því hæsta sem gerist í heiminum. ■ Hver ferðamaður skilar um 95 ðúsund krðnum - tt w Kvennameðferð og sérstök úrræði fyrir „berserki" MARGAR vímuefnasjúkar konur eiga maka sem neyta vímuefna með þeim og halda því áfram eftir að þær koma úr meðferð. FRÁ ÁRAMÓTUM hefur konum, sem eiga við vímuefnavandamál að stríða, verið boðin sérstök kvennameðferð á eftirmeðferðar- stöðinni Vík á Kjalamesi. Þórar- inn Tyrfingsson, yfírlæknir SÁÁ, segir starfsemina á tilraunastigi, en reynslan sýni að konur þurfí aðra meðferð en karlar. ■m „Undanfarin ár hefur SB hlutfall kvenna í vímuefna- JJj meðferð verið um 25%. Sl. tíu ár höfum við reynt að Z mæta þörfum þeirra með ae því að bjóða þeim sérstaka *SE hópfundi, tíma í eftirmeð- ^ ferð þar sem aðeins eru konur auk þess sem þær hafa stjórnað fundum til jafns við karla. Kvennameðferðin er eðli- legt framhald þessarar þróunar," segir Þórarinn. llm 80% kvennanna elga maka sem neyta vímuefna Eftirmeðferð hefst yfírleitt að lokinni tíu daga dvöl á Vogi. Þar taka læknar og ráðgjafar, í sam- ráði við sjúklinga, ákvörðun um hvers konar eftirmeðferð henti viðkomandi. Að sögn Þórarins hafa margar konur áhuga á kvennameðferðinni í Vík og nú eru 9 konur í slíkri meðferð. Þórarinn skipulagði og útfærði meðferðina og ráðgjafar SÁÁ, sem eru konur, framfylgja henni á hópfundum, í fyrirlestrum og ýmsum öðrum verkefnum. Kon- uraar eru 3 klst. á dag í 4 vikur í kvennameðferðinni en að öðru leyti eru þær í meðferð með körl- unum. „Vandamál kvenna í vímuefna- neyslu eru önnur en karla. Það er mikill munur á félagslegri stöðu þeirra, þær mæta meiri fordómum og fá minni stuðning frá mökum, sem í 80% tilvika hafa drukkið eða neytt annarra vímuefna með þeim og halda því áfram eftir að þær koma úr meðferð." n Berserkjameðferð" Þórarinn segir að stöðugt verði að þróa meðferðarúrræði í takt við kröfur tímans og af fenginni reynslu. Fyrir þremur árum hafí SÁÁ boðið nýtt úrræði fyrir al- varlega, vímuefnasjúka karla^ þá sem áttu ótal meðferðir að baki en höfðu engan hemil á fíkninni þegar út í samfélagið var komið. „Þetta er svokölluð „berserkja- meðferð", en eftir meðferð á Vogi og eftirmeðferð á Staðar- felli eiga karlamir kost á áfram- haldandi meðferð þar. Þeir mega fara í bæinn einu sinni í mánuði og gista á sambýli í Reykjavík frá þriðjudagsmorgni til fímmtu- dagskvölds.“ Þórarinn segir að „berserkjun- um“ sé beint smátt og smátt út í þjóðfélagið, kennt hvemig þeir geti sinnt sínum málum og haft ofan af fyrir sér án vímuefna. Aðspurður hvað sé til ráða hefji þeir notkun vímuefna að nýju, sagði Þórarinn, að svo framar- lega sem þeir láti vita af sér inn- an sólarhrings sé mögulegt að leggja þá inn á Vog og síðan geti þeir komið á göngudeild tvisvar í viku í ákveðinn tíma.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.