Morgunblaðið - 21.03.1995, Síða 2

Morgunblaðið - 21.03.1995, Síða 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR Nær Þorbjörn þrennunni ? Úrslitaleikur í Evrópukeppni meistaraliða í Miinchen íslandsmeistari <Nj 1977 1978 1979 1980 Þorbjörn Jensson varþjálfari og leikmaður með Maimö IFK 1986-1988. Sigurvegari í 1. deild 1988. LEIKMAÐUR Að gera Valsmenn að íslandsmeisturum þrjú ár í röð? Eins og hann varð sjálfur sem leikmaður með Val. C: ■2 >•55 1989 1990 1991 1992 ÞJÁLFARi i i ~Éí | nt i ÍIS ÍIB cs ctl c^ 2 .co qS •2 •2 E e e e •2 ■S « ■2 2”” 1 OQ ca '•2 19 9 3 1994 — — o ■ cv. cr 2 2 •52 Q5 cu E s OJ C5 '■2 1995 ■ TALSVERT hefur verið rætt um körfuna sem Jón Kr. Gíslason gerði fyrir Keflvíkinga í fyrri leikn- um gegn Grindvíkingum á föstu- daginn og ekki var dæmd gild. ■ SÁ misskilningur hefur verið uppi að eftirlitsmaður leiksins, Pét- ur Hrafn Sigurðsson hafi úrskurð- að að leiktíminn hafí verið runninn út þegar Jón Kr. skaut. Starf eftir- litsmanns er að fylgjast með að allt sé í lagi á ritaraborðinu en ekki að segja dómurum fyrir verkum. Hann getur sagt dómara sitt álit, leiti dómari eftir því, en það er ávallt dómarinn sem verður að taka ákvörðunina. Kristinn Albertsson gerði það í þessu tilviki, en ekki eftirlitsmaðurinn. ■ BRYNJA Þorsteinsdóttir frá Akureyri varð í 42. sæti í svigi á heimsmeistaramóti unglinga í alpa- greinum, sem fór fram í Voss í Noregi um helgina. Bryi\ja var eini íslenski keppandinn. ■ GUÐJÓN Guðmundsson ís- landsmeistari í fimleikum tók þátt í Evrópubikarmóti í París um helgina og varð þar í 32. sæti en ÍMémR FOLK keppendur voru 58 talsins. Guðjón fékk 8,60 í einkunn fyrir gólfæfing- ar', 7,45 fyrir bogahest, 8,45 fyrir hringi, 8,70 fyrir stökk, 8,35 fyrir svifránna og 7,95 fyrir tvíslánna. ■ GUÐJÓN fer í dag til Moskvu þar sem hann mun dvelja við æfing- ar fram að Evrópubikarmóti sem þar fer fram innan skamms. ■ MICHAEL Jordan körfuknatt- leikssnillingurinn sem hóf að leika á nýjan léik með Chicago Bulls um helgina, hætti að leika með lið- inu fyrir 17 mánuðum. Þá hafði hann leitt Chieago til þriggja meistaratitla á jafn mörgum árum og sagði hann að hungrið væri horf- ið, hann hefði ekki að neinu að keppa lengur. Hann fór að æfa hafnabolta með Chicago White Sox komst ekki í aðalliðið og í vet- ur hefur verið verkfall og því engir leikir. Hungrið í að fá að spila var því farið að segja til sín hjá Jord- an, og hann sló til. ■ MIA Audina, 15 ára gömul bad- mintonkona frá Indónesíu, er kom- in í 8-manna úrslit á All-England mótinu sem nú stendur yfir í Birm- ingham. Hún sigraði Takako Ida frá Japan 10:12, 11:8 og 11:4 í 3. umferð í gær og er yngst kvenna til að komast svo langt í sögu keppninnar. ■ JOKO Suprianto, fyrrum heimsmeistari frá Indónesíu, féll óvænt úr keppni á AIl-England mótinu í 2. umferð. Hann tapaði fyrir Park Sung-woo frá Suður- Kóreu, 15:11 og 15:4. Suprianto var í þriðja sæti á styrkleikalita mótsins en hefur átt við bakmeiðsli að stríða sem tóku sig upp í leikn- um. Heryanto Arbi og Ardy Wir- anata frá Indónesíu, sem eru í fyrsta og öðru sæti á styrkleikalist- anum, komust nokkuð auðveldlega í þriðju umferð. ORTROÐ Enn einu sinni hefur fyrir- komulagið í handboltanum, og reyndar körfunni líka, sannað sig. Úrslitakeppni greinanna