Morgunblaðið - 10.02.1995, Síða 1
20 körfu-
boltavellir
í Kolaportinu
KÖRFUBOLTAUNNENDUR geta
nú fengið aðstöðu í Kolaportinu frá
því á mánudögum og fram á
fímmtudag og nýtist húsnæðið því
þann tíma sem seljendur bjóða vör-
ur sínar þar um helgar.
Það er Körfuknattleikssamband
íslands sem hefur húsnæðið á leigu
og er opið frá klukkan fjögur og
fram til klukkan ellefu á kvöldin.
Þeir sem vilja geta fengið aðstoð
hjá þjálfara sem er á svæðinu á
meðan opið er.
Hægt er að hafa um tuttugu
veili á svæðinu og kostar hver völl-
-ur 600 krónur á klukkustund.
Körfuboltamót í næstu vlku
Þann 14. og 15. febrúar næst-
komandi verður haldið körfubolta-
mót í Kolaportinu, tveir á tvo, en
fram til þessa hafa mótin verið þrír
á þtjá. Mótið, sem er öllum opið,
verður aldursflokkaskipt, þátttak-
Morgunblaðið/Þorkell
ALDURSSKIPT körfubolta-
mót verður í Kolaportinu 14.
og 15. febrúar næstkomandi.
endur verða frá 11-15 ára og siðan
16 ára og eldri.
Væntanlega verður í Kolaportinu
haldið skólamót í körfubolta þann
28. febrúar. ■
HEILDARGJALDEYRISTEKJUR af
ferðaþjónustu árið 1994 voru 16.846
milljarðar króna en 14.928 milljarðar
1993. Aukning milli ára er því 12,8%.
Þetta er samkvæmt upplýsingum sem
Seðlabanki íslands birti í gær. Þar sést
að tekjur af hverjum ferðamanni eru
93.985 krónur og hafa lækkað um 0,6%.
í frétt Seðlabankans koma einnig
fram heildartekjur í Bandaríkjadollur-
um; 243,3 milljónir sem er aukning um
11,3%. Séu meðaltekjur af ferðamanni
reiknaðar í dollurum hafa þær lækkað
um 2%. Erlendum ferðamönnum hingað
flölgaði á árinu 1994 um 13,5% eins
og fram hefur komið í blaðinu. Hver
erlendur gestur skildi því eftir um 540
krónum minna en árið 1993.
Rétt er að benda á að í þessum tölum
er einvörðungu gjaldeyrisskil til Seðla-
bankans en alls konar aðrar tekjur,
s.s. bensínsala þegar menn ferðast um
á bílaleigubílum/eigin bílum, matar-
kaup, afþreying o.fl. er ekki í þessum
tölum.
Magnús Oddsson, ferðamálastjóri,
sagðist aðspurður telja að skýringin á
því að tekjur hefðu lækkað lítillega á
hvern ferðamann væri sú að eftir því
sem meiri aukning væri á ferðamönnum
utan háannatíma kæmu gestir hingað
á ýmsum sértilboðum, hótelverð væri
lægra og flugmiðar og því kæmi út
eilítið lægra meðaltal.
Samkvæmt skýrslum Alheimsferðar-
áðsins eru meðaltalstekjur af hveijum
erlendum gesti hér með því hæsta sem
gerist í heiminum. ■
Hver ferðamaður skilar
um 95 ðúsund krðnum
- tt
w
Kvennameðferð og
sérstök úrræði fyrir „berserki"
MARGAR vímuefnasjúkar konur eiga maka sem neyta vímuefna
með þeim og halda því áfram eftir að þær koma úr meðferð.
FRÁ ÁRAMÓTUM hefur konum,
sem eiga við vímuefnavandamál
að stríða, verið boðin sérstök
kvennameðferð á eftirmeðferðar-
stöðinni Vík á Kjalamesi. Þórar-
inn Tyrfingsson, yfírlæknir SÁÁ,
segir starfsemina á tilraunastigi,
en reynslan sýni að konur þurfí
aðra meðferð en karlar.
■m „Undanfarin ár hefur
SB hlutfall kvenna í vímuefna-
JJj meðferð verið um 25%. Sl.
tíu ár höfum við reynt að
Z mæta þörfum þeirra með
ae því að bjóða þeim sérstaka
*SE hópfundi, tíma í eftirmeð-
^ ferð þar sem aðeins eru
konur auk þess sem þær hafa
stjórnað fundum til jafns við
karla. Kvennameðferðin er eðli-
legt framhald þessarar þróunar,"
segir Þórarinn.
llm 80% kvennanna elga
maka sem neyta vímuefna
Eftirmeðferð hefst yfírleitt að
lokinni tíu daga dvöl á Vogi. Þar
taka læknar og ráðgjafar, í sam-
ráði við sjúklinga, ákvörðun um
hvers konar eftirmeðferð henti
viðkomandi. Að sögn Þórarins
hafa margar konur áhuga á
kvennameðferðinni í Vík og nú
eru 9 konur í slíkri meðferð.
Þórarinn skipulagði og útfærði
meðferðina og ráðgjafar SÁÁ,
sem eru konur, framfylgja henni
á hópfundum, í fyrirlestrum og
ýmsum öðrum verkefnum. Kon-
uraar eru 3 klst. á dag í 4 vikur
í kvennameðferðinni en að öðru
leyti eru þær í meðferð með körl-
unum.
„Vandamál kvenna í vímuefna-
neyslu eru önnur en karla. Það
er mikill munur á félagslegri stöðu
þeirra, þær mæta meiri fordómum
og fá minni stuðning frá mökum,
sem í 80% tilvika hafa drukkið
eða neytt annarra vímuefna með
þeim og halda því áfram eftir að
þær koma úr meðferð."
n Berserkjameðferð"
Þórarinn segir að stöðugt verði
að þróa meðferðarúrræði í takt
við kröfur tímans og af fenginni
reynslu. Fyrir þremur árum hafí
SÁÁ boðið nýtt úrræði fyrir al-
varlega, vímuefnasjúka karla^ þá
sem áttu ótal meðferðir að baki
en höfðu engan hemil á fíkninni
þegar út í samfélagið var komið.
„Þetta er svokölluð „berserkja-
meðferð", en eftir meðferð á
Vogi og eftirmeðferð á Staðar-
felli eiga karlamir kost á áfram-
haldandi meðferð þar. Þeir mega
fara í bæinn einu sinni í mánuði
og gista á sambýli í Reykjavík
frá þriðjudagsmorgni til fímmtu-
dagskvölds.“
Þórarinn segir að „berserkjun-
um“ sé beint smátt og smátt út
í þjóðfélagið, kennt hvemig þeir
geti sinnt sínum málum og haft
ofan af fyrir sér án vímuefna.
Aðspurður hvað sé til ráða hefji
þeir notkun vímuefna að nýju,
sagði Þórarinn, að svo framar-
lega sem þeir láti vita af sér inn-
an sólarhrings sé mögulegt að
leggja þá inn á Vog og síðan
geti þeir komið á göngudeild
tvisvar í viku í ákveðinn tíma.