höfðar jafnt til virkra sem óvirkra þátttakenda. Leikmenn, þjálfarar og dómarar finna hver öðrum allt til foráttu og stuðn- ingsmenn sameinast gegn öllum sem fylgja ekki sama lit. Allir hafa ávallt rétt fyrir sér en þar sem íþróttir eru þess eðl- is að fylgja ber settum reglum verða sumir að sætta sig við að fá ekki öllu sínu framgengt. í hita leiksins er ýmislegt gert sem betur væri ógert, ýmislegt sagt sem betur væri ósagt. En þegar frá líður gleymast pústramir og stóryrðin, þvf þó enginn sé ann- ars bróðir í leik skilja sannir íþróttamenn sáttir að leikslokum. Þrátt fyrir þetta venjulega — útaf með dómarann, aðsúg að einstökum leikmönnum sem ann- aðhvort eru aðsópsmiklir eða brotlegir og hróp að þjálfurum sem halda ekki ró sinni og skipta sér af dómum — er ekki hægt annað en dást að áhorfendum. Til að eiga möguleika á að kom- ast inn f húsin verða þeir að mæta tímanlega, helst um það bil klukkutíma fyrir leik. Síðan fer um þá eins og sfld í fullri tunnu þar til vel eftir leik, enginn getur sig hrært nema þá í takt við næsta mann og þeir gera það snilldarlega. Eins og þeir hafi aldrei gert annað. Reyndar fengu einhveijir sting sem þeir réðu ekki við í átta liða úrslitunum í handboltanum og vildu heilsa dómurum, að sjóarasið eins og einhver kallaði það en menn virð- ast sjóast í þessu eins og öðru. Oft er það svo í boltanum að kappið hleypur með menn í gönur en leikmenn mega almennt eiga það að þeir reyna að læra af reynslunni. Jafnvel leikmenn, sem einhverra hluta vegna hafa fengið það orð á sig að vera gróf- ir, hafa tekið sig saman í andlit- inu. í síðustu handboltaleikjum hefur verið áberandi að mönnum hefur lent saman en eftir að hafa látið nokkur vel valin orð fjúka hafa þeir sæst og tekist i hend- ur. Það er framkoma sem ber að virða enda til eftirbreytni. Einhverjir þjálfarar létu í sér heyra í átta liða úrslitum en síðan hafa þeir róast. Þeir vita lfka sem er að það sem ekki gengur upp er ekki allt öðrum að kenna. A vissum tímapunkti, í átta liða úrslitum, eiga þjálfarar stundum erfitt með sig, einkum þeir sem falla úr keppni, en þegar lengra er komið taka menn gleði sína á ný. Brosa af mistökum. Úrslitakeppnin er við hæfi en sama verður ekki sagt um sjálfa deildarkeppnina og á það jafnt við um handboltann sem körfuna. Allan veturinn er hugurinn víðast hvar við lokaslaginn. Fyrir vikið er áhugaleysið alls ráðandi lengi vel á keppnistímabilinu og það hlýtur að vera áhyggjuefni hjá þeim sem málið varðar — breyt- inga er þörf ef vilji til að vertíðin standi undir nafni. Steinþór Guðbjartsson Úrslitakeppni höfdar til allra en deildar- keppni síður Hvað^rjslandsmeistamn EINARSIGURGEIRSSON aðfástyiðÍÞýskaiandi?' Tenniskappi á faraldsfæti EINAR Sigurgeirsson var fimm ára gamall þegar fjöl- skylda hans reif sig upp og flutti yfir hálfan hnöttinn til Ástraliu. Þarlend stjórnvöld vantaði vinnuafl í byrjun átt- unda áratugarins, buðu ókeypis flugfar og öruggt starf og fjöldi íslendinga flutti búferlum. Einar hóf að stunda tennis ytra en hann hefur orð- ið íslandsmeistari íþeirri grein sex síðustu ár og hyggst reyna fyrir sér á atvinnumóta- röðum íþeirri grein næsta haust. að er ekki skrýtið að Einar skuli tala íslenskuna með nokkrum hreim því á 28 ára langri ævi hans hefur hann lengst af verið með fasta búsetu erlendis. Hann bjó í Ástralíu til 23 ára aldurs, var næstu fimm árin í Alabama þar sem hann nam sálarfræði. Síðasti kaflinn í ferða- sögu hans hófst í Þýskalandi sl. haust en hann hefur leiðbeint og æft tennis hjá klúbbi í Karlsruhe frá því í haust. Einar var hér á landi um helgina og tók þátt í Meistaramóti TSÍ. Hvemig stóð á því að þú fórst að æfa tennis? „Ég reyndi fyrir mér í krikket og áströlskum fótbolta. Þegar ég var fimmtán ára byrjaði ég að spila tennis og fann að það var frábær íþrótt. Eftir sex mánuði var ég farinn að æfa á hveijum degi og veðrið er þannig í Perth að hægt er að æfa alla daga árs- ins utanhúss. Ég fluttist síðan til Sydney þar sem möguleikarnir eru enn meiri.“ Hvað með ísland. Vissurðu að ieikinn væri tennis þegar þú komst heim frá Ástralíu? „Já, tennis er vinsæl grein í Ástralíu þannig að ég gekk eigin- Iega að því sem vísu. Það kom mér svo mikið á óvart hvernig aðstæðurnar voru og ég átti erfitt með að trúa því. Ég man eftir því að fyrsta árið æfði ég á bílastæði í Laugardalnum. Mikið hefur breyst síðan þá, sérstaklega á fimm, sex síðustu árum og að- stæðumar eru allt aðrar í dag.“ Þú hefur ekki í hyggju að flytja til fslands? „Ég kom oft hingað á sumrin og um jól. Núna get ég ekki verið hérna ef ég ætla að stefna að at- vinnumennsku. Þá mundi ég detta niður, ég gæti ekki æft nóg og lítið spilað á mótum gegn sterkari spilurum. Vonandi verður það samt hægt í framtíðinni og það munar mikið um það héma að hafa þjálfara sem jafnframt em góðir spilarar." Eftir Frosta Eiðsson Morgunblaðið/Frosti EINAR Sigurgeirsson, íslandsmeistari í tennls býr nú í Karlsruhe í Þýskalandi, þar sem hann kennlr og »flr tennls. Af hverju Þýskaland? í Bandaríkjunum og vildi komast „Ég var búinn að vera fímm ár á stað þar sem ég gæti æft mikið og jafnframt fengið laun fyrir að þjálfa. Þýskaland er frábær staður upp á það að gera. Tennis er stærsta íþróttin á eftir fótboltan- um. Áhuginn er mjög mikill í Bad- en. Það er sama ríki og Boris Becker og Steffi Graf fæddust í. Það er frábært að geta sameinað þetta tvennt og kaupið er ágætt í Þýskalandi." Hefurðu keppt við einhverja sterka spilara? „Jú, ég æfi með fólki, unglingum sem efnilegir em og ofarlega á tennislistanum og líka spilurum sem náð hafa sér í ATP stig og réttindi til að keppa á atvinnu- mótaröðunum." Hvaða eiginleika þarf góður tennisspilari að hafa? Tennis er mikil sálfræði og menn þurfa að trúa á sjálfan sig mjög vel. Menn tapa oft, 32 kepp- endur skrá sig í rnót og 31 þeirra tapar og menn mega ekki láta töpin draga sig niður heldur að fá áhuga til að æfa betur. Svo er margt sem þarf að læra og það tekur langan tíma að tileikna sér margt. Góðir spilarar þurfa að vera rólegir en jafnframt að geta æst sig upp eins og þegar menn byija að finna fyrir þreytu.“ Hefur þú þessa eiginleika? „Ég hef alltaf trúað því að ef ég æfi nóg og held áfram að beij- ast þá muni ganga vel. Ég byijaði seint að æfa og tapaði þar af leið- andi oft fyrstu árin. Það tók stund- um á taugamar en ég lærði þá lexíu að tapa án þess að vera að svekkja mig á því. Sumir efnilegir spilarar eiga frá unga aldri erfitt með að sætta sig við töp þegar út í atvinnumótin er komið og gefast upp.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.